Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 42
!
"
!
#
$
% &'
(
"
)*
)
)
(
#$ %&
' FIMMTUDAGUR 16. september 2004
ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra opnaði í dag nýtt og notendavænna vefsvæði
Múlalundar, vinnustofu SÍBS, á slóðinni www.mulalundur.is. Múlalundur er elsta og stærs-
ta öryrkjavinnustofa landsins og sérhæfir sig í framleiðslu plast- og pappavara fyrir skrif-
stofur, ásamt fylgihlutum. Á nýja vefsvæðinu er endurbætt viðmót vefverslunar Múlalund-
ar sem mun auðvelda samskipti við viðskiptavini.
KARL V. MATTHÍASSON Finnur mikla hlýju og samkennd á æðruleysismessunum og
segir þær hollt og gott, andlegt veganesti inn í nýja viku en þær verða haldnar eitt sunnu-
dagskvöld í mánuði fram á vor.
Guð gefi mér
æðruleysi…
ÆÐRULEYSISBÆNIN
Guð, gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt. Kjark til að breyta því sem ég
get breytt og vit til að greina þar á milli.
Fyrsta æðruleysismessan á þessu
haustmisseri verður í Dómkirkj-
unni klukkan 20 að kvöldi sunnu-
dags en messurnar verða síðan
framvegis einu sinni í mánuði,
næstsíðasta sunnudag hvers mán-
aðar fram í maí á næsta ári.
„Þetta eru jákvæðar messur
eins og messur eru yfirleitt og
eiga að vera,“ segir Karl V. Matth-
íasson, prestur áfengis- og fíkni-
efnamála, um æðruleysismess-
urnar. „Það kemur fram mikið
þakklæti í þessum messum en
þær eru mikið sóttar af fólki sem
hefur sætt ýmsu andstreymi í líf-
inu og gengið vel að takast á við
það. Það ríkir því mikill samhugur
og gleði í messunum.“
Prestarnir Anna Sigríður Páls-
dóttir, Jakob Ágúst Hjálmarsson
verða við messuna ásamt Karli og
Bryndísi Valbjarnardóttur guð-
fræðingi. Þá munu séra Hjálmar
Jónsson og Jóna Hrönn Bolladótt-
ir koma að messunum í vetur.
Bræðrabandið annast tónlistar-
flutning í messunni ásamt Ruth
Reginalds en Bræðrabandið er
skipað þeim Herði Bragasyni og
Birgi Bragasyni sem njóta krafta
Hjörleifs Valssonar fiðluleikara.
„Það hefur verið boðið upp á
þessar messur í ein sex ár,“ segir
Karl, „og þær hafa yfirleitt verið
mjög vel sóttar. Það skapar líka
ákveðna stemningu að þetta er á
kvöldin og fólk gengur oft út í
kvöldkyrrðina að messu lokinni.
Það er að byrja nýja viku og geng-
ur andlega mett til hvílu sinnar.“
Karl segir að fólk úr AA-sam-
tökunum eða Al-anon sé fengið til
að deila reynslu sinni með messu-
gestum og vitaskuld hafi margir
messugesta glímt við áfengis-
vandann, ýmist sem neytendur
eða aðstandendur. „Það eru allir
velkomnir á æðruleysismessurn-
ar og ég hef orðið var við að fólk
sem mætir á ættingja eða vini
sem eru að glíma við ýmiskonar
veikindi.“
Æðruleysisbænin er eitt hels-
ta haldreipi alkóhólista í bata en
hún á þó ekki síður vel við í öllu
öðru daglegu amstri. „Þú getur
ímyndað þér mann sem á krabba-
meinsveikt barn. Hvað getur
hann annað gert en að fara með
æðruleysisbænina. Hún kemur
svo mikið inn á að við séum ekki
að reyna að stjórna öllum heimin-
um. Við biðjum Guð að gefa okk-
ur æðruleysi til að sætta okkur
við það sem við fáum ekki breytt
og kjark til að breyta því sem við
getum breytt.“ ■
40-41 (28-29) Tímamót 15.9.2004 20:45 Page 3