Tíminn - 14.10.1973, Side 8
TÍMINN
Sunnudagur 14. október 1973.
Ilótel Húsavík. IlóteliO er til húsa í hluta af stórbyggingu, sem hýsir félagsheimili Húsvlkinga og hóteliO. MeO þvl aO sameina þessar tvær stofnanir, vannst þaO, aO ekki þurfti aO
innrétta hóteleldhús fyrir veitingar I félagsheimilinu og hóteliö fær aögang aö samkomusölum i félagsheimilinu, en viö þaö opnast nýir möguleikar t.d. til ráöstefnuhaids.
Eftir að hafa gist eina sumar-
nótt á nýja hótelinu á Húsavik,
hljótum við að undrast það, að
finna svo fullkomið hótel i ekki
stærri bæ. Að búnaði gefur það
ekkert eftir, nema siður væri, þvi
fullkomnasta, sem hér á landi er
völ á. Hefur þvi ekkert verið of-
sagt.
A langri starfsævi hefur Sig-
tryggur tekið á móti þúsundum
ferðamanna á Húsavik, oft við
erfiðar aðstæður og mikil
þrengsli. Samt var gott að koma á
gamla hótelið, og við finnum, að
hann hefur flutt með sér hingað i
allt finiriið, ýmsa góða húsanda,
er fylgdu gamla húsinu, sem stóð
á háum bakka fremst á brún, þvi
þangað var til vinnandi að korna,
eftir langvinn ferðalög yfir við-
feðm héruð, þótt eigi væri hátt til
lofts, né vitt til veggja. Það er
einmitt þetta, sem við verðum að
gæta, að glata ekki persónuleg-
um, þjóðlegum stíl, þótt við höf-
um fengið alþjóðlegt hótel i hend-
ur.
Jónas Guðmundsson.
FÉLAGSMÁLANÁMSKEIÐ
r
A PATREKSFIRÐI
FRAMSOKNARFÉLAG Patreks-
fjarðar gekkst fyrir 6 daga
félagsmálanámskeiði á Patreks-
firði 5.-10. október. Námskeiðið
var haldið i veitingastofunni Sól-
berg og var umsjónarmaður þess
Sigþór Ingólfsson og leiðbeinandi
Kristinn Snæland.
Farið var yfir kennslubréf
bréfaskóla S.l.S. og ASt,
„Fundarsköp og fundarreglur”
og jafnframt voru ýmis mál rædd
á námskeiðinu s.s. byggðamál,
iðnskólamál, áfengismál, hrepps-
mál o.fl. Varaoddviti, Svavar Jó-
hannsson, var viðstaddur umræð-
ur um hreppsmálin og svaraði
hann fyrirspurnum.
Þátttakendur voru alls 17 tals-
ins, en siðasta fundinn sátu auk
þess nokkrir gestir. Fyrirhugað
er að halda námskeiðinu áfram i
vetur, þannig að einn fundur
verði á mánuði og þá rætt um
ýmis fyrirfram ákveðin málefni.
K.Sn./—hs—
Mörg alvöruorð féllu um
opnun áfengisútsölu á
Patreksfiröi I umræö-
unum.
Ilelgi Hersveinsson,
Kristinn Snæland og
Erla Guöjónsdóttir.