Fréttablaðið - 26.11.2004, Blaðsíða 34
7FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2004
Opnunartími í desember:
laugardagur: 10-16 sunnudagur: 13-17
Á morgun kl. 16 opnar
HANDVERK OG HÖNN-
UN jólasýninguna „Allir
fá þá eitthvað fallegt“ í
Aðalstræti 12. Þetta er í
sjötta sinn sem HAND-
VERK OG HÖNNUN
heldur jólasýningu, og er
um að ræða sölusýningu
þar sem 32 aðilar sýna ís-
lenskt handverk og list-
iðnað úr fjölbreyttu
hráefni. Munirnir
voru valdir inn á sýn-
inguna af sérstakri
dómnefnd.
Sýningin er opin
frá kl.13.00 - 17.00
alla daga og mun hún
standa til 20. desem-
ber. Aðgangur er
ókeypis. ■
Allir fá þá eitthvað fallegt
Jólasýning HANDVERKS OG HÖNNUNAR opnar á morgun.
Mín skoðun
JÓLAKÖTTURINN TEKUR TIL MJÁLMS
Skynsemin og jólin
Góðir lesendur!
Þegar sólin lækkar á lofti og kólnar í veðri er augljóst hvað öllum
spendýrum er best og skynsamlegast að gera. Og það er að sofa. Sofa
og kúra sig niður í heitt teppi, stinga nefinu öðru hverju út í loftið til
að athuga hvort nokkuð er að frétta og halda áfram að sofa. Vakna
tvisvar á dag og borða, snyrta sig aðeins og fara svo aftur að sofa.
Á þessum árstíma er þetta hið fullkomna samspil spendýrs og
náttúru. Nema hvað eitt spendýr er alveg að fara yfirum af einhverju
sem það kallar „jól“. Ég veit alveg hvað jól er, þá er kalt, þá er dimmt
og þá er nauðsynlegt að sofa óvenju fast og lengi. Og þá fer tegund-
in „fólk“ algerlega yfir um. Þeytist eins og hauslausar mýs um allan
bæ í ýmsum óljósum tilgangi, þrífur allt heimilið (eins og það sjái
einhver mun í myrkrinu), leggur sig í lífshættu við að príla upp á þak
til að hengja þar ljós (það skortir því miður allan þokka og jafnvæg-
isskynið er beinlínis sorglegt), líma saman á sér loppurnar við jóla-
kortagerð og skamma hvert annað hástöfum.
Ég skil ekki fólk! Það má sko eiga sína greind og afturloppulabb
fyrir mér. Ég ætla að halda áfram minni skynsamlegu iðju sem er að
sofa. Hvíla mig. Safna kröftum. Og mala af hlátri yfir allri vitleys-
unni í „fólki“! ■
32-33 (06-07) Allt jólin 25.11.2004 15.12 Page 3