Tíminn - 29.11.1973, Síða 20
Auglýsingasími
Tímans er
fyrirgóðan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Kóngafólkið sparar líka:
Drottningin með lest
og krónprinsinn gengur
Frú Sakharov
stöðugt hótað
NTB-London — Brezka konungs-
fjölskyldan hcfur ákveöið aö
minnka bifreiöanotkun sfna til aö
spara bensfn. Einnig verður upp-
hitun konu ngsha llarinna r
minnkuð um 10%, að því tilkynnt
var frá hirðinni f gær.
Jafnframt tilkynntu orkuyfir-
völd, að Bretar yrðu að spara
mjög við sig rafmagn til að koma
I veg fyrir skammhlaup. Það er
huggulegt að fá þessi boð jafn-
framt veðurfréttum um, að ekki
nóvember
Frjóls samkeppni
leyfileg í Breiðholti
UNDANFARID hefur rfkt
nokkur miskllö í Breiöholti I
vegna verzlana viö Arnarbakka 2.
Máliö er svo vaxiö, að ákvcðiö
var I lóöasamningi, þegar út-
hlutaö var lóöum, hvaöa vörur
mætti verzla meö I hverri
verzlun. Kona nokkur úr Vest-
mannaeyjum fór sföan aö verzla
mcö vefnaöar- og hannyröa -
vörur i húsnæöi, sem ekki var til
þess ætlaö samkvæmt lóöasamn-
ingi.
Keppinautur hennar, sem fyrir
var á síaðnum, kærði þetta, og
þótti illt, ef lföa ætti frjálsa sam-
keppni, þvert ofan I öll fyrirmæli.
M.a. var konunni hótaölögbanni.
Húsmæöur i Breiðholti höfðu
hins vegar kunnað vel við hina
nýju verzlun .Þær tóku sig nú til
og söfnuðu hátt á annaö þúsund
undirskriftum, þar sem þess var
farið á leit.að ekki yröi amast viö
konunni frá Vestmannaeyjum.
Borgarráð ákvað f fyrradag að
verða við tilmælum þeirra Breið-
holtskvenna og fella úr lóðasamn-
ingnum hið umdeilda ákvæði.
Þeir, sem fengið höfðu inni í
verzlunarhúsnæði aö Arnarbakka
2. samþykktu þetta allir nema
tveir, og var annar aðilinn
Verzlunarbankinn, sem er til
húsa þar, sem i rauninni átti að
vera skósmiðastofa. —HHJ
Vilja 11 millj. í stað 3ja
Kirkjubyggingasjóöur, sem svo
er nefndur, hefur allt siðan 1953
notið fjárframlags frá borginni. 1
fyrra og nú i ár fékk sjóðurinn 3
milljónir króna.
Nú hafa forráðamenn safnað-
anna ritað borgarráði bréf, þar
sem þeir fara þess á leit að
sjóðurinn fái ellefu milljónir
króna og telja ekki af veita, ef
ekki eigi að stöðvast smiði
Hallgrimskirkju og annarra
guðshúsa, eða seinka mjög a.m.k.
Borgarráð hefur ekki enn tekið
afstöðu til þessa máls.
—IIIIJ
Þingeyringar
fó lækna fró
Landspítalanum
Þingeyri S.E. — Læknis-
leysið segir til sln á Þingeyri,
eins og svo viöa annars staöar
á landinu. Átti að leysa
vandann meö þvi að senda
lækni. tvisvar I viku frá
Reykjavik með hinu fasta
áætlunarflugi hingaö, og átti
hann þá að stoppa hér á annan
klukkutima. En svo buðust
læknar á lyflækningadeild
Landsspitalans, til að koma
hingaö til skiptis hálfan
mánuð i senn. Er Magnús Karl
Pétursson frá lyflækninga-
deildinni starfandi hérna
núna. Þó að þetta fyrirkomu-
lag sé engan veginn full-
nægjandi, er þaö mun betra en
fyrri kosturinn, og fögnum
viö þvi aö þetta varö ofan á.
kr-
I
■
I
Undirrit......óskar eftir að gerast
áskrifandi að Timanum
Nafn.
Heimili.
hafi verið kaldara
siðan árið 1910.
Tilkynnt var frá konungshöll-
inni, að framvegis myndi drottn-
ingin ferðast með lest i stað
einkabifreiðar, þegar hún .þarf að
fara eitthvað og Philip hertogi
ekur nú litlum bil i stað þess
stóra, sem hann notar venjulega.
Karl krónprins notar nú bara
fæturna, þegar hann sinnir opin-
berum störfum i grennd viö
konungshöllina og nýlega fór
hann i opinbera heimsókn til
Spánar með áætlunarflugvél i
stað einkaþotu.
NTB-Moskvu — Sovézka
leynilögreglan, KGB, frestaöi
i gær yfirheyrslu yfir Jelenu
Sakh.arov, eiginkonu kjarn-
eðlisfræöingsins og andófs-
mannsins. Áður hafði KGB
hótað að neyöa hana til að
koma til yfirheyrslunnar.
Frú Sakharov, fékk bréf i
gær, um að yfirheyrslunni yrði
frestað til hádegis i dag.
Sakharov kvaðst mjög á móti
þvi, að kona hans yrði yfir-
heyrð meira. Hún hefur þegar
farið fimm sinnum i yfir-
heyrslur og siðast var látið að
þvi liggja, að henni yrði stefnt
fyrir rétt.
Svitsjikov ofursti frá KGB
sagði á þriðjudaginn, að hann
myndi senda flutningabil til að
sækja frú Sakharov og alla
vini hennar, sem fjandsam-
legir væru Sovétrikjunum,
ásamt erlendum frétta-
mönnum, ef hún kæmi ekki til
yfirheyrslunnar i gær. Frúin
hefur fram til þessa neitað að
svara öllum spurningum
ofurstans, en hann hefur
einkum spurt hana um
samband hennar við tvo
andófsmenn, sem biða þess nú
að koma fyrir rétt.
Enn flækist Watergate fyrir þeim:
Einkaritarinn marg-
saga um segulböndin
NTB—Washington — Gangur
Watergate-málsins er nú að verða
eins og I beztu Perry Mason-
mynd. Rose Mary Woods, einka-
ritari Nixons, hefur nú sýnt
Watergate-nefndinni, hvernig það
muni hafa gengiö til, að hún i
ógáti þurrkaöi út mikilvægan
hluta af segulbandsspólunum,
sem viðkoma málinu.
1 gær kvaöst hún ekki vita,
hvort hún hafi þurkað út samtölin
vegna þess, að hún hafi aldrei
heyrt annað en són á þeim hluta
bandsins, sem samtalið vantar á.
Aöur hefur hún sagt, að strax og
hún uppgötvaði mistök sin, hafi
hún farið inn til forsetans og skýrt
honum frá þeim.
Sirica dómari er nú að reyna að
komast að þvi, hvort frú Woods
hafi raunverulega gert mistök,
eins og hún segir, þegar hún var
að skrifa samtölin upp af
bandinu, og hvort hún hafi þá
skýrt frá þvi eins fljótt og hún
segir. Sirica vill lika gjarnan fá
að vita, hvort „mistökin” hafi
orðið til þess, að 18 mínútur hurfu
af bandinu. Sjálf segist Woods
ekki bera ábyrgð á nema fimm til
sex fyrstu minútunum. Fram-
burður hennar til þessa er svo
ruglingslegur, að Sirica og
félagar hans eru býsna tor-
tryggnir. Woods nefndi það ekki i
framburði sinum fyrr i mánuðin-
um, að hún hefði getað skemmt
böndin i ógáti, þegar henni var
falið að skrifa upp af þeim.
DAYAN BJARTSÝNN
NTB-Jerúsalem — Moshe Dayan,
varnarmálaráðherra ísraels
sagði i gær, að hin áætlaða friöar-
ráðstefna um Mið-Austurlönd i
Gcnf i næsta mánuði, gæti oröið
skref i friðarátt. Hann bætti þvi
við, að Arabarikin myndu vafa-
laust reyna að ná þvf við
samningaboröið, sem þau hefðu
ekki náð á vigvellinum.
Heimildir i Kairó sögðu i gær,
að Bandarikin hefðu lagt fast að
lsraelsstjórn að láta svolitið af
afstöðu sinni gagnvart þvi að
færa herinn til þeirra lina, þar
sem hann var 22. október, þegar
vopnahléð gekk i gildi.
Þetta atriði hefur reynzt hið
erfiðasta i samningaviðræðunum
milli herforingja landanna og
hefur orðið til þess að við-
ræðurnar eru strandaðar.
Fundir, sem herforingjarnir
áttu að halda með sér i gær, var
frestað um einn dag og telja
heimildirnar i Kairó, að ástæðan
sé einkum fortölur Bandarikj-
anna, sem sögð eru setja það
skilyrði, að visst samkomulag
ist i Genf.
IRA olli algjöru
umferðaröngþveiti
NTB-Belfast. — Mikiö umferðar-
öngþveiti varð á þjóðvegum N-
trlands i gær, þegar meðlimir
IRA komu fyrir vegatálmum úr
stolnum bilum og strætisvögnum.
Þrjár manneskjur biðu bana af
völdum tálmanna.
Talsmenn brezku öryggissveit-
anna segja, að aögerðir þessar
séu sennilega mótmæli gegn
þeirri áætlun brezku stjórnar-
innar, að komið verði á fót fram-
kvæmdaráði, sem bæði kaþólskir
og mótmælendur eigi sæti i.
Brezku öryggisssveitirnar voru
i allan gærdag að fjarlægja tálm-
ana. Fyrir hádegi tókst að opna 55
mikilvægar leiðir, en umferðin
var i hnút lengi fram eftir degi,
vegna þess að myndazt höfðu
langar biðraðir ökutækja. Járn-
brautarleiðin milli Belfast og
Dublin var einnig lokuð.
Mótmælendur hafa einnig lýst
andstöðu sinni við ætlan stjórnar-
innar, einkum þeir öfgafyllstu.
Ian Paisley leiðtogi þess hóps,
átti i gær að ræða við Whitelaw,
hinn brezka ráðherra N-írlands,
en Paisley kom ekki.
Flugræningjarnir
gáfust loks upp
NTB-Dubai — Palestinsku flug-
ræningjarnir þrir, létu i gær lausa
gisla sina og afhentu yfirvöldum i
Dubai flugvélina, sem þeir rændu
yfir Bagdad fyrir fjórum dögum.
Þar með lauk einu lengsta flug-
ráni sögunnar. Ræningjarnir
fengu loforð um að fá að fara
frjálsir ferða sinna og ekki er
vitað, hvert þeir fóru.
Flugvélin var Jumbo-þota hol-
lenzka flugfélagsins KLM. Hún
var búin að lenda á fimm flug-
völlum i Mið-Austurlöndum og á
Möltu, áður en ræningjarnir
gáfust upp. Hún lenti i annað sinn
i Dubai á þriöjudagskvöld, eftir
að henni hafði verið neitað um
lendingarleyfi annars staðar.
Ræningjarnir og gislarnir yfir-
gáfu vélina eftir að hún hafði
verið fyllt af eldsneyti. Gislarnir
voru allir starfsfólk KLM, meðal
þeirra varaforstjóri félagsins.
Þeir voru allir fluttir á sjúkra-
hús til rannsóknar.
v 247 farþegar og átta af áhöfn-
inni voru látnir lausir á Möltu á
mánudaginn og hélt vélin siðan
áfram hringsóli sinu með 11 gisla.