Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 43

Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 43
FÓTBOLTI Stjörnuprýtt lið Real Madrid fékk skell í heimsókn sinni til Leverkusen í gær þegar Bayer Leverkusen vann sann- færandi 3–0 sigur á spænska stór- liðinu í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Þrátt fyrir þennan óvæn- ta stórsigur voru það fréttirnir frá höfuðborg Ítalíu sem fengu mestu athyglina, fréttir af leik þar sem seinni hálfleikur fór aldrei af stað. Það var bara spilaður fyrri hálfleikur í Róm þegar Dynamo Kiev kom í heimsókn. Dynamo Kiev var bæði marki og manni yfir þegar sænski dómarinn Anders Frisk flautaði til hálfleiks en á leiðinni í búningsklefa var hent í hann aðskotahlut úr stúkun- ni og í framhaldinu ákvað hann alblóðugur að halda leik ekki áfram. Frisk hafði nokkrum sekúndum áður rekið varnarmann Roma, Philippe Mexes, útaf með rautt spjald. Ítalska liðið mun eflaust lenda í miklum van- dræðum í kjölfar þessa. „Dómarinn ákvað að hætta leiknum ekki bara vegna þess að hann var alvarlega meiddur held- ur einnig af því að hann óttaðist um öryggi sitt og starfsfélaga sinna,“ sagði fulltrúi UEFA. Real Madrid-menn voru yfir- spilaðir af þýska liðinu og það bættist síðan við slæman dag að Zinedine Zidane fór úr axlarlið og verður frá í það minnsta 3 vikur. Djibril Cissé og Milan Baros sem kom inn á fyrir Cissé skoruðu mörk Liverpool í 2–0 sigri liðsins á silfurliði Meistaradeildarinnar síðan í fyrravetur, franska liðinu Mónakó. „Við hefðum átt að skora fleiri mörk en þetta var góður leikur hjá okkur,“ sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool eftir leik. „Það var gott fyrir liðið að sóknarmen- nirnri skoruðu en betra að liðið hélt hreinu í leiknum.“ Ruud Van Nistelrooy skoraði tvö mörk fyrir Manchester United á fimm mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks sem tryg- gðu liðinu jafntefli á útivelli gegn franska liðinu Lyon sem komst 2-0 yfir fyrir hlé. Van Nistelrooy hefur nú skorað 30 Evrópumörk fyrir Mancester United. United var heppið að sleppa með stig og Paul Scholes varði sem dæmi á marklínu í báðum hálfleikjum. Alex Ferguson þakkaði hollen- ska markaskorara sínum. „Mörk breyta leikjum og Nistelrooy breytti leiknum frir okkur. Hann er frábær og það er ekki hægt að hrósa honum nógu mikið fyrir það sem hann gerði fyrir okkur í kvöld ekki síst vegna þess að þetta er aðeins annar leikur hans í fjóra mánuði,“ sagði Sir Alex. Þeir Pavel Nedved (Juventus), Pierre van Hooijdonk (Fernerbahce) og Roy Makaay (Bayern München) hafa oft gert útslagið í leik sinna liða og þeir skoruðu allir sigurmörk sinna liða í 1–0 sigri í gær. ooj@frettabladid.is 30 16. september 2004 FIMMTUDAGUR Við mælum með ... ... að íslenskir knattspyrnuáhugamenn mæti í kvöld í Laugardalinn og styðji við bak FH- inga sem eru stutt frá því að brjóta blað í íslenskri knattspyrnusögu og komast inn í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn sem er klukkan 20.30 í kvöld er fyrsti Evrópuleikurinn á Íslandi í september í heil þrjú ár og FH-liðið á svo sannarlega skilið að fá góðan stuðning en liðið kemur til með að spila eintóma úrslitaleiki á næstu vikum. „Þetta var fullkomin frammistaða. Mér fannst hver einasti leikmaður standa sig stórkostlega í þessum leik.“ Jose Mourinho, stjóri Chelsea , eftir 3–0 sigur liðsins á franska liðinu PSG í fyrsta leik liðsins í Meistaradeildinni í vetursport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 13 14 15 16 17 18 19 Fimmtudagur SEPTEMBER FRISK ALBLÓÐUGUR Leik Roma og Dynamo Kiev var hætt í gær í kjölfar þess að stuðningsmenn ítalska liðsins hentu aðskotahlut í sænska dómarann á leið í búnings- klefa. Frisk hafði skömmu áður rekið einn leikmanna Roma útaf með rautt spjald. LITHÁINN SKEINUHÆTTUR Litháinn Tomas Eitutis reynir hér skot í 27-25 sigri HK-liðsins á heimavelli Íslandsmeistaranna í gær. Fréttablaðið/Stefán Leverkusen lék sér að Real Spænska stórliðið tapaði 3–0 í Þýskalandi, Manchester United náði bara stigi í Frakklandi en á Ítalíu var leik hætt í hálfleik í Róm eftir að áhorfandi henti hlut í enni dómara leiksins. ■ ■ LEIKIR  19.00 Keflavík og Haukar mætast í Njarðvík á Reykjanesmóti karla í körfubolta.  19.15 KR og Ármann/Þróttur mætast í DHL-Höllinni á Reykjavíkurmóti karla í körfubolta.  20.30 FH og Alemannia Aachen mætast í Evróukeppni félagsliða á Laugardalsvelli.  21.00 Njarðvík og Grindavík mætast í Njarðvík á Reykjanesmóti karla í körfubolta.  21.00 Valur og Fjölnir mætast á Hlíðarenda á Reykjavíkurmóti karla í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.40 Meistaramörk á Sýn.  19.00 Inside the US PGA TOUR á Sýn. Vikulegur fréttaþáttur þar sem fjallað er um bandarísku mótaröðina í golfi.  19.30 European PGA Tour á Sýn.  20.20 Evrópukeppni félagsliða á Sýn. Bein útsending frá fyrri leik FH og TSV Alemannia Aachen í 1. umferð.  22.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  23.45 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Evrópuboltinn frá ýmsum hliðum. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Kanadamenn unnuFinna í gærkvöld í úrslitum Heimsbik- arsins í ísknattleik. Kanadíska liðið vann alla 6 leiki sína á mótinu. Það er alltaf gaman að vinna titla,“ sagði Mario Lemieux, fyrirliði Kanadamanna. „Stanley-bikarinn er það sem við keppumst um að vinna á ári hverju og þegar við ólumst upp þá dreymdi okkur alltaf um að lyfta honum. En að vinna Heimsbikarinn er frábært afrek, ekki bara hjá leikmönnum heldur líka þjálfurunum“. Mark Hughes var ígær ráðinn framkvæmdast jór i enska úrvalsdeildar- liðsins Blackburn Rovers en hann tekur við starfi Graeme Souness sem sagði því lausu þegar honum bauðst starf framkvæmdastjóra Newcastle. Fyrsti leikur Mark Hughes verður gegn Portsmouth en hann verður einnig áfram landsliðsþjálfari Wales. Straumur erlendra leikmanna í kvennakörfuna: KR-konur með Kana KÖRFUBOLTI Katie Wolfe mun snúa aftur og leika áfram með kvennaliði KR í körfubolta en þetta kemur fram á heimasíðu körfuknatt- leiksdeildar KR. Það er því ljóst að bæðu sterk- ustu lið síðustu ára, Keflavík og KR, munu tefla fram bandarísk- um atvinnumanni frá fyrsta leik en þessi fé- lög hafa unnið sjö síð- ustu Íslandsmeist- aratitla. Katie lék eins og áður sagði einnig með KR á síðasta ári og var þá valin besti erlendi leikmaður- inn í 1. deild kvenna á lokahófi KKÍ í vor. Fyrrverandi landsliðs- konurnar Hanna Kjartansdóttir, Helga Þorvaldsdóttir og þjálfari meistaraflokks kvenna, Gréta María Grétarsdóttir, hafa tekið fram skónna á nýjan leik en auk þeirra hafa tveir leikmenn geng- ið til liðs við KR frá ÍR, en það eru þær Hrefna Dögg Gunnarsdóttir og Eva María Grétarsdóttir, systir Grétu sem áður hefur leik- ið með KR. Fjórir leikmenn sem léku á síðasta tímabili verða ekki með liðinu í vetur. Eins og áður hafði verið greint frá mun besti leikmaður tveggja síð- ustu tímabila, Hildur Sig- urðardóttir, leika í Sví- þjóð. Þrjár stúlkur verða hins vegar frá vegna barneignarleyfa, Anna Svandís Gísladóttir, Guðrún Arna Sigurðardóttir og Tinna Björk Sigmundsdóttir. ■ Efsta deild karla í handbolta í gærkvöldi: HK vann Hauka á Ásvöllum HANDBOLTI HK-liðið í handbolta sýndi að spá fyrirliða, forráða- manna og þjálfara var ekki út í bláinn með því að vinna góðan sigur á Íslandsmeisturum Hauka á þeirra eigin heimavelli. HK vann leikinn 27-25 eftir að hafa haft 3 mörk yfir í hálfleik, 14–11. HK-menn komust sjö mörkum yfir um miðjan seinni hálfleik, 24–17, og eftir það var á brattann að sækja fyrir Haukaliðið. Elías Már Halldórsson var atkvæðamestur í Kópavogsliðinu í leiknum með níu mörk, Valdimar Þórsson skoraði 6 mörk í sínum fyrsta leik og Jón Heiðar Gunnarsson skoraði 4. Bjögvin Páll Gústavsson átti þó bestan leik í HK-liðinu en hann varði alls sautján skot, mörg þeirra í upphafi seinni hálfleiks þegar HK-menn lögðu grunninn að sigri sínum. Andri Stefan skoraði mest fyrir Hauka eða níu mörk og Vignir Savarsson bætti við fimm mörkum. Andri var illviðráðan- legur í fyrri hálfleik en skoraði aðeins 2 mörk í seinni hálfleik. Haukarnir náðu að minnka muninn í eitt mark undir lokin en HK-ingar héldu haus og kláruðu leikinn. Haukarnir hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu en þeir komust væntanlega niður á jörðina með þessu tapi og þjálfarinn Páll Ólafsson var ekki sáttur með gang mála í leikslok. ■ KOMIN AFTUR Katie Wolfe mun spila með KR líkt og hún gerði svo vel í fyrravetur. [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] MEISTARADEILD EVRÓPU A-RIÐILL Liverpool–Mónakó 2–0 1–0 Cissé (22.), 2–0 Baros (84.). Deportivo–Olympiakos 0–0 B-RIÐILL Roma–Dynamo Kiev (0–1) 0–1 Gavrancic (29.). Leik hætt í hálfleik. Bayer Leverkusen–Real Madrid 3–0 1–0 Kryznówek (39.), 2–0 Franca (50.), 3–0 Berbatov (55.) C-RIÐILL Ajax–Juventus 0–1 0–1 Nedved (42.) Maccabi Tel Aviv–Bayern München 0–1 0–1 Makaay (64., víti) D-RIÐILL Lyon–Manchester United 2–2 1–0 Cris (35.), 2–0 Frau (45.), 2–1 Van Nistelrooy (56.), 2–2 Van Nistelrooy (61.) Fenerbahce–Sparta Prag 1–0 1–0 Van Hooijdonk (16.) 42-43 (30-31) Sport 15.9.2004 22:15 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.