Tíminn - 14.10.1973, Page 5
Sunnudagur 14. októb'er 1973.
TÍMINN
5
■' -
X
X
X
Kennslutilraunir
Það eru 200.000 skyldunáms-
skólar i Sovétrikjunum, og þar
stunda nám um það bil 50 millj-
ón nemendur. 80% skólabarna,
sem ljúka átta ára skyldunámi,
halda áfram og ljúka tiu ára
skyldunámi. Nú er verið að inn-
leiða almenna tiu ára skóla-
skyldu i Sovétrikjunum.
Hvernig verða sovézkir skólar i
framtiðinni? Hvernig er hægt að
gera menntunina áhrifameiri?
Sovézkir uppeldisfræðingar
vinna að lausn þessara mála á
visindalegum grundvelli, með
stöðugum rannsóknum og til-
raunum með nýjar hugmyndir.
Nú stendur yfir áhugaverð
tilraun i skóla nokkrum i
Tbilisi, höfuðborg Georgiu.
Hinar hefðbundnu kennsluað-
ferðir, þ.e.a.s. kennslustundir i
venjulegum skilningi orðsins
hafa verið afnumdar, og i þeirra
stað koma kennsluumræður,
kennslurökræður, kennsluleikir
og tónleikar. Kennarinn reynir
að gera kennsluna skemmtil. og
aðgengilegri fyrir börnin og
hjálpa þeim til að beina
athyglinni betur að námsefninu.
Einkunnagjöf hefur verið
afnumin i fyrsta og öðrum bekk,
vegna þess að löngun nemend-
anna til að fá góðar einkunnir
verður oft takmarkið og dregur
úr hinu raunverulega gildi
námsins og beinir skólabörnum
frá aðalmarkmiðinu, sem er að
afla sér undirstöðugóðrar
þekkingar.
Hávaðinn i kennslustofunni er
merki þess, að kennslustund i
reikningi fer fram. Nemandinn,
sem gripur boltann, verður að
svara spurningu kennarans
strax og henda til baka.
☆
Sameining fljótanna
Úkrainskir sérfræðingar hafa
gert áætlun að byggingu 300
metra langs skurðar, sem mun
sameina Dóná, Dnéstr og Dnépr
og hefur áætlunin verið viður-
kennd af öllum dómum. Kerfið
mun hafa i för með sér endur-
nýjun á Dnépr, sem er aðalfljót
Úkrainu og fullnægir vatnsþörf
iðnaðarins og landbúnaðarins.
Vatn úr Dnépr er lifgjafi hinna
þurru héraða á Krim og það er
notað i stórum járn- og stál-
verksmiðjum. Auk þessa er
vatnið úr Dnépr aðaluppspretta
vatnsneyzlu i mörgum bæjum
og borgum. Sérfræðingar hafa
reiknað út, aö um árið 2000 muni
Dnépr ekki lengur geta annað
hinni vaxandi neyzlu. Þessi nýi
skurður, sem breytir ekki
vatnshlutföllunum i Dóná, mun
eigi að siður aúka vatnið i
Dnéstr og Dnépr og hægt verð-
ur aö stækka áveitusvæðin i
suðurhluta Úkrainu talsvert.
Framkvæmdirnar verða kost-
aðar af rikinu og áætlað er, að
byrjað verði á' fyrsta áfanga
skurðarins árið 1975.
☆
oa
Ungur tónsnillingur
Koba Mergrelisjivilij er ekki
nema sex ára, og þó hefur hann
samið óperu. Þótt þessi ópera
hafi ennþá ekki verið flutt
annars staðar en i leikskólanum
hans Koba, er ekki talinn
minnsti vafi á þvi, að dreng-
urinn sé gæddur óvenjulega
góðum tónlistargáfum.
t Georgiu i Sovétrikjunum,
þar sem Koba á heima, hafa
margir tónlistarmenn lokið
miklu lofsorði á tónsmiðina, og
þeir fuilyrða, að litli snilling-
urinn eigi eftir að láta mikið til
sin heyra i framtiðinni.
Við skulum vona, að Koba
endist aldur og heilsa til að
þroska hæfileika sina á tón-
listarsviðinu, mönnum til yndis-
auka, og sannarleg lofar
byrjunin góöu.
☆
Garðarækt
í fjöllum uppi
Nýr atvinnuvegur er i þann
veginn að haida innreið sina i
Tien Shan-fjöllunum sem eru i
nágrenni Alma-Ata, höfuðborg-
ar sovézka lýðveldisins
Kazakhstan. Þar er um að ræða
garðarækt, m.a. eplaekrur, sem
verða i um þaö bil 1500 metra
hæð. Gert er ráð fyrir. að
gróðursett verði i 30.000 hektara
og það er meiningin, að stór
samvinnusamtök eigi að sjá um
ræktunina, sem hafa sérhæft
sig i ávaxtarækt og meðferð.
Þetta nýja fyrirtæki mun full-
byggt gefa af sér 50% aukningu
á ávaxtauppskerunni i
Kazakhstan.
☆
Fæðuskortur hjó
bandarískum
blóðsugum
Alvarlegur kjötskortur i Banda-
rikjunum hefur valdið dýra-
görðum um gjörvöll Banda-
rikin talsverðum erfiðleikum.
Verst er þó ástandið i Houston i
Texas, þar sem menn berjast
við að halda lifi i allstórum
hópi af blóðsuguleðurblökum
(vampýrum). Þessi undarlegu
dýr fá þvi aðeins þrifizt að þau
fái sinn daglega skammt af
fersku.óstorknuðu blóði, og þar
sem nær ógjörningur er að fá
nautsblóð um þessar mundir,
urðu forráðamenn dýragarðsins
að gripa til annarra ráða. Ótrú-
legt en satt, nú fá blóðsugurnar
mannablóð!
Til þess að lesendum ofbjóði
nú ekki alveg, skal það skýrt
tekið fram, að blóðið er fengið
hjá blóðbönkum borgarinnar.
Og það er eingöngu gamalt blóð,
þ.e.a.s. blóð, sem staðið hefur
of lengi til að óhætt sé að nota
það f fólk, sem blessaðar
skepnurnar fá.