Tíminn - 14.10.1973, Síða 40

Tíminn - 14.10.1973, Síða 40
 V 1 x L MERKIÐ.SEM GLEÐUR Htttumst i kmspfélagtnu GBÐI fyrir yóóan mat ^ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Efst í huga: Varanlegur samastaður fyrir listina í landinu ÁSMUNDUR SVEINSSON mynd- höggvari hélt sina fyrstu einka- sýningu hér heima vorið 1930 i Arnarhvoli (sem þá var raunar i smiðum), en þá hafði hann dvalið i um 10 ár við nám erlendis. 1 dag er hann talinn einn alfremsti listamaður þjóðarinnar og hefur tekið þátt i miklum fjölda sam- sýninga, bæði innanlands og er- lendis. Asmundur varð áttræður i vor s.l., en hann er fæddur 20. mai 1893. Klukkan fimm siðdegis var opnuð i Listasafni Islands við Suðurgötu á þessu áttugasta ævi- a'ri Asmundar yfirlitssýning á verkum hans, sú særsta hingað til. A sýningunni eru 63 verk, allt frá 1922 til ársins 1971. Sýningin verður opin frá kl. 13:30 til 22 dag- lega fram i miðjan næsta mánuð. Listamaðurinn var mjög hress að vanda, er við litum inn á sýninguna á föstudaginn var. Efst var honum þetta i huga: — bað sem vakir umfram allt fyrir mér með þessari sýningu, að ég segi ekki eingöngu, er, að hún megi verða til að opna augu almenn- ings og stjórnvalda fyrir þeirri staöreynd að brýna nauðsyn öer til að koma hið fyrsta upp hús- næði fyrir listina i landinu. Hér i borg þarf að risa upp stórt og veg- legt hús, helzt með viðsýni til allra átta, þar sem fólk getur daglega gengið inn og skoðað listaverk þjóðarinnar. — Þið sjáið, að hér vantar öll stærstu verkin min, tröllin úr garðinum minum, og á meðan — fcg lét mig dreyma ýmis- legt, þegar ég var ungur. En filmstjarna? Það datt mér aldrei i hug. Ég hef bara ekki vit á þvi að leika vcl fyrir framan myndavélina, það er verst, segir Asmundur. t þess- ari sériu sjáum við listamann- inn með nokkrum af verkun- um á sýningunni. Meðal þeirra er „KJARNOItKA”, en Asmundur hefur alltaf verið næmur fyrir tækninni. — Nú vilja allir bjarga sér meö kjarnorkunni, en ætli þcir eigi ekki eftir að drepa sig á henni, segir gamli maöurinn, sem Kanarnir vilja ólmir „losa við drasliö” og gera að milljóner. (Myndir: Gunnar) vantar allan slagkraftinn á sýninguna. En eftir þvi sem að- stæður leyfa, er ég samt mjög ánægður með hana og það verk , sem hún Selma hefur unnið hér. En það sem ég er ekki ánægður með er, að hér skuli hafa þurft að rifa niður öll þau listaverk, sem fyrir voru hér i sölunum. bað er allsendis óviöunandi, vinir minir. Það má ekki eiga sér stað lengur, að við eigum ekki eins og aðrar þjóðir safnhús, þar sem hin ýmsu listaverk, málverk, höggmyndir og önnur, geta staðið um ókominn tima. — Hvað heldur þú, að fólk fái út úr nokkurra vikna sýningum, eins og hér eru. Fólk þarf langan tima til að melta þetta. — Jú, mér hafa dottið ýmsir staðir i hug hér i borginni fyrir varanlegt listasafn. En nýja hug- myndin er sú (og nú hlær karl), að byggt verði safn uppi á öskju- hlið (mikið pláss þarf jú til), hringbygging um geymana, sem bætt verði við smátt og smátt, eftir þvi sem fleiri listaverk koma til. Og þarna er mikið landrými fyrir list, sem má og á að vera undir berum himni. Þetta er nú ein hugmyndin. Þvi má skjóta inn i að Listasafn Islands eignaðist fyrir nokkru húseignina að Frikirkjuveg 7 (siðast kölluð Gaumbær) og allstóra lóð, sem nær alveg upp að Laufásvegi. Ef byggt yrði við Glaumbæ, gæti fengizt þarna allmikið húsrými, og Asmundur er alls ekki vantrúnaður á, að á þessum fagra stað sé fundið vé fyrir sjónmenntina, þar sem listaverkin megi standa um ár og daga. — Það þarf að efla sjónmennt- ina i landinu segir listamaöurinn — Þetta með Arnarhól, — það sýnir bezt hversu embættismenn irnir eru staurblindir á augans list. Ég myndi miklu fremur treysta mér að tala um það við sveitakonur uppi i afdölum heldur en þá. — Útvarpið hefur verið að kynna hiö ritaða mál, og maður átti von á, að sjónvarpið myndi reyna að efla sjónmennt með þjóðinni En hvaösér maður? — Strip og bófa. Þegar ég er úti i garðinum minum, koma krakk- arnir með spýtur, ota að mér og segja: „Upp með hendurnar”. Ég „Trúarbrögöin”, frá 1956, járn, eik og eir. — Já, hérna eru öndvegissúiurnar mfnar. Það væri gaman að stækka þessa mynd og hafa hana úti. En súlurnar yrðu aö vera úr tré. Kannski væri hægt að endurnýja þær við og viö, segir Asmundur. Stærð verskins er 145sm. verðalveg hlessa. Ég vil aftur og enn segja: Komið upp varan- legum samastað fyrir listina, og eflið sjónmennt með þjóðinni. Það er mér efst i huga vinir minir. — Ég hef aldrei bundið mig við neina stefnu, það er mitt aðalein- kenni. Ég er sifellt að hoppa á milli. Og það sem ég gerði fyrir 30 árum, það getur alveg komið fram i verki hjá mér i dag. betta eru þeir alltaf að segja, útlendingarnir, sem fylla allar gáttir hjá mér, Þeir eru annars ágætir. Kanarnir vilja bara taka allt draslið frá mér og gera mig að milljónera. Þeir skilja ekki, að ég skuli ekki vilja það. Ég er dálitið mikið hræddur við þetta, sjáðu til. Það er eins og listin sé bara að verða bisniss. — Ég á erfitt með að klifra mikið, siðan ég datt. En ég er að dútla við smásteina. En nútiminn? Það er þetta stórkost lega með nýju efnin, skal ég segja þér. Með þeim geturðu gert allt, sem þú villt. — En mig langar aftur að leggja áherzlu á þessa húsbygg ingu... — Step

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.