Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 20. nóvember 1973. TÍMINN 5 þeytingi Kenwood þeytarann er hægt aö nota hvar sem er í eldhúsinu, inni í stofu eöa í útilegu, því aö hann gengur fyrir rafhlööum. Alltaf til reióu þegar þeyta þarf rjóma eöa hræra sósur, kalda búóinga, eggja- og ábætisrétti, svo nokkuð sé nefnt. Knár þótt hann sé smár, enda af Kenwood-ættinni Kostar ekki nema 800 kr. /{enwood Prentiðnaðurinn og kjaramálin SAMKVÆMT upplýsingum, sem Stefán Jónsson prentsmiðjustjóri i Prentsmiðjunni Eddu h.f. gaf Timanum, hafa atvinnurekendur i prentiðnaðinum sent sveina- félögunum i prentiðnaðinum bráðab. gagntilboð við kröfum og óskum s veinafélaganna um breytta kjarasamninga. Gagntil- boðið er í ellefu liðum, og er það þannig: 1. Kjarasamningar allra sveina- félaganna þriggja i prentiðnaðinum verði sam- ræmdir i heildar grunnsamn- ing. Mismunur launa eftir fag- greinum verði ákveðinn hundraðshluti, i þeim tilfell- um að mismun er að ræða. 2. Samið verði samtimis við öll sveinafélögin þrjú i prentiðn- aðinum, svo ekki komi til vinnustöðvunar einstakra félaga. 3. Báðir samningsaðilar hafi fá- anlega samvinnu við samn- ingsaðila i hliðstæðum iðn- greinum, til að draga úr vixl- hækkunum kaups vegna ósamræmis og vixlhækkunum verðlags og kaupgjalds. 4. Launaflokkum verði fækkað og þeir miðaðir við almennt fengna reynslu i framkvæmd. Almennt launaskrið, eða hlut- fall þess, sem lengi hefir verið óbreytt, verði athugað i þessu sambandi. 5. Alag á kaup við Monotype-vél- ar verði lækkað um 1/3. Hið sama gildi um álag á kaup eins manns við tvær litlar vél- ar. Alag á kaup i prentvinnu við dagblöð verði lækkað um 1/3. Alag á vaktavinnu verði bundið við unnar vaktir utan dagvinnutima. 6. Breytt verði um vaktafyrir- komulag við dagblaðavinnu, miðað við það að dagblöðin geti sinnt hlutverki sinu sem fjölmiðlar á íslandi. Höfð verði hliðsjón af vaktafyrir- komulagi (þar meðtöldum skiptivöktum) hjá öðrum fjöl- miðlum. 7. Kaffitimar verði annað hvort i óbreyttu formi og hinir sömu i öllum fyrirtækjum innan prentiðnaðarins. Hið sama gildi um matartima. 8. Nemakaup, orlofsfriðindi, sjúkrafriðindi, tryggingar- mál, fæðingarstyrkir, sjóða- tillög, uppsagnarfrestur og yfirráð lifeyrissjóða verði i sem nánustu saræmið við það, sem er eða umsemst i hlið- stæðum iðngreinum. 9. Samið verði um verðlagsupp- bætur á laun i sama formi og á sama visitölugrunni og aðilar i hliðstæðum iðngreinum semja um i væntanlegum samningum. 10. Þar sem Alþýðusamband Is- lands virðist biða svars rikis- stjórnarinnar um viss lög- gjafaratriði tilheyrandi kjara- málunum, eru samningsaðilar sammála um að halda opnum samningaviðræðum á eðlileg- an hátt, svo lengi sem vér og aðrir hliðstæðir samningsaðil- ar teljum það nauðsynlegt. 11. Samningstimi verði miðaður við sama tima og aðrir aðilar vinnumarkaðarins semja al- mennt um i væntanlegum samningum. Hið sama gildir um uppsagnarfrest og fram- lengingu samninga, sé þeim ekki sagt upp. Athugasemd: „Hliðstæðar iðn- greinar” prentiðnaðinum tel- ur F.l.P. vera iðnaðar- og þjónustustarfsemi, sem aðal- lega byggist á útseldri vinnu iðnlærðra manna og þeirra véla, sem iðnlærðir menn stjórna, enda sé formið á launagreiðslum fyrirtækjanna miðað við unnar klukkustund- ir, en ekki mælingataxta. Samkvæmt þessari skilgrein- ingu telur F.l.P. prentiðnað- inn og t.d. járniðnaðinn hlið- stæðar iðngreinar. Stefán segir, að gagntilboð þetta hafi enn litið verið rætt af Enn af sundlauga- málum í Mývatnssveit JI, Mývatnssveit, 16/11— Opinn hreppsnefndarfundur um sund- laugarbyggingu var haldinn i Skjólbrekku 1. nóv. s.l. Aheyrend- ur voru allmargir, enda nýlunda hér, að almenningur eigi þess kost að hlýða á hreppsnefndar- fundi og einnig er áhugi almenn- ings mikill á þessu máli. Það olli hins vegar mörgum vonbrigðum, að þeir, sem skipa meiri hluta hreppsnefndar, svör- uðu þvi ekki á fundinum, hver stefna þeirra væri varðandi bygg- ingu sundlaugar á vegum hrepps- ins, en samþykktu að visa málinu til almenns sveitarfundar. Stefna minni hluta hreppsnefndar er sú, að hreppurinn byggi 25 m langa sundlaug úr steinsteypu og hús fyrir búningsklefa og böð, sem fyrst um sinn þjóni bæði sundlaug og iþróttavelli, sem er i byggingu við Reykjahlið, enda er þar á staðnum mikið magn af heitu vatni, eins og áður hefur verið sagt frá, og hreppnum heimilt til upphitunar á sundlaug, án þess að gjald komi fyrir. Það mun vera alm. skoðun að engra frekari samþykkta sé þörf hér heima fyrir, til að hrepp's- nefndin geti hafið framkvæmdir við sundiaugarbyggingu i Reykjahlið. t þeim efnum vitna menn m.a. til álitsnefndar, sem skipuð var vorið 1971 á vegum hreppsnefndár og Ungmenna- félagsins Mývetnings til að vinna að áætlun um byggingu iþrótta- mannvirkja i Skútustaðahreppi. En hún skilaði störfum 10. marz 1972. Þá vitna menn til samþykkt- ar á almennum sveitarfundi i Skjólbrekku 27. marz 1972 og samþykktar hreppsnefndar 25. apr. sama ár. Einnig liggja fyrir ýmsar samþykktir og yfir- lýsingar frá Iþróttafélaginu Eilifi og Ungmennafélaginu Mývetn- ingi, sem hniga að hinu sama. Meðal annars kemur fram i bók- un frá fundi, sem hreppsnefndin hélt með stjórnum félaganna beggja um sundlaugamál 19. marz s.l., að i umræðum á siðasta aðalfundi Mývetnings var skýrt tekið fram, að sundlaugarfram- kvæmd félagsins væri ekki ætlað að koma i veg fyrir, að byggð yrði varanleg sundlaug i sveitarfélag- inu. 1 haust var krafan um varan- lega sundlaug svo áréttuð með undirskriftarskjali 132 skatt- greiðenda i hreppnum, svo sem áður hefur verið skýrt frá. Vilji alls þorra Mývetninga virðist þannig vera ljós i þessu máli. A f j árhagsá æ 11un Skútu- staðahrepps fyrir 1972 var nokkur fjárveiting til undirbúnings sund- laugarbyggingar. Hins vegar mun enn ekki liggja fyrir fjár- veiting frá Alþingi til þessara framkvæmda, en umsókn var send til f járveitinganefndar vorið 1972. Vonast nú Mývetningar fastlega eftir þvi, að skútu- staðahreppur fái nægilega fjár- veitingu á fjárlögum næsta árs, til þess að framkvæmdir viö myndarlegt sundlaugarmann- virki geti hafizt hér á þjóðhá- tiðarárinu. samningsaðilum, enda beri til- boðið með sér, að fyrirtækin i prentiðnaðinum telji sér ekki fært að semja á undan öðrum hlið- stæðum iðngreinum, heldur sam- timis þeim. Félag isl. prent- iðnaðarins er ekki i Vinnuveit- endasambandi Islands, og hefir þvi takmarkaða aðstöðu til áhrifa i þá átt, að samningum verði hraðað. Hins vegar séu báðir samningsaðilar i prentiðnaðinum sammála um, að æskilegt sé að hraða samningum eins og frekast sé auðið. Stefán tekur fram, aö hann telji æskilegt að kröfur sveinafélag- anna yrðu birtar, en eðlilegast sé að sú ósk komi frá sveinafélögun- um sjálfum. Bókin um barnið eftir Spock Biblía allra foreldra á íslenzku BENJAMÍN Spock er frægasti barnalæknir veraldarinnar.og rit hans um börn og meöhöndlun á þeim eru bibiia foreldra viða um heim. Nú hcfur bókaútgáfan Þjóðsaga gefið út Bókina um barnið eftir Spock, endurskoðaða og aukna útgáfu, cn hún hefur jafnan verið metsölubók siðan skýrslur um þess konar sölumet hófust. Bókin um barnið kom fyrst út i Bandarikjunum, að visu með nokkuð öðru nafni, árið 1946, og heldur fátækleg að ytri búnaði. Hún rauk þegar út,og gefin út hvað eftir annað. Vandlega end- urskoðuð og stóraukin var bókin gefin út 1957 og árið 1968 hafði höfundurinn enn lokið endurskoð- un og bætt við miklu nýju efni. Benjamin Spock hefur gengt störfum við margar frægustu heilbrigðisstofnanir og mennta- stofnanir Bandarikjanna, svo sem við Barnaheilbrigðisstofnun- ina i Rochester i Minnesota, Mayo-spitalann heimsfræga og háskólana i Minnesota, Pitts- burgh og Cleveland. Nú skiptir hann timanum á milli þess að skrifa um börn og berjast fyrir friði i heiminum. En þegar hann fær friðarstund, legg- ur hann stund á siglingar. A fremstu siðu bandarisku út- gáfunnar af Bókinni um barnið standa þessi orð: „Handbókin, sem hefur fengið vitækust með- mæli og slegið öll sölumet þeirra bóka, sem nokkurn tima hafa verið gefnar út fyrir foreldra.” HEKLA hf. Laugavegi 170-172. Sími 21240 og 11687.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.