Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 3
;«/ l.-’.íi .ÍJ •iB3f5Í>Ulinlit. '■SVW Iv':,,v
Sunnudagur 19. mai 1974. _________________ TÍMINN 3
Ellefu hundruð ám afmæli
íslandsbyggðar
1.000 króna silfurpeningur
39 mm að þvermáli
10.000 króna gullpeningur 500 króna silfurpemngur
27,75 mm að þvermáli 35 mm að þvermáli
Bakhlið
peninganna
Þjóðhátíðarmynt
1974
Seðlabanki íslands gefur út gull- og silfurmynt
í tilefni af 1100 ára afmæli byggðar á íslandi.
Peningarnir eru þrír og þannig gerðir:
10.000 króna gullpeningur, 27,75 mm að þver-
máli og 15,5 gr að þyngd. Á framhlið er mynd af
Ingólfi Arnarsyni er hann varpar öndvegissúlum
sínum fyrir borð.
1.000 króna silfurpeningur, 39 mm að þvermáli
og 30 gr að þyngd. Á framhlið er sýnt, hversu karl-
menn helguðu sér land. Skyldu þeir kveikja eld, er
sól var í austri að morgni, og síðan aðra eída, svo
að hvern sæi frá öðrum, uns sól væri í vestri.
Svaíðið milli eldanna markaði stærð landnámsins.
500 króna silfurpeningur, 35 mm að þvermáli
og 20 gr að þyngd. Á framhlió er mynd af konu,
sem leiðir kú sér við hlið. Landnám kvenna skyldi
ekki vera víðara en svo, að kona gæti leitt um það
tvævetra kvígu vorlangan dag sólsetra millum.
Á bakhlið peninganna allra eru landvættimar
fjórar, naut, fugl, dreki og bergrisi.
Gullpeningarnir eru 900/1000 að skírleika, sem
samsvarar nálægt 22 karötum, en silfurpeningarnir
eru 925/1000 að skírleika (sterling silfur).
Þröstur Magnússon teiknaði peningana, sem
slegnir em hjá Royal Mint í London.
SÉRUNNIN SLÁTTA.
Hluti upplags myntarinnar er sérlega vönduð,
sémnnin slátta (proof coins). Þessir peningar verða
meö mattri áferð mynda og leturs, en sléttir fletir
gljáfægðir. Verða þeir seldir yfir nafnverði, enda
dýrari að gerð og ætlaðir fyrst og fremst til söfn-
unar. Þeir eru í vönduðum öskjum og fást ýmist
allir þrír eða silfurpeningarnir saman.
VENJULEG SLÁTTA
Meiri hluti myntarinnar verður hins vegar
sleginn eins og gerist um gjaldmiðil. Þessi slátta er
einnig fáanleg í öskjum, gulipeningurinn sér
og silfurpeningarnir samán.
PÖNTUN TIL SEÐLABANKA ÍSLANDS
Vinsamlega sendið mér neðangreinda þjóðhátíðarmynt 1974 að andvirði kr._________________, og fylgir greiðsla
með þessari pöntun.
______öskjur (hámark 3), sérunnin slátta, 1 gull- og 2 silfurpeningar á kr. 23.000.- = kr. ................
......öskjur (hámark 5), sérunnin slátta, 2 silfurpeningar.. á kr. 3.200.- = kr.
......öskjur (hámark 3), venjuleg slátta, 1 gullpeningur..... á kr. 10.200.- = kr.
......öskjur (hámark 5), venjuleg slátta, 2 silfurpeningar....á kr. 1.700.- = kr.
Samtals kr.
NAFN:...........................................................
HEIMILI:...................................1....................
Seðlabankinn afgreiðir pantanir t þeirri röð, sem þær berast, þar til upplag þrýtur.
AÐ EIGNAST MYNTINA.
Þjóöhátíðarmyntina skal panta á þar til gerð-
um eyðublöðum hjá bönkum, sparisjóóum og
helstu myntsölum eða beint frá Seðlabanka íslands.
Staðgreiðsla fylgi pöntun. Dreifing fer fram frá
pöntunarstað og verður auglýst sérstaklega.
TAKMARKAÐ UPPLAG.
Þeim, sem vilja tryggja sér myntina til eignar
eða gjafa, skal bent á, að bæði er upplag takmarkað
og jafnframt er búist við verulegri erlendri eftir-
spurn. Því er ráðlegt að gera pöntun strax. Til þess
að sem flestir geti eignast myntina, er nauðsynlegt
aó setja hámark þess, sem hver getur pantað, viö
þrjá gullpeninga af hvorri sláttu, en fimm af
hvorri samstæðu silfurpeninga, eins og nánar er
skýrt á pöntunarseðli.
Hámarksupplag myntarinnar er eftirfarandi:
SÉRUNNIN SLÁTTA
10.000 króna gullpeningur 8.000 stk.
1.000 króna silfurpeningur 58.000 stk.
500 króna silfurpeningur 58.000 stk.
VENJULEG SLÁTTA
10.000 króna gullpeningur 12.000 stk.
1.000 króna silfurpeningur 70.000 stk.
500 króna silfurpeningur 70.000 stk.
VERÐMÆT EIGN.
Vonast ertil, að þjóðhátíðarmyntin verði
safngripir, sem verða eigendum sínum til ánægju og
minja um merkan atburð í sögu þjóðarinnar.
Jafnframt eru peningarnir gjaldgeng íslensk mynt,
slegin úr gulli og silfri.
iákh SEÐLABANKI
vBSlj ÍSLANDS