Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 11

Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 20. nóvember 1973. TÍMINN 11 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaöaprent h.f. L ' Mikil aukning kaupmáttar Björn Jónsson, félagsmálaráðherra, svaraði á Alþingi i fyrri viku fyrirspurn um styttingu vinnuvikunnar. í svari ráðherrans kom m.a. fram, að frá 1. nóv. 1971 til 1. sept. 1973 hefur kaupmáttur timakaupstaxta verkamanna auk- izt um 27% miðað við visitölu framfærslu- kostnaðar,en um 20% miðað við visitölu vöru og þjónustu. Miðað við að verkamaður hafi eingöngu unnið dagvinnu og notið styttingar vinnuviku að fullu i styttri vinnutima og þar með lengri fritima, er kaupmáttur atvinnutekna hans alls nú 14% hærri en haustið 1971 miðað við visitölu framfærslukostnaðar. Sé miðað við óbreytta yfirvinnu eins og hún var að meðaltali árið 1971 er kaupmáttar- aukningin 18% miðað við visitölu framfærslu- kostnaðar. Ef hins vegar er miðað við stytting vinnu- vikunnar, sem ákveðin var með lögum 1971 hafi að hálfu komið fram i fækkun vinnustunda i heild og að hálfu i fjölgun yfirvinnustunda, hefur kaupmáttur tekna verkafólks aukizt að meðaltali um 23-24% miðað við framfærslu- visitölu. úrtaksrannsóknir benda til að áhrif styttingar vinnuvikunnar hafi haft nokkurn veginn þessi áhrif. Samkvæmt úrtaksrannsókn, sem gerð var á vegum kjararannsóknanefndar á vinnutima verkamanna i Reykjavik hefur dagvinna stytzt um 7.5%, eftirvinna aukizt um 1.1% og næturvinna aukizt um 27.2%. Meðalvinnutima- stytting hjá verkamönnum i Reykjavik hefur þannig orðið um 3.65%. Kemur þetta heim og saman við þær ágizkanir, sem gerðar voru um fyrstu áhrif lagasetningarinnar um styttingu vinnuvikunnar, þ.e. að hún myndi að hálfu koma fram i styttri vinnutima og að hálfu i aukinni yfirvinnu. Olíuverðið hækkar Oliustrið Arabarikjanna gegn þeim þjóðum, sem þau telja að veiti ísrael beinan eða óbein- an stuðning i deilumálunum fyrir botni Mið- jarðarhafs, getur haft viðtæk áhrif á mannlif og efnahagsþróun i Vestur-Evrópu og Banda- rikjunum. Orkuskortur gerir nú þegar vart við sig og verð á olium og benzini fer ört hækkandi á heimsmarkaði. Fyrstir til að gera ráðstafanir til að draga úr ónauðsynlegri eyðslu eldsneytis urðu Hol- lendingar. Belgir og Vestur-Þjóðverjar munu fara að fordæmi Hollendinga og Bretar undirbúa skömmtun á eldsneyti. Sem betur fer þurfum við íslendingar ekki að hafa áhyggjur af skorti á olium og benzini á næstunni. Með samningum við Sovétrikin höfum við tryggt okkur nægt eldsneyti til árs- loka 1975."Hins vegar er oliuverðið i samning- unum við Sovétrikin bundið heimsmarkaðs- verði með ákveðnum hætti og koma þvi allar hækkanir á heimsmarkaðsverði smám saman inn i verð á olium og benzini hér á landi. Og það eru engar smáræðis hækkanir, sem orðið hafa og enn meiri verðhækkanir geta verið fram undan. Þótt við getum hrósað happi yfir þvi að þurfa ekki að hafa áhyggjur af skorti á eldsneyti munu þessar miklu verðhækkanir reynast þungar búsifjar i islenzku efnahags- og atvinnulifi. — TK Anders Tandrup, Kristeligt Dagblad: Aftökur og morð í Bangla - Desh Sjórnin kennir „öfgasinnum" um óróann í landinu PÖLITISK morð og vopna- viðskipti eru orðin daglegur viðburður i Bangla Desh. Innanrikisráöuneytið segir 5000 manns hafa verið tekna af llfi síöan landiö varð sjálfstætt i desember 1971. Sumir segja mannfallið nema 14000 manns. Mismunurinn nemur nokkurn veginn þeim 10 þús. moröum, sem stjórnarandstæðingar segja rikisstjórnina og fylgis- menn hennar hafa framið. „Andstæðingum ” þjóð- félagsins og „öfgasinnum” er kennt um árásir á lögreglu- stöðvar og varðstöðvar viðs vegar um landið. Mujibur Rahman fursti hefir hvað eftir annað lýst yfir, að ekki væri um teljandi andstöðu að ræða gegn stjórn hans, and- stæöingar hans i stjórnmálum væru einskis megnugir, en allur órói stafaði frá glæpa- flokkum, sem vildu reyna að notfæra sér erfitt ástand. ENGIN ástæöa virðist til að gera litið úr erfiðleikunum. Beiting vopna getur verið upp- haf borgarastyrjaldar og fjarri fer, að andstaða vinstri- manna gegn rikisstjórninni „skipti engu”, enda þótt þeir séu klofnir i nokkra hópa, sem oft takast á innbyrðis. Einnig hefir komið i ljós með timanum, að Awami Liga, flokkur Mujiburs fursta, getur hvorki talizt sérlega vinsæll meðal ibúanna né einhuga stjórnmálasamtök, þrátt fyrir stórsigra i kosningum. Aukin gremja almennings stafar af þvi, að sjálfstæðið hefir ekki breytt miklu gagn- vart almenningi öðru en þvi, að fylgismenn Awami Liga hafa tekið við ágengninni af Pakistönum. Sumir stjórnar- andstæðinga segja stjórnar- sinna enn tillitslausari en Pakistana. Almenningur virðist bera mikla virðingu fyrir Mujibur fursta og hann sýnist saklaus. Þaö verður hins vegar ekki sagt um suma samherja hans og nána frændur, en þeir eru sakaðir um spillingu og vald- nfðslu. Mujibur fursti virðist annaö hvort ekki vilja kveða spillinguna niður eða ekki hafa afl til þess. Þetta hlýtur aö draga úr viröingu hans þegar frá liöur. MUJIBUR fursti hefir að visu lýst yfir, að þeim, sem spilltir eru, veröi „ekki hlift, jafnvel þó að þeir séu i flokkn- um”. Rikisstjórnin hefir nokkrum sinnum snúizt gegn flokksfélögum, en það hefir ekki gerzt nægilega oft til þess að útrýma spillingunni i augum almennings. t flokkshernum, Rakhi Bahini, eru 30 þúsund manns og hann hefir vissulega ráðizt gegn þeim, sem safnað haf^ matvælum, og meðal þeirra hafa verið háttsettir menn I Awami Liga. Yfirmaður Rakhi Bahini er náfrændi Mujibur fursta, og hann litur á stjórn hersins sem fyrsta skref á framabraut i stjórn- málum. Ekki verður þvertekið fyrir, að lita megi á ráð- stafanir gegn hömstrurum sem lið i valdabaráttunni inn- byrðis i Awami Liga. Spillingin virðist hafa gegn- sýrt flokkinn og stjórnkerfið. t höfuðborginni Decca er kvartað undan skorti á nauð- synjum, meðal annars hris- grjónum. Ríkisstjórnin kennir þurrkunum i fyrra um, en hitt hefir einnig sitt að segja, að miklu af uppskerunni var smyglað til Indlands og verðið Mujibur Rahman rann i vasa allmargra embættismanna. Aöstoð erlendis frá hefir verið misnotuð. Birgðir hafa bæöi veriö seldar á svörtum markaði og dreift meðal fylgismanna Awami Liga. Forustumenn i flokknum hafa tekið undir sig eignir Paki- stana, sem átt hefði að þjóðnýta. ÞETTA verður að hafa i huga þegar meta skal sann- leiksgildi sagnanna um morð þúsunda manna af stjórn- málaástæðum. Abdul Malik Ukil innanrikisráöherra sagði fyrir skömmu, að 2853 fulltrúar Awami Liga hefðu verið „myrtir meö köldu blóöi”. Andstæðingum stjórnarinnar til vinstri verður varla kennt um öll þessi morð, þar sem lengi hefir verið á orði haft, aö Ibúar ýmissa þorpa hafi tekið lögin i sinar hendur og gert hina hötuðu haröstjóra höfðinu styttri. Þessi manndráp eru að þvi leyti sama eðlis og morð byltingarsinnaðra hópa „með köldu blóði”, aö þau benda til byltingarumleitana, sem rikisstjórnin i Decca virðist varla fær um aö ráöa viö. Mujibur fursti gerir fyrsta axarskaft sitt þegar hann segir fyrst og fremst um að ræða vandkvæöi á að halda uppi lögum og reglu. Lögreglan hefir hvaö eftir annað veriö send á stúfana til að „hreinsa til”, þarsem óróa hefir orðið vart. Hún hefir náð á sitt vald töluverðu af vopnum og tekið höndum marga uppreisnarforingja, meðal annarra Tippu Biswas, sem var með dugiegustu skæruliðaforingjum i bar- áttunni við Pakistana. En þessar aögerðir var ekki unnt aö framkvæma nema kveðja til lögreglusveitir frá öðrum stöðum, sem þá voru óvarðir á meðan. RIKISSTJÓRNIN hefir yfir að ráða 50 þúsund manna lögreglu, 30 þús. manna liði i flokkshernum Rakhi Bahini og 20 þús. manns i rfkis- hernum. Samtals eru þetta 100 þús. manns, sem eiga að halda uppi lögum og reglu meðal 75 milljóna þjóðar, en æ fleiri þegnar virðast i hæsta máta vantrúaöir á „lög og reglu” hersins og lögreglunnar. Rikisstjórnin á um tvær leiðir að velja. Hún getur haldið „hreinsunum” áfram i þeirri von, að unnt verði meö þvi móti aö koma i veg fyrir, að uppreisnarmönnum takist að skipuleggja uppreisn meðal bænda. Hætt er þó við, að til beggja vona bregðist um árangur af þeirri viðleitni. Hin leiöin er að koma upp neti varðstöðva i héruðunum. í Skæruliðar hafa þó sýnt, að þeir hafa i fullu tré við fámennar varðstöövar. Rikis- stjórnin játar, að siðan 1971 hafi tvær lögreglustöðvar og í 17 varðstöðvar lotið i lægra ' haldi, 70 lögregluþjónar failið og 160 særzt. Litlar likur virðast á stjórn- málalausn, eða að takast megi aö uppræta óánægjuefni al- mennings. Barátta skæruliða stafar einmitt af þvi, að Mujibur fursti hefir ekki viljað viöurkenna tilveru orsakanna. Margir þeirra, sem standa að Framhald á bls. 23 mJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.