Tíminn - 14.10.1973, Page 16

Tíminn - 14.10.1973, Page 16
TtMtNN. Sunnudagur J4, október ,1373. 16 Guttormur Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi 'r Nokkur orð til þjóðnýtingarmanna í bæjarstjórn Kópavogs Uppbygging miðbæjar Kópavogs Eitt af þeim verkefnum, sem meirihluti bæjarstjórnar Kópa- vogs ákvað að vinna að á þessu kjörtimabili, var uppbygging miðbæjar f Kópa- vogi, sem lengi hafði veriö talað um en mlnna gert í, sém til fram- kvæmda horfðb Þegar farið var að ræða það, hvernig ætti að standa að þeim byggingaframkvæmdum, sem hrinda átti af stað i fyrsta áfanga, komu fram tvær hugmyndir: Að bæjarfélagið sæi um allar fram- kvæmdir, fjármagnaði þær af skattfé bæjarbúa og mögulegu lánsfé og seldi siðan eða leigði einstaklingum ibúðir og annað húsnæði á svæðinu, eða að bygg- ingaverktökum væri látinn i té byggingaréttur á svæðinu og þeir sæju siðan um framkvæmdir á eigin ábyrgð og kostnað. Sfðari kosturinn var valinn, og þrem verktakasamsteypum var úthlutað sinu svæðinu hverri til byggingar íbúða og verzlunar- og skrifstofuhúsnæöis. Pólitiskur taugapirringur. Þegar það kom í ljós, að það fyrirtæki, sem ég veiti forstöðu, ✓ar þátttakandi i einni verktaka- samteypunni, ser hafði fengið byggingarétt á m.obæjarsvæðinu, fór að koma i ljós talsverður fiöringur i sumum bæjarfulltrú- um, sem endaði með þvi, að þeir komu af stað blaðaskrifum um málið. Alþýðublaðið hóf þessa umræðu i æsifréttastil. Sala þess blaðs hefur gengið illa, svo það virðist hafa tekið upp lika stefnu f blaða- mennsku og Mánudagsblaðið, þegar það var að reyna að ná fót- festu á islenzkum blaðamarkaði. ^Þáttur bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins, Sigurðar Grétars. Annar bæjarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, Sigurður Grétar Guðmundsson, hefur nú skrifað heila opnu i Þjóðviljann um þess- ar fyrirhuguðu framkvæmdir á miðbæjarsvæðinu undir mottóinu „braskið i Kópavogi”. Ég hef alltaf haft vissa samúö með Sigurði Grétar. Það er vitað mál, að kommúnistaklikan, sem öllu ræður i Alþýðubandalaginu hér f Kópavogi, ætlar að sparka honum út af listanum fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar — þvi er þetta tiltæki hans nú sjáanlega gert til þess að vinna sig i álit hjá þessum húsbændum sinum i flokknum. Enda sést það að vaðallinn, buslugangurinn og þvælan eru á svo háu stigi, að honum tekst ekki einu sinni að fara rétt með nöfn manna, sem hann þó gjörþekkir. Sigurður kemst að þeirri spaklegu niður- stöðu, ,,að það séu áhöld um hvort vísa ætti málinu til lækna eða lög- fræðinga”. Ég er, aftur á móti ekki i neinum vafa um það, að ef sálarástand Sigurðar Grétars er i samræmi við þessa ritsmið hans, þá þarf hann meira á lækni en lögfræðingi að halda. Hluti af gremju Sigurðar stafar svo af þvi, að sjónarmið Alþýðu- bandalagsins um opinberan rekstur á þessum framkvæmdum fékk ekki meirihlutafylgi i bæjar- stjórn. Hinsvegar hefur það legið fyrir frá upphafi, að Bygginga- samvinnufélag Kópavogs og KRON hafa átt kost á aðstöðu á miöbæjarsvæðinu, sem þessir aðilar hafa þó ekki viljað notfæra sér. En það væri mér fagnaðar- efni, ef breytinga væri að vænta á þvi. Sama er að segja um bila- geymslurnar. Sigurður Grétar og sumir hans skoðanabræður töldu, aö byggjendurnir ættu að kosta byggingu þeirra, en bærinn ætti siöan að eiga þær og reka. Þarna kemur fram grundvallar ágrein- ingur um rétt einstaklinga til fjármuna sinna, eða hvort þaö opinbera eigi i öllu að vera forsjá fjöldans og ráðskast meö allt og alla. Ég tel, að meirihluti bæjar- stjórnar hafi frá upphafi mótað ákveðna stefnu i þessu máli og að það þurfi að veröa mikil breyting á afstööu núverandi bæjar- stjórnarmeirihluta, ef sjónarmiö Siguröar Grétars á að fá hljóm- grunn. Þáttur verktakans Sigurðar Grétars. Siguröur Grétar ræöst meö dólgslegu orðbragði að þeim verktökum, sem standa að Miö- bæjarframkvæmdum s.f. Hann ber þeim á brýn að þeir hafi „selt lóöir, sem ekki hafa verið sam- þykktar, — og almenn bilastæöi”. Auk þess hafi þeir svo I hyggju ,,að losna undan þvi að greiða opinber gjöld til bæjarfélagsins”! Til viðbótar reynir svo Siguröur að koma þvi að, að ég, sem for- maöur bæjarráðs, sé svo ná- Dyramottur úti og inni — Bílamottur Kokosmottur með gúmmíundirlagi myndskreyttar Gúmmímottur í bakka mjög sterkar— 10 ára ábyrgð Fjölbreytt úrval fyrirliggjandi Heildsala Smásala bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Suðurlandsbraut 6 sími 38640 Guttormur Sigurbjörnsson. tengdur Miðbæjarframkvæmdum s.f., að ég sé prókúruhafi þess fyrirtækis. Með þessu er ætlað að sverta mig persónulega með þvi, að ég sé þarna að semja við sjálf- an mig. Sigurður veit þó vel, að ég hef alltaf vikið af fundum, þegar sérmál Miöbæjarframkvæmda s.f. hafa verið til umræðu. Sigurður er nú sjálfur þekktur verktaki hér i Kópavogi gegnum mörg ár. Mér finnst það litilmót- leg pólitik að ráðast á pólistiska andstæðinga á þann hátt að niða starf þeirra. Þeir sem vinna að eigin rekstri, eiga vitanlega sama rétt á þvi að sinna opinberri þátt- töku i stjórnmálum og þeir, sem vinna hjá þvi opinbera, og ekki siöur að minu viti. Vegna ósmekklegs málflutn- ings Sigurðar og órökstuddra get- saka, get ég þó ekki stillt mig um að minna hann á, að hann hefur um áraskeið verið einn af stjórnarmönnum I stjórn Bygg- ingasamvinnufélags Kópavogs og einn af aðalverktökum þess sama félags við allar byggingar þess á árabili. Hann ætti að ihuga þetta atriöi með sama hugarfari og hann dæmir aðra verktaka. Sigurður Grétar hefur veriö mjög áhugasamur um að reyna sænska nýjung hér á miðbæjar- svæöinu um upphitun göngustiga og innkeyrslu á Hafnarfjaröar- veginn. Fyrirtækið, sem verið er aö semja við um kaup og uppsetn- ingu á þessum útbúnaöi, hefur umboðsmann hér i Kópavogi, sem heitir Sigurður Grétar Guð- mundsson. En þessi sami Sigurð- ur fjallar um þessi viðskipti i nefndum á vegum bæjarins. Ætli að einhverjum, sem les skrif Sig- urðar Grétars i Þjóðviljanum þann 21. sept. s.l. og þekkir þessa starfsemi hans o.fl., hafi ekki orð- ið hugsað til orðanna „vei yður hræsnarar”. Við munum sjá miðbæ Kópavogs risa. Sigurður Grétar er rogginn yfir „forustuhlutverki” sinu i undir- búningi að byggingu miðbæjar i Kópavogi. Það má segja um það, að honum lætur þá betur að koma verkum áfram siðan hann varð i minnihluta i bæjarstjórn, en þeg- ar hann átti meirihlutaaðild. Að siðustu vil ég svo segja, að þaö eru þvi miður ekki allir bæjarfulltrúar i Kópavogi, sem hafa gleöi af þeim miklu fram- kvæmdum, sem tekizt hefur að hrinda áfram á þvi kjörtimabili, sem nú er að enda. Þeir hinir sömu munu þvi gráta þurrum tárum, ef nú tækist, með óvenju- lega ódrengilegum bolabrögum að stöðva framkvæmdir, sem nú eru að fara I gang á miðbæjar- svæöinu. Ég vona samt að gæfa Kópavogs sé svo mikil, að þeirri árás veröi hrundið. En til aö svo megi verða, þurfum við að leggja öfund og smáborgarahátt til hliðar. ÉG held, að tilburðir Sigurðar Grétars og sálufélaga hans i þessu máli séu fyrirfram dæmdir þýöingarlausir og einskis viröi. Að lokum skaða þeir engan nema þá sjálfa. Þeir geta ekki tafiö verkið nema tiltölulega mjög stutt. Við munum sjá miöbæ Kópavogs risa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.