Tíminn - 29.11.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 29.11.1973, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 29. nóvember 1973. 1 Ætluðu Haukarn- ir sér íslands- meistaratitilinn handknattleik ? MIKIL óánægja ríkir nú hjá handknattleiksmönnum úr Haukum I Hafnarfiröi. óánægjan er vegna þess aO HaukaliOiö er ekki f 1. sæti I 1. deildarkeppninni og vilja stjórnarmenn Hauka kenna Kristjáni Stefánssyni um þaö, aö liaukar hafa „aöeins” hlotiö fjögur stig út úr fjórum leikjum I 1. deildar- keppninni. Málin hafa þróazt þannig, aö 3 af stjórnarmönnum Hauka hafa rekiö Kristján Stefánsson þjálfara frá störfum, án þess aö hafa samráö viö tvo af stjórnarmönnunum, sem hafa nú sagt sig úr stjórninni, vegna þessa atburöar. leikmenn, sem komast ekki i liö hjá Viöari, hætti að æfa. Vill það ekki alltaf verða svo, að þeir leikmenn, sem eru ekki nógu góðir og komast lið, verða óánægðir og hætta. Þess vegna er það spurningin: HVERJIR HÆTTA NÆST HJA HAUK- UM? — SOS. !' Þrir stjórnarmenn ráku Kristján Stefánsson, þjálfara, vegna þess að Haukar ^ hafa ,,aðeins" fengið fjögur stig i 1. deildinni, — Viðar tekur við Haukum. _ Hverjir hætta næst hjá Haukum? það má búast víö, að þeir ekki íiíí I I 1 I Þeir ætluöu Haukum stóra hluti i vetur, þessir þrir stjórnarmenn, sem ráku Kristján. Eftir að Haukar komu á óvart i byrjun Is- landsmótsins, fór þessa menn að dreyma um, að Is- landsmeistaratitillinn myndi lenda hjá Haukum. Nú þegar þeir eru farnir aö sjá, að úr þvi getur ekki orðið, skella þeir skuldinni á þjálfara liðsins og reka hann, eins og stóru félögin i Englandi gera, þegar knattspyrnulið- um þeirra gengur ekki allt of vel. Þeir bera þvi við, að leikmenn Hauka væru hættir að mæta á æfingar og væru óánægðir með Kristján. Þvi til sönnunar nefnir Guð- mundur Fr. Sigurösson, varaformaður handknatt- leiksdeildar Hauka, tvo leik- menn, i viðtali við Morgun- blaðið i gær. Maður gat ekki annað en brosað.þegar maður sá nöfnin, þvi aö þaö voru leikmenn, sem litil afrek hafa sýnt á handknatt- leiksferli sinum. Stjórnarmenn Hauka verða að sætta sig við það, að Hauka-liðið er ekki sterkt handknattleikslið og þeir mega vera ánægöir með þessi fjögur stig deildinni, þvi að það er stað- reynd, aö þrjú af þeim eru heppnisstig, — stigið, sem þeir fengu gegn Fram og stigin, sem þeir fengu gegn Armanni. Viöar Simonarson hand- knattleiksmaður úr FH, hefur nú tekið við Haukaliðinu, a.m.k. til að byrja með. Guö’mundur sagöi i viötalinu, að það hefði verið vel mætt á æfingu, sem Viðar stjórnaði á þriðjudag- inn. Og enn fremur sagði hann: „Við munum sækja fast að fá Viöar sem þjálf- ara, og vonumst einnig auð- vitað eftir þvi, að hann komi aftur i raðir Haukanna á næsta keppnistimabili. Guðmundur er búinn að gleyma því, að fyrir þetta keppnistimabil var haldinn fundur með leikmönnum Hauka og á þeim fundi, spurði Hafsteinn Geirsson, leikmenn Hauka, hvernig þeir mundu bregðast við, ef Viðar kæmi aftur yfir i Hauka. Svörin, sem hann fékk þá, voru: Þá erum við hættir, sögöu nokkrir beztu leikmenn liðsins og lömdu hnefanum i borðið. Það veröur gaman að fylgjast með æfingum hjá 1 VIDAR SIMONARSON....hefur tekiö viö þjálfun 1. deildar liös Haukar hafa fengið i 1. Haukum á næstunni, þvi að Hauka i handknattleik til bráðabirgöa. (Tímamynd Róbert) kmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm VERÐUR HANDKNATT- LEIKUR EKKI Á ÓL í MONTREAL 1974? Kanadamenn hafa meiri áhuga á golfi en handknattleik HÁVÆRAR raddir eru uppi um það í Kanada, að handknattleikur verði ekki leikinn á ólympíuleikunum i Montreal 1976. Mikið hefur verið um það rætt i kanadísku dagblöð- unum og bent á, að handknattleikur sé ekki vinsæl iþrótt i Kanada. Þá væri mikill auka- kostnaður því samfara að hafa handknattleik á ÓL ; , þar sem reisa þyrfti íþróttahús, sem hægt væri að leika hand- knattleik i. Handknatt- leikur var leikinn á óly mpíuleikunum i Múnchen 1972, og þótti hann ekki hafa tekizt vel þar, því að hann dró fáa áhorfenduraðsér. Og er þó mun meiri áhugi á handknattleik í Evrópu en i Kanada. Allt bendir til að Kanada- menn taki frekar upp golf á Ölympiuleikunum i Montreal. Það yrði mun ódýrarar fyrir Kanadamenn, þvi að i Kanada eru margir góðir golf-vellir, og meiri áhugi er á golfi en handknattleik. Golfið myndi einnig draga að fleiri Banda- rikjamenn en handknattleik- ur, enda er golf að verða vin- sælasta iþróttagreinin i heim- inum. Handknattleikur hefur tvisvar sinnum verið tekinn upp sem ÓL grein, fyrst i Þýzkalandi 1936 á Ólympiu- leikunum i Berlin, og siðan á ÓL i Munchen 1972. I bæði skiptin hefur handknattleiks- keppnin misheppnazt og dregið að sér mjög fáa áhorf- endur. Fólkið vill frekar horfa á körfuknattleik og blak. —SOS Leeds nálgast metið... BILLY Breraner og félagar hans úr Leeds United, hafa örugga forustu i ensku 1. deildarkeppninni. Leeds er eina liðið, sem ekki hefur tapaö leik, er ósgrað eftir 17 leiki. Allt bendir til að Leeds nái því, að slá út met Liver- pools-liðsins, sem tapaði ekki 19 leikjum I röð i deildinni 1949. Leeds hefur leikið átta leiki á heimavelli sinum Elland Road, unnið sex, en gert jafntefli i tveimur — skoraö 19 mörk gegn fjórum. Liðið hefur leikið niu leiki á útivöllum, unniö sex, en gert jafntefli i þremur — skoraö þréttán mörk gegn fjórum. Staðan er nú þessi i 1. deild- inni: Leeds 17 12 5 0 32:8 29 Newcastle 17 c ) 4 4 28:18 22 Burnley 17 8 6 3 24:16 22 Everton 17 8 6 3 22:15 22 Liverpool 17 9 4 4 22:15 22 Ipswich 17 8 5 4 29:25 21 Q.P.R. 17 6 7 4 28:22 19 Derby 18 7 5 6 19:19 19 Southampt.17 6 6 5 22:25 18 Leicesteh 17 5 7 5 17:18 17 Arsenal 17 7 3 7 19:21 17 Coventry 18 7 3 8 17:21 17 Chelsea 17 6 4 7 28:22 16 Sheff.Utd. 17 6 4 7 22:22 16 Man.City 17 6 4 7 18:20 16 Tottenham 17 5 5 7 20:24 15 Stoke 17 4 6 7 22:21 14 Man.Utd. 17 4 5 8 15:20 13 Wolves 17 4 4 9 18:27 12 Norwich 17 2 7 8 12:25 11 West Ham 17 1 7 9 15:29 9 Birmingham 17 2 5 10 17: 33 Bill Shankly, framkvæmda- stjóri ensku meistaranna, Liverpool, likar örugglega ekki lifið núna. Þvi að hann hefur sagt, að honum liði alltaf betur, þegar hann litur á stöðuna í deildinni og sér Everton, hitt liðið frá hafnar- borginni Liverpool, fyrir neðan Liverpool. En Shankly litur alltaf á stöðuna eftir hvern leik Liverpool-liðsins, til að sjá^i hvaða sæti Everton er i. Um næstu helgi má búast viö aö Bill Shankly andi léttar. En þá hefur Liverpool góöa möguleika á að skjótast upp fyrir Everton. Liverpool leikur þá gegn West Ham á heimavelli sinum Anfield Road, og eru leikmenn liösins ekki vanir að tapa fyrir West Ham á heimavelli. Everton leikur gegn Southampton á heimavelli Dýrlinganna, The Dell, i hafnarborginni frægu á suðurströnd Englands. West Ham er eina liðið i 1. deild, sem hefur ekki unnið leik á heimavelli sinum^Upton Park, á keppnistimabilinu. Liðið hefur aðeins unnið einn leik i 1. deild. Birmingham, Norwich, Stoke og Manchester United eru þau lið, sem hafa ekki unnið leiki á útivelli. Leikmönnum Derby gengur illa að skora mörk á úti- völlum, þeim hefur aðeins tvisvar sinnum tekizt að skora á útivelli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.