Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 24

Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 24
fyrir yóöan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS - Nú verður dimmt og kalt hjá Dönum — bannað að kveikja á jólatrjám NTB—Kaupmannahöfn. — Danska stjórnin hefur nú sam- þykkt ýmsar aðgerðir til að spara ollu. Allur bifreiðaakstur verður bannaður á sunnudögum frá 24. nóvember til Þorláksmessu. Þá verður afgreiðsla á kyndingaroliu takmörkuð, og veröa viðskiptavinir að geta sannað með skjölum, hver eðlileg neyzla þeirra hefur verið undanfarið. A grundvelli þessa mun afgreitt magn kyndingaroliu verða minnkað um ein 25%, og olia verður aðeins afgreidd til minna en mánaðar i senn. Þá verður rafmagn sparað, þannig að ljósaauglýsingar og flóðlýsingar verða bannaðar, svo og lýsing búðarglugga og verzl- ana eftir venjulegan vinnutima. Undantekningar frá þessari reglu eru úra- og skartgripaverzlanir, bankar og pósthús, og er það til að koma i veg fyrir innbrot. Ekki verða leyfðar lýsingar á jólaksreytingum gatna eða jóla- trjám. Þá verður reynt að tak- marka vega- og götuljósanotkun eins og hægt er. Bflstjórar hafa að mestu farið að hinum nýju hraða- reglum, og á einni viku hafa að- eins 100 brot a hraðatakmörkun- um verið tilkynnt i landinu. Verðbólga í S-Vietnam Suður-Vietnam á við mikla fjár- hagsörðugleika að striða, og verðbólga þjakar landið. Þess vegna greip Saigonstjornin til þess ráðs fyrir skömmu að fella gengi piastrans, og er það sjötta gengisfellingin það sem af er þessu ári. Margir handtekn ir í Aþenu í gær NTB—Aþcnu. — Margir vinstri sinnaðir stjórnmálamenn og rektor tækniháskólans i Aþenu voru handteknir i gær, er öryggis- lögregla borgarinnar héit áfram aðgerðum sinum eftir götubar- daganna milli stúdenta og hers i fyrriviku. Ekki var gefið upp, hve margir voru handteknir, en talið er, að þeir skipti hundruðum. Talsmaður stjórnarinnar sagði i gær, að 910 manns hefðu veriö handteknir um helgina, en 294 þeirra væru enn i haldi. Tækniháskólinn var miðdepill bardaganna i siðustu viku. Rektorinn, prófessor Konstantin Konofagos, sagði i yfirlýsingu til rikisstjórnarinnar á fimmtudag, aö lögreglan skyldi ekki reyna að dreifa þeim þúsundum stúdenta sem safnazt höfðu, saman ý skólalóöinni. Skriðdrekar og hermenn meö stálhjálma voru á verði á götum Aþenu i gær, og vörður var um skrifstofur Papadopoulosar for- seta og Markezinis forsætisráö- herra. Hvergi kom til meiri hátt- ar afbrota. Tilræði við Lon Nol — en hann slapp ómeiddur NTB—Phnom Penh — Lon Nol, forseti Kambódiu, slapp i gær i annað sinn á niu mánuðum ómeiddur úr sprengjuárás á for- setahöllina. Orrustuflugvél af gerðinni T 28 flaug yfir höllina tvisvar sinnum og sleppti þar fjórum sprengjum, samtals 500 kílóa þungum. Ein þeirra kom niður aðeins 100 metra frá forsetanum. Þrir létu lifið og tiu slösuðust i árásinni. Samkvæmt upplýsingum stjórnarinnar stóð yfir rikisráðs- fundur i forsetahöllinni, þegar árásin var gerð. Enginn ráðherra mun þó hafa slasazt. Sjónarvottarsegja, aö flugvélin hafi flogið tvo hringi yfir höllinni og að loftvarnarbyssa á torginu framan við húsið hafi ekki verið i lagi, að þvi er virtist. Flugvélin slapp og lenti siðan á svæöi uppreisnarmanna, aö sögn stjórnarinnar. Ben Gurion þungt haldinn NTB—Tel Aviv. — David Ben Gurion, fyrrum forsætisráðherra Israels, fékk heilablóðfall á sunnudaginn, og er hann talinnn vera i lifshættu. Læknir hans seg- ir þó, að miklar likur séu til að hann nái heilsu á ný. Ben Gurion er 87 ára. Hann var forsætisráðherra Israels i 12 ár, en dró sig i hlé árið 1963, og hefur siðan búið i þorpi einu i Negev- eyðimörkinni. Mið-Austurlönd: Herforingjar þinga NTB—Kairó og Tel Aviv. Egypzkir og israelskir herfor- ingjar hittust á ný i gær við þjóð- veginn milli Kairó og Súez. Talsmaður SÞ sagði, að þeir hefðu átt þar óformlegar viðræð- ur um framkvæmd vopnahlés- sáttmálans milli landanna. Ekki vildi talsmaðurinn segja neitt um árangur fundarins. Herforingjarnir ákváðu að hitt- ast enn á ný á fimmtudaginn, og þá mun Siiasvos yfirmaður friðargæzlusveita SÞ, verða viðstaddur. Hann var það ekki i gær. Eftir fundinn i gær afhentu egypzku fulitrúarnir lik tveggja israelskra hermanna, sem fallið hafa eftir að vopnahléð gekk i gildi. 1 dag munu Egyptar af- henda 25 lik til viðbótar. Norðmaðurinn var ekki iengi að fletta biinum I sundur. Timamynd: Gunnar. Bílbrjótur - undratól til bjargar mannslífum Slys gerast nú óhugnanlega tið, og er þess skemmst að minnast, að íyrir fáum dögum varð 98. dauðasiysið á þessu ári. Það cr þess vegna mikilsvert, að björgunarmenn allir séu vel þjálfaðir og búnir góðum tækjum. Undanfarna daga hcfur staðið yfir i Reykjavik ráðstcfna og námskeið, þar sein fjallað hefur vcrið uin sjúkrafiutninga. A blaðamannafundi i ráð- stefnulok i gær, benti Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir, for- maður Reykjavikurdeildar Rauða kross Islands, á nauðsyn þess að samræma aðgerðir i þess- um efnum. Hún afhenti einnig Hjálparsveit skáta, Flugbjörgunarsveitinni, Slysavarnarfélaginu, Almanna- vörnum rikisins, lögreglunni og slökkviliöinu að gjöf tæki, sem kemur að margvislegum notum við björgun, einkum til að losa menn, sem kelmmzt hafa fastir i bilum. Tækið er hannað af sænskum manni, en framleitt af norsku fyrirtæki, sem framleiðir einkum björgunarútbúnað af ýmsu tagi. Tækið er mjög létt, aðeins um fjögur kiló, og fyrirferðarlitið, þannig að hægt er að bera það á baki sér, ef ekki er hægt að komast á bil á slysstað. Erfitt er að lýsa búnaði þessum i stuttu máli og þeim notum öllum, sem af honum má hafa. Það er fyrst og fremst ætlað til notkunar, þar sem ekki er hægt að koma stór- virkum tækjum við, og með þvi má á skömmum tima brjóta sér leið inn til fólks, sem situr fast ibilum, eins og oft vill verða eftir árekstur. Hægt er að taka það i sundur og setja saman á ýmsan hátt, allt eftir þvi til hvers ætlunin er að nota það, og þvi fylgir burðaról, sem einnig kem- ur að margvislegu gagni. Hana má t.d. nota, ef þannig hagar til á slysstað, að láta þarf sjúkling eða slasaðan mann siga. Norskur maður, fulltrúi fram- leiðenda, sýndi þátttakendum á ráðstefnunni og fréttamönnum hvernig tækið er notað til þess að brjóta upp bila, til þess að ná út slösuðu fólki, en það hefur oft reynzt tafsamt vegna þess að skort hefur hentug tæki. Það tók ekki nema 1-2 minútur að brjóta sér leið inn i bilinn með þessu tæki. Sem fyrr segir er eftitt að lýsa þessu tæki i fáum orðum, og hér hefur aðeins verið drepið á hluta þess, sem vinna má með þvi, en ekki er vali á þvi, að það getur komið að góðum notum og bjargað lifi manna, og er þvi full ástæða til þess að hvetja alla þá, sem björgunarstörfum sinna til þess að afla sér þessa undratóls, enda kostar það ekki nema um það bil 20 þús. krónur islenzkar. HHJ. Þyrlur koma abgóðu gagni við björgunarstörf. — Tlmamynd Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.