Tíminn - 04.01.1974, Síða 1

Tíminn - 04.01.1974, Síða 1
K fóðurvörur ÞEKKTAR UM LAND ALLT hqtellqf™? SUNDLAUGIN ereitt af mörgu, sem „Hótel Loftleidir" hefur til sins ágætis og umfram önnur hótel hérlendis. En þaö býöur lika afnot af gufubaöstofu auk snyrti-, hárgreiðslu- og rakarastofu. VISIÐ VINUM A HOTEL 1 LOFTLEIDIR. / V ■ J Nýmæli í íslenzkri búskaparsögu: ÆRNAR BÍÐA ÞESS, AÐ KOMIÐ VERÐI MEÐ HRÚTANA í ÞYRLU KG. — Stykkishólmi. — Aldrei mun þaö hafa gerzt í búskapar- sögu islendinga, aö hrútar hafi verið fluttir i þyrlum til ánna um fengitimann. En nú hefur það verið til umræðu hér á Hólminum að leita til Landhelgisgæzlunnar um ián á sin.u flugtæki, þar eð ær eru svo hundf uðum skiptir hcr á Breiöafirði úti I eyjum, sem ekki verður komizt aö vegna Isalaga. Isalög hafa verið langt um venju fram, og er það til dæmis, að manngengur is var af Skógar- strönd fram i eyjar, svo sem Brokey, fyrir jól, og hefur sú leið verið farin á fsum nokkrum sinn- um að undanförnu. Þótt nú sé aðeins búið i fjórum eyjum á Breiðafirði, eru margar þeirra nytjaðar til beitar — allar hinar stærri að sumrinu og marg- ar framan af vetri. En nú hafa isalögin torveldað mjög flutning á fé, bæði heim úr eyjum og milli þeirra með hrúta, og kemur það sér bagalega, þvi að nú stendur fengitiminn sem hæst. Um langan tima hefur höfnin i Stykkishólmi verið full af is, og ekki hefur verið fært út úr henni, nema á stálbátum. En það hefur orðið fjáreigendum i Stykkis- hólmi, sem áttu fé sitt út i eyjum, mjög til hjálpar, að Konráð Júliusson útgerðarmaður, sem keypti i haust hundrað lesta stál- bát, Sigurvon, frá Akranesi, hefur af mikilli lipurð og greiðasemi verið boðinn og búinn til þess að brjótast út i eyjar, eftir þvi sem unnt hefur verið. Hann var i svo að segja látlausum fjárflutning- um um hátiðarnar á báti sinum. Þó varð hann sums staöar að snúa frá. Til dæmis komst hann ekki til Akureyjar á Gilsfiröi, þar sem isinn var orðinn svo mikill, aö útilokað var að brjótast gegn um hann. Eru nokkur hundruð áa, sem ekki hefur tekizt að koma hrúta til, úti i Breiðafjarðareyj- um, og eru ekki horfur á, aö það takist á næstunni, nema snögg og mikil veðrabrigði komi til. En þó að til bráðrar leysingar og hvassviðra komi, verður isrek, gifurlegt fyrst i stað. Þess vegna hafa fjáreigendur hér I Stykkishólmi rætt um að leita á náðir Landhelgisgæzlunnar og fá hjá henni þyrlu til þess að koma hrútum til ánna. Var kannað i fyrradag, hve margt fé sem ekki hefur reynzt kleift að komast til, Hólmarar eiga úti i eyjum, og kom þá i ljós, að þeir vildu allir eiga hlutdeild i þvi að fá þyrlu til eyjaflugs, ef þess væri kostur, enda mikið tjón manna, ef ærnar fá ekki tima fyrr en seint og um siðir. Timinn spurði Pétur Sigurðs- son, forstjóra Landhelgis- gæzlunnar, hvort hann væri búinn aö fá beiðini um aðstoð, og kvað ' hann svo vera. Til sin hefði verið leitað þegar á miðvikudaginn, og hefði hann lofað að athuga, hvað gera mætti til þess, að ærnar i umkringt, færu þess ekki á mis, ekki tök á sendaþyrluá vettvang eyjunum, sem isinn hefur er þeim ber, en eins og stæði væru með hrútana vegna veðurlagsins. Konráð Júliusson, hjálparhella Hólmara, hefur brotizt gegn um isinn á Sigurvoninni eins nærri einni eynniog unnt, er, og féöer flutt fram á litlum árabáti. Ljósmynd: KG. GÖNGUBRÚ ÚT í VIÐEY? EINS OG kunnugt er hefur fólki verið boðið upp á ferðir með bát út i Viðey undanfarin sumur, og hafa þær ferðir verið allvinsælar, enda sameinast þar heimsókn á friðsælan, sögufrægan og næsta ósnortinn stað og hressandi, stutt sigling. Hins vegar er nú mögu- leiki á þvi, að menn eigi þess kost eftir fáein ár að komast fótgang- andi út i Viðey, með þvi að aka fyrst á Gufunes. Þróunarstofnun Reykjavikur er um þessar mundir að vinna að at- hugun á þeirri hugmynd, sem upp kom i sumar, að byggja brú út i Viðey frá Gufunesi. Að sögn Trausta Valssonar arkitekts hjá Þróunarstofnuninni virðist vera töluverður möguleiki á þessu. Brúin yrði þá væntanlega göngu- brú úr timbri á steyptum stöpl- um, og myndi hún liggja út frá Gufunesinu, skammt fyrir sunn- an brú áburðarverksmiðjunnar. Hún yrði um sjö hundruð metrar að lengd. Mjög grunnt er á þvi svæði, sem brúin myndi liggja yfir, eða varla meira en tveggja metra dýpi. Kostnaður ætti þvi ekki að þurfa að verða mikill, en talað hefur verið um 3 milljónir. Þarna i sundinu er skjól frá úthafsbylgj- unum, og einnig var af skerjum allt i kring. Geta má þess, að vegna skerjanna og þess, hve sundið er grunnt, fara hafnsögu- bátarnir ógjarna þarna um. Brú- in myndi þvi vart trufla ferðir þeirra. Fyrir um 2 árum, er rikið keypti hluta af Viöey (kringum Viðeyjarstofu), áætlaði Vega- Framhald á bls. 23 ■ Þannig mun brúin frá Gufunesi út i Viöey væntanlega liggja, ef af smföi hennar veröur. Tvö heimili fyrir taugaveikluð börn Mikil þörf er á heimilum og meðferðar- og skólastofnun- um fyrir taugaveikluð börn. Fræðsluráð Reykjavikurborg- ar telur nauðsynlegt, að hið allra fyrsta verði komið á fót þrem meðferðarheimilum fyrir taugaveikluð börn og unglinga, og er stofnun þriggja slikra heimila i at- hugun hjá borgarráöi. Heimilissjóður tauga- veiklaðra barna og Hvita- bandið munu ieggja fé til þessara framkvæmda að hluta. Aætlað er, að eitt heimilanna sé ætlað 12-15 nemendum og rekið sem skólastofnun meö heimavist, sem jafnframt þvi að veita lögskipaða fræðslu sjái vist- börnum fyrir þeirri sérfræði- legu meðferð i lækningaskyni, sem nauðsynleg er talin. Þá skuli reist tvö fjölskyldu- heimili, ætiuðu 5-8 börnum hvort. Vistbörnin sæki al- menna skóla og njóti þar og á heimilunum nauðsynlegrar sérfræðilegrar þjónustu til náms og i lækningaskyni. Fræðsluráð telur, að rekstur heimilanna þriggja ætti að vera i höndum samvinnu- nefndar fræðsluskrifstofunnar (sálfræðideildar skóla), Félagsmálastofnunar og Geð- deildar Barnaspitala Hringsins, sem sameiginlega sæju heimilunum fyrir nauðsynlegri sérfræðilegri að- stoð. -SJ. Bindindisfræðsla félaga úr AA A UNDANFÖRNUM árum hefur farið fram með ýmsum hætti bindindisfræðsla i gagn- fræðaskóium borgarinnar. Eitt áriö önnuöust t.d. lækna- nemar þessa fræðslu en að þessu sinni sjá félagar úr AA- samtökunum um hana. Bindindisfræðslan er nú hafin, en þetta er umfangs- mikið starf, þvi farið er i alla bekki gagnfræðaskólanna. Við höfum frétt, að sú nýjung að láta félaga I AA-samtökunum, annast þessa fræðslu, hafi gefizt vel, sem komið er, og hafi þeir náð eyrum unglinganna. -SJ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.