Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 36

Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 36
23FIMMTUDAGUR 16. september 2004 Er dýrt að reka strætisvagnana? Nú styttist í að nýtt leiðakerfi Strætó verði tekið upp. Nokkuð hefur verið um það fjallað og hefur m.a. komið fram að bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu séu ósáttir við aukinn rekstrarkostnað upp á 170-180 milljónir til viðbótar við það sem kerfið kostar nú. Bæjar- stjórinn í Kópavogi hefur látið hafa eftir sér að hugmyndir um aukna nýtingu á strætisvögnunum séu ef til vill ekki raunhæfar, enda sé bílainnflutningur mikill og engar vísbendingar sem bendi til þess að almenningur sé tilbúinn til að breyta sínum venjum. Jafnframt hefur hann sagt að samgöngubæt- ur sem þurfi að gera á höfuðborg- arsvæðinu miðað við það hvernig umferðin vaxi á næstu árum muni kosta tugi milljarða. Þessi framtíð- arsýn bæjarstjórans er býsna svört og vekur upp spurningar um hvort og þá hvernig sveitarfélögin geti stuðlað að því að þróunin verði önnur og hugnanlegri. Þeim fjölgar stöðugt sem þurfa að komast leiðar sinnar eftir götun- um og æ oftar sitja vegfarendur fastir í umferðarteppu því gatna- kerfið ræður ekki við umferðina. Umferð einkabíla á höfuðborgar- svæðinu stefnir í óefni og við henni þurfa ríki og sveitarfélög sífellt að bregðast með kostnaðarsömum og jafnvel umdeildum aðgerðum. En hve lengi er hægt að breikka götur? Hve mikið er hægt að stækka gatnamót? Er skynsemi í því að búa til gatnakerfi neðanjarðar eins og hugmyndir eru um? Sveitarfélögin verða að skoða vandlega alla kosti sem mögulegir eru og efldar al- menningssamgöngur og áhersla á breyttar ferðavenjur almennings hljóta að koma mjög til álita. Ferðavenjur fólks breytast varla af sjálfu sér. Verði ekkert að gert mun þróunin eflaust verða eins og bæjarstjórinn í Kópavogi sér fyrir sér. Mörg erlend dæmi eru um það að stjórnir bæja og borga beiti sér af krafti fyrir breyttum ferðavenjum fólks með ýmiss konar takmörkunum á um- ferð einkabíla, öflugum og ódýrum almenningssamgöngum og greið- um hjólreiðaleiðum svo eitthvað sé nefnt. Hér hefur gott net göngu- stíga átt sinn þátt í því að þeim fjölgar sem kjósa að hjóla í vinn- una. Sveitarfélögin geta svo sann- arlega stýrt því með ýmsum leið- um hvernig fólk ferðast innan höf- uðborgarsvæðisins og það er hægt að ýta undir breytta hegðun fólks í þeim efnum. Mörg rök hníga að því að afar brýnt sé að gera það. Það dregur úr umferð og minnkar þörf á óhemjudýrum og plássfrekum framkvæmdum í gatnakerfinu, mengun verður minni og þar með gróðurhúsaáhrif, heimilin, sveitar- félögin og ríkið spara, eignatjón í umferðinni verða minni sem og slys á fólki svo eitthvað sé nefnt. Um leið og nýtt leiðakerfi er tekið í notkun þurfa sveitarfélögin að reka áróður fyrir almennings- samgöngum og sýna fram á t.d. beinharðan sparnað heimilanna með því að nota strætó. Það þarf að huga sérstaklega að þeim sem lík- legastir eru til að nota strætó mest s.s. unglingum og ungmennum í eldri bekkjum grunnskólanna og framhaldsskólanna. Gott leiða- kerfi og ódýrari fargjöld munu leiða til þess að fleiri þeirra noti strætó og skilji kostnaðarsaman bílinn eftir heima. Það myndi draga verulega úr umferðarþung- anum. Mjög ódýrt eða jafnvel ókeypis í strætó fyrir börn og ung- linga er kostur sem þarf að athuga þannig að foreldrar dragi úr enda- lausum akstri með börn sín allra erinda sem þau þurfa að fara. Sveitarfélögin geta stuðlað að aukinni notkun strætó með mark- vissri fræðslu til þessa aldurshóps í skólunum. Að þetta sé álitlegur kostur til þess að koma sér í skól- ann. Takist vel til má breyta við- horfum til almenningssamgangna, því auðvitað skilar það sér inn á heimilin ef börn og unglingar nota strætó og finnst það bara gott og fínt. Kannski fara foreldrarnir þá að nota strætó líka til að koma sér í og úr vinnu og fjölskyldan getur svo notað peningana sem sparast í annað. Auðvitað er ekki viðunandi fyrir sveitarfélögin að auka fjárútlát til almenningssamgangna án þess að notkunin aukist verulega frá því sem nú er. En það er ekki hægt að horfa einangrað á þá kostnaðar- aukningu sem nýtt leiðakerfi Strætó hefur í för með sér heldur þarf að skoða hvað felst í þeim kostnaði, hvort þjónustan verði betri og notkunin meiri. Endurbætt leiðakerfi Strætó getur verið mikil- vægt skref í því að breyta ferða- venjum almennings á höfuðborgar- svæðinu og að draga úr umferð einkabíla. Gerist það er líklegt að ekki verði sama þörf á gatnafram- kvæmdum og bílastæðum. Loft- og hljóðmengun verður minni og því minni þörf á dýrum mótvægisað- gerðum. Sparnaður kæmi einnig fram hjá heimilunum og ríkinu og því má segja að ef að vel takist til geti gott leiðakerfi Strætó verið þjóðhagslega hagkvæmt. Höfundur situr í bæjarstjórn Kópavogs fyrir Samfylkinguna. BRÉF TIL BLAÐSINS DIPLÓMANÁM Í VERSLUNARSTJÓRNUN Við þökkum fyr ir starfsmenntaverðlaunin 2004 fyr ir Norðurpóllinn getur ekki bráðnað Þorvaldur Örn Árnason skrifar: Í fréttaviðtali sem Óli Kristján Ármanns- son átti við menn úr starfshópi á vegum utanríkisráðuneytisins um nýjar siglinga- leiðir kemur ítrekað fram alvarlegur mis- skilningur sem vert væri að blaðið leið- rétti. Þar er haft eftir Gunnari Pálssyni sendiherra og formanni starfshópsins: „Sumir vísindamenn telja að svo geti far- ið að Norðurpóllinn sjálfur verði horfinn á innan við 100 árum“. Nokkrum línum neðar segir svo: „Gunnar segir að verði af bráðnun pólsins blasi við að öllu flutn- ingakerfi og samgöngum á sjó í heimin- um verði gerbylt.“ Hér kemur fram misskilningur á því hvað norðurpóllinn eða öðru nafni norður- skautið er. Norðurpóllinn getur nefnlega ekki bráðnað. Þó allur hafís í Norður-Ís- hafinu bráðni verður norðurpóllinn áfram á sínum stað. Hann er nefnilega snúningsás jarðar og svo lengi sem jörð- in heldur áfram að snúast um sjálfa sig (og það verður að líkindum býsna lengi) verður norðurpóllinn áfram á sínum stað. Heimskautin eru merkilegir staðir. Þar er sólarhæð nánast sú sama allan sólar- hringinn og segja má að þar sé dagur hálft árið og nótt hinn helminginn. Þetta er eitt af því sem ég reyni sem náttúru- fræðikennari í grunnskóla að kenna ungu kynslóðinni svo hún fari ekki með álíka rugl í fjölmiðla þegar hún kemst til vits og ára. Orð í tíma töluð Steinunn Eyjólfsdóttir rithöfundur skrifar: Mig langar til að biðja Fréttablaðið að koma á framfæri þakklæti til Áslaugar Jónsdóttur bókagerðarkonu fyrir grein hennar um íslenska þjóðbúninginn í blaðinu á mánudaginn. Þetta voru orð í tíma töluð. Það er ekki hægt að horfa einangrað á þá kostnaðaraukningu sem nýtt leiðakerfi Strætó hefur í för með sér heldur þarf að skoða hvað felst í þeim kostnaði, hvort þjónustan verði betri og notkunin meiri. HAFSTEINN KARLSSON BÆJARFULLTRÚI UMRÆÐAN ALMENNINGS- SAMGÖNGUR ,, NÝTT LEIÐAKERFI STRÆTÓ Sveitarfélögin þurfa að huga sérstaklega að þeim sem lík- legastir eru til að nota strætó mest, s.s. unglingum og ungmennum í eldri bekkjum grunnskólanna og framhaldsskólanna, segir greinarhöfundur. 22-35 (22-23) Umræðan 15.9.2004 16:27 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.