Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 52
Það er best að segja það strax að þeir sem vilja skotbardaga, bíla- eltingarleiki og tæknibrellur í bíó er ekki ráðlagt að sjá Before Sun- set, nema þá að viðkomandi séu reiðubúnir að leggja allar sínar væntingar sem þeir hafa haft til kvikmynda til hliðar, og opna hug sinn fyrir allt öðruvísi kvik- myndalist en þeirri sem hæfir best poppi og kóki. Það er ólíklegt að slíkt gerist í stórum stíl. Ég var einn í bíó. Before Sunset fjallar um bandaríska rithöfundinn Jesse og frönsku stúlkuna Celine og er framhald myndarinnar Before Sunrise eftir sama leikstjóra. Í þeirri mynd hittust Jesse og Celine í lest í sunnanverðri Evr- ópu og tókust með þeim ákaflega rómantísk skyndikynni. Í Before Sunset eru liðin níu ár frá þeim kynnum og Jesse hefur skrifað skáldsögu sem byggir á reynsl- unni. Í upphafi myndarinnar svarar hann spurningum um bókina eftir upplestur í bókabúð í París, þar sem myndin gerist, og er skemmst frá því að segja að í einu horninu á meðal áheyr- enda sinna sér Jesse Celine. Honum bregður. Hún hefur breyst. Hann tekur hana tali og þau fara á kaffihús. Hann hefur tæpa tvo tíma þangað til hann á að taka flugið aftur til Banda- ríkjanna. Myndin gerist í rauntíma. Byrjar í bókabúðinni. Þau ganga um borgina. Þau daðra. Rifja upp. Setjast niður. Gantast. Reykja. Fara í siglingu. Fara á trúnó. Fara undan í flæmingi. Tala í gátum. Reyna að halda haus. Ástin, og aðrar eldheitar tilfinningar – von- brigði, biturleiki, ótti og angist – kraumar undir niðri. Hvert ein- asta skref er myndað. Það er eng- in tónlist, engin förðun og ef þetta er ekki dogma eins og það gerist best þá veit ég ekki hvað. Lars von Trier? Niðurstaða: Þó svo að mynd um tvær heimspekilega sinnaðar manneskjur að daðra í París í rauntíma hljómi óneitan- lega dálítið tilgerðarlegt, þá tekst leikstjóranum að búa til ótrúlega góða mynd fyrir þá sem hafa áhuga á manneskjunni í allri sinni dýpt, tilraunakenndri kvikmynda- list og afspyrnugóðum leik. Snilld. Guðmundur Steingrímsson 39FIMMTUDAGUR 16. september 2004 [ MYNDBÖND ] VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 TOPP 20 - VIKA 36 TWISTED SPENNA KILL BILL VOL. 2 SPENNA PASSION OF THE CHRIST, THE DRAMA COLD MOUNTAIN DRAMA 50 FIRST DATES GAMAN SCHOOL OF ROCK GAMAN PAYCHECK SPENNA GOTHIKA SPENNA ALONG CAME POLLY GAMAN RUNAWAY JURY SPENNA OUT OF TIME SPENNA HAUNTED MANSION, THE GAMAN WIN A DATE WITH TAD HAMILTON GAMAN TOUCHING THE VOID DRAMA WHOLE TEN YARDS GAMAN SEABISCUIT DRAMA LOONEY TUNES: BACK IN ACTION GAMAN SOMETHING¥S GOTTA GIVE GAMAN BJÖRN BRÓÐIR GAMAN LOST IN TRANSLATION DRAMA Það veit enginn hver er hvað, a.m.k í fyrstu í myndinni Twisted. Íslendingar eru þó sammála um að ná í þessa á næstu myndbandaleigu. SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is FRÁBÆR SKEMMTUN „Myndir á borð við þessar segja meira en þúsund orð.“ HHHH - H.J. Mbl. HHH - S.K. Skonrokk HHH - Ó.H.T. Rás 2 MADDIT 2 SÝND UM HELGARGRETTIR SÝND KL. 6 M/ ÍSL. TALI YFIR 28000 GESTIR Frábær rómantísk gamanmynd Ein besta ástarsaga allra tíma SÝND kl. 5.40, 8 og 10.15 SÝND kl. 6, 8 og 10.20 B.I. 12 „Drepfyndin.“ HHHH ÓÖH, DV SÝND kl. 6, 8 & 10 SÝND kl. 5.50 og 10 SÝND kl. 6 SÝND kl. 8 & 10.20 Frá leikstjóra Dude Where Is My Dude kemur steiktasta grínmynd ársins. Hollenskir bíódagar 10-16. sept. Passionfruit sýnd kl. 10 Other Final sýnd kl. 10.30 Character sýnd kl. 5.45 Ajax sýnd kl. 8 Twin Sisters sýnd kl. 10 Polish sýnd kl. 8 SÝND kl. 6 M/ÍSLENSKU TALI SÝND kl. 5.30 og 8 Sjóðheit og sexí gaman- mynd um strák sem fórnar öllu fyrir drau- madísina Stór skemtileg nútíma saga úr Reykjavík sem tekur á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með húmorinn að vopni. Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfs- dóttur í titilh- lutverkinu. "Hún er hreint frábært." JHH kvikmyndir.com HHH1/2 SÝND kl. 8 og 10.15 FORSÝND KL. 10 ÓDÝRAR GÆÐA ÞAK- SKRÚFUR Ál Ryðfríar Galvaniseraðar Heitgalvaniseraðar Söðulskinnur í úrvali Stórhöfða 33 Sími: 577 4100 Fáðu flott munnstykki Daðrað í rauntíma í París BEFORE SUNSET LEIKSTJÓRI: RICHARD LINKLATER LEIKARAR: ETHAN HAWKE, JULIE DELPY BANDARÍKIN 2004. [ KVIKMYND ] UMFJÖLLUN ■ TÓNLIST Lögreglan í austurhluta Indlands handtók fyrir skömmu mann sem skar tungu konu sinnar af þar sem honum þótti hún röfla full mikið. Enadul Mullick dró konuna sína Halima á hárinu inn í eld- húsið þar sem hann notaði hníf úr hnífasetti til að höggva tung- una af. Halima var flutt í snatri á nærliggjandi sjúkrahús. Ástand hennar er eftir atvikum en ekki er vitað hvort læknar hafi náð að sauma tunguna aftur á. Eiginmaðurinn, fertugur mat- vöruverslunareigandi, sagðist við yfirheyrslur vera orðinn leið- ur á röfli eiginkonu sinnar. „Hjónabandið var ekki upp á sitt besta hjá þeim,“ sagði tals- maður lögreglunnar. „Eiginmað- urinn hefur viðurkennt brot sitt.“ ■ TUNGAN SKAL BURT Indverskur eiginmaður varð leiður á kvörtunum eiginkonunnar og notaði miður skemmtilega aðferð til að þagga niður í henni. ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Hjó tungu eiginkonunnar af Á dögunum kom út DVD-útgáfa af nýjustu plötu Bjarkar, Medúllu. Þar er meðal annars að finna heim- ildarmyndina „The Inner Or Deep Part of an Animal or Plant Struct- ure,“ sem er orðabókaskýring á hugtakinu Medulla. Á íslensku myndi það útleggjast sem „innri eða dýpri hluti af dýri eða plöntu“. Myndin var tekin upp á einu ári og voru tökustaðir heldur óvenju- legir, þ.e. Feneyjar, New York, Reykjavík, Kanaríeyjar, El Salvador og Brasilía. Leikstjóri var Ragnheiður Gestsdóttir, sem hafði áður gert heimildarmynd um gerð síðustu plötu Bjarkar, Vespertine. Fylgdi hún Björk eftir eins og skugginn við gerð plötunnar. Í viðtali á heimasíðu Bjarkar segist Ragnheiður hafa lært mikið á að vinna með Björk síðastliðin þrjú ár. Vill hún tvímælalaust halda áfram að vinna með henni enda kemur þeim ákaflega vel saman. Við gerð heimildarmynd- arinnar segist Ragnheiður, eða Ragga eins og hún er kölluð, hafa séð mest eftir því að hafa ekki náð að mynda samstarfið á milli Bjarkar og Roberts Wyatt, fyrr- um trommuleikara bresku sveit- arinnar The Soft Machine, í laginu Submarine. Annars gekk allt eins og í sögu og hlakkar hún mikið til að vinna áfram með Björk í fram- tíðinni. ■ Heimildarmynd um Medúllu BJÖRK Heimildarmynd um gerð plötunnar Medúllu er að finna á DVD-disknum „The Inn- er Or Deep Part Of An Animal Or Plant Structure.“ 50-51 (38-39) Bíó 15.9.2004 20:29 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.