Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 50
FIMMTUDAGUR 16. september 2004
Listamenn:
Andrea Gylfa
Margrét Eir
Linda Ásgeirs
Valur Freyr
Jónsi
Hjálmar Hjálmars
auk hljómsveitar
Stjórnandi:
Valgeir
Guðjónsson
söngkabarett
Ekki missa af þessu
einstaka tækifæri!
Miðasalan opin alla daga til kl. 18:oo
Nánari upplýsingar í síma 533-1100
og á www.broadway.is
ÁRA
SÖN
GAF
MÆ
LI50
RAGGI
BJARNA
verða afmælistónleikar í
tilefni af 70 ára afmæli
Ragga Bjarna og 50 ára
söngafmæli.
Glæsilegt kvöld, þar sem
gleði og fjörug skemmtun
í anda Ragga Bjarna
ræður ríkjum.
Glæsilegur þriggja rétta
matseðill.
Aðgangseyrir á
söngskemmtun 2.500
en kr. 5.900 með mat.
LAUGARDAGINN
25.SEPTEMBER
Gestir Ragnars
eru m.a.
Guðrún Gunnarsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Bogomil Font
Borgardætur
Félagar úr fóstbræðrum
Bjarni Arason
Páll Óskar Hjálmtýsson
Borgardætur
Silja Ragnarsdóttir
Milljónamæringarnir
Hljómsveit undir stjórn
Þóris Baldurssonar
Hljómsveit undir
stjórn Árna Scheving
Sumargleðin
Þorgeir Ástvaldsson
Hermann Gunnarsson
Ómar Ragnarsson
Magnús Ólafsson
Tríó Björns Thoroddsen
Haukur Heiðar
LAUGARDAGINN
2 5 . SEPTEMBER
St
af
ræ
na
h
ug
m
yn
da
sm
ið
ja
n
/ 5
05
5
■ HANDVERKSSÝNING
■ ■ LEIKLIST
Hinn útvaldi, nýtt íslenskt barnaleik-
rit eftir Gunnar Helgason, verður
frumsýnt í Loftkastalanum.
■ ■ LISTOPNANIR
20.00 Örvar Árdal opnar sýningu á
verkum sínum í Vesturporti.
■ ■ SKEMMTANIR
DJ Áki Pain á Pravda.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Johannes de Jong flytur op-
inn fyrirlestur um kristilegan
grundvöll stjórnmálaflokka í Nor-
ræna húsinu.
20.00 ITC samtökin standa fyrir
fræðslukvöldi á Hótel Örk í Hvera-
gerði fyrir þá er starfa í stjórnum
og nefndum félaga. Fyrirlestrar
verða m.a. um störf formanns fé-
laga, varaformanns, ritara, gjald-
kera og einnig um nefndarstörf.
hvar@frettabladid.is
„Í allri þessari hnattvæðingu þarf
að geta skírskotað í sjálfan sig.
Menn leitast meira eftir því að að-
greina sig núna heldur en þeir
gerðu áður, og þar er handverkið
orðið sá þáttur sem margir horfa
til,“ segir Reynir Adolfsson,
skipuleggjandi Vestnorrænu
handverkssýningarinnar sem
opnuð verður í Laugardalshöllinni
í dag.
„Vestnorden Arts and Crafts“
nefnist handverkssýningin, sem
er sú stærsta og viðamesta sem
haldin hefur verið hér á landi.
Þátttakendur eru hátt á annað
hundrað og koma frá Íslandi, Fær-
eyjum, Grænlandi, Norðurlöndun-
um, Kanada og baltnesku löndun-
um.
„Þessi sýning hefur sprottið
upp í kringum samstarf við Græn-
lendinga og Færeyinga,“ segir
Reynir, sem hefur borið hitann og
þungann af að setja sýninguna
upp hér á landi.
„Við byrjuðum á því fyrir
nokkrum árum að kanna samstarf
á menningarsvæðinu. Í framhaldi
af því fórum við að setja upp
handverksýningar. Árið 2002 tók-
um við síðan skref í að fá til sam-
starfs við okkur hinar Norður-
landaþjóðirnar og Balkanlöndin
núna. Þetta er í annað skiptið núna
sem alþjóðleg sýning er haldin
hér.“
Flestir þátttakendurnir eru frá
Íslandi, samtals 38. Héðan kemur
hefðbundinn útskurður, prjóna-
vörur, vefnaður og þjóðbúningar
ásamt textílvörum, fatnaði, gler-
munum og skartgripum.
Handverk inúíta kemur frá
Grænlandi og norðurhluta
Kanada, þar á meðal ýmsar vörur
úr loðskinnum og selskinni, föt úr
moskusull, skartgripir úr silfri,
kopar, gulli, hreindýrshorni og ná-
hvalstönn, útskornir munir úr
steini og tré, keramik, skreyting-
ar úr elgshári, trommur og þrykk.
Samar sýna skó og fatnað úr
hreindýraskinni, útsaumaðar
körfur og hanska, hirslur úr birki
og hreindýrshornum og töskur úr
skinni, viði og horni.
Frá Suðureyjum eru fulltrúar
frá Orkneyjum og Hjaltlandseyj-
um, og er þá aðeins fátt eitt talið
af því sem sjá má á þessari fjöl-
breyttu og viðamiklu sýningu.
Sýningin verður opin kl. 16.00 -
19.00 fimmtudag fyrir almenning
og frá kl. 10.00 - 18.00 föstudag,
laugardag og sunnudag. ■
Hreindýrshorn og náhvalstönn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
SÝNA HANDVERK FRÁ NORÐURSLÓÐUM Reynir Adolfsson ásamt tveimur grænlenskum þátttakendum í handverkssýningunni sem
hefst í Laugardalshöllinni í dag.
Sir John Bourn, ríkisendurskoðandi
Bretlands og gestaprófessor við
London School of Economics, mun
flytja fyrirlestur um opinbera stjórn-
un og stjórnsýsluumbætur í Bret-
landi á Grand Hótel. Húsið opnar
klukkan 8.00 en dagskráin hefst hálf-
tíma síðar. Mörg nýmæli hafa verið
þróuð í opinberri stjórnsýslu Bret-
lands og mun Sir Bourn fjalla um og
meta þá reynslu sem Bretar hafa.
Hann mun meðal annars fjalla um
hvað vönduð opinber stjórnun merk-
ir, hvaða aðferðum breskar stofnanir
beita í stefnumótum, markmiðssetn-
ingu og mati á árangri og hvernig
ábyrgð stofnana og stjórnenda í
Bretlandi er tryggð. Loks mun Sir
Bourn fjalla um þau umbótamál sem
eru efst á baugi í Bretlandi um þess-
ar mundir, einkum í heilbrigðis- og
menntakerfi landsins. Að loknum
fyrirlestri mun gefast tími til fyrir-
spurna og umræðna.
Að málþinginu standa Félag for-
stöðumanna ríkisstofnanna, Ríkis-
endurskoðun og Stofnun stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála við Háskóla Ís-
lands. Málþingið fer fram á ensku, er
opið öllu áhugafólki um stjórnsýslu
meðan rými leyfir og er aðgangur
ókeypis. Málþingsstjóri verður Páll
Skúlason háskólarektor. ■
Stjórnun og
stjórnsýslu-
umbætur
■ FYRIRLESTUR
48-49 (36-37) Slanga 15.9.2004 21:15 Page 3