Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 17

Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 20. nóvember 1973. TÍMINN 17 Róðrar á linu hófust nú með fyrra móti. Byrjuðu margir bátarnir róðra sina strax i byrjun mánaðarins og um mánaðamótin voru 26 bátar byrjaðir róðra. 7 bátar stunduðu togveiðar. 1 fyrra var ágætur afli á linuna i október, 6-8 lestir i róðri að jafnaði, en nú brá svo við, að afli var sáratregur allan mánuðinn, 3-5 lestir i róðri, þrátt fyrir góðar gæftir. Afli togbátanna var tregur framan af mánuðinum, en siðari hluta mánaðarins var sæmilegur afli. Heildaraflinn i mánuðinum var 2.770 lestir, en var 1.926 lestir á sama tima i fyrra. Af linubátun- um var Mimir frá Hnifsdal afla- hæstur með 94,3 lestir i 23 róðr- um, en i fyrra var Vikingur III frá Isafirði aflahæstur i október með 145,2 lestir i 23 róðrum. Af togbátunum var Páll Pálsson frá Hnffsdal aflahæstur með 253,9 lestir, en i fyrra var Guðbjartur Kristján frá tsafirði aflahæstur togbátanna með 147,2 lestir. Aflinn i hverri verstöð: lestir iróðrum PATREKSFJÖRÐUR: Kristján Guðmundsson 53,2 13 Sandafell tv. 34,1 1 Jón Jónsson tv. Guðrún 15,5 1 Guðleifsdóttir 11,6 4 Sigurvon 11,2 3 BOLUNGA VIK: Hugrún 93,0 23 Hafrún 38,3 9 Stigandi Sigurður 36,5 17 Baldvinsson 31,8 17 Sólrún '27,8 7 Guðmundur Péturs 25,0 3 ISAFJÖRÐUR: Páll Pálsson tv. 253,9 Július Geirmundsson 3 tv. 249,9 3 Guðbjartur tv. 220,0 3 Framnes tv. 205,1 3 Guðbjörg tv. 175,8 3 Mimir 94,3 23 Guðný 92,3 22 Orri 86,5 18 SUÐAVIK: Bessi tv. 200,2 3 Maria Júlia 63,7 17 Þrymur 57,7 18 Vestri 49,7 13 Gylfi 47,5 13 TALKNAFJÖRÐUR: Tungufell 43,1 12 BÍLDUDALUR: Jón Þórðarson 79,8 20 ÞINGEYRI: Enginn afli landaður. Rækju- og skelfiskveið- arnar. Skelfiskveiðar voru eingöngu stundaðar frá Patreksfirði og réru þaðan 4 bátar, sem öfluðu 44 lestir. Aflahæstur var Skúli Hjartarson með 13,7 lestir. Rækjuveiðar voru stundaðar á þrem veiðisvæðum i október, Arnarfirði, Isfjarðardjúpi og Húnaflóa. Varð heildaraflinn i Nýi lögreglubfllinn á Húsavik úti fyrir lögreglustöðinni. NÝR LÖGREGLUBILL A HUSAVIK ÞJ-IIúsavik — 1 haust i'ékk lög- reglan á Húsavik til sinna nota nýja lögreglubifreið af mjög vandaðri gerð. Stýrishús hennar er búið skrifborði, ritvél og skjalageymslu, og auðveldar það skýrslugerðir á vegum úti, þegar Yfirlit um sjósókn og aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi í október 1973 FLATEYRI: Torfi Halldórsson 86,3 22 Sóley tv. 74,2 4 Bragi 35,5 15 Kristján 34,7 16 Visir 35,5 13 SUÐUREYRI: Ólafur Friðbertsson Trausti 87,5 55,9 22 12 október 992 lestir, en var 635 lestir á sama tima i fyrra. Frá Bildudal, voru nú gerðir út 11 bátar, og varð heildarafli þeirra i mánuðinum 126 lestir, en i fyrra var aflinn á sama tima 110 lestir hjá 13 bátum. Aflahæstu bátarnir voru Visir með 17,3 lest- ir, Svanur 16,5 lestir og Helgi 16,0 lestir. Frá verstöðvunum við Isa- fjarðardjúp voru gerðir út 49 bát- ar og öfluðu þeir 731 lest i mánuðinum, en i fyrra var heildaraflinn hjá 47 bátum 450 lestir. Aflahæstu bátarnir voru með um 24 lestir, en það er hámarksaflinn, sem leyfilegt er að veiða. Frá Hólmavik og Drangsnesi réru 11 bátar til rækjuveiða og öfluðu 135 lestir, en i fyrra voru gerðir út 9 bátar i október, og öfl- uðu þeir 75 lestir. Aflahæstu bátarnir voru allir með 15,4 lestir I mánuðinum. Fólksf jöldi á Grænlandi GRÆNLAND er geysistórt, en möguleikar til lifsafkomu fólks eru takmarkaðir, að minnsta kosti á meðan ekki er vitað um þau verðmæti, sem falin eru i fjöllum og undir ishellunni og fært reynist að hagnýta. Þann 31. desember 1972 var fólksfjöldi landsins 48.480, en það var aðeins 545 manns fleira en ár- ið áður. Fólkinu fjölgaði aðeins rúmlega 1% á árinu, en árið 1971 nam hún rúmlega 3%. Það er staðreynd, að fæðingum fækkar ár frá ári, en fjölgunin 1971 var óeðlileg vegna heim- komu heils hóps skólabarna, sem dvaliðhafði i Danmörku um skeið (börnin frá Angmagsalik, sem send voru i skóla i Danmörku eft- ir fárviðrið, sem eyðilagði byggð- ina að nokkru.J Arið 1972 fæddust i Grænlandi 948börn, en 1028 árið áður, og 1144 1970, en árið 1964 fæddust þar 1.797 börn, svo auðsætt er, að um mjög mikla fækkun fæðinga er að ræða. Af umræddum 948 börnum 1971 áttu 764 þeirra grænlenzkar mæð- ur, aðrar mæður voru aðallega danskar, en stöðugt fjölgar þeim mæðrum, sem fæddar eru utan Grænlands, enda er það svo, að á undanförnum árum hefur fjöldi erlendra fagmanna unnið að hin- um ýmsu mannvirkjum, sem reist hafa verið i og við hafnir, verksmiðjur, aflstöðvar og stór- bvggingar i Grænlandi. Godthab er stöðugt stærsti bær inn. Þar bjuggu um siðustu ára- mót 8.300 manns. I Julianeháb voru þá 3.340 i Narssak 2.155, i Angmagsalik 2.520, i Scoreby- sund 530, svo nefndir séu nokkrir bæir og ibúatala þeirra, sem Is- lendingum eru kunnastir. Um undanfarin ár hefur byggðaþróun landsins orðið á þann veg, að smáþorpin eru yfir- gefin, útkjálkarnir tæmast og fólkið flytur til stærri bæja, þang- að sem þvi eru búin þægindi á nútima visu, þangað sem það getur sótt nauðsynjar sinar i verzlanirnar, en þarf ekki að afla sér vista fyrir veturinn og lifa af þeim vetarlangt, naumum eða rikulegum eftir atvikum. Og svo er hitt, er varðar myrkrið og kuldann á löngum vetri. Þegar séð er fyrir oliu til upphitunar i bæjunum og til þess að knýja raf- stöðvarnar, sem senda orku til Ijósa inn á heimilin, er ekki nema eðlilegt, að fólkið sækist eftir þeim þægindum, það er fólk með mannlegu eðli rétt eins og með öðrum þjóðum. Allt þetta leiðir til þess, að lifs- hættir verða aðrir en áður. Veiði- mennskan er stunduð af stöðugt minni hópi manna, enda er ekki um auðugan sjó aö ræða af þeim sjávardýrum er fyrrum veittu fólkinu fábreyttar lifsnauðsynj ar. Selum og hvölum fækkar, birnir eru friðaðir og annað eftir þvi. Þetta og sitthvað annað hefur áhrif á lifsháttu þjóðarinnar. G.K. JOHNS-MANVILLE a erullar- 9 einangrun Electrolux umferðaóhöpp verða eða aðrir þeir atburðir, sem lögregla þarf að hafa afskipti af. 1 afturrými bifreiðarinnar er geymsla fyrir slysabörur, og verður hægt að nota hana til að flytja sjúkt eða slasað fólk, þegar þörf er á þvi. Bifreiðin er innréttuð á Bif- reiðaverkstæði Birgis Guð- mundssonar, Keflavik, eftir fyrir- sögn Björns Halldórssonar, lög- regluvarðstjóra á Húsavik. er nó sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerulI- areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið þér f rian álpappir með. Hagkvæmasta einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt borgar sig. Munið Johns-Manville i alla einangrun. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Sendum hvert á land sem er. JON LOFT8SON HF. WH Hringbrout 121 . Simi 10-600 Stjórn verkamannabústaða í Kópavogi auglýsir Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir til sölu Stjórn verkamannabústaða i Kópavogi auglýsir til sölu 32 þriggja og fjögurra herbergja ibúðir, sem smiði er hafin á við Kjarrhólma 18-24 í Kópavogi. Þær verða seldar fullgerðar og afhentar væntanlega á miðju ári 1975. Þriggja her- bergja ibúðir eru 20 talsins og fjögurra herbergja ibúðir 12. Brúttóstærð 3ja herbergja ibúðanna er sem næst 83 fer- metrar, en fjögurra herbergja, sem næst 97 fermetrum. Rétt til kaupa á ibúðum þessum hafa þeir einir, sem eiga lögheimili i Kópavogi, búa þar við ófullnægjandi húsnæðisaðstöðu og fara eigi yfir sett tekju og eignahámark, sem ákveðið er samkvæmt lögum. Greiðsluskilmálar eru i aðalatriðum þeir, að kaupandi skal innan fjögurra vikna frá því að honum er gefinn kostur á ibúðar- kaupum, greiða 7% af áætluðu ibúðar- verði. í október 1974 7% af áætluðu ibúðar- verði. Við sölu og afhendingu greiðist það semá vantar til þess að 20 % af endanlegu kostnaðarverði ibúðarinnar sé greitt af hans hendi. Eftirstöðvar kaupverðsins er nema 80% af kostnaðar- og söluverði ibúðarinnar mun Ilúsnæðismálastofnun rikisins veita að láni til langs tima. Að öðru leyti gilda um ibúðir þessar ákvæði laga og reglugerða um Húsnæðis- málastofnun rikisins og Byggingasjóðs verkamanna og verkamannabústaði. Félagsmálastjóri Kópavogs, sem er trúnaðarmaður stjórnar verkamanna- bústaða i Kópavogi og starfslið hans, mun afhenda umsóknareyðublöð, gefa allar frekari upplýsingar, aðstoða þá, sem þess óska við að útfylla umsóknareyðublöð og taka við umsóknum. Upplýsingar veittar daglega frá kl. 2-4 i Félagsmálastofnun Kópavogs, Álfhóls- vegi 32, simi 41570. Eindagi fyrir skil á umsóknum er 10. des. næstkomandi. Stjórn verkamannabústaða í Kópavogi 5 ^

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.