Tíminn - 29.11.1973, Side 5
Fimmtudagur 29. nóvember 1973.
TÍMINN
5
LAXDÆLA SAGA
Helgafell hefur sent frá sér
Laxdæla sögu i útgáfu Halldórs
Laxness. Laxdæla saga er róm-
antiskust hinna meiri háttar forn-
sagna. Meginstofn hennar er
ástarsaga Guörunar Ösvifurs-
— í annari útgáfu
ÚT ER komin UNDRAF'LUG-
VÉLIN, fjórða bókin i flokknum
um Arna og Rúnu i Hraunkoti,
eftir Ármann Kr. Einarsson.
Þetta er önnur útgáfa hins vinsla
bókaflokks. Þær bækur, sem
komnar eru heita: Falinn fjár-
sjóður, Týnda flugvélin og Flug-
ferðin til Englands. Auk þess
hafa bækurnar Tvö ævintýri,
Gullroðin ský og Yfir fjöllin
fagurblá verið gefnar út öðru
sinni og eru þessar sjö bækur þær
fyrstu i ritsafni Armanns.
1 undraflugvélinni kemur nú til
sögunnar hin fræga persóna Olli
ofviti. Árni gerist nú flugmaður á
litlu þyrlunni, sem enski flug-
stjórinn gaf honum og flýgur
beint inn i undur og ævintýri
tæknialdar.
Það er bókaforlag Odds Björns-
sonar á Akureyri, sem gefur út
bækur Ármanns. 1 bókunum eru
teikningar eftir Halldór Péturs-
son. Undraflugvélin er 188
blaðsiður.
—SB
dóttur, hetjur sögunnar konungs-
ættaðir, islenzkir höfðingjar með
háttu suðrænna riddara.
ÞegarHalldór Laxness lét gefa
út Laxdælu með nútima staf-
setningu árið 1941 var það upphaf
nýrrar stefnu i útgáfu fornsag-
anna. Nú eru Islendingasögur
gefnar út með þeim rithætti til
lestrar i skólum. Rök Halldórs
fyrir nútimastafsetningu á forn-
sögunum voru ljós og einföld,sög-
urnar eru lifandi bókmenntir á
lifandi máli.
En útgáfan 1941 mætti harðri
mótspyrnu. Þegar auglýst var að
hún stæði til, setti Alþingi i flýti
ný iög til að koma i veg fyrir
hana. Tókst með naumindum að
koma bókinni út. áður en lögin
gengu i gildi.
Sú útgáfa, sem nú kemur, er
útgáfan frá 1941, endurbætt og er
þetta vandaðasta og aðgengi-
legasta útgáfa. sem til er af
Laxdæla sögu.
Mvndir i bókinni eru eftir
Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur,
Gylfa Gislason. Hring Jóhannes-
son og Þorbjörgu Höskuldsdóttur.
Bókin er 230 blaðsiður með nafna-
og myndaskrá. Vikingsprent
prentaði.
—SB
ODESSA
SKJÖLIN
— leit að SS-foringja
ODESSA skjölin, heitir ný bók
eftir Frederick Forsyth, i þýðingu
Hersteins Pálssonar. Sögu-
þráðurinn er á þessa leið: Peter
Miller, blaðamaður i Hamborg,
kemst af tilviljun yfir dagbók
Gyðings, sem verið hafði i tor-
tímingarbúðum Nazizta i Riga og
haldið lifi, þó að með ólikindum
væri. Nánari athugun á mál-
efnum SS-sveita þeirra, sem
frömdu múgmorðin i Riga og
viðar, sýnir, að yfirvöld i V-
Þýzkalandi hafa næsta litinn
áhuga á að leita helztumorðingja
SS uppi. Þetta verður til þess að
Miller heitir þvi að finna yfir-
ntann búðanna i Riga, sem talið
er að hafi allt að 80 þúsund
mannslif á samvizkunni. Hann
kynnist strax tregðu yfirvalda við
að láta menn hnýsast i mál af
þessu tagi, en Miller eflist aðeins
við það.
Leikurinn berst viða um Þýzka-
land og brátt hafa samtök fyrr-
verandi SS manna, ODESSA,
komizt að hvað um er að vera og
þá telst Miller svo hættulegur, að
ekki komi til mála annað en finna
„endanlega lausn'.’ Leikurinn
æsist enn, en Miller heldur sitt
strik...
Inn i söguþráðinn fléttast átök
þau, sem átt hafa sér staö milli
Israelsmanna og Egypta alveg
fram á þessa daga og auka þau
bæði á spennu og sannleiksgildi
bókarinnar. Odessa skjöldin er
244 blaðsiður, Isafoldarprent-
smiðja gefur út.
—SB
Trúnaðar-
maður
Nazista nr. I
— saga úr norska
hernáminu
TRÚNAÐARMAÐUR Nazista nr.
1. heitir bók eftir Per Hansson, i
þýðingu Skúla Jenssonar. Er
þetta sönn frásögn af ömurleg-
asta þætti allrar hernámssögu
Noregs — frásögn af Norðmann-
inum, sem varla átti sinn lika
meðal þýzkra Gestapomanna,
sakir grimmdar og mannvonzku.
Sagan er byggð á frásögn
ættingja, kennara, vinnuveitenda
og annarra, sem þekktu þennan
mann, áöur en striðið skall á, auk
þess sem könnuð hafa verið
réttarskjöl og rætt við dómara
hans, gæzlumann og geðlækna.
Þessum manni skrikaði fótur á
götu samíélagsins l'yrir strið, og
árið 1940 hugsaði hann aöeins um
það eitt að hefna sin á þessu — að
hans dómi-vonda samlélagi.
Gestapo veitti honum færi á
hefnd. Bókin er 200 blaðsiður.
Skuggsjá geíur út. —S*5
Ný víkingasaga:
Hrólfur tek
inn til fanga
HRÓLFUR tekinn til fanga heitir
þriöja bókin um Hrólf, eftir Peter
Dan. örn Snorrason islenzkaði
bókina, sem er I flokknum
Vikingasögur Isafoldar. I þeim
segir frá tveimur drengjum,
Hróifi, syni Bjarnar Vikinga-
konungs á Bjarnarey, og vini
hans á svipuðu reki. Þeir komast i
óleyfi um borð i Vikingaskipið
örninn og koma ekki heim aftur
fyrren að mörgum árum liðnum.
Serkir flytja þá nauðuga frá
Hammaborg, og þeir lenda i ótal
ævintýrum og hættum. Næsta
bók, sem út kemur i þessum
flokki, mun heita Hrólfur á flótta.
Sagan um Hrólf er 116 blaðsiður.
Bók um Eyjar eft-
ir Eyjamann
ÍSAFOLDARPRENTSMIDJA
hefur gefið út stórt rit eftir
Guðjón Armann Eyjólfsson,
skólastjóra stýrimannaskólans i
Guðjón Armann Eyjólfsson.
Eyjum, og nefnist það Vest-
mannaevjar — bvggð og eldgos,
alls hátt á fjórða hundrað
blaðsiður.
Þetta rit er skreytt mörgum
myndum og teikningum, og eru
það allt Eyjamenn, sem þar hafa
lagt hönd að verki. Aðalteiknar-
inn er Guðjón Ólafsson, og gegnt
titilsiðu bókarinnar er litprentun
málverks eftir Sverri Haralds-
son.
Bókarhöfundur, Guðjón
Ármann Eyjólfsson, segir, að i
þessari bók langi sig til þess ,,að
bregða upp svipmyndum frá
þeirri byggð, sem horfin er. Sem
bakgrunnur er i stórum dráttum
yfirlit um sögu og lif i Vest-
mannaeyjum”.
Yfirlit er einnig i bókinni um
jarðsögu Vestmannaeyja með
jarðfræðikortum eftir Svein
Jakobsson.
Með viðtölum og frásögnum af
eigin reynslu lýsir Guðjón
Ármann eldgosinu: þar er þáttur
um fyrirboða, rakið hjálparstarf
Rauða krossins og fleiri aðila.og
sérstakur þáttur er um Viðlaga
sjóð og endurreisn i Eyjum.
Aftast er loks skrá úm alla þá, er
bjuggu i húsum, sem nú er komin
undir hraun.
Bók þessa tók samun Björn L.
Jónsson læknir eftir ýmsum
heimildum, eldri sem yngri, og er
hún gefin út af Náttúrulækninga-
félagi islands.
1 henni eru taldar milli 60 og 70
jurtir, sem um langan aldur hafa
verið notaðar til lækninga, sem
drykkjarjurtir og til matar, og
____________—SB
Drauma-
landið
hennar
DRAUMALANDIÐ hennar, hetir
nýjasta ástarsagan eftir Ingi-
björgu Sigurðardóttur. Er þetta
sautjánda bók höfundar. Hinar
rómantisku sögur Ingibjargar
hafa náð miklum visældum fjöl-
menns hóps lesenda. Drauma-
landið hennar gerist bæði i
Reykjavik og Noregi, þar sem
Rúna finnur þann rétta. Það er
bókaforlag Odds Björnssonar' á
Akureyri, sem gefur út bækur
Ingibjargar. Draumalandið
hennar er 165 blaðsiður. —SB
sumar til litunar. Upplýsingar
'eru um vaxtarstað jurtanna,
meðferð þeirra, verkanir og
notkun, og flestum þeirra fylgja
ágætir myndir, teknar úr
fslenzkri ferðaflóru eftir Askel
Löve, teiknaöar af Dagny Tande
Lid. Bókin er 80 blaðsiður i bandi,
og kápuna prýða litmyndir af
jurtum úr bókinni.
íslenzkar lækninga
og drykkjarjurtir
MR byður
10 teg. fuglafóðurs
• varpkögla heilfóður •hveitikorn
• hænsnamjöl MR • ungafóður 4 teg.
• blandað hænsnakorn • bygg •maískurl
toour
grasfrœ
girðingmfni
MJOLKURFELAG
REYKJAVÍKUR
Sími: 11125
tatra
Drif á öllum hjólum. Mismunadrif læsanleg.
Vél 212 (Din) hestöfl. Burðarþol 15 tonn.
A' ^
Verð með stálpalli, hliðar- og endasturtum,
að fullu tilbúinn til notkunar,
Ca. 2.750.000,00 kr.
Möguleikar á afgreiðslu í desember —
EF PANTAO ER STRAX.
Hvert hjól er með sjálfstæða f jöðrun.
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-46 SlMI 42600
KÓPAVOGI