Tíminn - 14.10.1973, Side 1

Tíminn - 14.10.1973, Side 1
fóðurvörur ÞEKKTAR UM LAND ALLT WQTEL ÍOFTLBÐ/fí] SUNDLAUGIN er eitt af mörgu, sem ,,Hótel Loftleiðir" hefur til sins ágœtis og umfram önnur hótel hérlendis. En það býður líka afnot af gufubaðstof u auk snyrti-, hárgreiðslu- og rakarastofu. VíSIÐ VINUM Á HOTEL LOFTLEIOIR. Þeir ræðast við á morgun Eins og kunnugt er munu þeir Ólafur Jóhannes- son, forsætisráðherra íslands, og Edward Heath, forsætisráðherra Bretlands, ræðast við i Lundúnum á morgun mánudag. ólafur Jóhannesson heldur utan i dag. Með honum i förinni verða þeir Hannes Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar, og Hans G. And- ersen, þjóðréttarfræðingur. Þeir eru væntanlegir heim aftur á þriðjudaginn. — tk mm Kdward Ueath. Kjaramála- ráðstefnan áfram Klp—Reykjavík. — A morgun, mánudaginn 15. október, mega ökumenn löguin samkvæmt setja nagladekkin aftur undir bílinn. Eins og mönnum er eflaust i fersku minni var sett reglugerð s.l. vor um notkun nagladekkja. Segir þar m.a. að bannað sé að nota nagladekk á timabilinu 1. mai til 15. október ár hvert. Á morgun lykur þvi þessu timabili og er rétt að menn fari að huga að nagladekkjunum sinum aftur og reyna að koma þeim undir. Búast má við að mikið öng- þveiti verði við öll hjólbarða- verkstæði þegar fyrsta hálkan kemur, þvi það er venjan hér meðal flestra að fara ekki að huga að dekkjabúnaði v.etrarins fyrr en þá. Oft vill þá verða svo, að menn gefast upp að biðaog aka heim á rennsléttum sumardekkj- unum með nagladekkin i skottinu og hafa þá jafnvel lent i hörðum árekstrum og ekkert tjón fengið bætt, þar sem þeir hafa ekki verið með löglegan búnað við akstur i háku og snjó. Til að þetta dæmi kæmi ekki fyrir óku sumir á nagladekkjun- um allt árið en fyrir það var loku skotið með reglugerðinni i vor. Einhverji létu sig samt hafa það að aka þannig langt fram eftir sumri, og gerðu ekkert i málun- um fyrr en lögreglan tók þá tali og sektaði þá. Munu nokkrir menn hafa verið sektaðir fyrir þetta og hart verið gengið eftir sektargreiðslunni. Við höfðum i gær samband við nokkur hjólbarðaverkstæði, og var okkur sagt þar, að þau væru tilbúin að taka við flóðinu, sem Framhald á bls. 12 í gær KJARAMALARAÐSTEFNU Alþýðusambands fslands, sem átti að ljúka i fyrrakvöld, var fram haldið i gær. Ráðstefnan hófst á föstudags- morgun kl. 10 að Hótel Loftleið- um, og átti að reyna að ljúka henni þá um kvöldið. Það var hins vegar ekki hægt vegna mikilla umræðna, og hófst hún þvi að nýju kl. 13.30 i gær. Á föstudaginn afgreiddi ráð- stefnan tillögur i húsnæðismálum og skattamálum, en önnur atriði væntanlegra kjarasamninga voru rædd i gær. Nagladekkinaftur sett undir bílinn Rógskrif Alþýðublaðsins 1 ALÞÝÐUBLAÐINU i gær er þvi haldið fram, að fram- kvæmdastjóri Timans hafi lagt falsað bókhald fyrir blað- stjórn Timans, og hafi blað- stjórnin skipað sérstaka rann- sóknanefnd til að rannsaka bókhaldið. Af þessu tilefni hefur Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra, formaður blaðstjórnar Timans, beðið blaðið fyrir eftirfarandi yfirlýsingu: ,,Að gef.nu tilefni vil ég lýsa þvi yfir, að það er tilhæfulaust með öllu, að „blaðstjórn Tim- ans hafi faliö ákveðnum hópi manna með Helga Bergs bankastjóra i broddi fylking- ar, að yfirfara allar fjárreiður Timans, þar sem fram þykir hafa komið, að rekstur blaðs- ins hafi gengið til muna verr, en fram kemur af reiknings- yfirlitþsem blaðstjórninni var afhent fyrir nokkrum vikum”, eins og sagt er i Alþýðublaðinu i gær. Sérstök undirnefnd bláð- stjórnar hefur á undanförnum árum starfað til aðstoðar framkvæmdastjóra. 1 nefnd- inni voru upphaflega Helgi Bergs, Kristinn Finnbogason og Friðgeir Björnsson. Þegar Kristinn Finnbogason var ráð- inn framkvæmdastjóri i stað Kristjáns Benediktssonar siðla á siðasta ári, vék Krist- inn Finnbogason úr nefndinni, og i stað hans var kjörinn Steingrimur Hermannsson. 1 þessum efnum hefur þvi engin breyting á orðið siðan Kristinn Finnbogason tók við fram- kvæmdastjórn Timans. Ólafur Jóhannesson.” Yfirlýsing frá Kristni Finnbogasyni, framkvæmda- stjóra Tímans: „Þrátt fyrir það, að ég hafi ásett mcr að svara ekki nafn- lausum rógskrifum i Alþýðu- hlaðinu og fleiri biöðum, þá finnst mér aðdróttun sú um fölsun á bókhaldi Timans, er birtist. i Alþýðublaðinu i gær, svo alvarlcgs eðlis, að ég get ekki annað en stefnt for- ráöamönnum Alþýðublaðsins til ábyrgðar. Mun ég krefjast þess, að þessi ummæli veröi dæmd dauð og ómerk fyrir rétti, komi ekki við fyrsta tækifæri tilhlýðileg afsökun og leiðrétting á Alþýðublaðinu á þessum tilhæfulausa áburði. Kristinn Finnbogason.” Ólafur Jóhannesson. GERALD FORD VARAFORSETI BANDA- RÍKJANNA Richard Nixon, forseti Bandarikjanna, tilnefndi i fyrrinótt Gerald Ford, leiötoga republikana i full- trúadeild Bandaríkjaþings, sem nýjan varaforseta landsins i stað Spiro Agnews, sem sagði af sér embættinu vegna afbrota. Þessi ákvörðun Nixons kom nokkuö á óvart, en talið er fullvist, að báðar deildir Bandarikjaþings samþykki útnefninguna. Hjólbarðaverkstæðin bfða tilbúin eftir þvi að setja nagladekkin aftur undir bílana. Sá sem varð fyrir mestur tjóni í ofviðrinu: Ætlar ekki að gefast upp þó allt hafi blásið í burtu SA maður sem varð fyrir einna mestu tjóni i óveðrinu á dögun- um, var Þorsteinn Sigmundsson bóndi i Elliðahvam mi. Hann missti þá nær allan sinn bústofn, eða yfir 1000 hænsni, auk hænsna- Ný framhaldssaga HIN nýja framhaldssaga Tim- ans nefnist „Geymt en ekki gleymt”, og er eftir dönsku skáldkonuna Ellen Duurloo. Söguþráðurinn er i stuttu máli þessi: Þegar þrælahald er afnumið á þeim vestur-ind- isku eyjanna, sem voru i eigu Dana, ákveður ungur, dansk- ur plantekrueigandi að snúa heim til Danmerkur. Hann hefur i hyggju að ganga að eiga ástkonu sina, hina fögru Bellu, og taka hana með sér til Danmerkur, en hættir við það á siðustu stundu, þvi að hún er kynblendingur. Hann heldur einn á brott, og það verður Bellu mikið áfall. Hún er stolt og hefnigjörn, og allt lif hennar upp frá þessu snýst um það að fá uppreisn æru og hefnd fyrir sina hönd og sonar sins. Leiöin er löng, og margir spennandi og litrikir atburðir gerast, áður en hún nær tak- marki sinu. Við skulum ekki rekja söguþráðinn frekar, heldur láta lesendurna fylgj- ast sjálfa með Beliu og örlögum hennar. hussins,fóðurs og annars,sem til þarf á stóru hænsnabúi. Við áttum viðtal við hann skömmu siðar en okkur lék forvit in á að vita hvernig honum hefur vegnað siðan og hvort hann hafi fengið tjónið að einhverju leyti bætt, og höfðum þvi tal af honum i gær. Hann sagðist hafa farið fram á bætur úr Bjargráðasjóði, en tjón sitt i þessu veðri hafi verið eitt- hvað á fjórðu milljón króna. Þaðan hafi ekkert svar borizt enda ekki fundur hjá sjóðnum fyrr en um næstu helgi. Hann sagðist vona að hann fengi ein- hverjar bætur, enda væri útlitið allt annað en gott hjá sér þessa stundina. Ekki hafi verið nokkur leið, að hafa hænsnin áfram i þessu litla, sem staðiðhafieftir af hænsnahús- Framhald á bls. 12

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.