Tíminn - 14.10.1973, Qupperneq 15

Tíminn - 14.10.1973, Qupperneq 15
Sunnudagur 14. október 1973. TíMÍNN frystihúsiö, sem var oröiö gamalt og úr sér gengiB, hefur öll þessi ár veriB rekiB viB mjög erfiöar aö- stæöur. Nú á þessu ári hefur veriö variö stórfé i endurbætur og stækkun á þvi meö þeim árangri, aö nú fullnægir þaö þeim kröfum, s'em nú eru geröar til slikra húsa. Nefna má og, að kaupfélagið keypti fyrir nokkrum árum myndarlegt hús, sem sildar- söltunarstöð reisti hér og notaði á meðan sildin var og hét, en var nú algerlega verkefnalaust eftir að sildin „stakk af”, enda hugðust eigendur þess eðlilega flytja það héðan og nota það viö atvinnu- rekstur sinn i öðrum landsfjórð- ungi. Þetta hús hefur kaupfélagið siðan notað til fiskmóttöku, verk- að þar i salt þann fisk, sem frysti- húsið hefur ekki annað móttöku á af þeim fiski, sem hér hefur borizt á land. Tilvera þessa húss hér hefur þegar bjargað milljónaverðmæt- um fyrir Borgfirðinga. Þá er kaupfélagið nú eigandi að all- stórri byggingu hér, sildarverk- smiðju frá sildarárunum sælu, sem varð auðvitað óvirk og óarð- bær með öllu, þegar sildin brást, enda búið að flytja allmikið úr henni af vélum og fleira, þegar kaupfélagið keypti hana, og hún orðin óvirk til sinna upphaflegu nota. En þrátt fyrir það hefur þessi bygging þjónað verulegu hlutverki i atvinnulifi Borg- firðinga nú siðustu árin. Þar starfrækir kaupfélagið nú beina- mjölsverksmiðju. Þar hefur einkaaðili fengið aðstöðu til skipasm. og i þessari byggingu fá bátaeigendur geymslupláss fyrir báta sina að vetrinum, sem er hreint ekki litils virði. Og fleira mætti telja. Þetta stóra hús er þvi þegar i notkun til uppbyggingar i plássinu, þótt meö nokkuð öðrum hætti sé, en upphaflega var hug- myndin. Og tilvist þess hér vekur bjartsýni og vonir. Það skapar hugsanlega möguleika i framtið- inni, að hægt sé að gripa tækifæri, er kunna að gefast til meira bjargræðis. Og slikt er ekki einskis virði”. Allir unnendur samvinnustefn- unnar og þeir, sem láta sig hag almennings nokkru varða, hljóta að fagna þeim sigrum, sem unnir hafa verið á Borgarfirði eystra undanfarin ár, þar sem nýjum, gildum stoðum hefur verið skotið undir fámennt, en dýrmætt sam- félag. Þetta er einn af sigrunum, sem þeir vinna, er telja sig þurfa að vinna gegn eyðingu sveitanna og segja, að allt landið þurfi að vera i byggð, ef allt eigi að blessast. Og þar eiga kaupfélögin von- andi eftir að vinna marga sigra og stóra. Jónas Guömundsson. Hraðfrystihús kaupfélagsins og kaupfélagsmannvirkin séð frá bryggjunni. Þegar stormar geisa, verð- ur að renna bátunum á land I fjöruna fyrir neðan húsin, þar eð þeir njóta ekki varnar i brimi innan við hafnargarðinn. Höfn i Borgarfirði eystra. Dyrfjöll i baksýn. Vinningur i merkjahappdrætti Berklavarnadags 1973 kom upp á númer 25165 Vinningsins ber að vitja i skrifstofu S.Í.B.S., Suðurgötu 10. S.Í.B.S. Byggingarfélag verkamanna, Reykjavik. Aðalfundur félagsins verður haldinn i Tjarnarbúð (Oddfellowhúsinu) fimmtudaginn 18. október 1973, kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf Félagsstjórnin. Tíminn er peningar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.