Tíminn - 14.10.1973, Síða 12

Tíminn - 14.10.1973, Síða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 14. október 1973. Dinh Stolz: Umhverfisvernd— metsölubækur á bókamarkaðinum Fagurlegar og raunhæfar upplýsingar um ógnvekjandi hættu, sem að umhverfinu steðjar „Ragnarök i áföngum” — „Hinn mikli dauði” — „Framtiðin biður ekki.” Þetta eru heiti bóka, sem keppa um heiðurstitilinn : metsölubók ársins á þýzka bókamarkaðinum. Hér er þó ekki um æsilega glæpa reyfara þekktra rithöfunda að ræða, heldur um nýja tegund sór- fræðibókmennta — bolla- leggingai um umhverfisvernd. Þegar þýðingar erlendra bóka um þessi efni fóru að seljast með methraða, tóku þýzkir rit- höfundar óg visindamenn til hendinni. f nýjustu bókaskrám má finna um 160 titla um þessi efni frá siðustu þrem árum. „Aðvörun til samtiðarmann- annaV Ein nýjasta bókin er „Der Dreck, in dem wir leben” (Ó- þverrinn sem vér lifum i) eftir Wilfried Scharnagl, þar sem lögð ér áherzla á tölur og staðreyndir, hruni heimsmenningarinnar spáð og hrópuð aðvörunarorð til samtiðarm anna . Wilfried Scharnagl hefur frá mörgu að segja. Hann hefur dregið saman mikinn fróðleik innanlands og utan og leitað álits margra stjórnmálamanna i sambands- iýðveldinu og m.a spurt þá, hvað þeir hugsi sér að gera i vanda- málinu. Hann sniður sér ekki þröngan stakk, hvorki i þjóðlegu né hugmyndafræðilegu tilliti, og úttekt hans á vandamálinu er allt annað en glæsileg. Hann skir- skotar til ábyrgðar stjórnmála- mannanna að finna leiðir til að leysa vandann, og kemst að þeirri niðurstöðu, áð engin rikari stjórn- málaleg skylda hvili á þeirra herðum, en að berjast við mengað andrúmsloft, ærandi hávaða, daunilla sorphauga og eitruð matvæli og, siðast en ekki sizt, mengun úthafanna. Hann berst fyrir þvi, að tæmandi upplýsingum verði safnað, svo hægt verði að gera viðeigandi ráðstafanir til að endurheimta heilnæmt umhverfi. llin náttúrulegu lifsskilyrði. Þetta er siðasta tækifærið, segir hann. „Þá skoðun verður að viöurkenna, að náttúruleg lifs- skilyrði, sem manninum voru sköpuð og hann á allt sitt undir að spillist ekki, eru ekki ótakmörkuð og að á þeim má ekki niðast óátalið. Þetta verður hverjum einstaklingi aö vera ljóst — öllum • á öllum sviðum, i stjórnmálum, i viðskiptalifinu, i visindum og i uppeldi sérhvers einstaklings. Sé þessa gætt, er von um að fresta megi að senda út neyöarkallið enn um stund, en hve lengi — það er undir hverjum einstökum komið”. „Framtlðin biður ekki’’ t sama streng tekur Hans G. Schneider i bók sinni „Die Zukunft wartet nicht” (Framtiðin biður ekki), og leggur áherzlu á sinnuieysið um hina ógnandi hættu af eyðileggingu umhverfisinsi Schneider bendir á, að aðeins raunsætt mat á ástandinu geti bjargað þvi, sem bjargað verður. Hann bendir á staðreyndir, eins og fjölgun mannkynsins, „misvægið milli norðurs og suðurs”, gegndar- lausa eyðslu samfara sárustu fátækt, mistnoktun visindanna, skipbrot, skynsem i nnar, upplýsingaöngþveitið og syrjaldarhættuna. Hann litur svo á, að umhverfisvernd og rann- sóknir á framtiðarhorfum séu óaðskiljanleg vandamál, „ekki tæknilegs, heldur stjórnmálalegs eðlis”. Schneidér ásakar ráðamenn, bæði i austri og vestri, fyrir vanmátt þeirra við að leysa aðkallandi vandamál og að skella skollaeyrunum við þeim. 1 ásökunartóni hrópar hann og krefst breyttra samfélagshátta með „róttækri lýðræðisvæðingu”. Hann lýsir lika „tillögudráttum til undirbúnings herferðarinnar til lifsins” og leggur drög að nýrri mannréttindaskrá. Eitt verður manni ljóst, þegar litið er yfir nýjustu rit um umhverfisvernd: Þótt útlitið sé svart og ógnvekjandi og að- varanirnar réttmætar, ef látið er reka á reiðanum, þá virðast margar leiðir færar til að beina þróuninni i rétta átt og mæta vandanum. En það ér ekki nóg að visa veginn — það verður að ganga hann til enda, allt að markinu. H Hænsni inu og því hafi hann flutt þær lið- lega 500 hænur, sem hefðu lifað af rokið i gamla fjósið á Vlfils- stöðum, en þar hafi hann fengið inni fyrir þær. Siðan hafi hann farið i það að rifa niður það sem eftir hafi staðið f húsinu og reynt að tina upp það timbur, sem hefði fokið út um nágrenniö. Þetta væri hann nú að naglhreinsa og koma fyrir og einnig að hugsa um þessar hænur, sem eftir væru. Hann ætlaöi sér ekki að gefast upp heldur að reyna að koma hús- inu upp aftur og siðan að kaupa fleiri hænsni og reyna að koma öllu i gott lag aftur, þetta yrði þó ekki gert nema að hann fengi ein- hverjar bætur og nú biði hann bara eftir að vita hverjar þær yrðu, ef þær yrðu þá einhverjar. —klp— Þorsteinn Sigmundsson I rústum hænsnahússins á Elliðahvammi með dauðar hænur I hundraða tali við fætur sér. Birta í Galleríinu LOUIS Armstrong blasir viö i mikílli litadýrð. Og siðan með .veggjum Sharon Tate, Villta vestrið, Skvisa, Gcneral Giap, Pari, Napalmaðurinn, Blóma- rós, 5 min. yfir 11, Sólhlif, og svo áfram. Annars er synd að segja, að sólhlif sé yfir verkum Tryggva ólafssonar i Galléri Súm. Þar er einmitt sólskinið sem sprettur fram úr hverri mynd i geysilegri lita- dýrð, svo stingur I augaö. — Giap hershöföini er mikill maður, þvi fyrir honum biðu Bandarikjamenn ósigur I Viet Nam, sinn fyrsta i sögunni, segir Norðfirðingurinn. — Það er verst, að fólk er alltaf að fást við smekk. Hann er hættulegur. Þú færð ekki betri list, þótt „smekkurinn” sé hetri. — Hefurðu alltaf málað i þessum stil, Tryggvi? — Nei, ég málaði fyrst afstgakt, cftir að ég fór til Danmcrkur 1961. Svo fór ég til Madrid 1968 og sá myndir eftir Goya og ýmsa spænska nieist- ara, og þá var mér ölium lokið og vílcli ekki sjá aö mála ab- strakt. Annars hangir ein fall- egasta mynd, sem til er I heiminum að minum dómi og merkilegasta, I National Gall- eri i London. Hún er eftir Pierro della Franccsko. Mér endist ekki ævin til að skoða hana. — Hefurðu unnið óslitið að málaraiistinni þessi ár þin I Danmörk? — Nei, alls ckki. Ég hef orðiö aö vinna annað, hitt og þetta. Þaðer fyrst siðastliðið 1 og hálft ár, sem ég hef getaö einbcitt mér að listinni. Mig hefur alltaf vantað frið, en vona að ég hafi vaxið eftir þetta síðasta, friðsama skeið. — Mig hcfur aldrei vantað hugmyndir. Ég hef þær hundr- uðum saman i kollinum, en hef átt i vandræðum með að koma þeim á léreftið af timaskorti. — Ertu áhangandi einhverr- ar sérstakrar stcfnu.TryggvR — Eiginlega ekki. En ég hef þó orðið fyrir miklum áhrif- um af ýmsu frá barok-timan- um. Annars meiri og minni áhrif frá öllu. Ég hef alltaf breytzt hægt. Ég er svo klof- inn. Það hefur aldrei elzt af inér að vcra strákur og nátt- úruskoðari. A hinn bóginn er maður alltaf að verða svart sýnni og svartsýnni. Maður litur á, hvernig maðurinn hefur skapaö heiminn I sinni mynd. Ég er ekki móralisti, en þó ekki ásáttur. — Mestur málari? A þessari öld myndi ég nefna Matisse. Picasso er auðvitað hinn óum- deilanlegi snillingur. Hann er óumræðilcga snjall hefur eöa hafði alla tæknina I hendi sér. En einhvern veginn er hann ekki alltaf jafn einlægur, hlýr. Hann getur verið helviti napur. — Hvar velurðu þér helzt mótíf eöa hvernig? Tryggvi með meistara Armstrong. (Timamynd: Gunnar) — Hvar sem er. Meir að segja af sjónvarpinu og teikni- sérium. (þessi hérna t.d.). Það góða við sjónvarpiö er að þú færð Víet Nam-strlöið inn á stofugólfið hjá þér. Það er ekki lengur hægt að vera hetja. Þegar Lord Byron aftur á móti fór að berjast með Grikkjum móti Tyrkjum 1894, var hann hetja i heiminum. Og 50 árum siðar segja mér fróðir menn, að islenzkt kvenfólkhafi orðið máttlaust I hnjáliðunum, þegar það heyrði á hann minnzt. — Þú ferð aftur til Danmerkur? — Já, ég fer út i nóvember. Kem e.t.v. aftur heim, en Kaupmannahöfn á geysisterk tök i mér. En tslendingur verð ég altaf og kem heim, ef efni og aðstæður leyfa. Það spilar bara svo margt inn I. Tryggvi ætlar að helga sig alveg listinni á næstunni og stefnir að sýningu I K.höfn i vor. Mynd eftir hann hangir i ráðhúsinu i Arósum. — Step JEPPI Á FLEYGIFERÐ INNI í VERZLUN JEPPA var ekið á miklum hraða gegnum aðaldyr og glugga verzl- Q Nagladekk búist er við að hefjist strax á morgun. Sum verkstæðin höfðu bætt við sig mönnum og öll höfðu þau safnað að se'r nagladekkjum, nöglum og verkfærum. — Við vonum að menn hafi vit á þvi að koma timanlega og láta gera allt i stand hjá sér fyrir veturinn. Það er ekki að vita hvenær fyrsta hálkan kemur hér hjá okkur og það er bezt fyrir alla aðila, að þetta gangi hægt og rólega fyrir sig svo ekki verði allt vitlaust fyrsta hálkudaginn, eins og undanfarin ár. unarhúss kaupfélagsins á Nes- kaupstað aðfaranótt laugardags. t bilnum voru ungur maður og stúlka,sem slösuðust bæði en ekki alvarlega. Svo mikil ferð var á jeppanum, að hann fór gegnum dyr og glugga og einnig járnrimladyr sem þarna voru á milli. Billinn stöðvaðist ekki fyrr en inni á gafli og ruddust hillur og borð i verzl- AFRÝ JUNARDÓMSTÓLL i Bandarikjunum hefur staöfest þann dóm undir- réttar, að Richard Nixon, forseti Bandarikjanna, eigi að afhenda segulbandsspólur þær, sem hafa uninni um koll, og eru skemmdir miklar á varningi og öðru þvi, sem i verzluninni var. Þegar að var komiö var piltur- inn kominn útúr bilnum, en stúlk- an var klemmd inni i honum og gat sig ekki hrært. Varð að nota verkfæri til að ná bilflakinu utan af stúlkunni. Voru þaubæði flutt á spitalann en reyndust minna meidd en óttast var i fyrstu. að geyma samtöl forsetans i Hvita húsinu, m.a. um Water- gate-málið. Þessumáli verður áfrýjað alla leið til Hæstaréttar Bandarikj- anna, sem hefur siðasta orðið. Nixon afhendi segulbandsspólurnar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.