Tíminn - 29.11.1973, Page 17
Fimmtudagur 29. nóvember 1973.
TÍMINN
17
» «i If
m&Jslí ■ - J'
Þessi mynd var tekin fyrir landsleik tslands og Sviþjóöar I sl. viku.
(Tfmamynd Gunnar)
Springur sprengjan
í Laugardalshöll-
inni í kvöld?....
eða yfirgefa leikmenn íslenzka landsliðsins Höllina
með lúðraþyt í eyra
ÍSLENZKA landsliðið i hand- raun fyrir alþjóða handknatt-
knattleik, fær sina siðustu próf- leiksmótið i Rostock i Austur-
BJARNI LEITAR
AÐ ÞJÁLFARA
FYRIR AKRANES
í BRETLANDI
SEM kunnugt er, hafa öll 1. deildar félögin i
knattspyrnu í hyggju að ráða erlenda þjálfara
fyrir næsta keppnistimabil, nema Fram. M.a.
eru Akurnesingaraðleita eftir þjálfara frá Bret-
landseyjum.
Mun Bjarni Felixson, einn af stjórnarmönnum KSI, halda utan
um næstu helgi þeirra erinda að ræða við brezkan þjálfara fyrir
Akranes. Hefur Bjarni áður verið Akurnesingum innan handar við
erlend samskipti.
Vikingar munu hafa leitað til stjórnar KSt á sinum tima og beðið
um fyrirgreiðslú af hálfu sambandsins um ráðningu þjálfara frá
Bretlandseyjum, en ekkert hefur komið út úr þvi. Virðist sem
stjórn KSI hafi gleymt þessu erindi Vikinga.
Sér flísina
í auga bróð-
urins....
...en ekki bjálkann í sjálfs sín auga
•
ARMENNINGAR eru nú mjög gramir út i stjórn H.S.Í. Það er
ekki nema von, þvi aö H.S.I. hafði um 300 þús. krónur af
handknattleiksdeild Armanns, meö þvi að vilja ekki fresta 1.
deildarleikjunum i handknattleik, sem voru leiknir á meðan
Dynamo Pancevo var hér i heimsókn á dögunum. Þaö er nokkuö
furðulegt, að á meðan stjórn H.S.I. er að barma sér yfir peninga-
leysi, þá er hún um leið að grafa undan fjárhag Armanns, félags,
sem er eitt af aðildarfélögum handknattleikssambandsins.
Armenningar högnuðust ekki á heimsókn Dynamo Pancevo og
það má að mörgu leyti kenna það stjórn H.S.Í., sem lét leiki fara
fram i 1. deildinni á sama tima og Júgóslavarnir voru að leika.
Það er merkilegt, að stjórn H.S.I., sem er kosin af félögunum inn-
an sambandsins, skuli vera að vinna gegn þeim. Það er nú orðið
svo, að landslið hefur algeran forgang hjá H.S.I., en síöan koma
félagsliðin. Það er eingöngu hugsað um fjárhag sambandsins, en
ekki reynt að ýta undir fjárhaginn hjá félögunum innan sam-
bandsins. Stjórn H.S.Í.: ÞÚ SÉRÐ FLISINA 1 AUGA BRÓDUR
ÞINS. EN EKKI FJALKANN 1 SJALFS ÞIN AUGA! —SOS
Þýzkalandi, i kvöld i Laugar-
dalshöllinni. Liðið leikur þá gegn
Svium og hefst leikurinn kl. 20.30.
Leikurinn i kvöld hefur mikla
þýðingu fyrir islenzka landsliðið,
scm hefur ekki staðið sig sem
bezt upp á siðkaslið. Ef islenzka
liðið vinnur ekki leikinn í kvöld,
hefur það ekkert að gera á
alþjóðe mótið i Austur-Þýzkalandi
i desemberbyrjun, þar sem Ung-
vcrjar, Tékkar og tvö lið frá
Austur-Þýzkalandi, verða meö.
Ef við ráðunt ekki við Svia, sem
eru nú i öldudai, þá höfuin við
enga möguleika gcgn Austur-
Evrópu-þjóðunuin. Það er greini-
legt að islenzkur handknattleikur
er að fara i lægð, scm verður
örugglega erfitt að komast upp
úr, ef ekki er rétt haldið á spilun-
um.
Suðurnesjatíðindi:
BOÐSMIÐA-
FARGANINU
AFLÉTT I
REYKJAVÍK
NÚ fyrir stuttu var fjallað um
boðsiniðafarganið hjá 1. deildar-
félögunum i knattspyrnu, i Suð-
urnesjatiðindum. Þar er látið að
þvi liggja, að 1. deildarliðin liafi
tapað þrcmur milljónum vegna
boðsmiðafjöldans hjá Reykjavik-
urfélöguniim KR, Fram og Val.
Hér á eftir fer greinin, eins og hún
birtist orðrétt i Suðurnesjatiðind-
um:
„Arsþing KSI var haldið um
siðustu helgi i Reykjavik. Mörg
merk mállágu fyrir þinginu, en
það mál, sem mesta athygli
vakti, var boðsmiðafarganið i
Reykjavik, en eins og kunnugt er,
er talið að milli 1200-1500 boðs-
miðarséu I gangi i tslandsmóti I.
deildar iReykjavik, en til saman-
burðar má geta þess, að aðeins 30
boðsmiðar eru t.d. i Keflavik og
Akranesi.
Mál þetta er ekki nýtt á KSI-
þingi, þvi árið 1960 fluttu þeir
Hafsteinn Guðmundsson og Rik-
harður Jónsson tillögu um, að
fækkað yrði bosðmiðum i Reykja-
vik.'Siðan hefur mál þetta verið
rætt á flestum þingum KSI, en án
árangurs, og á sama tima hefur
boðsmiðum i Reykjavik stöðugt
fjölgað. A ársskýrslu KSI, sem lá
frammi á þinginu um helgina,
mátti sjá, að aðeins liðlega 800
manns borguðu aðgangseyri að
meðaltali á I. deildarleik i
Reykjavik i sumar, en til saman-
burðar má geta þes, að i Keflavik
voru að meðaltali 1624 manns,
sem keyptu sig inn á hvern I.
deildarleik. Er það hald manna,
að áhorfendafjöldi hafi sízt verið
niinni i Reykjavik i suraar en
Keflavik, og séþaðrétt, hefði átt
að koma inn þar tæpar fí milljónir
kr. i aögangseyri, cn inn komu
aðeins 3 milljónir.
Ilér er um stórmál fyrir öll I.
deildarlelöginað ræða, þvi ágóða
af leikjunum er skipt milli þeirra.
A ársþingi KSl um helgina var
mikið rætt um þetta mál, og
deildu fulltrúar utanbæjarliðanna
mjög hart á boðsmiðafarganið i
Reykjavik. Töldu utanbæjarfull-
trúarnir útilokað að una viö þetta
fyrirkomulag lengur, og ef ekki
fengjust fram breytingar á þessu
ársþingi, myndu þeir á komandi
sumri taka upp nýtt fyrirkomulag
á sinum völlum, og úthluta 500-
1000 boðsmiðum. Þetta leizt
Reykvikingum greinilega ekkert
á, og eftir mikiö málaþras var
samþykkt að fela stjórn KSI að
semja nýja reglugerð varðandi
úthlutun boðsmiða, sem skyldi
gilda um land allt. Þýðir þetta, að
boðsmiðum i Reykjavik fækkar
væntanlega um ca. 800 strax
næsta sumar.
Var vissulega kominn timi til
aö knýja þessa breytingu i gegn á
KSl-þingi, en það hefði aldrei tek-
izt, ef ekki hefði veriö full sam-
staða um hana meðal utanbæjar-
félaganna.”
Dregur
að leiks-
lokum
Búið að draga í
8-liða úrslitum
enska deildar-
bikarsins
IIULL City og Liverpool gerðu
jafntefli 0:0 i enska deildar-
bikarnuin, en leikurinn fór
fram i llull á þriðjudags-
kvöldiö. Liðin mætast þvi
aftur á heimavelli ensku
meistaranna frá Livcrpool,
Anfield ltoad, og má þvi
reikna með að Liverpool vinni
þann leik og tryggi sér þar
ineð rétt til að leika gegn
VVolves á Molineux Ground i 8-
liða úrslitunum.
Eftirtalin lið mætast i 8-liða
úrslitunum i deildarbikarn-
um:
Wolves-Liverpool/Hull
Coventry/York-Man.City.
Millwall-Norwich
Birmingham-Plymouth
Það má búast við, að
Coventry vinni 3. deildarliðið
York á heimavelli sinum,
llighfield Road, og verður þá
slórleikur i 8-liða úrslitunum á
Highfield Road, þegar leik-
menn Manchester City koma
þar i heimsókn. Millwall, sem
leikur i 2. deild, ætti að eiga
góða möguleika gegn Norwich
á heimavelli sinum i Lund-
únum, The I)en. Birmingham
á örugglega i erfiðleikum með
2. deildarliðið Plymoulh á
heimavelli sinum, St.
Andrew's. Plymouth hefur
unnið mjög sterk lið i deildar-
bikarnum, ekki lakari lið en
Burnley og Queens Park
Rangers. 2. dcildarliðið lók
gegn þessum 1. deildarliðum á
heimavöllum þeirra, Turf
Moor i Burnley og Ellerslie
Road i Lundúnum.
Svíar
í HM
úrslit
SVÍÞJÓI) tryggði sér rétt til
að leika i úrslilakeppni IIM i
knattspyrnu i Vestur-Þýzka-
landi næsta suntar, þegar
Sviar unnu Austurrikismenn
2:1 i V-Þýzkalandi á þriðju-
dagskvöldið. Það voru þeir
Roland Sundherg og Ovc
I.arsson, sem skoruðu mörk
Sviaj og þar með koinust þeir
yfir 2:0. Austurrikismönnum
tókst að minnka muiiinn i 2:1.
Sviar eru þvi þrcttánda þjóð-
in, sem tryggir sér rélt til að
leika i IIM úrslitunum i
Vestur-Þýzkalandi 1974. Hinar
þjóðirnar eru: V-Þjóðverjar,
Krasiliumenn, Pólverjar, A-
Þjóðvcrjar, Kúlgarar, Argen-
t i n u m e n n , C h i 1 e b ú a r ,
Urauguay menn, Astraliu-
menn, Skotar, ltalir og Hol-
lendingar.
Þýzkur
sigur
VESTUR-Þjóðverjar léku
landsleik i knattspyrnu gegn
Spánverjum um sl. helgi.
Leikurinn fór fram i V-Þýzka-
landi og lauk með sigri Þjóð-
verja 2:1. Jupp Heynckers,
markaskorarinn mikli i
Korissia Mönchengladbach,
skoraði bæði mörk þýzka
liösins i fyrri hálfleik. Spán-
verjar minnkuöu muninn i 2:1
i siöari hálfleik, með marki
frá Claranubt.