Tíminn - 14.10.1973, Page 2
2
TÍMIMN
Sunnudagur 14. október 1973.
Hvað er nú það?????
COOKY er óblandað úðunarefni, sem kemur í
veg fyrir að kakan festist í forminu eða matur-
inn á pönnunni. COOKY er ólitað með smjör-
bragði. Uppþvotturinn verður léttari eftir
COOKY úðun.
Haldið dósinni uppréttri og úðið í hring í hér
um bil 30 cm fjarlægð, tómt og kalt ílátið.
Kakan mun detta úr forminu.
Léttara er að losa rjómaísinn eða ísmolana
eftir COOKY úðum.
COOKY er lausnarorð fyrir þá, sem eru í
matarkúr eða verða að halda sig frá fitu eða
kolvetnaríkri fæðu. Matur lagaður með
COOKY mun ekki innihalda fleiri hitaeiningar
en þótt hann væri soðinn. COOKY þránar ekki
og þarf þvi ekki að geyma í kæli. COOKY
geymist óendanlega.
Framleiðsla þessi inniheldur Lecithine, hreint
jurtaefni, og Freon 11/12 til úðunar.
Dósin er undir þrýstingi. Gerið þvi ekki gat á
hana og látið hana ekki koma nálægt loga.
Uðið ekki yfir eld eða hita yfir 50 gráður
Celcius.
COOKY spararog erdrjúgt í notkun, því dósin
úðar 100 sinnum. Hvort sem þér ætlið að baka
pönnukökur, steikja egg, fiskbollur, fiskflök,
blóðmör, kótilettur eða fugla, þá úðið ílátið
með COOKY.
Innihald 300 grömm.
Framleitt af: ENNA NEDERLANDSE
AEROSOLS N.V., Holland.
Heildsölubirgðir: Þ. ÞORGRIMSSON & CO.
Simi 38640, Suðurlandsbraut 6, Reykjavik.
ARISTO
léttir námið
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2. Sími 13271.
Tíminn er
peningar
Auglýsicí
i Támanum
l
Gamlar myndir
Þær myndir úr kortasafni
Jóns Halldórssonar, sem birt-
ast aö þessu sinni, eru ekki
þess eðlis að leita þurfi
heimilda um þær. Staðina
þekkja allir, þótt að visu sé út-
lit þeirra á myndunum næsta
ólikt þvi sem það er nú.
Fyrst sjáum við Akureyri.
Ekki verður séö, hvenær sú
mynd hefur verið tekin, en
telja má vist, að hún gefi al-
ranga mynd af Akureyri, jafn-
vel á þeim tima, hvað þá nú. Á
myndina vantar alveg Odd-
eyrina, en þar varð snemma
mikil byggð, og má þvi segja,
að ekki vanti litiö, þegar hana
vantar.
En friðsæll er Pollurinn með
bátkænum sinum og Fjörunni,
og Súlurnar halda viröuleik
sinum, þásemnú.- Að lokum
má geta þess til gamans, að
þetta kort hefur Akureyringur
sent vini sinum á bórshöfn um
jólin árið 1917.
Næst kemur gömul mynd af
Reykjavik. Enginn sést bill-
inn, en aftur á móti er maður
með handvagn neðan til i
Bankastrætinu, þar sem áður
hét Bakarabrekka. A gatna-
mótum Bankastrætis-Austur-
strætis-Lækjargötu er maður
með hund sinn, öldungis
ótruflaður af umferðinni.
Talsvert eru byggingarnar
ólikar þeim, sem nú ber fyrir
augu, þegar horft er vestur
Austurstrætið — og Melarnir
enn óbyggðir.
Aö lokum birtist mynd af
flóðunum miklu i Olfusá i
marz 1930. Ef myndin prentast
vel, verður hægt aö lesa að
hún er tekin 2. marz 1930.
beim, sem þessar hamfarir
sáu, eru þær án efa harla
minnisstæðar. Hinir, sem enn
eru ungir og miklu yngri en
svo að þeir muni aftur til árs-
ins 1930, geta séð á þessari
mynd enn eitt dæmið um það,
hversu ör þróunin i islenzku
þjóðlifi hefur verið á siðustu
áratugum. Brúin, sem þarna
striðir gegn straumnum, er
allt önnur en sú,sem við ökum
nú, þegar við bregðum okkur
austur I sveitir, og þorpið Sel-
foss var þá enn ekki til.
Reykjavik
Reykjavik. — Næsta ólik sjón þeirri, sem nú blasir við, þegar horft er frá Bankastræti vestur um
Austurstræti.
Akureyri, kyrrð og friður yfir öllu. Súlur I baksýn.
Flóðin miklu við ölfusá áriö 1930.
Akut«syri og„Sdlur“