Tíminn - 04.01.1974, Page 12
12
TÍMINN
Föstudagur 4. janúar 1974
Ilvaft cr radíóarnatör?
Það er maður, sem hefur
lært radiótækni og mors og
tekið i þvi próf, sem veitir
honum leyfi til að eiga og
starfrækja sendistöð til að
hafa samband við aðra radió-
amatöra á amatörbylgju-
sviðum.
Ilvcrsvegna radióamatör, en
ckki radfóáhugamaður?
Knattspyrnuáhugamaður
hefur áhuga á knattspyrnu, en
það er ekki vist að hann kunni
að sparka bolta. Kins þarf
radióáhugamaður ekki að
Þannig
er sam-
bandinu
KAI.LMKIIKI
Allir radióamatörar hafa
sitt eigið kallmerki. Venju-
lega eru fyrst einn eða tveir
bókstafir, siðan einn tölu-
stafur og þar á eftir tveir eða
þrir bókstafir. Frá þessu eru
þó til undantekningar.
Fyrstu einn eða tveir staf-
irnir tákna land það sem
stöðin er i. Tölustafurinn er
oft notaður til að segja til um
hvar i landinu stöðin er, og er
landinu þá skipt niður i
svæðisnúmer, siðustu staf-
irnir eru svo einkenni hvers
amatörs.
C <1 ALMKNNT KAIJ.
C Q er almennt kall og
þýðir að hver sem vill svara
er velkomið að gera það.
Q S O K»A SAMBANI)
Þegar radióamatör sem
við getum kallað TF3AA
ætlar að eyða einhverjum
tima við ta'kin sin, byrjar
hann á þvi að hlusta og
komast að hvernig skilyrði
eru i loftinu i það skipti.
Hann velur siðan tiðnisvið og
stillir tæki sin þar. Hann
kallar siðan út CQ og sitt
kallmerki á eftir, tf3aa. Sú
stöð, sem svarar, sendir
hans kallmerki og siðan sitt,
t.d tf5zz. 3aa kemur þá aftur
og þakkar 5zz fyrir að svara
sér og gefur honum upplýs-
ingar um hvernig heyrist t.d.
599. gefur honum siðan upp
QTH og hvað hann heiti. Oft
segir hann einnig hvernig
tækin eru sem hann notar.
5zz kemur siðan aftur inn
og gefur sömu upplýsingar
og þar á eftir fer það eftir
hverjum og einum hvað
talað er um og hve lengi.
Þegar þeir svo hætta að tala
saman segja þeir 73, sem er
stytting fyrir bestu árnaðar-
óskir eða eitthvað i þeim dþr,
og ef t.d. 5zz er kona bætir
hún gjarnan við 88 sem þýðir
,,love and kisses”. Konur
kalla amatörar YL ef hún er
ógift en XYL annars. Karl-
kynsamatörar eru hins
vegar alltaf kallaðir OM eða
old man.
kunna neitt i radiótækni eða
fjarskiptum. Orðið radióama-
tör er hins vegar notað ein-
göngu yfir þá áhugamenn,
sem hafa tekið amatörpróf.
Þeir hafa með leikni sinni og
kunnáttu öðlazt leyfi til að
starfa sem virkir fjarskipta-
menn.
Ilvc langt draga tækin?
Það er misjafnt eftir
skilyrðum og tiðni sendisins.
Yfirleitt næst vel til Evrópu og
Ameriku. Stundum næst lika
til Asiu og Astraliu.
Um hvaðtala radióainatörar?
Ef menn þekkjast ekki og
vita ekki hvað þeir ciga að tala
um, segja þeir kannski:
„Híilló... ég heyri vel i þér...
bless”. Annars tala þeir um
allt milli himins og jarðar.
Radióamalörar koma úr
öllum starfsgreinum, þeir eru
læknar, kóngar, verkfræð-
ingar, húsmæður.... o.s.frv.
Þeim gefst þvi gott tækifæri til
að kynnast margvislegu fólki
frá mörgum þjóðum. Stöðina
má þó ekki nota til að flytja
mikilvæg skilaboð, sem
annars hefðu verið send með
pósti eða sima, nema um neyð
sé að ræða.
Ilvernig get cg orðið radió-
amatör?
Með þvi að læra radiótækni,
t.d. með þvi að lesa og smiða
einhver tæki. Einig verður að
læra mors. Gangast siðan
undir amatörpróf.
Ilvcrjar cru prófkröfurnar?
Próf eru tvennskonar:
Fyrir nýliðapróf er krafizt
að menn kunni skil á:
a. Helztu atriðum i lögum um
fjarskipti og tilheyrandi
reglum varðandi radióvið-
skipti.
b. Viðtöku og sendingu á
mors-merkjum (hraði 35
bókstafir á minútu),
nokkrum helztu Q-skamm-
stöfunum og grundvallar-
atriðum radiótækni.
Fyrir A-próf eru kröfurnar:
a. Helztu atriði laga um fjar-
skipti og tilheyrandi reglna
varðandi radióviðskipti,
svo og i þeim greinum al-
þjóða radióreglugerðar-
innar, er snerta stöðvar
áhugamanna og neyðar-
viðskipti, svo og gildandi
reglum um raforkuvirki.
b. Viðtaka og sending morse-
merkja (hraði 60 stafir á
min), leikni i viðskiptum og
notkun algengustu Q-
skammstafana.
c. Undirstöðuatriði raffræði
og radiótækni, leikni i
stillingu senditækja,
bylgjumælingu o.þ.l. Verk-
lega verður krafizt leikni i
meðferð mælitækja,
vönduðum frágangi, öryggi
i stillingu tækjanna o.þ.l.
Kru aldurstakmörk?
Já, nýliðapróf 14 ára og A-
próf 16 ára.
Ilvaða leyfi veita þessi próf?
a. Nýliðaleyfi, sem gildir i tvö
ár og er óendurnýjanlegt.
Leyfir 5 watta sendi á
morsi eingöngu i tveimur
bylgjusviðum.
b. A-leyfi leyfir 50 Vött á
morsi. Tal-leyfi fæst ári
seinna. Tiðnisviðin eru
fimm.
Úti cr stormur, og I miðjum kliðum veröur aö fara út og strengja stögin
á loftnctsstöngina við gamla golfskálann á Öskjuhlfð.
Ekki dugar annað en þreifa sig áfram, þvi aö með reynslunni fæst
leiknin.
Sitthvað af þvl, sem notað er við fjarskiptatæknina.