Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 17

Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 17
Sunnudagur 23. desember 1973. TÍMINN 17 — Spælt egg, smurostur og ávaxtamauk er næstum allt sem hún borðar, segir hann. Kvöldmat borðar hún um 6-leytið og vill hafa hann mjög kryddaðan. Stundum les hún blöð, en æsandi sögur og fréttir eru klipptar burt áður. Pósturinn er einnig lesinn yfir, áður en hún fær hann. Gömlu vinir hennar frá góðu dögunum, sem enn eru á lifi, til dæmis Lillian Gish og Adolph Zukor, koma ekki lengur i heim- sóknir. Mary eyðir mestum tim- anum i að horfa á sjónvarp, lesa og tala i simann. Sagt er, að hún hafi varðveitt talsvert af hinni góðu kimnigáfu sinni, svo og fjármálaviti. Hún tekur enn þátt i góðgerðarstarf- semi og fylgist vel með þvi, sem gerist i leikaraheiminum. En hún vill ekki lengur gera neitt sjálf eða umgangast annað fólk. — Hún hefur legið aðgerðarlaus allt of lengi, segir Matty Kemp, sem ásamt Buddy rekur fyrirtæk- ið, sem leigir og selur út mynd- irnar með Mary. — Allt sem hún hefur áhuga á eru minningarnar og undarlegar vangaveltur. Mary Pickford hefur lifað ó- vanalegu og hröðu lifi, yfirfullu af rómantik, veizlum og glaumi. En þar hafa lika verið sorgir? Tveir skilnaðir, sem voru hneyksli þá, og svo missti hún tvö systkini og móður á skömmum tima. Framar nokkurri annarrri manneskju á Mary Pickford heið- urinn af þvi, að kvikmyndin var viðurkennd sem listgrein i skemmtanaiðnaðinum. Hún var fyrsta kvikmyndastjarna heims- ins og var mest umtalaða og þekktasta kona heims i meira en 20 ár. Vanmetin sem listamaður Mary Pickford er af brezkum og irskum ættum, en fæddist i Kanada. Æskuheimilið i Toronto bar öll merki fátæktar. Faðir hennar dó, er hún var fjögurra ára og móðirin vann baki brotnu til að sjá fyrir fjölskyldunni. Mary varð eins konar ösku- buska nútimans. Hún kom og giftist prinsinum — ekki einum, heldur þremur. Mary og Douglas Fairbanks voru fyrsta drottning og kóngur Hollywood. Pickfair var samkomustaður stjarnanna. Eiginmenn númer eitt og þrjú voru einnig stjörnur þöglu mynd- anna,og enn eru til konur, sem fá undarlegt blik i augun, þegar þær heyra nafn Buddy Rogers nefnt. En velgengni Mary var svo mikil og adáendaskari hennar svo stór, að bæði Rogers og fyrsti eigin- maðurinn, Oven Rogers, féllu i skuggann. Meira að segja frami Fairbanks skipti engu máli, þegar hann kvæntist Mary. Mary var stjarna i 24 ár, og þegar hún settist i helgan stein eftir fyrstu mynd sina með hljóði, árið 1932, hafði hún leikið i meira en 200 þöglum myndum. — Ég vildi draga mig i hlé, meðan ég var enn á tindinum sagðÍNþún til skýringar. En það var likð vegna þess, að þær mill- jónir, sem dáðu hana, gátu ekki tekið henni sem fullvaxinni konu, án gylltu slöngulokkanna og með rödd, sem alls ekki átti heima i hljóðmyndum. Hún var vanmetin sem leik- kona þá og sem skcpleikari var hún alls ek>«n' Tnetin. Það var myndi^ íaf litlu stúlkunni með gyJ^T lokkana, sem fólkið vildi. Þit tók ekkert eftir þvi, hve afHáanlega vel hún lék i mörgum mynda sinna. Fórnarlamb eigin hégóma Þaö var Thomas A. Edison, sem skiröi hana „unnustu allrar Ameriku”. Siðar gerði „unnusta alls heimsins” kvikmyndaleik að draumastarfi. Það hafði verið illa launað starf, einkum fyrir konur, en nú varð það hið best launaða. Hún vann sér inn meiri peninga en nokkur önnur starfandi kona i sögunni. Auðæfi hennar i dag eru talin nema um 50 milljónum dollara og hún hefur nýtt pen- ingana vel. Þegar hún byrjaði að leika, árið 1909, fékk hún fimm dollara á dag. Tiu árum seinna átti hún sitt eigið kvikmyndaver og þénaði árlega um milljón dojlara. Mary stjórnar enn auðæfum sinum lagalega séð, en samband hennar við bankana og for- stjórana verður æ minna. Þegar Mary finnst þetta allt verða sér ofviða, kallar hún á frænkuna Gwynne, sem er eini núlifandi ættingi hennar. Gwynne kemur frá heimili sinu á Suður-Spáni og hjálpar konunni. Hún er eina manneskjan, sem getur truflað gang hins vélræna dags á Pick- fair. May þykir sennilega vænt um Buddy Rogers ennþá — á sinn hátt, þó að hún kalli nafn Douglas Fairbanks upp úr svefninum og sverji, að hún hafi séð svip hans um morguninn. Að vissu marki er Mary Pick- ford liklega fórnarlamb eigin hé- gómagirni. — Fólk man eftir mér sem litlu stúlkunni með gylltu lokkana, segir hún. — Ég vil ekki aö það sjái mig sem litla, gamla konu. — Hún er mjög mögur núna og hárið er þunnt og rytjulegt. Þegar hún tekur á móti einhverjum, setur hún jafnan upp hárkollu. Móttökur eru að visu orðnar sjáldgæfar. Gwynne og Douglas Fairbanks yngri, stjúpsonur Mary, segja að það liði dagar milli þess sem þau sjái hana, þó svo að þau haldi til i húsinu. Dóttir Gwynne, Mary Charlotte, gifti sig á Pickfair 1970 eins og Gwynne 25 árum áður. Mary, sem hafði ákveðið að taka þátt i brúð- kaupinu á neðri hæðinni, hafði klætt sig upp á, sett upp hárkollu, en hætti svo við á siðustu stundu. — Ef ég hefði farið niður, sagði hún, — hefði það verið kallað „endurkoma Mary Pickford”. Vonsvikin yfir börnunum Mary datt af hestbaki, þegar hún var gift Owen Morre og hefur siöan ekki getað eignazt börn. Þau Buddy ákváðu að taka fóst- urbarn. A árunum 1943 og 1944, meðan Buddy var i flotanum, tóku þau tvö börn, Ronnie, sex ára, og Roxanne, sex mánaða. 1 blaðaviðtali um þær mundir, sagði Mary, að þau hefðu áætlanir um að taka fleiri börn, kannski fjögur til viðbótar, en Mary var þá orðin 51 árs og Buddy 40/og þeim fannst alveg nóg um uppeldið á tveimur. öll ungdómsárin voru Ronnie og Roxanne stolt og gleði fóstur- foreldranna. Sifellt var verið aö mynda fjölskylduna og börnin voru oft með við opinberar veizlur. En smátt og smátt varð Mary leið á börnunum og eftir að þau urðu 21 árs og myndug, vildi hún varla af þeim vita meira, en þau fengu þó frá henni peninga. Nú eru þau bæði gift. Ronnie á fimm börn og starfar sem vél- virki, en Roxanne starfar i fata- geymslu i spilaviti i Las Vegas. Þcgar á unga aldri hófMaryað kaupa upp kvikmyndir sinar og koma þeim i geymslu, nema þegar hún leigði þær út til heimildamyndageröar. Af þeirri ástæðu hafa nær þrjár kynslóðir kvikmyndaskoðenda vaxið upp, án þess að hafa nokkurn tima séð mynd með Mary Pickford. Mary kom siðst opinberlega fram i Paris árið 1956, þegar franska stjórnin bauð henni að koma og sjá samantekt úr gömlu myndunum hennar. Eftir það sendi hún eina af gömlu myndunum sinum á Bandarikja- markað, en með nýju hljóði og nýrri tónlist. Þetta voru vist mistök, þvi myndin fékk ekki góðar viðtökur. Andatrú og stjörnuspeki Arið 1970 gaf Mary 51 stutta mynd til safns nokkurs. Hún lék sjálf i 47 þeirra og gjöf þessi er talin ómetanleg með tilliti til sögunnar. Safnið efndi til sýninga á úrdrætti þessara mynda viða um heim, en Mary var hvergi við- stödd. Hún fór að fara sjaldnar á fætur. Sett var upp stundaskrá yfir hvern dag, dagarnir urðu allir eins. Ef hún fór á fætur, var það um hádegið. Siðan las hún og horfði á sjónvarp. Eftirlætisefni hennar þar er Bonanza. Er hún var spurð um ástæðuna, sagði hún,að Lorne Green væri svo lfkur Buddy hennar. Henni var ráðlagt að nota linsur við sjóndeprunni, en harðneitaði að nota þær. Trúmál og alls kyns vangaveltur um eilifðarmálin tóku hug hennar. Hún talaði um drauga og afturgöngur, og allt siðan hún var ung, hefur hún haft tröllatrú á stjörnuspádómum. Af hlutum utan frá, sem hún hafði áhuga á, má nefna striðið i Vietnam, Sharon Tate-morðin og dauði vina hennar, en allt þetta gerði hana þunglynda. Hún hætti að horfa á biómyndir, sagði aö þær væru skitnar og lausar við alla alvöru. Þegar Chaplin kom heim/, til Bandarikjanna i fyrra, átti hún litið gott um hann að segja. — Mér finnst, að þeir ættu heldur að spyrja einhverjar af fvrri konunum hans, hvað þeim hafi fundizt um hann, sagði hún hryssinslega og bætti við, að það hefði verið gjörsamlega ómögu- legt að vinna með Chaplin. Arið 1919, þegar Mary var 26 ára, hafði hún stofnað kvik- myndafélagið United Artists, ásamt þeim Chaplin, Griffith og Fairbanks. Hún hefur ekki séð Chaplin siðan 1951 og kærir sig ekkert um að hitta hann framar. Á valdi minninganna Allir þeir, sem nú koma til Pickfair, eru beðnir að tala við Mary gegnum innanhússimann. Viðtöl i fjölmiðla, sem stöðugt fækkar, eru einnig tekin um simann. Fyrir tveimur árum átti að taka sjónvarpsviðtal og Mary samþykkti að tala, meðan sýndar væru myndir frá gömlu góðu dögunum hennar. En þegar til kom, var hún svo óskýr i máli og þvoglumælt, að tal hennar var klippt burt. f staðinn kom Budd Rogers og sagði frá dýrðartimum konu sinnar. Fairbanks yngri er alltaf góður vinur Mary, þó að faðir hans hafi látizt fyrir 34 árum. Hann er alltaf velkominn til Pickfair og Mary segir, að það sé heimili hans. Þegar hann er i Los Angeles, býr hann þar og heldur þar veizlur;eins og hann vill. — Hún segist alltaf vilja gefa mér það af eigum föður mins, sem enn er i húsinu,segir Fair- banks, — en fram til þessa hafa það aðeins reynzt tveir göngu- stafir. Mary vill gjarnan gera starfið rómantiskara en það er. Hún segir, að allt hafi verið miklu betra enþaðernú.Um leikkonu- starfið segir hún: — Ungar leikkonur verða að skilja, að þegar þær velja þetta starf, velja þær lika opinbert lif. Þær hafa ekki rétt til að valda áhorfendum vonbrigðum og heldur ekki til að hafa einkalif. Ef til vill er hin gamla stjarna allt of upptekin af minningunum, þvi hún lifir næstum orðið i for- tiðinni. — Frami minn var fyrirfram ákveðinn, hefur hún sagt. — Þetta var engin tilviljun. Það var erfitt, en vel launað. Þó að ég sé ekki beint ánægð, er ég þakklát. Holly- wood er orðin eins og afgangurinn af heiminum, ljót, trufluð og óörugg. Nú er Mary sem sagt á niræðis- aldri og hefur lokað sig inni i átta ár. Ekkert bendir til þess, að hún muni nokkru sinni framar öðlast lifsgleðina og starfsviljann aftur. — SB

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.