Tíminn - 14.10.1973, Qupperneq 7

Tíminn - 14.10.1973, Qupperneq 7
Sunnudagur 14. október 1973. TÍMINN Húsvíkingar reisa nýtízku ferða- mannahótel sem ekkert gefur eftir nýjustu ferða- mannahótelum í Reykjavík Herbergi i hótelinu á Húsavik. Því miður gcfur þessi mynd mjög takmarkaóa lýsingu af gestaherbergj- um hótelsins, sem búin eru öllum þægindum, þar á meöal sér baði (flestöli),sima, hijómtækjum og sjón- varpi. I tengslum við hóteliö verður 300 manna veitingasalur, sem ætti að gefa aukna möguleika til dæmis til ráðstefnuhalda og al- mennra funda, og hafa verið pantaðar hér ráðstefnur þegar i haust. Þessi glæsilega hótelbygging hefur verið reist af heimamönn- um einvörðungu, en hér eru ágæt iðnfyrirtæki með færa iðnaðar- menn i sinni þjónustu. Arkitekt var Jósef Reynis, en teiknistofa Gisla Halldórssonar sá um hönn- unmannvirkis þessa. Innbú hefur þó verið keypt að, þar eð fyrirtæki hér á staðnum treystu sér ekki til að framleiða húsbúnaðinn vegna anna um þetta leyti. Stjórn hótelsins skipa þessir menn: Jón Armann Arnason bygginga- meistari, Haukur Harðarson bæjarstjóri, Arnviður Ævar Björnsson pipu- lagningameistari, Grimur Leifsson rafvirkja- meistari, Finnur Kristjánsson kaupfélags- stjóri og Jóhann Hermannsson skattstjóri. Fastir starfsmenn við hótelið verða 25 manns á sumrin, en 8 mannsyfir vetrarmánuðina, þeg- ar minnst er að gera. Þó er svo um samið við fólk, að unnt er að kalla saman nægan vinnukraft með stuttum fyrirvara, þannig að hótelið geti starfað með fullum afköstum allt árið, ef þess gerist þörf. Þetta er mjög nauðsynlegt, þar eð hótelið getur þá fyrirvara- litið tekið á móti stórum hópum, utan við aðal ferðamannatimann. Hingað hefur verið ráðinn þekkt- ur hótelmatsveinn, Kristinn Haraldsson, en hann er þekktur matreiðslumaður, fær i starfi og með mikla reynslu, og er mikill fengur að komu hans hingað til starfa. Til Húsavikur liggur gifurlegur ferðamannastraumur yfir sumarmánuðina. Hafa þegar bor- izt pantanir fyrir næsta ár (1974). Hingað hafa komið ferðamála- menn, sem atvinnu hafa af mót- töku og fyrirgreiðslu við feröa- fólk,og ljúka þeir miklu lofsorði á hótelið. Hafa einstaka menn jafn- vel reynt að fá allt hótelið á leigu yfir sumarmánuðina, fyrir sina menn. Samgöngur við Húsavík eru þó nokkur fjötur um fót. Hér getur verið snjóþungt á vetrum. Agæt flugbraut er i Aðaldalshrauni, og er flogið hingað aðeins þrisvar i viku, sem við teljum vera alltof litið. Það hljóta að verða hingað daglegar ferðir — allt árið með flugvélum. Til þess að svo megi verða, verður að reisa flugstöðvarbygg- ingu og nauðsynlega aðstöðu fyrir flugvélar og farþega á flugvellin- um. Það er höfuð atriði. — Eftir hverju sækjast ferða- menn hingað sérstaklega? — Útlendir og innlendir ferða- menn koma hingað til að sjá ýmsa þekkta og merkilega ferða- mannastaði, náttúru landsins og stofnanir. Hér eru i næsta ná- grenni margir slikir staðir, sem nefna má, t.d. Tjörneslögin, þar sem fundizt hafa merkilegir steingervingar og fornskeljar i lögum. Vestan og norðan á nesinu eru lög þessi 400-500 metra þykk og talin einhver merkustu jarðlög frá tertier-tima og isöld á tslandi. 1 syðri og elztu lögunum hafa fundizt skeljar, sem nú lifa aðeins I hlýjum sjó við strendur Vestur Evrópu. A þessum slóðum er einnig mikill steinn, sem komið hefur með hafis frá Grænlandi. Þá má nefna Hljóðakletta, As- byrgi, Hólmatungur, Dettifoss og Mývatn, en nú er hraðbraut til Mývatns um svonefndan Kisil- gúr-veg, sem er einhver bezti malarvegur þessa lands, upp- hækkaður og þráðbeinn. Hér á Húsavik er Húsavikur- fjall, með miklu útsýni yfir land- iö. Fara má i sjóferðir til Lund- eyjar og Flateyjar á Skjálfanda og útreiðatúra áhestum. Þá er verið að ljúka við myndarlegt byggðasafn, og frægt byggðasafn er á Grenjaöarstað. Aðstaða til sportveiða er góð. Hér er rjúpa, silungur, lax og gæs, svartfugl og selur og sjó- stangaveiði. Sundlaug er á Húsa- vik, golfvöllur og skiðaland. Það skortir þvi ekkert til að laða hing- að ferðamenn, segir Sigtryggur Albertsson, hótelstjóri á Húsavik, aö lokum. Gestamóttakan á nýja hótelinu minnir á þann alþjóðlega svip, sem yfir feröamanna hótelunum er aö verða hér á landi. Frá anddyri er lyfta upp á fbúðarhæðirnar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.