Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 5
Sunnudagur 24. marz 1974.
TÍMINN
5
Romen-leikhúsiö i Moskvu — atriöi úr sjónleiknum Ég er
Sigaunastúlka.—Ljósmynd: APN.
Eina Sígaunaleik-
innr
Sígaunar komu fyrir æva-
löngu frá Indlandi og flökkuöu
um allan heim. AIls staöar
uröu öriög Sigaunanna
hörmuleg. Þeir voru hundelt-
ir, bannfæröir, réttdræpir og
útrýmt eins og villidýrum.
Arið 1911 spáði hinn frægi
rússneski rithöfundur, Alex-
ander Kúprin, á þennan veg:
,,Enn mun líða fjórðungur ald-
ar og enginn man lengur eftir
þeim (Sigaunasöngvunum).
Fornir tjaldsöngvar, sem hafa
gengið frá ætt til ættar, frá
fjölskyldu til fjölskyldu, eftir
mirfíli, hurfu i gleymsku. Eng-
inn hefur safnað þeim, enginn
hefur skráð þá. Þeir verða
ekki endurvaktir”.
Til allrar hamingju átti spá-
dómur hans ekki eftir að koma
fram.
Árið 1931 var opnað i
Moskvu fyrsta rikisleikhúsið i
heimi, ,,Romen”, þar sem list
þessarar smáþjóðar fékk
tækifæri til að þróast og full-
komnast. (Arið 1970 voru i
Svétikjunum 175 þúsund Si-
gaunar samkvæmt manntali).
Listaleikhúsiö i Moskvu
hafði yfirumsjón með hinu
óvenjulega leikhússtarfsfólki.
Hinir frægu leikarar. Mikhail
Janshin og Nikolaj Khmelev
voru fyrstu kennararnir i leik-
húsinu, en þar var ekkert at-
vinnufólk, nema ef telja mætti
nokkra söngvara úr Sigauna-
kórum i veitingahúsum. Það
þurfti ekki aðeins að kenna
mörgum leiklistina, heldur
einnig að lesa og skrifa.
Að ári liðnu var fyrsta verk-
ið sýnt i leikhúsinu. Það var
,,LIf á hjólum” söngleikur eft-
ir Sigaunahöfundinn
Germano. Sýningin var stór-
kostlegur sigur. Sigaunarnir
töfruðu leikhússgesti i Moskvu
með óvenjulegum hæfileikum
sinum.
Bráðlega var se$ upp leikrit
eftir sögu Kúprins „Olesja”,
sem fjallaði um harmleik úr
sögu hinnar útskúfuöu þjóðar.
Siðan bættust á leikskrána
„Sigaunar” eftir Púshkin,
„Karmen” eftir Merimer,
„Esmeralda” eftir Hugo, „Si-
gaunastúlkan” eftir Servantes
og „Makar Tsjúdra” eftir
Gorki. Á fjölum leikhússins
urðu til söngvar um nútimalif
Sigauna i Moskvu. Þeir voru
skrifaðir af Mikhail Svetlov,
Júri Nagibin, Alexander
Afinogenov og fleiri efnilegum
sovézkum rithöfundum og
leikritahöfundum.
1 leikhúsinu er sett upp mik-
ið af leikritum um lif Sigauna i
öðrum löndum.
Hverjir eru þaö, sem koma
fram i Romen-leikhúsinu?
Hverjar eru stjörnurnar?
Nokkrar kynslóðir leikara
hafa alizt upp i Romen. Aðal-
leikkonan, Olga Jakovskaja,
kom fyrst i leikhúsið fyrir 40
árum. Þá var hún 13 ára og
kom beint úr Sigaunatjöld-
unum, berfætt i skærlitum Si-
gaunaklæðnaði. Henni var vis-
að burtu. Fljótlega birtist hún
aftur, klædd eins og „fullorðin
kona” i hælaháum skóm og
siðu pilsi. Fötin hafði hún
keypt fyrir peninga, sem hún
fékk fyrir að spá á markaðn-
um. Þegar ljóst varð, að ekki
yrði losnað við hana, var hún
sett upp á svið og sagt að
syngja nokkur sönglög, sem
hún og gerði á listrænan og
glæsilegan máta. Ævisaga
Olgu Jakovskaju var notuð
sem efniviður i leikritið
„Stúlkan úr tjaldbúðunum”,
en það hefur gengiö i mörg ár i
Romen. Maður hennar er Ivan
Khrústaljev, fyrrverandi
starfsmaður i prentsmiöju.
Hann er mikilhæfur leikari,
leikstjóri og höfundur.
Nikolaj Slitsjenko, hinn
færgi leikari og söngvari, var
17 ára að komast yfir byrjun-
arörðugleikana. 1 fyrstu fékk
hann eingöngu smáhlutverk.
Eitt sinn á leikferðalagi fékk
hann Andrej Shishkov til að
gera sér upp veikindi, sem
hann og gerði á sannfærandi
hátt. En Nikolaj lék i hans stað
eitt aðalhlutverkið i söng-
leiknum „Fjórir biðlar” og
hlaut almenna viðurkenn-
ingu. Nú er hann ekki aðeins
leiðandi leikari, heldur lika
vinsæll söngvari. Parísarbúar
kölluðu hann „Þjóðsögusi-
gaunann”. Arið 1965, þegar
Slitsjenko kom fram þar, báru
hrifnir áhorfendur hann bók-
staflega út af sviðinu i gullstól.
Ekki fékk hann siðri móttökur
i Tékkóslóvakiu og Búlgariu.
I hópinn bætast stöðugt ung-
ir piltar og stúlkur með mikla
hæfileika.
Margir ungir leikarar hafa
hlotið æðri leikhúsmenntun.
Þeir hafa lokið námi i frægum
leikskólum og tónlistarskól-
um.
En leikararnir i Romen-
leikhúsinu koma ekki alltaf
fram á sviði. Þeir hafa oft orö-
ið að koma fram og syngja og
dansa i verksmiðjum og á ný-
byggingarsvæðum. Sigauna-
listamenn hal'a sýnt i öllum
stærri verksmiðjum i Moskvu.
Sigaunasöngvarnir og Si-
gaunadansarnir hafa ekki
gleymzt, ekki horfiö. Beztu
hefðir listsköpunar Sigauna-
þjóðarinnar lifa og þróast. í
þvi á Romen-leikhúsið, eina
atvinnuleikhús Sigauna i
heimi, drjúgan þátt.
Eduard Alesin, APN.
Meistari í
þungavigt
HIHBFOCO
Hiab-Foco kraninn er byggöur rneð þekkingu og reynslu tveggja stórvirkustu
kranafyrirtækja Svíþjóóar. Enda eru Hiab-Foco kranar vafalaust meö þeim traust-
ustu sem völ er á.
Lyftigeta: 0-5 tonn. Armlengdir frá 1,7m til 8,95m. Hiab-Foco er staðsettur
fyrir miöjum palli. Þunginn hvílir á miöri grind, en armlengdin er hin sama beggja
vegna bílsins. Stjórntækin eru beggja megin.
Snúningsgeta Hiab-Foco er 360 gráöur. Fullkomin varahluta- og viógerðaþjónusta.
VELTIR HF
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBlLA,
JEPPA- OG VORUBlLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð fekin d sólningunni.
Kaupum nofaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumsf allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum fækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík.
Auglýsið í Tímanum
argus