Tíminn - 20.11.1973, Síða 10

Tíminn - 20.11.1973, Síða 10
10 TÍMINN Þriöjudagur 20. nóvember 1973. Skiptar skoð- anir á þingi umfóstureyð- ingafrumvarp TK-Reykjavík Frumvarpiö um fóstureyöingar og fl. var til fyrstu umræöu i neöri deild í gær og haföi Magnús Kjartansson heilbrigöisráöherra framsögu fyrir málinu. Ilér I blaöinu hefur veriö gerö Itarleg grein fyrir frumvarpinu og viöhorfum læknastéttar og biskupsnefndar til þess. Séra Gunnar Glslason lýsti sig fylgjandi þeim varnaraðgerðum, sem frumvarpið ráögerði, en taldi of langt gengið I fóstur- eyðingasökum og lýsti yfir stuöningi við sjónarmið biskups- nefndar i þvi máli. Ilannibal Valdimarsson lýsti þvi yfir fyrir hönd þingflokks Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, að þingflokkurinn væri andvlgur ákvæðum frumvarpsins um fóstureyðingar. bingflokkur- inn væri andvigur eyðingu lífs. Hafréttar- róðstefnan NTIt—New York. Allsherjarþing SÞ samþykkti á föstudagskvöld, að hafréttarráðstefnan skuli haldin i Caraeas i Venezuela hinn 20. júni næsta ár, en ekki reyndist unnl að halda hana i Santiago i Chile, eins og fyrirhugað var. Fulltrúar 117 rikja greiddu at- kvæði með tillögunni, en tiu sátu hjá. Stefán Gunnlaugsson las úr ályktun læknasamtaka um fósturey ðingaákvæði frum- varpsins, en tók sjálfur ekki af- stööu til málsins. Svava Jakobsdóttir lýsti sig fylgjandi ákvæöum frumvarpsins um frjálsa ákvöröun konu og rétt hennar til að fá fóstureyöingu framkvæmda,ef fósturhennar er innan við 12 vikna gamalt. Sagöi Svava, að prestar lútersku kirkjunnar þyrftu að hugsa sitt ráö að nýju. Itagnhildur llelgadóttir lýsti sig andviga ákvæðum frum- varpsins um skilyrðislausan rétt konu til að fá framkvæmda fóstureyðingu. Spurði hún um rétt fööur fóstursins i þvi sambandi. ólafur Kinarssonsagðist halda, aö meirihluti geölækna og heimilislækna væri meðmæltur frumvarpinu. Lýsti hann stuðningi við meginstefnu frum- varpsins og sagöi, að hinn langi listi um synjanir um fóstur- eyðingu sýndi augljóslega, aö lagabreytingar væri þörf. lijarni Guönason mælti meö frumvarpinu. Karvel l’álmasonlýsti sig and- vigan ákvæðum frumvarpsins um fóstureyðingar, en taldi að önnur ákvæði frumvarpsins stæðu til bóta frá gildandi lögum. Magnús Kjarlansson taldi málið þess eðlis, að óeðlilegt væri að þingflokkar legðu bönd á þing- menn i afstöðu til málsins. Athugasemd — vegna skrifa Morgunblaðsins MOKGUNHI.ADII) gerir launa- mál Sóknar aö umræöuefni s.l. sunnudag. Þar scm blaöiö telur, ranglega, mig vera forsvars- mann félagsins vil ég svara þessu aö nokkru. fíg vil strax taka þaö fram, aö ég er starfsmaöur á skrifstofu Sóknar, svo sein ég hef vcriös.l. 10 ár, en forsvarsmaöur Sóknar er aö sjálfsögöu formaö- ur, Guömunda llelgailóttir, og ber aö þakka lienni, en ekki mér, þaö sem gert hefur veriö i iauna- niálum félagsins. Forsaga máls þess er Morgun- blaðið fjallar um, er sú, að árið 1961 hófst launajöfnun kvenna og karla á tslandi samkv. landslög- um, skyldi hún framkvæmd i áföngum og fullu launajal'nrétti náð 1. jan. 1967. Þrir menn áttu sæti i launajafnaðarnefnd, voru það Barði Friðriksson frá Vinnu- veitendasambandi Islands, Hannibal Valdimarsson frá Alþýðusambandi tslands og Hjálmar Vilhjálmsson ráðu- neytisstjóri i félagsmálaráðu- neytinu og var hann formaður nefndarinnar. Launajafnaðarnefndin skipaði Sóknarkonum i á launaflokk með pakkhúsmönnum hjá heildsölum og verkamönnum á oliustöðvum, sem fengu þá greidd laun samkv. öðrum launataxta Dagsbrúnar, og fá þeir greitt samkv. þeim taxta enn i dag. Viðmiðun við menn þessa hélzt allt launa- jöfnunartimabilið, og ef þessir menn fengu hækkun i launaflokk, vegna niðurskurðar neðsta eða næst neðstu taxta Dagsbrúnar fékk Sókn það einnig, það mun hafa skeð a.m.k. einu sinni á launajöfnunartimabilinu. Hjálm- ar Vilhjálmsson tjáir mér, að enginn ágreiningur hafi verið innan nefndarinnar um hvar i flokk Sókn skyldi skipað, og fengu Sóknarkonur sömu laun og við- miðunarstéttin allt fram til ársins 1970. Sóknarkonur vinna, sem kunn- ugt er, á sjúkrahúsum, elliheimil- um, barnaheimilum, heimilum fyrir vangefna i heimilishjálp hjá Reykjavikurborg og viö fleiri slik störf, sem unnin eru jafnt á helg- um dögum sem virkum, störf þeirra má þvi telja þýðingarmikil fyrir þjóðfélagið, auk þess sem þau eru erfið og erilssöm. Launa- jafnaðarnefnd virðist hafa haft þetta i huga, og litið svo á að sanngjarnt væri og enda nauð- synlegt, að konur þessar fengju örlitið hærri laun, en þau allra lægstu, sem greidd eru i þjóð- félaginu hverju sinni, enda mun hafa verið komin hefð á, að Sókn væri ekki með allra lægsta kvennakaupið i landinu. En Adam var ekki lengi i Paradis, frá árinu 1970 hafa Sóknarkonur setið á bekk með lægst launaða vinnukrafti þessa lands. Með þessa þróun mála varð að vonum megn óánægja innan félagsins og afleiðingin varð, að tið skipti urðu á starfsstúlkum á vinnustöðum Sóknar og erfiðleikar með að fá þangað fólk. Sókn sneri sér nú til Hjálmars Vilhjálmssonar og spurði hann, hvort hann teldi félaginu ekki stætt á að fara fram á það við atvinnurekendur, að þeir viður- kenndu rétt til hærri launataxt- ans, þess taxta er Sókn var i fram til ársins 1970, — annars taxta Dagsbrúnar, — og teldu sig eiga heimtingu á þvi samkv. launa- jöfnuninni. Taldi Hjálmar, að Sóknarkonum bæri tvimælalaust lagaréttur til sömu launa og við- miðunarstéttin, þar eð launa- jöfnunarlögin hefðu ekki verið úr gildi numin, væri þvi sjálfsagt fyrir Sókn að fara fram á þessa hækkun og byggja kröfur sinar i haust á að þetta væri sá taxti, sem Sókn ætti að vera á. Að fengnum þeim úrskurði hjá fyrr- verandi formanni launajafnaðar- nefndar skrifaði formaður félagsins atvinnurekendum 1 efri deild mælti Lúðvik Jósefsson fyrir stjórnarfrum- varpi um staðfestingu á bráðabirgðalögum um breyt- ingu á verðlagsráði sjávarút- vegsins, og Geir Hallgrimsson mælti fyrir frumvarpi um af- nám heimilda til laxveiöi i sjó. 1 neðri deild var frumvarpiö um fóstureyðingar til fyrstu umræðu. Fylgdi Magnús Kjartansson heilbrigðisráð- herra frumvarpinu úr hlaði. Tóku margir þingmenn til máls, og er ljóst, að skoðanir verða mjög skiptar um frum- varpið. Gerð hefur verið itar- leg grein fyrir frumvarpinu hér i blaöinu. Nánar er sagt frá umræðum um frumvarpið i neðri deild i gær annars stað- ar i blaðinu. Eftirfarandi fyrirspurnir voru lagðar fram á Alþingi i gær: Til fjármálaráðherra um fjármál hafnarsjóöa. Frá Lárusi Jónssyni. 1. Hvernig skiptast milli ein- stakra hafnarsjóða og kjör- dæma endurlán þess fjár- magns, sem rikisstjórnin tók að láni skv. 6. gr. fjár- laga 1973, að upphæð 40 millj. kr., til þess að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóöa, sem verst eru settir vegna langra lána? 2. Með hvaða kjörum og til hve langs tima tók rfkis- sjóður umrætt lán, og hver voru kjör endurlánanna til hafnarsjóðanna? 3. Telur ráöherra fullnægjandi að létta greiðsluskilyrði umræddra hafnarsjóða með slikum lánum I stað óaftur- kræfra framlaga? 4. Er það rétt, að sumir hafnarsjóðirnir geti ekki tekið þessi lán vegna synj- unar um rikisábyrgð i þvi skyni? 5. Var ekkert tekið tillit til lausaskulda hafnarsjóð- anna, þegar ákvarðanir voru teknar um úthlutun endurlána til þeirra? Til fjármálaráðherra um nýbyggingu Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Frá Lárusi Jónssyni. 1. Hvers vegna hefur fjár- málaráðuneytið ekki veitt endanlegt framkvæmda- leyfi til nýbyggingar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrr i haust, svo sem heimaaðilar hafa óskað eftir og heilbrigðisráðu- neytið hefur lagt til? 2. Verður veitt nægilegt fjár- magn á fjárlögum næsta árs til þess að standa við fram- kvæmdaáætlun heilbrigðis- ráðuneytisins á þvi ári? Til iönaöarráðherra um oliuleit i hafsbotni umhverf- is tslands. Frá Stefáni Gunnlaugssyni. 1. Hvers konar rannsóknir og leit eftir oliu i jarðlögum i hafsbotni út fyrir ströndum tslands hafa farið fram á undanförnum árum, og hvaða aðilar hafa að þvi staðið? 2. Eru nú fyrirliggjandi um- sóknir eða fyrirspurnir frá erlendum aðilum um leyfi til oliuleitar i hafsbotni um- hverfis tsland, og ef svo er, þá frá hverjum? 3. Hafa verið teknar ákvarðanir um frekari oliu- leit eða veitingu leyfa til slikrar leitar eða rannsókna við tsland, og ef svo er, hvers eðlis eru þær ákvarðanir? Til samgönguráðherra um ferðamál. Frá Heimi Hannessyni. 1. Hvað liður framhalds- athugunum á vegum Sam- einuðu þjóðanna um þróun islenzkra ferðamála? 2. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að tryggja fé til þeirra, og hver yrði hlutur tslands i þvi sambandi? 3. Hafa verið gerðar ráð- stafanir af opinberri hálfu til að leysa hreinlætis- vandamál á fjölförnum ferðamannastöðum? 4. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að kynna alþjóð- legum fjármálastofnunum umræddar áætlanir og hugsanlega þörf á lánveit- ingum vegna framkvæmda á ferðamálum? Til samgönguráðherra um landkynningarstarfsemi. Frá Heimi Hannessyni. 1. Hversu miklu opinberu fé er áætlað að ráðstafa til land- kynningarstarfsemi Ferða- skrifstofu rikisins á næsta ári? 2. Hversu há er sú upphæð, er lögð hefur veriö fram af is- lenzkri hálfu til að standa straum af kostnaði við nor- rænar kynningarskrifstofur I Bandarikjunum og Þýzka- landi á undanförnum þrem- ur árum, og hversu miklu fé er áætlað að ráðstafa i þvi sambandi á næsta ári? Til utanrikisráöherra um endurskipulagningu utan- rikisþjónustunnar. Frá Heimi Hannessyni. 1. Hvað liður þeirri endur- skoðun á starfsemi utan- rikisþjónustunnar, er mál- efnasamningur rikis- stjórnarinnar kveöur á um? 2. Hefur verið leitað álits for- svarsmanna útflutnings- aðila I sambandi við þá endurskoðun? Til utanrikisráðherra um viðurkenningu á herfor- ingjastjórninni i Chile. Frá Svövu Jakobsdóttur. Hefur islenzka rikisstjórnin viðurkennt herforingja- stjórnina i Chile? trá skrifstofu Sóknar svohljóðandi bréf og fór sjálf með það til allra hinna stærstu: „Eins og yður er kunnugt var með lögum nr. 60/1961 um launa- jöfnuð kvenna og karla kveðið svo á, að á árunum 1962—1967 skyldu laun kvenna hækka til jafns við laun karla fyrir sömu störf i al- mennri verkakvennavinnu, verk- smiöjuvinnu og verzlunar og skrifstofuvinnu. Hin árlega launahækkun skyldi ákveðin af launajafnaðarnefnd i samræmi við ákvæði laganna. Akvarðanir nefndarinnar skyldu vera fullnaðarákvarðanir. Eins og fram kemur af bréfi Hjálmars Vilhjálmssonar, for- manns launajafnaðarnefndar og tveim fylgiskjölum með þvi, sem fylgja hér með i ljósriti var við- miðunarstétt sú, sem laun Sóknarkvenna skyldu jöfnuð við, verkamenn á oliustöðvum og pakkhúsmenn hjá heilsölum og hélzt samræmi i launum þessara stétta þar til i kjarasamningum i júni 1970, en þá var samið um meiri hækkun fyrir viðmiðunar stéttina en Sóknarkonur og hefur misræmi i launum haldizt siðan. Stjórn telur, að eftir gildistöku laga nr. 37/1973 um Jafnlaunaráð, sé óheimilt að greiða Sóknarkon- um lægri laun en viðmiðunar- stéttin nýtur, enda hafi mati Launajafnaðarnefndar á þvi að hér sé um jafnverömæt störf aö ræða ekki verið hnekkt. Stjórn Sóknar telur með tilliti til allra atvika og þó einkum þess, að félagið hefur e.t.v. ekki gætt rétt- ar sins sem skyldi, rétt að leggja til að mál þetta verði leyst á þann hátt. að frá 1. nóvember n.k. og þar til samningar verða undir- ritaðir, verði grunnlaun Sóknar- kvenna sem hér segir (mánaðar- laun). rjunarlaun kr. 18.229.00 tir 2 ár kr. 18.958.00 tir 4 ár kr. 19.687.00 tir 6 ár kr. 20.416.00 þar er um að ræða sömu laun viðmiðunarstéttin nýtur. I'eliið bér vður ekki eeta fallizt á þetta er þess vænzt að þér sam- þykkið að aðilar óski þess að Félagsdómur fjalli um málið sem gerðardómur og dæmi um rétt- mæti kröfu okkar. Væntum heiðraðs svars yöar við fyrsta tækifæri”. Eins og framangreint bréf ber með sér fór Sókn aldrei fram á það við atvinnurekendur, aö þeir felldu lagalegan dóm um kröfu félágsins, enda var það vart i þeirra verkahring. Eingöngu var farið fram á það, að þeir viður- kenndu rétt Sóknar i verki, meö þvi að greiða Sóknarkonum sömu laun og viðmiðunarstéttinni frá 1. nóvember, þar eð þá voru samningar félagsins við þá runnir út. Atvinnurekendur tóku bréfi þessu af skilningi og sanngirni, og skil ég ekki hvað Morgunblaðið er að tala um úlfaþyt meðal þeirra i þessu sambandi. Þeir vissu það vel, að frá árinu 1967—1970 voru Sóknarkonur með sömu laun og viðmiðunarstéttin og viður- kenndu að það, sem farið væri fram á, væri réttlætismál. Magnús Óskarsson talaöi aö visu um, að ekki mætti gleyma „garminum honum Katli, at- vinnurekandanum, sem situr hin- um megin við samningaborðið, það verður svo leiðinlegt fyrir hann að hafa ekki um neitt að semja, ef búið er að gera allt aölandslögum’ sagðihann.lHvort man nú ekki einhver eftir þvi, þegar visitalan var afnumin á laun árið 1958, og þau rök borin á borð fyrir almenning, aö það væri miklu heilbrigöara að launafólk semdi sjálft um hana heldur en að hún væri staðfest með landslög- um). Guðmunda Helgadóttir gladdi Magnús með þvi, aö eftir væri að semja um sérkröfur Sóknar, þó að almenna kaupið fylgdi launum viðmiðunarstéttar- innar, og yrði reynt að hafa þær svo fjölskrúðugar, að engum leiddist við samningaborðiö. Hins vegar varð ekki af orðum hans ráðið þá, að hann væri andvigur kröfu félagsins. Georg Lúðviks- son tók framúrskarandi vel undir þessa kröfu, eins og hans er von og visa og óskaði félaginu alls góðs við að fá þessu réttlætismáli framgengt. Lagði hann svo bréf Sóknar fyrir Heilbrigðismála- ráðuneytið og fékk þar heimild til aö greiða laun samkvæmt þvi frá 1. nóvember. Það er þvi alrangt hjá Morgunblaðinu, að við höfum aðeins munnleg svör frá ráðuneyt inu, svar þess var að sjálfsögöu til Rikisspítala, en ekki Sóknar, enda þeir en ekki við, sem fóru fram á heimildina. Sókn mun siðan byggja kröfur sinar við samningaborðiö i haust, á þeim rétti sem hér hefur áunn- izt, þegar atvinnurekendur hafa hafið launagreiðslur samkvæmt þvi launajafnrétti, sem félaginu var tildæmt á sinum tima. Er vandséð hvað það kemur Framsókn við, það er ekki vitað að þær hafi glatað neinu af þeim réttindum, sem þær fengu með launajöfnunarlögunum. Hitt kynni að vera ástæðan fyrir þvi aö Morgunblaðið rikur upp út af þessu réttlætismáli, að viðs vegar I þessu þjóðfélagi séu konur, sem likt er ástatt með konurnar i Sókn, að þær hafa glatað þvi launajafnrétti, sem þeim var úskurðað með lögum, eða e.t.v. aldrei hlotið það i framkvæmd. Hins vegar munu Sóknarkonur allar þakka formanni sinum, Guömundu Helgadóttur þetta framtak til að rétta hlut þeirra, og ekki siður þeir aðilar, sem dvelja um lengri eöa skemmri tima á sjúkrahúsum, elliheimil- um og öörum vinnustöðum þar sem Sóknarstúlkur vinna, og eiga mikið undir þvi að þangað fáist gott fólk til starfa. Að sfðustu vil ég hvetja Sóknar- konur til að fjölmenna á fund Sóknar, sem haldinn verður i Lindarbæ miðvikudaginn 21. nóvember, og þakka formanni sinum þetta einstæða afrek. Maria Þorsteinsdóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.