Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 41

Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 41
Í dag verður rokkarinn ástsæli Pétur W. Kristjánsson lagður til hinstu hvílu en hann lést langt fyrir aldur fram, 52 ára að aldri, 3. september. Banamein þessa sí- unga rokkara sem setti áberandi svip á íslenskt tónlistarlíf á átt- unda áratug síðustu aldar var al- varlegt hjartaáfall en hann lá meðvitundarlaus milli heims og helju í rúma viku áður en hann lést. Íslenska rokkið holdi klætt Pétur kom víða við á löngum og litskrúðugum ferli. Hann starfaði með mörgum nafntoguðustu hljómsveitum blómatíma stór- hljómsveitarokksins en hann hóf ferilinn með Pops árið 1966 og varð að „öðrum ólöstuðum tákn íslenska rokksins á 8. áratugn- um“, eins og Gunnar Hjálmars- son orðar það í bók sinni Eru ekki allir í stuði. Björgvin Gíslason starfaði lengi með Pétri meðal annars í Pops, Náttúru og Pelikan. „Þegar maður hugsar til baka þá furðar maður sig á dugnaðinum í Pétri. Hann var ofboðslega duglegur og rak þessi bönd meira og minna og var alltaf á þönum að auglýsa þau, fór endalaust á blöðin og tók allan þennan pakka. Hann var mikill orkubolti. Kannski full bjartsýnn á köflum en maður fer nú langt á bjartsýninni. Björgvin spilaði um skeið með Pops á hinum margrómuðu nýárs- böllum sveitarinnar sem voru stíluð inn á 68-kynslóðina. „Það var ekki mikið mál að ná upp stuði því um leið og þetta lið heyr- ir gömlu lögin fer allt í gang.“ Pétur er þekktur fyrir að hafa alla tíð átt í basli með að muna textana en Björgvin segir að hann hafi aldrei verið í vandræðum með að snúa sig út úr því. „Hann var alltaf með textablöðin með sér og rýndi í þau og hefur sjálf- sagt bullað eitthvað á köflum. Hann var kominn með lesgler- augu undir það síðasta. Kominn smá stíll á hann en hann var þó ekki mikið fyrir að nota þau.“ Björvin segir þó að aldurinn og gleraugun hafi ekki dregið nið- ur í rokkaranum í Pétri sem var trúr tónlistinni og stílnum þar til yfir lauk. „Hann var líka fyrst og fremst trúr sjálfum sér og breytt- ist bara ekki neitt öll þessi ár. Hann var bara Pétur Wigelund og það var bara fínt.“ Stælóttir unglingar á miðjum aldri „Við vorum miklir og góðir vinir og unnum mjög náið saman síð- ustu 10 árin,“ segir Jón Ólafsson bassaleikari sem hefur brallað ýmislegt með Pétri í gegnum tíð- ina, en hann hefur spilað manna lengst með Pétri. Þegar Pétur og Jón voru unglingar voru þeir báð- ir bassaleikarar og söngvarar. „Ég var í Sonet og Pétur í Pops en við byrjuðum að vinna saman í Pelikan eftir að hann lagði bass- ann til hliðar. Ég fékk svo inn- göngu í Pops þegar ég var fertug- ur.“ Jón segir að það hafi alltaf ver- ið sérstök tilfinning að koma sam- an einu sinni á ári á nýársböllum Pops. „Það var alltaf rosaleg til- hlökkun að hittast, allir félagarn- ir. Þá breyttust menn í unglinga með tilheyrandi stælum og húmor. Mikið hlegið og rosalega gaman.“ Jón segir að Pétur hafi verið með allra skemmtilegustu mönn- um og það hafi aldrei verið logn- molla í kringum hann. „Hann var mikill húmoristi og var nánast með sitt eigið tungumál á köflum, með alls konar orðaleiki og hljóð sem fáir kunnu. Ég var búinn að læra þetta allt hjá honum. Var toppnemandi og hann sagði að ég væri búinn að ná þessu svo vel að ég gæti jafnvel gert þetta betur en hann.“ Pétur var kvæntur Önnu Lind Skúladóttur og áttu þau tvö börn, Írisi Wigelund og Kristján Karl, sem bæði eru liðlega tvítug. Þá var kjörsonur Péturs og Önnu, Gunnar Eggert Gunnarsson sem er 15 ára. Foreldrar Péturs eru tónlistar- maðurinn Kristján Kristjánsson, sem gerði garðinn frægan með KK-sextettinum, og Erla Wig- elund, en saman reka þau hjónin Verðlistann við Laugalæk. Pétur átti tvær systur, Þorbjörgu og Sigrúnu Júlíu. Pétur verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag klukkan 15. 28 16. september 2004 FIMMTUDAGUR LAUREN BACALL 1924 Þessi eðalleikkona og ekkja töffarans Humphreys Bogart er 80 ára í dag. ANDLÁT Inga Eyfjörð Sigurðardóttir, Ægisgötu 38, Vogum, lést 8. september. Gunnar H. Sigurðsson, Hjallalandi 7, lést 13. september. Sigurbjörg Jóhannsdóttir (Stella), Álf- hólsvegi 129, lést 11. september. JARÐARFARIR 13.30 Þórarinn Þórarinsson, Mánabraut 9, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.30 Haukur Smári Guðmundsson, Móasíðu 7e, Akureyri, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju. 13.30 Laufey Ólafsdóttir, Skriðustekk 1, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. 14.00 Jóna Guðmunda Jónsdóttir, Blika- hólum 4, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 15.00 Pétur W. Kristjánsson tónlistar- maður verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. 15.00 Guðni Frímann Ingimundarson, Hólmgarði 64, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. AFMÆLI Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður er 64 ára. Arthur Björgvin Bollason heimspeking- ur er 54 ára. Jón Ársæll Þórðarson sjónvarpsmaður er 54 ára. Hrannar Björn Arnarsson, markaðs- stjóri Eddu, er 37 ára. Atli Rafn Sigurðarson leikari er 32 ára. Lífið gekk sinn vanagang í Wall Street fjármálahverfinu í New York á þess- um degi árið 1920 þar til laust fyrir hádegi þegar hestvagn hlaðinn sprengiefnum sprakk á förnum vegi þar sem fólk hafði safnast saman itl að borða hádegismat. Eldtungur flæddu um fjármálahverfið og þegar upp var staðið kom í ljós að 300 manns höfðu týnt lífi í sprengingunni. Rúður í nærliggjandi húsum splundruðust og brak þeyttist langar leiðir og varð vegfarendum að fjör- tjóni. Aðeins einn frægur peninga- maður særðist í ósköpunum en það var Junius Spencer, barnabarn sjálfs J.P. Morgan. Spencer slapp þó með skrekkinn og skurð á annarri hend- inni. Þar sem kröftug mótmæli og bar- smíðar voru móðins á þessum árum beindist strax grunur að kommúnist- um, anarkistum og vinstrisinnum sem gætu verið líklegir til þess að freist- ast til þess að mótmæla kapítalisman- um með þessum hætti. Aðrir töldu lík- legra að vagninn hefði einfaldlega verið að flytja sprengiefni og hafi verið kominn af réttri leið þegar hann sprakk. Rannsóknin á atvikinu sem fylgdi í kjölfarið skilaði engum árangri og þrátt fyrir allar kenningarnar hefur aldrei verið upplýst hvað bjó að baki sprengingunni. ■ ÞETTA GERÐIST SPRENGJA SPRAKK Í FJÁRMÁLAHVERFINU WALL STREET 16. september 1920 Sprenging í fjármálahverfi Trúr sjálfum sér og rokkinu PÉTUR W. KRISTJÁNSSON: ROKKARINN ÁSTSÆLI LAGÐUR TIL HINSTU HVÍLU „Kona er ekki fullkomnuð án karlmanns. En hvar finnur maður mann – alvöru karlmann – nú á dögum?“ – Afmælisbarn dagsins man tímana tvenna í ástarmálum og veit því ósköp vel að sannir karlmenn eru í útrýmingarhættu PÉTUR W. KRISTJÁNSSON Varð goð- sögn í lifanda lífi í íslensku tónlistarlífi enda litríkur persónuleiki og alltaf í stuði. timamot@frettabladid.is Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir og amma, Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir (Inga) Lyngbrekku 1, Kópavogi lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi mánudagsins 13. september. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Kr. Ragnarsson, Ásta Salný Sigurðardóttir, Viðar Snær Sigurðsson, Sonja Erna Sigurðardóttir, Tómas Guðmundsson, Jónína Salný Stefánsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Garðar Ásbjörnsson, Ragnar Runólfsson, Gertrud Jóhansen og barnabörn. MERKISATBURÐIR [ 16. september ] 1998 Leikkonan Meryl Streep fékk stjörnu á Hollywood Walk of Fame gangstéttinni. 1991 Alríkisdómari í Washington felldi niður ákærur á hendur Oliver North vegna Íran-Kontra málsins. 1987 Fulltrúar 24 þjóðríkja skrifuðu undir Montreal samkomulagið sem fól í sér átak til bjargar óson- laginu umhverfis jörðina með því að draga úr notkun skaðlegra efna árið 2000. 1953 Spennumyndin The Robe, eftir Al- fred Hitchcock, var frumsýnd í Roxy kvikmyndahúsinu í New York. 1908 General Motors bílaverksmiðjurn- ar voru stofnaðar. Fyrirtækið varð til við samruna Buick- og Oldsmobile-verksmiðjanna. WALL STREET 40-41 (28-29) Tímamót 15.9.2004 20:44 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.