Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 37

Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 37
Sunnudagur 14. október 1973. 'TiMWN „Elsku mamma! Ég er i höndum ræningja. Ekki iáta þá drepa mig og ekki tala við lögregluna! Viltu vera svo góð að borga lausnargjaldið. Þetta er ekki gabb! ” Paul Getty III, hinn 17 ára gamli sonarsonur auð- ugasta manns heims, hefur verið týndur siðan i júli. Hann hefur lifað eirðarlausu lifi meðal hippa i Róm og lögreglan trúði ekki að honum hefði verið rænt. En síðan komu i ljós hlutir, sem bentu til að eitthvað hefði komið fyrir drenginn...... þvi að hagnýta sér atriði i erfða- skrá föðurins, hefur hann útvegað sér talsvert af auðæfunum. Hann var óbreyttur skrifstofumaður i fyrirtæki föður sins i London, en er nú forstjóri Getty-oliufélagsins á ttaliu. Skömmu siðar, árið 1966, yfir- gaf hann konu sina, Gail og kvæntistThalitu Pal, leikkonu frá Bali, en hollenskrar ættar. Hún lézt i Róm fyrir tveimur árum af morfineitrun. Paul Getty yngri er nú auðugur ekkill og býr i Róm með syni sinum af siðara hjóna- bandi. Sá heitir þvi óvenjulega nafni Tara Grammophone! Paul Getty III. sem er fæddur i fyrra hjónabandi föður sins, hefur búið i Róm hjá móður sinni, siðan foreldrarnir skildu. Hann hefði ekki þolinmæði til að biða lengur eftir frelsinu og hóf uppreisnina snemma á táningaaldri. En þó hann ætti sitt eigið kvistherbergi úti i borginni, bjó hann iðulega heima hjá móður sinni. Hins veg- ar vildi hann ekki taka við peningum af neinum. Samt sem áður var hann tiður gestur á dýr- um veitingahúsum. Á skömmum tima var hann framleiðandi margra kvik- mynda, sem ekki urðu þó allar fullgerðar og heldur ekki mjög góðar sumar. Daginn áður en hann hvarf, var hann eins og venjulega á fullri ferð við eitt og annað. Aðfaranótt 8. júli svaf hann i ibúð Martine Zacher, 24 ára þýzkrar stúlku , sem vann að gerð heimildarkvikmyndar i Róm. Martine, sem bjó þarna með tviburasystur sinni, sagði lögreglunni: — Mér fannst gam- an, þegar hann kom i heimsókn. Hann var alltaf i leit að mann- legri hlýju, bókstaflega eins og hvolpur. Hvarf með dansmey Paul fór út i kvikmyndaverið til aðhorfa á reynsluupptöku, ásamt Martine og Bob nokkrum Free- man, bandariskum kvikmynda- framleiðanda. Siðdegis heimsótti han svo Mario Crisi til að spyrja hvernig honum litist á nýja vin- konu sina, Danielle Devred. Hún er dóttir belgisks starfsmanns Sameinuðu þjóðanna i Róm og hafði strokið að heiman nokkrum mánuðum áður. Nú var hún dans- mær á næturklúbbnum „Scar- bocchio”. Um kvöldið ætlaði Paul að hitta Danielle, en fann hana ekki og fór þvi með bandarisku smástirni, Susan Johnson á diskótek. Um- hverfið þar er heldur æðislegt á að lita, en þetta er einn vinsælasti unglingastaðurinn i borginni. Þarna var þá Danielle'og Paul stakk Susan af og hvarf með hinni. Vinirnir sáu, að Paul og Dani- elle voru að rifast er þau fóru, en svo veit enginn meira. Paul Getty III er horfinn og samtimis yfirgaf Danielle Róm ög fór i dularfuilt ferðalag. Sfðasti dagurinn litur út fyrir að hafa verið ósköp venjulegur dag- ur i lifi Pauls. Dagur eins og allir aðrir, sem hann hafði lifað sið- asta árið, i eilifri leit að sjálfum sér og uppreisn gegn umhverfinu og þvi fólki, sem hann hafði alizt upp hjá. Móðir hans tók hvarf hans ekki alvarlega i fyrstu, en svo var tvis- var hringt til hennar. Alvaran að baki kröfunnar um lausnargjald var greinileg, þegar maðurinn i simanum hótaði að senda henni fingur sonarins sem sönnunar- gagn. Paul Getty I var einnig krafinn um lausnargjald, nokkur Afinn, Paul Gctty I. auðugusti maður heims, haröneitaöi aö greiöa iausnargjaid fyrir sonarson sinn. hundruð milljónir. Nú tóku málin nýja stefnu. Lög- reglan fór á stúfana, en ekkert hefur fundizt, sem bent gæti til þess, hvar Paul Getty III er að finna. lifs eða liðinn. Neitaði að greiða Gagnrýnisraddir, sem i fyrstu héldu þvi fram, að pilturinn hefði sett þetta á svið til að verða sér úti um peninga, eru þagnaðar. En afinn hefur hátiðlega lýst þvi yfir að hann muni ekki greiða einn eyri I iausnargjald fyrir sonarson sinn. Þó að þeir hafi ekki haft mikil samskipti um dagana. er sagt, að gamla manninum hafi alltaf þótt mjög vænt um dreng- inn. En Paul Getty I fylgir fast eftir reglum sinum og ein þeirra er sú, að láta aldrei að kröfum fjárkúgara. Enginn veit, hvar Paul ungi er, eða hver endirinn á málinu verð- ur fyrir milljónaerfingjann, sem allt of ungur kastaði sér út i lifið að baki framhliðar samfélagsins. önnur ungmenni, sem gert hafa hið sama, hafa smátt og smátt snúið heim aftur og lifa nú borgaralegu lifi. Hafi hippalifið haft óæskileg áhrif, eru til ágætis hæli i Sviss, foreldrarnir borga vistina. En það eru ekki allir, sem fæddir eru sólarmegin i lifinu og eiga einhvern að, sem kaupir þá út úr vandræðum. Oftast endar það með að slikt fólk hafnar hjá lækni, sem aðeins getur yppt öxl- um og sagt, að þvi miður sé það allt of seint, eða þá hjá lögregl- unni. En þrátt fyrir milljónir foreldra að baki er ekki auðvelt að komast áfram upp á eigin spýtur i sól- skininu i Róm — og hvað hefur orðið af Paul Getty III? (ÞýttSB) Gail Getty, móöir Pauls, hefur búiö í Róm siöan hún skildi viö Paul Getty II. t)r einni af kvikmyndum Pauls III. Atriöiö er aö sýna hina heilögu kvöldmáitiö. Paul er annar frá vinstri. «

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.