Tíminn - 04.01.1974, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.01.1974, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Köstudagur 4. janúar 1974 IUI Föstudagur 4. janúar 1974 Heilsugæzla Slysavarðstofan: sími 81200, eftir skiptiborðslokun 81212. Sjúkrabifreið: Reykjavík og Kópavogur simi 11100, Hafnarfjörður simi 51336. Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 — 08.00 mánudagur — fimmtudags, simi 21230. Ilafnarf jörður — Garða- hreppur Nætur- og helgidaga- varzla upplýsingar lögreglu- varðstofunni simi 50131. A laugardögum og helgi- dögum eru læknastofur lokaðar, en læknir er til viðtals á göngudeild Landspitala, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar i simsvara 18888. Helgar-, kviild- og nætur- þjónusta lyfjabúða i Reykjavik, vikuna 4. janúar 1974 til 10. janúar, er i Laugar- nesapótekiog Ingólfs Apóteki. Lögregla og slökkviliðið Reykjavik: Lögreglan simi 11166, slökkvilið og sjúkra- bifreið, simi 11100. Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökkvilið og sjúkra- bifreið simi 11100. Ilafnarf jörður: Lögreglan simi 50131, slökkvilið simi 51100, sjúkrabifreiðsimi 51336. Rafmagn: 1 lieykjavik og Kópavogi i sima 18230. I Hafnarfirði, simi 51336. Hitaveitubilanir simi 25524. Vatnsveituhilanir simi 35122. Sfmabilanir simi 05. Félagslíf Kélagsstarf eldri borgara. Opið hús og jólatrósskemmtun verður haldin fyrir eidri borg- ara og barnabörn og barna- barnabörn i Kóstbræðrahúsi Langholtsvegi 109 föstudaginn 4. jan. næstkomandi kl. 2 e.hd. 67 ára Reykvikingar og eldri, verið velkomnir með börnin. Óbáði Söfnuðurinn. Jólatrés- fagnaður fyrir börn næstkom- andi sunnudag kl. 3. Aðgöngumiðasala laugardag kl. 1 til 4 i Kirkjubæ. Kvenfélag Laugarnessóknar. Kundur verður haldinn i Kvenfólagi Laugarnessóknar, mánudaginn 7. janúar kl. 8,30 i fundarsal kirkjunnar. Spilað verður Bingó. Stjórnin. Söfn og sýningar Kjarvalsstaðir. Kjarvals- sýningin er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 16-22 og laugar- daga og sunnudaga kl. 14-22. aðgangur ókeypis. Siglingar Skipadeild S.l.S. Jökulfell er i Borgarnesi, fer þaðan á morgun til Þórshafnar, Vopnafjarðar og Reyðar- fjarðar. Disarfell er i Ventspils, fer þaðan til Kotka, Ronehamn, Gautaborgar og tslands. Helgafell fór frá Borgarnesi i nótt til Akur- eyrar, Húsavikur, Svend- borgar, Rotterdam og Hull. Mælifell fer væntanlega frá Sousse i dag til Þorlákshafnar. Skaftafell er i New Bedford, fer þaðan til Norfolk og tslands. Hvassafell er i Gdynia, fer þaðan til Ham- borgar. Stapafell fer frá Húsavik i dag til Reykjavikur. Litlafell losar á Vestfjörðum. Minningarkort Minningarspjöld Barnaspi- talasjóðs Ilringsins fást á eftirtöldum stöðum: Blóma- verzl. Blómið Hafnarstræti 16. Skartgripaverzlun Jóhannes- ■ar Norðfjörð Laugavegi 5, og Hverfisgötu 49. Þorsteinsbúð Snorrabraut 60. Vesturbæjar- Apdtek. Garðs-Apdtek. Háa- leitis-Apótek. Kópavogs- Apótek. Lyfjabúð Breiðholts Arnarbakka 4-6. Land- spitalinn. Hafnarfirði Bóka- búð Olivers Steins. Minningarspjöld Kvenfélags Laugarnessóknar, fást á eftir töldum stöðum: Hjá Sigriði, Hofteigi 19, simi 34544, hjá Astu, Goðheimum 22, simi 32060, og i Bókabúðinni Hrisa- teig 19, sími.37560. M in n in ga rsp jöld Kélags • einstæðra foreldrafást i Bóka- búö Lárusar Blöndal i Vesturveri og á skrifstofu félagsins i Traðarkostssundi 6, sem er opin mánudaga kl. 17—21 og fimmtudaga kl. KK-14. Minningakort Styrktarfélags vangcfinna fást á eftirtöldum stöðum: Bókaverzlun Snæ- bjarnar Hafnarstræti, Boka- búð Braga Hafnarstræti, Verzluninni Hlin, Skólavörðu- stig, Bókabúð Æskunnar, Laugavegi og á skrifstofu félagsins að Laugaveg 11,R simi 15941. TVOVERÐLAUNA- TÓNVERK Félagsmálanámskeið í Grundarfirði 10-15 jan. Kramsóknarfélag Eyrarsveitar efnir til félagsmálanám- skeiðs i Grafarnesi 10-15 jan. Haldnir verða sex fundir er hefj- ast kl. 21.00, en kl. 14.00á laugardag og sunnudag. A námskeiöi þessu verða tekin fyrir fundarsköp og fundaregl- ur, ræðumennska, framburöur og notkun hljómburðartækja. Leiðbeinandi veröur Kristinn Snæland, erindreki. Nánari upplýsingar gefur Hjálmar Gunnarsson Grafarnesi. Allir velkomnir. V____________________________________ Brauðgerð tekur til starfa á Dalvík — nýr skuttogari að koma DÓMNEKNI) um hljóinsveitar- verk til flutnings við hátiðaböid á 1100 ára afinæli islandsbyggðar hefur skilað áliti til þjóðhátiðar- nefndar 1974, er liljóðar svo: ,,Það er einróma álit dóm- nefndarinnar, að ekkert þeirra tónverka, sem henni hafa borizt til úrskurðar i samkeppni um þjóðhátiðartónverk, skeri sig úr að gæðum þannig, að það verð- skuldi óskipt þau verðlaun, sem þjóðhátiðarnefnd hefur heitið. Hins vegar telur nefndin, að tvö tónverkanna séu verð viður- kenningar, og leggur þvi til, að umræddu verðlaunafé verði skipt að jöfnu milli höfunda þessara verka, en þau eru merkt ,,Supo 2791” og „A.T.A.N.” ”, Alit dómnefndar er undirritað i Reykjavik 27. desember 1973 en hana skipa Arni Kristjánsson, formaður Björn ólafsson, Páll Isólfsson, Róbert A. Ottósson og Vladimir Askenazy,. A fundi sinum á laugardaginn féllst þjóðhátiðarnefnd 1974 á skiptingu verðlaunanna að jöfnu milli tveggja höfunda tilgreindra verka. Verðlaunin námu samtals tvö hundruð þúsund krónum, og koma þvi eitt hundrað þúsund krónur i hlut hvors þeirra. Verðlaunahafarnir eru Herbert H. Agústsson, Hjarðarhaga 28. fyrir tónverkið „Tilbreytni", sem sent var i samkeppnina undir dul- nefninu „Supo 2791" og Jónas Tómasson, Hvassaleiti 83, Reykjavik, en nú á ísafirði. fyrir tónverkið „Ellefu hugleiðingar um landnám", sem sent var i samkeppnina undir dulnefninu „A.T.A.N.” Alls bárust fimm tónverk i samkeppnina. Sýning á myndlist barna SENDIRAÐ Tékkóslóvakiu og Tekknesk-Islenzka félagið gang- ast fyrir sýningu á myndlist barna i Tékkóslóvakiu i Bogasal þjóðminjasafnsins. Menntamála- ráðherra Magnús Torfi Ólafsson mun opna sýninguna laugardag- inn 5. janúar 1974. Verður sýning- in opin frá kl. 17.00 þann dag og siðan daglega frá kl. 14-22 til 12. janúar. Höfundar myndanna eru á aldrinum 4-17 ára. Engin ólæti á Sauðárkróki um þessi áramót Klp-Reykjavik. Það hefur jafnan verið venja unglinga á Sauðár- króki, að efna til óláta á götum úti á Gamlárskvöld. Hafa þau þá ráðizt á öskutunnur, grindverk og bila, sérstaklega þö lögreglubil- ana og lögreglustöðina. Að þessu sinni kom ekki til neinna óláta, og mun það vera i fyrsta sinn i fjölda mörg ár. Skát- ar á Sauðárkróki stóðu fyrir flug- eldasýningu og brennu á gamlárskvöld og einnig var hald- inn dansleikur fyrir unglingana, sem dró að sér mikinn fjölda. Nokkrir virtust þó hafa áhuga á að halda uppteknum hætti, en þeir voru það fáliðaðir að ekki varð neitt úr þvi. Lögreglan á Sauðárkróki var mjög ánægð með þetta, svo og flestir bæjarbúar, enda var þetta orðin eini staðurinn á landinu, þar sem höfð voru uppi ólæti á þess- um síðasta degi ársins. Sveitarstjóra- skipti á Dalvík SVEITASTJÓRASKIPTI urðu á Dalvik um áramótin. Hilmar Danielsson, sem verið hefur sveitarstjóri i tæp átta ár, lét af þvi starfi, og við tók Valdimar Braga- son frá Landamótaseli i Köldukinn, en hann hefur verið starfsmaður Dalvikur- hrepps siðan i fyrravor. Leiðrétting 1 umsögn minni um ljóðabók Þórodds Guðmundssonar, Leikið á langspil, urðu með stuttu milli- bili nokkrar villur, auk þess sem heil lina féll niður. Sá hluti greinarinnar, sem brenglaðist, átti að vera svona: Þetta er falleg ósk og islenzk i bezta lagi. Korfeður okkar létu iðulega grafa með sér hest sinn og hund, af þvi að þeir trúðu þvi, að þá yrðu þeir samferða á ókunnum slóðum næsta tilverustigs. Það er eitthvað meira en litið geðfellt við þá hugsun, og vonandi er, að þeim hafi orðið að ósk sinni, gömlu mönnunum. — I þessum bókarhluta er einnig titilkvæðið, Leikið á langspil. Þar er leikurinn þreyttur á þann hátt sem vera ber og gripið til gamals og fallegs rimnaháttar. _________ -VS. Fyrstir á morgnana MIKILL snjór og ófærð er nú á Dalvik, en þar hefur verið leiðindaveður undanfarið. Illfært er til Akureyrar, og mjólkurbilar, sem fóru þangað i gærmorgun, voru lengi á leiðinni, en snjó- ruðningstæki aðstoðuðu þá. Dansleikur var i Vikurröst á gamlárskvöld og brenna úti á Böggvistaðasandi. Einnig fór skátar blysför. Krá sjávarsiðunni er það að frétta, að togskipið Loftur Bald- vinsson er nú i lengingu i Dan- mörku. Verður hann lengdur um tæpa fimm metra. Merkilegt er i þvi sambandi, að búið var að smiða stykkið i skipið áður, og þegar Loftur kom, var hann skorinn I syndur og stykkinu smellt á sinn stað. Verkinu verður lokið 9. janúar, og er áhöfnin að fara utan. önnur áhöfn er einnig á förum. Ker hún til Noregs að sækja nýjan skuttogara Dal- vikinga, sem hlotið hefur nafnið Björgvin. Verður hann afhentur 10. janúar, og er þá von til að brátt komi fiskur i frystihúsið, en þangað hefur ekkert komið um alllangt skeið, þvi að Dalvikingar hafa selttogbáta sina. Breytingar standa nú yfir i húsinu vegna móttöku á kassafiski. Brauðgerð tók til starfa á Dal- vik nýlega, og fá nú þorpsbúar ætiðnýtt brauðá borðsin, en áður kom það frá Akureyri. Brauðgerð hefur ekki verið á Dalvik um all- langtárabil. -SB Maðurinn minn Guðjón Jónsson, bifreiðastjóri, Stórholti 23 lést i Landspitalanum aðfararnótt 2. janúar Kyrir hönd vandamanna Jónína Einarsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi Helgi Mogensen mjólkurfræðingur verður jarðsunginn frá Eossvogskirkju föstudaginn 4. jan. kl. 3 e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Eyrir hönd vandamanna Þórunn Mogensen. Móðir min Steinunn Ágústa Steindórsdóttir Neðri-hrepp i Skorradal andaðist I sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 30. desember. Hún verður jarðsungin frá Hvanneyrarkirkju laugardaginn 5. janúar kl. 2 e.h. Eyrir hönd vandamanna Einar Jensson *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.