Tíminn - 23.12.1973, Síða 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 23. desember 1973.
Þegar vínveitingastaðir lokast
Vinveitingahúsin hafa
löngum veriö umdeildir staðir.
Bindindismenn hafa yfirleitt
taliö aö þau væru sizt til bóta og
þeir hafa gjarnan talið það
ósigur fyrir sinn málstað þegar
þeim fjölgaði.
Aörir halda þvi fram, að frjáls
sala og neyzla áfengis á finum
stöðum væri mjög til bóta, þvi
fylgdi siðlegri meðferö áfengis,
meinlausari drykkjuskapur.
Gott ef ekki hefur verið talað
um áfengismenningu i þvi
sambandi.
Nú hefur það gerzt, að vin-
veitingastaðirnir hætta starf-
semi af þvi að þjónar eru i verk-
falli. Þá bregður svo við að
miklu friðvænlegra verður i
borginni. Lögreglan hefur litið
að gera þær nætur, sem áöur
voru erfiðastar, aðfaranætur
laugardaga og sunnudaga.
Þá vita menn betur eftir en
áöur hvaða hlutverki vin-
veitingahúsin þjóna i
menningarlifi höfuðstaðarins.
Ætla má, að þjónarnir hafi
með þessu
verkfalli unnið það á, að opin-
berir vinveitingastaöir verði
framvegis nokkru færri en ella.
Nú skal ekki loka augunum
fyrir þvi, að þeir sem ekki vilja
skemmta sér áfengislaust munu
ýmsir verða til leiðinda og
vandræða, hvort sem vinsala er
leyfð eðaekkiá skemmtistöðum.
Nægir i þvi sambandi að minna
á ýmsar útisamkomur, þar sem
meðferð áfengis var ekki leyfð.
Þó er alls ósambærilegt ástand
þeirrra og það sem viðgengst,
þar sem ekkert viðnám er veitt.
Þaö heldur auðvitað enginn, að
sigrazt verði á áfengisbölinu
með þvi einu að leggja af
vinveitingar á skemmtihúsum
og matsölustöðum. En reynsla
siðustu daga sannar að lokun
þeirra gerir ástandið mun skap-
legra.
Ekkert er hægt að fullyrða um
það i heild, hver áhrif Iokun
vfnveitingahúsanna hefur á
neyzlu áfengis almennt. Ætla
má, að meira sé drukkið annars
staðar en ella, en þó mun vera
óhætt að treysta þvi, að
áfengisneyzla minnkar við
lokunina. Svo mikið er vist, að
þau vandræði og ófriður, sem
lögreglan þarf að láta til sfn
taka, hafa stórminnkað. Þeir
skipta þvi nú þegar nokkrum
tugum, sem hafa losnað við
skömm og skapraun, vegna
þess að barþjónar hafa verið
óvirkir. Þeir allir hafa ástæðu
til að gleðjast yfir lokuninni. Og
það hafa lika allir þeirra vinir
og velunnarar — og þar með
allir góðgjarnir og góðviljaðir
menn. Allir mannvinir hafa
ástæðu til að fagna.
Olvunin á föstudagskvöldum
og laugardagskvöldum bendir
til þess, að þorri manna hefur
vald á þvi hvenær hann byrjar
drykkjuna. Menn gera það
yfirleitt ekki nema þegar
fridagur er að morgni. Þegar
þeir eru svo komnir á skemmti-
stað, þar sem vin er veitt, vilja
þeir gjarnan fá sér smávegis i
glas. En þá fer eins og oft vill
verða, að fólk langar meira til
að halda áfram en nokkurn tima
að byrja. Þá er meira drukkið
en ætlað var i upphafi. Þegar
svo fólkið kemur þúsundum
saman ölvað út á göturnar á
sama tima verða oft árekstrar.
Að visu fer oft gamanið af eftir
að komið er i heimahús, þó að
verði klakklaust komizt , ef
þar er haldið áfram við
drykkinn. Og fyrst reynslan er
sú, að sizt meira kveði að þvi, að
lögreglan sé kvödd i heimahús
til að skerast i leikinn, þegar
skemmtunin snýst upp i
skelfingu, þá virðist mega
treysta þvi, að sú áfengisneyzla,
sem niður fellur á veitinga-
húsunum færist ekki inn á
heimilin, nema þá að mjög litlu
leyti.
Menn eru yfirleitt góðviljaðir
og þvi er engin ástæða til að
halda annað, en til veitinga-
staðanna hafi verið stofnað i
góðri trú, eða að þau a.m.k.
spilltu engu. Menn eru ekki ill-
gjarnir, en veikleiki okkar er sá,
að telja okkur trú um að það sé
rétt — eða að minnsta kosti
meinlaust — sem okkur langar
til eða við teljum okkur hagnast
á. Menn, sem vilja vera frjálsir
að þvi að neyta áfengis sér til
gamans, reyna oft að telja ser
trú um aö það sé öllum
meinlaust. Þá.sem hafa hagnað
af að selja áfengi langar lika til
að trúa þvi, að það sé meinlaust.
Sú reynsla, sem þessir dagar
gefa af lokun vinveitinga-
húsanna, á að hjálpa okkur til
að mynda okkur rökstudda og
rétta skoðun. Þessi mál sem
önnur ber að meta i vöku en ekki
I vimu.
{ AugJýsuT {
| í límanutn I
Orðsending til
viðskiptamanna okkar
Skrifstofur okkar, vöruafgreiðsla og vara-
hlutaverzlun verða lokaðar á aðfangadag
jóla, 24. desember.
Ennfremur verður varahlutaverzlunin
lokuð vegna vörutalningar 27. og 28.
desember og 2. janúar
•Ð/uiiia44Aéla/t A/
Suðurlandsbraut 32
HOSNÆÐISMÁLASTOFNUN
RiKisiNS Mmmm
Bráðabirgðaumsóknir
framkvæmdaaðila í
byggingariðnaðinum
Húsnæðismálastjórn hefur ákveðið, að frá
og með 1. janúar 1974 skuli öllum þeim
framkvæmdaaðilum, er byggja ibúðir i'
fjöldaframleiðslu, gefast kostur á að
senda Húsnæðismálastofnuninni bráða-
birgðaumsóknir um lán úr Byggingasjóði
rikisins til smiði þeirra. Skal komudagur
slikra umsókna siðan skoðast komudagur
byggingarlánsumsókna einstakra ibúða-
kaupenda i viðkomandi húsum.
Bráðabirgðaumsóknir þær, sem hér um
ræðir, öðlast þvi aðeins þann rétt, sem hér
er greindur, að þeim fylgi nauðsynleg
gögn, skv. skilmálum, er settir hafa verið.
Nánari upplýsingar um þetta mál verða
gefnar i stofnuninni.
Reykjavik, 20.12. 1973.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SÍMI22453
r
Oskum viðskiptavinum vorum, svo og
landsmönnuni öllum,
gleðilegra jóla og
farsœldar á komandi ári
Þökkum viðskiptin á líðandi ári
H.F. HÖRÐUR GUNNARSSON
Heildverzlun
SKÚLATUNI 6 - SÍMI 10-725 - REYKJAVÍK