Tíminn - 23.12.1973, Side 21

Tíminn - 23.12.1973, Side 21
Suimudagur 23. desember 197a. TiMlNN Þorbjörn Sigurgeirsson og Jón Sveinsson hjá tæki. úr sem þeir nota til staöarákvarðana viö segulmælingar 0 flugvél. Tlmamynd Gunnar. tungli, sem fer yfir staðinn þar sem skipið er. Og það er breytingin i tiðni bylgjunnar á meðan gervitunglið fer yfir, sem notuð er til þess að reikna út staðinn. Tækjabúnaðurinn er vandað móttökutæki fyrir hátiðni, en auk þess er varla hægt að komast hjá þvi að hafa lika reiknivél til þess að reikna út staðinn. Hingað til hefur þurft stórar og dýrar reiknivélar, en þróunin á þvi sviði hefur verið feikilega ör aö undanförnu, svo liklegt er, að innan fárra ára verði hægt að leysa þau verk með litlum og ódýrum reiknivélum. Staðarákvörðun með hjálp gervitungls verður aðeins fram- kvæmd á meðan tunglið fer yfir viðkomandi stað, og þess vegna verður ekki um stöðuga mælingu að ræða, en hins vegar er hún nákævm og örugg. Auk þess veitir þessi aðferð möguleika til þess að bera saman klukkur. Ef slik tæki eru um borð i skipi, er hægt að fylgjast mjög nákvæmlega með þvi, hvað tim- anum liður, án þess að hafa atóm- klukkur — það væri hægt að kom- ast af án þeirra, og hafa þó mjög, nákvæman timamæli. bá gætum við einnig notað útvarpsstöðvar á jörðu með stöðuga tiðni til þess að fá nákvæmar staðarákvarðanir. Mér þykir ekki óliklegt, aö eftir þessum leiðum verði þróuð tæki til staðarákvarðana, sem henta vel skipum, sem jafnvel eru ekki stærri en fiskiskip okkar eru upp og ofan, en með þvi væri mjög mikið fengið. — Þurfum við ekki að leggja i ýmsar viðbótarframkvæmdir, ef okkur á að takast að koma upp mjög nákvæmu staðarákvarð- anakerfi hér i kringum landið? — Til þess þyrfti að koma upp fleiri útvarpsstöðvum hér á landi með mjög nákvæma senditiðni. Þetta er reyndar ekki svo mjög erfitt, það mætti nota loranstöð- ina á Snæfellsnesi til þess að stýra tiðni radiuvitanna. Með þvi hygg ég að koma mætti upp neti i kringum landið, sem gefið gæti staðarákvörðun, svo ekki skakki nema hundrað metrum eöa svo, eða jafnvel enn minna, og má öll- um ljóst vera, hvilikt öryggi sæ- farendum væri búið með slikri nákvæmni. Segulmælingar — Hversu nákvæma timamæla hafið þið hér i Rannsóknarstofn- uninni? — Við tökum tima frá erlend- um tfmamerkjastöðvum, og er sá timi meðal annars notaður i sam- bandi við segulmælingastöðina, þar sem timinn er tekinn upp á ti- unda hluta úr sekúndu, en i raun- inni getum við hér mælt tima miklu nákvæmar en þetta. Með móttakaranum frá loranstöðinni höfum við sveifluvaka, sem geng- ur með sömu nákvæmni og atóm- klukkan, sem stýrir útsendingu loranstöðvarinnar, og það er nán- ast sú nákvæmni, sem ég minntist á hér i upphafi, að svaraði til einnar sekúndu á tiu þúsund ár- um. — Þú minntist áðan á segul- mælingar. Hafið þið tekið skipu- lega fyrir einhver tiltekin svæði á landinu til slikra mælinga? — Já við göngum á landið nokk urn veginn eftir landshlutum. Suð-Vesturlandið mældum við fyrir nokkrum árum, og það hefur verið prentað kort yfir segulsvið- ið i þeim hluta landsins. Siðan höfum við mælt Mið-Vesturland, Norð-Vesturland, Mið-tsland, Mið-Norðurland og megnið af Suðurlandi, en úrvinnslu þeirra mælinga er ekki fyllilega lokið, og þær hafa ekki verið gefnar út sem kort. — En til hvers hafið þið verið að þessu? Eftir hverju eruð þið að leita? — Þótt þessar segulmælingar hafi verið gerðar úr lofti, kannski úr þúsund metra hæð, þá segja þær fyrst og fremst eitthvað um ástandið eins og það er niðri á jörðinni, hvers konar berg er á hverjum stað, eða nánar til tekið: þær segja til um segulmögnun bergsins. Þetta getur hjálpað jarðfræðingum til þess að ráða ýmsar gátur, leita að heitu vatni og fleira. bessar mælingar snerta lika aðrar og almennari spurn- ingar, til dæmis uppbyggingu jarðarinnar og þær breytingar, sem eiga sér stað i jarðskorpunni. Það hefur sýnt sig aö mjög af- brigðilegt segulsvið, og þó reglu- lega upp byggt, liggur eftir hinum svokölluðu úthafshryggjum. Það er venjulega mjög sterkt segul- svið eftir miðjum hryggnum, eins og til dæmis hér út af Reykjanes- inu, þar sem Reykjaneshryggur- mn Iiggur, en hann er hluti af Mið- Atlantshafshryggnum. Á hryggn- um sjálfum er mjög sterkt segul- svið, en auk þess hafa komið i ljós rendur sin til hvorrar handar við hrygginn, þar sem skiptist á sterkt og veikt segulsvið. Þessi afbrigðilega hegðun segulsviðsins heldur áfram i átt til landsins, en þó er segulhryggurinn mjög veik- ur, þegar komið er upp á land- grunnið, en fyrir norðan tsland, norður hjá Kolbeinsey og allt til Jan Mayen, kemur hryggurinn aftur i ljós, og þar verður sterkt segulsvið á vissu belti. Með þvi að mæla segulsviðið yfir landinu sjálfu, getum við ef til vill fengið einhverjar upplýsingar um, hvernig það tengist segulsviöi At- lantshafshryggjarins, og þá gætu þessar mælingar ef til vill gefið til kynna, hvort hægt sé að nota jarðfræðilega vitneskju, sem afl- að hefur verið hér á landi, til þess að segja eitthvað um, hvernig ástandið er i jarðlögunum á þess- um úthafshryggjum, þar sem annars er erfitt að koma rann- sóknum við vegna hafdýpis. Nokkrum sinnum á hverri áramilljón — Hvað táknar veikt eða sterkt segulsvið? Hvaö gefur það til kynna? — Segulsvið er kraftur, sem togar i nál áttavitans, svo að ann- ar endi hennar snýr i norður en hinn i suður. Yfirleitt verður styrkleiki segulsviðsins þvi meiri sem nær dregur pólunum, en auk þessarar reglubundnu breyting- ar, hafa berglögin á hverjum stað sin áhrif. Sterkt segulsvið þýðir venjulega, að segulmögnun bergsins á þeim stað sé mikil. Þó getur verið tvennt til i þvi efni, vegna þess að stundum snýr segulmögnun bergsins öfugt við stefnu sviðsins. Þá draga áhrifin úr styrkleika segulsviðsins. — Er til einhver skýring á þessu fyrirbæri? — Þetta, að segulmögnun bergsins getur snúið á móti segul- sviði jarðar, á sér skýringu, sem nánast verður að telja örugga. Segulsvið jarðarinnar hefur ekki alltaf haft þá stefnu, sem það hef- ur nú. Á vissum skeiðum jarðsög- unnar hefur það snúið öfugt við það, sem nú er. Það berg, sem einkum er segul- magnað hér, er basaltið eða hraungrýtið. Þegar þessi hraun voru nýrunnin og fóru að kólna, segulmögnuðust þau yfirleitt i samræmi við stefnu segulsviðs- ins, eins og hún var þá á viðkom- andi staö. Þau hraun, sem runnið hafa á þvi skeiði jarðsögunnar, þegar segulsvið sneri öfugt við það sem þaö snýr nú, veröa það sem kallað er öfugt segulmögnuð — þeirra segulmögnun stefnir öfugt við segulsviðið eins og það er nú. Yfirleitt hefur þessi umsnún- ingur gerzt nokkrum sinnum á hverjum milljón árum, en ná- kvæm skýring á þvi, hvernig þetta gerist, liggur varla fyrir ennþá. Þar erum við komin að þeirri spurningu, af hverju segul- svið jarðarinnar stafar. Vafalitið stafar það af rafstraumum, sem eru inni i jörðinni, og þá þarf ekki annað að gerast, en að þessir straumar skipti um stefnu, þá gerir segulsviðið það lika. Gróður og dýralif — Er hugsanlegt, að segul- mögnunin eða breytingar á henni hafi áhrif á hluti eins og til dæmis gróður og dýralif? — Þaðhefur töluvert verið gert til þess að finna áhrif segulsviðs á hina lifandi náttúru, gróður og dýralif, en ég er ekki viss um, að þar hafi fundizt nein einhlit niður- staða, sem örugglega sanni slik áhrif. Hins vegar hafa margir tal- ið, að oft fari saman verulegar breytingar á dýralifinu, eins og það birtist i setlögum hafanna, og umpólun segulsviðs jarðar. Það litur stundum út lyrir, að vissar dýrategundir deyi út og aðrar komi fram, alveg um sama leyti og breytingarnar verða á segul- sviðinu. betta hefur verið reynt að skýra með þvi, að segulsviðið skýli jörðinni fyrir geimgeislum, en þegar það er aö snúast við, dofnar það mjög mikið, eða nán- ast hverfur. Það er þvi liklegt, að geimgeislarnir eigi miklu greið- ari aðgang að jörðinni i nokkrar aldir, kannski svo sem þúsund ár, einmitt um það leyti, sem segul- sviðið er að snúast við. Vel er hugsanlegt, að sumar dýra- tegundir þoli ekki geimgeislana og aðrar verði fyrir stökkbreyt- ingum. Þeirra er framtiðin — Vikjum þá aðeins að ööru: Eru ekki þessi nákvæmu, tækni- legu verkelni, sem þið vinnið að hér, hreinasta draumaland ungra pilta, sem flestir eru með hugann fullan af slikum hlutum? — Jú á þvi er ekki minnsti efi. Ég held að núna sé hægt að finna meira af slikum viðfangsefnum til þess að glima við heldur en nokkru sinni fyrr. Og það er ekki aðeins, að verkefnin séu fjiil- breyttari, það er lika hægt að bú- ast við meiri og fljótteknari ár- angri nú en oftast áður. Rafeinda- tæknin hefur vaxið gifurlega ört á slðustu árum, og i þeirri grein eru það fyrst og fremsl mjög ungir menn, sem eru aflvakarnir. Margir ungir stúdentar hafa unn- ið hér stórlega gott og þarft verk. Þótt Raunvisindastofnunin hafi ekki starfaðhér i þessu húsi nema i sjöog hálft ár, þá er nú svo kom- ið, að við erum að sprengja það utan af okkur og orðin knýjandi þörf á stærra rými. Ég vonast til þess, að við getum I framtiðinni veitt ungum mönn- um þá aðstöðu hér, sem þarfnast til þess að geta notið sln við rannsóknir á fræðilegum og tæknilegum verkefnum, sem heilla hugi þeirra. Þaö er knýj- andi nauösyn fyrir þjóðarheild- ina, að jafnan sé til nægilega stór hópur manna, sem stöðugt fylgist meðnýjungum á þessum sviðum, þvi það er nokkurn veginn öruggt, aö það verða náttúruvisindi og tækni, sem i framtiðinni munu leggja drýgstan skerf af mörkum til almennrar velmegunar i þjóð- félaginu, enda þótt ekki megi heldur gleyma andlegu hliðinni. —VS. Rætt við Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.