Tíminn - 20.11.1973, Side 21
í'.',r . y.ii, cr
Þriðjudagur 20. nóvember 1973.
TÍMINN
21
Leikur
kattarins
að
músinni
— íslenzka körfuknattleikslandsliðið
tapaði sínum fyrsta leik í
Bandaríkjaförinni með miklum mun
Frá Hilmari Victors-
syni:
Lokatölur i fyrsta
leik islenzka liðsins i
körfuknattleik i
Bandarikjaförinni
urðu ekki beint hag-
stæðar. Liðið tapaði
fyrir háskólaliði
Marylands með 45
stigum gegn 166.
1 leiknum vorum við i hlut-
verki músarinnar gegn kett-
inum. Það var um algera ein-
stefnu að ræða. Stigahæstu
leikmenn okkar voru Jón
Sigurðsson og Þórir Magnús-
son, báðir með 12 stig, en þeir
voru skástu menn liösins
ásamt fyrirliðanum, Kristni
Jörundssyni.
Lið Marylands er eitthvert
allra sterkasta háskólalið
Bandarikjanna, og er talið i
hópi 5beztu liðanna. 1 leiknum
gegn okkur léku sterkustu
leikmenn liðsins nær allan
leiktimann. Ahorfendur voru
um 6 þúsund talsins, eða tals-
vert fleiri en við eigum að
venjast heima.
Þaö sem háði islenzka
liðinu, hvað mest i þessum
leik, var hinn gifurlegi hæðar-
mismunur. Bandarisku leik-
mennirnir, margir tveggja
metra risar, léku i annarri
hæð en við ef svo má að orði
kveða. Flugfreyjan i Loft-
leiöavélinni hafði hins vegar
orð á þvi, er við stigum úm boð
i Keflavik, að hún ætti erfitt
með að trúa þvi að hér væri
körufknattleikslið á ferð, þvi
að enginn þurfti að beygja sig,
er inn i flugvélina var gengið.
Um 20-30 Islendingar horfðu
á leikinn. Þeir komu frá
Washington og nálægum
byggðum. Þeirra á meöal var
Þorsteinn Ingólfsson frá
sendiráðinu i Washington.
Enska Knattspyrnan:
Keegarjskorz
aði brennu
Liverpool-liðið komið í þriðja sæti
Kevin „litli” Keegan, sýndi góð-
an leikmeö Liverpool gegn'lps-
wich á laugardaginn. 'Hann
skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt,
fyrst tvö meö skalla og siðan eitt
úr vitaspyrnu. Fjórða mark
Liverpool-liðsins, skoraði Peter
Cormack. Mörk Ipswich skor-
uðu þeir Bryan Hamilton og
David Johnson. Liverpool er nú
komiðupp I þriðja sæti i 1. deild-
inni, en úrslitin á getraunaseöl-
inum urðu þessi:
x Arsenal—Chelsea 0:0
1 Leeds—Coventry 3:0
1 Leicester—Brunley 2:0
1 Liverpool—Ipswich 4:2
1 Man. City—Q.P.R. 1:0
1 Newcastle—Man. Utd. 3:2
2Norwich—Everton 1:3
lSheff. Utd.—Derby 3:0
x Southampt,—Tottenh. 1:1
1 Stoke—Birmingham 5:2
x Wolves—West Ham 0:0
1 Bristol C.—Sunderl. 2:0
Siðasti leikurinn er leikurinn i
2. deild, sem var á getrauna-
seðlinum.
Billy Bremner og félagar
hans úr Leeds, halda áfram
sigurgöngu sinni. A laugardag-
inn urðu leikmenn Coventry fyr-
ir barðinu á þeim. Leeds vann
stórt, 3:0, og skoruðu þeir Alan
Clarke, Joe Jardan og Bremner,
mörk liðsins.
Leicester, lagði, „spútnik”-
liðið frá Brunley að velli þegar
Burnley-iiðið kom i heimsókn.
Leikmenn Leicester leku vel, og
2:0 sigur þeirra var sanngjarn.
Glover og Stringfellow, skoruðu
mörk heimamanna.
Manchester City hafði heppn-
ina með sér gegn Queens Park
Rangers. Lundúnaliöiö átti
meira i leiknum, þar til að
Francis Lee skoraði eina mark
leiksins úr vitaspyrnu.
Newcastle náði báðum stigun-
um gegn Manchester United,
þrátt fyrir að liðið vantaði sina
sterkustu leikmenn. Tommy
Cassidy skoraði tvö mörk fyrir
heimamenn, og nýliðinn Hope
bætti þvi þriðja við. Mörk
United, skoruðu þeir George
Graham og Macari.
Everton átti ekki i erfiðleik-
um með Norwich á laugardag-
inn. Tvö sjálfsmörk voru skoruð
i leiknum, en þau skoruðu þeir
McLaughlin (Everton) og
Forbes (Norwich). Mörk
Everton, skoruöu þeir Clemense
og Bernard.
Martin Chivers, sem Totten-
ham vill selja fyrir 300 þús.
pund, skoraði eina mark
Lunúnaliðsins á The Dell i
Southampton gegn Dýrlingun-
um. Það var meira en
Lundúnaliðin Arsenal, Chelsea,
og West Ham, gerðu á laugar-
daginn. Þessum þremur frægu
liðum tókst ekki að skora.
Aftur á móti voru leikmenn
Stoke City, heldur betur á
skotskónum. Fimm sinnum
neyddust leikmenn Birming-
ham til að hirða knöttinn úr
netinu, hja áér á laugardaginn.
Ritchie skoraði tvisvar og
Hurst, Robertson og Mahony
sendu knöttinn einu sinni i netið.
Hynd og Latchford (B) skoruðu
mörk Birmingham.
,,Það skiptir
máli hvernig
irnir vinnast'
— segir Brynjólfur Markússon, þjálfari
2. deildar liðs KA í handknattleik
5 _JL Æh &■-
I
I
i
ekki
leik-
f „Það skiptir ekki máli
hvernig leikirnir
vinnast/ bara að við fá-
um stigin.".. sagði
Brynjólfur Markússon,
þjálfari og leikmaður 2.
deildar liðs KA frá
Akureyri KA-leik-
mennirnir höfðu
heppnina með sér um
helgina í islandsmótinu i
handknattleik. Á
laugardagskvöldið tókst
þeim að tryggja sér sig-
ur gegn Fylki á siðustu
sekúndunum, 26:25 og á
sunnudaginn unnu þeir
Breiðablik 23:22.
Breiðablik hafði yfir
nær allan leikinn, og var
staðan 13:8 i hálfleik. I
siðari hálfleik sóttu ieik-
menn KA í sig veðrið, og
þeim tókst að jafna,
20:20. Brynjólfur bætti
síðan við þremur mörk-
um, og var staðan þá
23:20 fyrir KA, en leikn-
u.n lauk 23:22.
Fimm leikir fóru fram i 2.
deildinni um helgina, og urðu
úrslit þessi:
KA-Fylkir 26:25
Þróttur-Völsungur 31:13
KA-Breiðablik 23:22.
Grótta-Völsungar 23:17
KR-Keflavik 25:18
BRYNJÓLFUR
MARKUSSON.. sést hér
skora eitt af tiu niörkum sin-
um i leik gegn Breiðabliki.
(Timainynd Ilóbert)
Víkingsliðið
komið / gang
Það sýndi mjög góðan leik i fyrri hálfleik gegn Haukum.
Lokatölur leiksins urðu 28:22 fyrir Víking
Mikiö markaregn var i leik
Vlkings og Hauka i 1. deildar-
keppninnu í handknattleik.
Fimmtiu sinnum þurftu mark-
verðir liöanna að sækja knöttinn i
netiö i leiknum, sem lauk 28:22
fyrir Viking. Vikingsliöið náöi sér
vel á strik i fyrri hálfleiknum, og
náði liöið að sýna sinn bezta leik.
Vörnin var góð, og Sigurgeir
Sigurösson varöi vel. Vikingar
komust fljótlega i 7:1, siðan mátti
sjá 11:2, og hálfleiknum lauk með
14:5, fyrir Viking. I siðari hálfleik
fóru Víkingar að slappa af, þegar
staðan var 19:11. Þá minnkaði
Höröur Sigmarsson muninn i
19:15 með fjórum mörkum, og
eftir það skiptust liðin á að skora.
Lciknum lauk svo með sigri
Vikings, 28:22.
Heppnin var ekki með Haukum
i byrjun. Þeir misnotuðu þrjú
vitaköst og skoruðu ekki nema
tvö mörk á 27. minútum, fyrst á 2.
min, síðan á 17. min., og þriöja
markið kom á 27. minútu. Ekki
nógu góð skotnýting hjá liðinu.
Vikingsliðið átti mjög góðan leik i
fyrri hálfleik, og er greinilegt að
leikmenn Vikings eru að koma til.
Þeir léku nokkuð vel i vörninni,
og sóknarleikur liðsins var mjög
góður. Nú léku leikmennirnir
fyrir liðið, en ekki fyrir sjálfa sig,
og árangurinn kom strax i ljós.
Einar Magnússon var mark-
hæsti leikmaður Vikingsliösins.
Hann skoraði tiu mörk, fjögur úr
vitum. Sum mörk Einars voru
stórglæsileg, skoruð með lang-
skotum. Aörir, sem skoruðu fyrir
Viking, voru: Stefán og Guðjón,
fjögur hvor, Jón 3, Ólafur, Páll og
Skarphéðinn tvö hver og Viggó
eitt. Mörk Hauka, skoruðu:
Hörður 8 (3 viti), Stefán 7, Ólafur
4( 3 viti), Guðmundur, Arnór og
Frosti eitt hver.
Haukur Þorvaldsson og Jón
Friðsteinsson dæmdu leikinn.
Þeir voru mjög ákafir að visa
leikmönnum af leikvelli fyrir
mjög litilfjörleg brot.
SOS.
Höfnuðu í
fjórða sæti
íslcnzka kvennalandsliðið I
handknattleik hafnaði i fjórða
sæti I Noröurlandamótinu,
sem haldið var um helgina.
Liöið tapaöi fyrir Svium, Dön-
um og Norðmönnum, en
sigraði finnsku stúlkurnar I
siðasta leiknum með 16 mörk-
um gegn 9.
Dönsku stúlkurnar uröu
Norðurlandameistarar, en
þær sigruðu Norðmenn i úr-
slitaleik með 13:8.
Frammistaða islenzku
stúlknanna var tæplega eins
góð og búizt haföi verið við
fyrirfram. T.d er hið stór tap
fyrir norsku stúlkunum afleitt,
en leiknum lyktaði 2:14. Fyrir
Svium töpuðu þær 7:15 og fyrir
Dönum 8:12. Þess má geta, að
leikreyndasta stúlka islenzka
liðsins, Sigrún Guðmunds-
dóttir, gekk ekki heil til
skógar, en hún slasaðist á fæti
i æfingaleik fyrir keppnina.