Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 55
42 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
Sjónvarpsþátturinn 70 mínútur
verður tekinn af dagskrá Popptíví
þann 20. desember en þá verður eitt
þúsundasti þátturinn sýndur. Það
þýðir að einungis 68 þættir eru eft-
ir af þessum vinsælasta sjónvarps-
þætti ungu kynslóðarinnar.
„Það var sameiginleg ákvörðun
að hætta með þáttinn. Við höfum
verið með mikla endurnýjun og
strákarnir vildu reyna fyrir sér
annars staðar. Þetta hefur gerst
áður, samanber Simma og Jóa í Idol-
inu,“ sagði Steinn Kári Ragnarsson,
dagskrárgerðarstjóri Popptíví, í
samtali við Fréttablaðið í gær.
70 mínútur hafa verið langvin-
sælasti dagskrárliður Popptíví en
samkvæmt síðustu Gallup-könnun
var 8,8% uppsafnað áhorf á þátt-
inn. Næsti dagskrárliður á eftir
var The Joe Schmo Show, með
4,4% uppsafnað áhorf.
„Við gerðum samning út árið
og hann er að renna út þannig að
við vildum skoða okkar mögu-
leika,“ sagði Auðunn Blöndal, einn
þremenninganna. Hann vildi þó
ekki gefa upp hvað þeir félagar
hyggjast gera þegar 70 mínútur
renna sitt skeið. Þremenningarnir
stefna þó að því að reyna að vinna
saman þegar þar að kemur. „Þátt-
urinn er búinn að vera í loftinu í
fjögur ár samfleytt. Okkur og
stjórnendum Popptívi fannst
kominn tími á breytingar. Það er
engin fýla í gangi eða neitt svo-
leiðis,“ sagði Auðunn.
Strákarnir í 70 mínútum hafa
ekki setið auðum höndum síðustu
mánuði. Auk þess að stýra sjón-
varpsþættinum léku þeir í nýrri
Svínasúpu og hafa tekið upp lag í
samvinnu við hljómsveitina Quar-
ashi. Innan skamms munu þeir
svo gera myndband við lagið, sem
ber nafnið Crazy Bastard, en Sam-
úel Bjarki Pétursson mun leik-
stýra því. Handritið er í vinnslu
en lagið verður ekki frumflutt
fyrr en myndbandið er tilbúið. ■
Fáðu flott
munnstykki
í dag
Einar Oddur
Vill niðurskurð í
nýja ráðuneyti
Davíðs
Svanhildi úthýst úr
Kastljósi og fryst
við skrifborð
Natalía tekin á
náttfötunum
með bíllyklana
Nýr íslenskur gamanþáttur, Hafnar-
fjarðarlöggan, verður frumsýndur á
Stöð 2 föstudaginn 24. september.
Leikstjóri er Hallur Helgason og
með aðalhlutverk fara Steinn Ár-
mann Magnússon, Björk Jakobsdótt-
ir, Jón Páll Þorbergsson, Bergþór
Pálsson og Nanna Gunnarsdóttir.
Að sögn Halls Helgasonar er um
prufuþátt að ræða sem var tekinn
upp á síðasta ári og því óvíst hvort
fleiri slíkir verði framleiddir. Fer
það aðallega eftir viðbrögðum al-
mennings. „Steinn Ármann leikur
Einar, aðalvarðstjórann í Hafnar-
firði, sem á í basli með sitt einkalíf,“
segir Hallur. Hann segir að verk-
efnið hafi verið hugsað sem gaman-
þáttaröð í „sitcom“-stíl en ekki
svokölluðum „sketsastíl“ þar sem
hvert atriði segi eina sögu. „Grínið í
þættinum sprettur meira upp úr að-
stæðum heldur en stökum bröndur-
um,“ bætir Hallur við. „Það hefði
verið skemmtilegra að framleiða
fleiri þætti og gefa áhorfendum
tækifæri til að kynnast persónunum
betur. En það verður bara að koma í
ljós hvort af því verður.“ ■
Það hefur orðið að föstum lið hjáhluta þjóðarinnar að stilla á Rás 1 á
laugardagsmorgnum til að hlusta á út-
varpsþáttinn Í vikulokin. Nú í sumar
hefur Hildur Helga Sigurðardóttir verið
umsjónarmaður hans og fengið til sín
ýmsa áhugaverða gesti. Nú á laugardag-
inn mun þó verða breyting á. Þorfinnur
Ómarsson er hættur störfum hjá Stöð 2
og tekur því aftur við stjórnartaumnum
á þessum vikulega þætti, líkt og hann
gerði áður en Hildur Helga tók við nú í
sumar.
Egill Helgason mun svo birtast áskjánum í hádeginu á sunnudag á
Stöð 2 með sinn gamalkunna þátt Silf-
ur Egils. Ekki er vitað um margar breyt-
ingar sem verða á þættinum en heyrst
hefur þó hvíslað að eitthvað sé verið að
fikta í settinu og Egill muni því birtast í
nýju umhverfi. Hans þáttur verður því
kominn eitthvað á veg
áður en Sunnudags-
þátturinn á Skjá ein-
um hefst en líklegt
verður að teljast að
þar verði barist um
áhorfendurna
með því að
sýna þættina á
sama tíma.
UPPÁTÆKI Strákarnir í 70 mínútum hafa
reynt ýmis uppátæki. Þar á meðal lét einn
þeirra handboltalandsliðið rassskella sig.
HAFNARFJARÐARLÖGGUR Löggurnar í Hafnarfirði lenda í hinum ýmsu ævintýrum í
gamanþættinum Hafnarfjarðarlöggan.
SJÓNVARP
GAMANÞÁTTURINN
HAFNARFJARÐARLÖGGAN
■ Frumsýndur á Stöð 2 á næstunni.
Hafnarfjarðarlöggan á skjáinn
70 MÍNÚTUR Þremenningarnir í 70 mínútum ætla að segja skilið við Popptíví og reyna fyrir sér annars staðar.
SJÓNVARP
70 MÍNÚTUR HÆTTA
■ Aðeins 68 þættir eftir.
FRÉTTIR AF FÓLKI
AÐ MÍNU SKAPI
BERGLIND JÓNA HLYNSDÓTTIR, MYNDLISTARNEMI Í LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS
TÓNLISTIN
Það áhugaverðasta sem ég hef heyrt upp á
síðkastið er verk sem við höfum fengið að
heyra í kúrs um rafræna tónlist í skólanum.
Þar má nefna lög sem John Cage samdi
fyrir balletta hjá sambýlismanni sínum
Merce Cunningham og með „prepared
piano“. Hann festi skeiðar og alls kyns
glingur á strengi píanósins þannig að það
hjómar eins og undarleg slagverksveit.
BÓKIN
Ég er að lesa bók sem nefnist „Rock the
Boat“. Hún leitast við að endurskilgreina
hugmyndina um hið staðbundna á gagn-
rýninn og uppbyggilegan hátt hvað varðar
siðfræði og nútíma myndlist.
BÍÓMYNDIN
Sá nokkrar góðar myndir á indie-kvik-
myndahátíðinni; þar á meðal „Super Size
Me“ og „Saved“. Sá einnig „Goodbye Lenin“
og varð glöð.
BORGIN
Í augnablikinu er það London vegna þess
að í höfði mínu lifir minning um frábæra
ferð fyrr á árinu þar sem við fórum nokkrir
skólafélagar í myndlistarmaraþon. Sögðum
við vegabréfsskoðun: „We are looking for
myndlist and hoping to find some nice
people in London that could point us to it.“
Þá var okkur sagt að ekkert næs fólk byggi
í London. Annars dreymir mig um New
York, Sao Paulo og Berlín.
BÚÐIN
Mér finnst allt of lítil fjölbreytni á íslenskum
fatamarkaði. Vil sjá meira af fötum eftir
unga íslenska hönnuði og minna af fjölda-
framleiddu persónulausu drasli. Lakkrís-
búðin er að gera góða hluti, eins Spútnik,
Glamúr, Kron og 38 þrep. Held að uppá-
haldsbúðin mín hér á landi sé samt Fríða
Frænka.
VERKEFNIÐ
Er núna að binda enda á verkefni sem heit-
ir „Speglun samfélagsins í sjónmenningu“
ásamt Bjarka Bragasyni og Maríu Kristínu
Jónsdóttur. Við fengum styrk frá Nýsköpun-
arsjóði námsmanna til þess að vinna verk-
efnið. Reynum að bregða ljósi á möguleika
sjónmenningar sem tjáningarform.
Dreymir um New York og Sao Paulo
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Óvenjumargir féllu á inntöku-
prófum.
Jón Sveinsson.
Hann fékk höfuðhögg.
70 mínútur hætta á Popptíví
54-55 (42-43) Fólk 15.9.2004 20:41 Page 2