Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 5
■ Sunnudagur 19. mai 1974. TÍMINN 5 sem ógrynni er til af. Einnig er sérstök deild fyrir listmálun, og sjáum við hér tvær myndir frá henni.önnur eraf börnum, sem sýnilega eru mjög áhugasöm við iðju sina og hin er af tveim barnamyndum, sem sendar voru á sýningu. Efri myndin heitir Hjarðmaðurinn með fjár- hóp sinn og er eftir Sasha Yeryomin, sem er 11 ára. Hin heitir Gönguferðin og er eftir Ira Akopova, sem er ekki nema 6 ára, og má búast við að hann eigi eftir að gera margar fallegar myndir ^iðar meir, þar sem hann er þegar orðinn svona duglegur I myndlistinni. Hdmarkshraðinn aukin á ný Stærsti mdlmbræðsluofn heims Hámarksökuhraði á þjóðvegum Frakklands var fræöur niður f 120 km á klukkustund, á albeztu vegunum og 90 km á venjuleg- um þjóðvegum, en hefur nú verið aukinn á ný. Ekki er hraðinn þó leyfilegur meiri en 140 km mest og 100 km þar sem 90 giltu áður. Áður en olíu- skorturinn fór að gera vart við sig voru engar hraðatak- markanir á hraðbrautunum, og 110 km á öðrum þjóðvegum. Yfirvöld hafa skýrt frá þvf, að mikið hafi dregið úr slysum eftir að hámarkshraðinn var lækkaður. Auk þess mun hafa sparazt 10% þess ollumagns, sem áður var notað fyrstu tvo mánuði þessa árs sem slysum hefur fækkað er talið mjög lfk- legt, að sá hámarkshraði, sem áður gilti, verði ekki leyfður á ný. Flugvél, sem veifar vængjunum Að sögn sovézkra flugvélasmiða verður bráðlega hafin smiði flugvéla með hreyfanlega vængi, sem geta auðveldlega borið menn. Leonardo da Vinci og fleiri reyndu sem kunnugt er á slnum tlma að smiða þvílik tæki — ornitopter — en þau ööluðust aldrei hagnýtt gildi. Likan af sllkri flugvél, sem likir eftir flugi fugla, hefur verið smlðuð I Sovétrlkjunum, og gefiö mjög góða raun I reynslu- flugi. Það sýndi sig meöal annars, að svona flugsliki með 1 ha vél getur lyft 20-30 kg. Það er helmingi meiri lyftikraftur en hjá venjulegri flugvél og sjö sinnum meiri en hjá þyrlu. Þetta sovézka flugsllki, sem á rússnesku nefnist machiljot, þarf ekki sérstakar flugbrautir til að taka sig á loft eða lenda. Þar geta menn „spdssérað"! Laun hækka í Frakklandi í marz hækkuðu lágmarkslaun I Frakklandi 15,5franka, eða sem nánast eitt hundrað krónur. Aður voru lágmarkslaunin 5.43 frankar. Lægstlaunuðu verka- mennirnir I Frakklandi fá þvl á mánuði um eitt þúsund franka, eða um 18-19 þúsund krónur, en vinnuvikan þar I landi er 43 klukkustundir. ★ Jakuxar Karlmaður meðal verst klæddu kvenna heims Þar kom að þvi: Karlmaður hefur verið valinn I hópi 10 verst klæddu kvenna I heimi. Sá, sem hlaut þennan vafasama heiður, er poppsöngvarinn David Bowie, en hann er einn þeirra söngvara, sem mála sig og sminka áður en hann kemur fram á skemmtunum. Það er bandarlski hönnuðurinn Blackwell, sem raðar Bowie I tlunda sætið á lista slnum yfir 10 verst klæddu konur i heimi, en sllka lista gefur hann út tvisvar á ári. Bowie fær einkunina að vera I klæðaburði sambland af Joan Crawford og Marlene Dietrich. í öðru sæti á listanum er Anna prinsessa og aðrar frægar konur, sem þar eru meðtaldar eru m.a. Liv Ullmann, Eaquel Welch og Jacquelene Onassis. Myndirnar eru af David Bowie og önnur prinsessu. 1 Parls eru nú 70 göngugötur þar sem bifreiðaumferð er bönnuð, og fimm stórum götum I viðbót var lokað fyrir bifreiðaumferð i jólp-kauptlðinni, en þær voru svo aftur opnaðar eftir ára- mótin. Flestar göngugöturnar I Párls eru I eldri hluta borgar innar, — i Latinuhverfinu og á vinstri bakka Signu. Þeir, sem 'búa við þessar götur og eiga blla, fá samt að aka heim til sin og leggja sínum bilum á stæði við heimili sitt, en umferðar- nefnd borgarinnar gefur út sér- staka lím-merkimiða, sem festir eru á framrúður þessara bifreiða, og ef einhver leyfir sér að aka þarna um, eða leggja bll án þess að billinn sé merktur með þannig miða, fær stórsekt. fluttir norður d bóginn Sovézkir náttúruverndarmenn eru þeirrar skoðunar, að jak- uxar verðskuldi stærra út- breiðslusvæði. Til þess aö svo megi verða hafa 60 jakuxar verið fluttir flugleiðis úr fjalla- héruðunum I Gorno-Altaj syðst i Slberiu til Jakútiu I Norð- austur-Siberiu. Fyrsti hópurinn var fluttur þangað fyrir tveimur árum, og er fylgzt með, hvernig honum tekst að semja sig að lífskilyrðum þar norður frá. Þeir hafa dafnað vel þarna og aukið kyn sitt, svo að i hjörðinni eru nú um 100 dýr. I borginni Irkutsk I Austur- Slberlu er sérstök verksmiðja, sem framleiðir stórar vélar, og smiðar nú I hlutum málm- bræðsluofn, sem verður 5000 rúmmetrar að stærð. Málm- bræðsluofninn er hinn stærsti i heimi og verður hann settur upp i járn- og stáliðjuverinu i Krivoj Rog i Ukraniu. Er ráðgert að hann verði tekinn i notkun I árs- lok 1974. ★ Hafa aidrei burstað tennurnar Tannlæknaþjónusta franska hersins hefur skýrt frá þvi að 51% allra þeirra manna, sem koma til herþjónustu hafi aldrei burstað I sér tennurnar. Tann- læknar hersins hafa einnig skýrt frá því, að i Frakklandi séu notaðir 20 milljón tannburstar árlega, en ef þær 50 milljónir manna, sem i landinu búa, burstuðu tennurnar eins og vera ber, segja tannlæknarnir, að tannburstanotkunin ætti ekki að vera undir eitt hundrað milljónum tannbursta árlega. ★ Skattalögreglan fær liðsauka Segja má, að með nýjum lögum I Frakklandi hafi skattalögreglu þess lands borizt liðsauki, og hann ekki svo lítill. Frá og með júnimánuði næstkomandi má hver sem er fara á skattstofuna i byggðarlagi slnu og fá þar að Hta á framtöl hvers sem er I sama byggðarlagi. Ekki mega menn skýra frá þvl, sem þeir sjá þarna, og eru viðurlögin þung. Sektin getur orðið jafn há og skattupphæð sú er, sem maður sá verður að greiða, sem ljóstrað hefur verið upp um. En hvað geta menn svo gert við þær upplýsingar, sem þeir þarna fá, úr þvl ekki má tala um þær? Taliö er, að fólk geti haft margvislegt gagn af þessum upplýsingum. Til dæmis geta væntanlegir tengdaforeldrar aflað sér upplýsinga um fjár- hagsafkomu tilvonandi tengda- sonar síns, og keppinautar á viðskiptasviði geta einnig fengið þarna miklar upplýsingar. Þetta er þó ekki meginorsökin fyrir þessum nýju lögum. Hún mun vera, að skattyfirvöld telja, að fólk geti frætt þau um ýmislegt, sem viðkomandi aðilar hafa dregið undan skatti, og þannig geti yfirvöldin komið þvi til leiðar að fólk fari að telja réttar fram og þá um leið muni skattarnir hækka og rlkið fá meira I sinn hlut. Nú munu skattframtölin sem sagt veröa undir eftirliti alls almennings framvegis. ★ Næturakstur við Vin Bifreiðastjórar, sem voru ný- lega á ferð I nágrenni Vinar- borgar um nótt, trúðu ekki sin- um eigin augum, er þeir sáu mann I náttserk, eins og notaður er á sjúkrahúsum, standa við veginn og veifa bilum. Rétt þar hjá var sjúkrablll, en hann hafði bilað og var ökumaðurinn að reynaaðgera við hann. Sjúkra- bifreiðin átti að flytja sjúkling á milli sjúkrahúsa, en þegar öku- maðurinn var önnum kafinn við 1 að reyna að koma vélinni I lag, I þá fór sjúklingnum að leiðast | biðin, svo aðhann snakaði sér út | úr bllnum og reyndi að komast á I áfangastaðinn ,,á þumalputtan- | um”, eins og kallað er.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.