Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 13
Sunnudagur 19. mai 1974.
TÍMINN
Elliheimilið við Sólmundarhöfða rls hér af þessum grunni. Héðan er útsýni vltt og fagurt.
lög ofan á fasta botninum, sem
ekki var vitað um, að væru fyrir
hendi áður, og gerir þetta strik i
allar áætlanir um að lengja
hafnargarðinn, fyrr en niðurstöð-
ur liggja fyrir, sem verður seint á
þessu ári. Þetta kemur okkur i
hafnarnefnd og Akurnesingum
svolitið á óvart, að þetta ástand
skuli vera þarna, þvi að við viss-
um ekki betur en þarna væri fast-
ur botn. Hitt er annað mál, að það
er hægt að finna einhverja úr-
lausn, tæknilega, en það tekur
tima og kostar kannski einhverja
meiri peninga en annars hefði
verið. Framkvæmdir hafa alltaf
verið þó nokkrar i höfninni, núna
siðast er lokið við að brjóta ofan
af fremsta kerinu við bátabryggj-
una og steypa plan yfir það. Við
þetta lagaðist viðlegurýmið mikið
og bátabryggjan var breikkuð.
Nú hefur mönnum, vegna þess
ástands, sem skapazt hefur vegna
botnsins, dottið i hug, að til að
fella ekki niður framkvæmdir,
skuli nota féð, sem áætlað var til
framkvæmda i höfninni til að
byggja ferjubryggjuna.
— En þá er komið að Reykja-
vik. Þar er málið töluvert erfið-
ara viðfangs. Mér skilst, að
hafnarstjórn Reykjavikur sé ekk-
ert sérlega vinsamleg i þessu
máli. Hvort það stafar af fjár-
hagsörðugleikum hennar skal ég
ekki segja um, en gæti vel imynd-
ab mér það. Nú hafa staðið yfir
viðræður milli hafnarstjóra og
fjármálaráðherra um lausn á
þessu máli samhliða fram-
kvæmdum, sem verið er að undir-
búa fyrir Rikisskip i Reykja-
vikurhöfn, uppfyllingar og fleira,
og vonandi kemur eitthvað út úr
þvi. Svo er ennfremur komið á
döfina Vestmannaeyjaskip, sem
þarf að hugsa fyrir aðstöðu, og
aldrei að vita, nema Akraness-
ferjan gæti hagnýtt þá aðstöðu
lika.
— Hérna á Akranesi er enginn
vafi á þvi, að ferjubryggja, sem
gerð yrði varanlega inni I höfn-
inni, ætti að geta leyst fleiri
vandamál en bara ferjunnar. Hún
á jafnvel að geta skapað tveim til
þrem bátum viðlegupláss, og við
erum alltaf i þörf fyrir viðlegu-
pláss, ekki aðeins fyrir bátaná.
Nú er hafin hérna myndarleg út-
gerð á togara og likur á stóraukn-
ingúi jafnvel náinni framtið. Það
liggur i hlutarins eðli, að aukinn
skipakostur þrengir i’ höfnunum,
en tilkoma togarans hefur siður
en svo komið að sök. Þetta er
óskaskip okkar Akurnesinga, sem
hefur bætt verulega úr atvinnu-
ástandinu hér, og það koma
áreiðanlega fleiri togarar hingað.
Nú, það er hjá mörgum átylla
fyrir andróðri gegn ferjunni, að
hún taki svo mikið pláss i höfn-
inni. Eg hef nú aldrei heyrt það
fyrr, að menn gætu ekki keypt
hingaö hvaða skip, sem þeim
hentaði án tillits til þess.
— Um stækkunarmöguleikana
er það að segja, að ég er nú búinn
að vera i hafnarnefnd i 12 ár, og
ég hef ekki fundið eða heyrt talað
um, að stækkunarmöguleikar
hafnarinnar hérna væru auðveld-
ir, og öllum hefur heldur hrosið
hugur við þvi, bæði fjárhagslega
og vegna aðstæðna. Það er djúp-
ið, sem er út með Flösinni, geysi-
mikið, og svo hérna inn með eru
aftur grynningar og sandur. Það
hefur nú komið tillaga, mjög svo
lausleg, upp á blað, frá verk-
fræðistofunni hérna, sem gerir
ráð fyrir stækkun inn með Se-
mentsverksmiðjunni og inn með
sandinum, — ég skal ekki segja,
hvað hagkvæmast yrði.
— Nú, innri höfnin hefur verið
árum saman helzta áhugamál
margra bæjarbúa, bæði að ljúka
innréttingu hennar fyrir þá þjón-
ustu, sem hún getur, rymisins
vegna veitt sérstaklega smærri
bátum. Þarna hafa verið gerðar
rannsóknir, sem sýna, að það er
tiltölulega auðvelt að dýpka
þarna, mikið af efnum og leir, og
ég held, að það sé stefnt að þvi að
koma henni i gagnið eins fljótt og
kostur er, og þá falla fram-
kvæmdir við ferjubryggjuna
væntanlega þar inn i. Ég tel, að
það verði aldrei nógsamlega
undirstrikað, að samgöngumálin
eru afgerandi þáttur fyrir marg-
háttaðan atvinnurekstur hér á
Akranesi. Betri samgöngur við
Reykjavik munu tvimælalaust
auka og styrkja fyrirtækjarekst-
ur hér á Akranesi. Hérna eru til
dæmis nokkur meiri háttar bygg-
ingafyrirtæki, sem framleiða
töluvert fyrir Reykjavikur-
markaðinn af innréttingum, auk
annarra verka, sem þau taka að
sér. Einnig er ég lika að láta mér
detta i hug, að með tilkomu ferj-
unnar verði jafnvel hægt að
stunda vinnu héðan i Reykjavik.
Að visu hefur ekki verið nein þörf
á þvi núna siðustu tvö-þrjú árin.
Ástandiðhefur gerbreytzt frá þvi,
sem var, og má að ýmsu leyti
þakka það bæjarstjórninni, sem
tók upp þá stefnu að styðja og
stuðla að atvinnurekstri, stofnaði
framkvæmdasjóð, sem hún hefur
reynt að veita úr til stuðnings og
stofnunar fyrirtækja. Þetta er
fyrir utan það, sem hún hefur
stuðlað að með togarakaupunum,
sem sérstakar vonir eru bundnar
við.
— Ég gaf ekki kost á mér til
setu i bæjarstjórn af þvi að ég var
alltof miklum störfum hlaðinn.
Ég vil geta einbeitt mér að þvi, að
ferjumálið verði leitt farsællega
til lykta, og svo verð ég að hugsa
um fyrirtækið mitt, sem ég keypti
fyrir tveimur árum tæpum, Gler-
slipun Akraness hf. Við vinnum
þarna fjórir núna og húsnæðið
leyfir ekki fleiri, svo að ég hafði
hugsað mér að reyna að byggja
yfir mig á þessu ári. Þess vegna
hef ég nú dregið mig i hlé frá
opinberum störfum.
— Bæjarstjórnarmeirihlutinn
siðasta kjörtimabil var myndað-
ur af fjórum flokkum, og það var
illa spáð fyrir þessum meirihluta
i upphafi kjörtimabilsins. Oft á
ári komu yfirlýsingar um það, að
nú væri samstarfið að slitna. Ég
man hins vegar ekki eftir neinu
tilfelli i okkar samstarfi, sem
skapaði hina minnstu hættu á, að
ekki gengi allt vel. Og ég verð að
segja það alveg eins og er, að það
kom mér nokkuð á óvart, hvað
samstarfið hefur gengið ljómandi
vel.
— Það er vissulega margs að
minnast, en einna ánægjulegast
er það, að flóttinn úr byggðarlag-
inu skuli vera stöðvaður, bjart-
sýni bæjarbúa vakin og trú á
staðinn. Þetta sést bezt á þvi, að
hér hefur aldrei verið byggt eins
mikið og núna þrjú siðustu árin.
Spá, sem gerð var i fyrra, gerir
ráð fyrir byggingu 80-100 ibúða á
ári. Ef það er öruggt áfram, þá er
það ánægjulegt.
— Af einstökum málum langar
mig til að nefna dvalarheimili
aldraðra. Það hefur verið áhuga-
mál margra árum saman að
byggja hér gott dvalarheimili
fyrir aldraða, og hefur gengið á
ýmsu. Það hafa verið skipaðar
nefndir, og þær skiluðu áliti, og
siðan hefur málið dofnað aftur,
þangað til i byrjun þessa kjör-
timabils, að ein af greinunum i
málefnasamningi meirihlutans
var sú að hrinda i framkvæmd á
þessu kjörtimabili byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða. Það
vil ég meina að hafi tekizt með
þvi að teikna og byggja grunn að
stofnun sem á að geta rúmað allt
upp i 60 vistmenn. Hún er staðsett
við Sólmundarhöfða, sem blasir
beint við höfninni, hérna syðst i
bæjarkjarnanum, syðst við
Langasandinn. Fyrsti áfangi
þessarar byggingar er vistálma
fyrir40vistmenn, og var grunnin-
um að þeirri álmu lokið á árinu
1972 og áætlað, að árunum 1973-74
yrðu tvær hæðir fokheldar. A ár-
inu 1973 voru framkvæmdir hins
vegar engar, bæði vegna þess, að
fjárveitingin, sem til þessa var,
nægði ekki til að ljúka við aðra
hæðina, og ekki siður vegna þess
lagafrumvarps, sem lá fyrir al-
þingi, þess eðlis, að rikið tæki að
sér þriðja hluta stofnkostnaðar
dvalarheimilis fyrir aldraða. Nú,
svo tók það sinn tima, að við
fengjum viðurkenningu þeirra
fyrir þátttöku, en hún er fengin,
og við höfum fengið verktaka til
að ljúka við þennan áfanga, qg
hann á að skila þvi verki i lok
þessa árs, og er við það að byrja á
þvi að slá upp. Þetta er geysi
þýðingarmikið atriði. Gamla
fólkið, sem naumast treystir sér
lengur til að búa hérna, hefur orð-
ið að fara suður og reyna að hola
sér niður einhvers staðar þar, við
mikla erfiðleika og aðsókn, sem
skiljanlega er þar, og við von-
umst til, að þetta komist i notkun
jafnvel i árslok 1976.
— Það er ánægjulegt til þess að
vita, að Akranesbær er ekki einn
um þetta, heldur eiga hrepparnir
utan Skarðshliðar sinn áttunda
hluta að byggingunni. Hún er
hugsuð þannig, að ein álman er
hugsuð sem vistálma á 2 hæðum
fyrir 60 manns, og svo þjónustu-
álmur og vinnuaðstaða, sem
kemur seinna. En svo verða reist
þarna raðhús eða litil einbýlishús,
hliðstætt þvi, sem er i Ási. Þetta
er fyrsta nýbyggða dvalar-
heimilið frá grunni, sem reist er i
þessu formi, og hefur það hlotið
einróma hrós allra, sem kynnt
hafa sér málið, fyririr fyrirkomu-
lag þess.
Tilboð óskast
i eftirtaldar bifreiðir, sem skemmst hafa i umferðar-
óhöppum:
Chevrolet M-Carlo, árgerð 1972
Plymouth, árgerð 1970
Peugeot 404, árgerð 1967
Bifreiðarnar verða til sýnis að Smiðshöfða 17, á morgun
(mánudag) frá kl. 13 til 18.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, tjónadeild,
fyrir hádegi á þriðjudag 21. mai 1974.
Tilboð óskast
i Volvo G.L., árgerð 1972, I núverandi ástandi eftir
árekstur.
Bifreiðin verður til sýnis i bifreiðaverkstæðinu Armi,
Skeifunni 5, Reykjavfk, á morgun (mánudag) frá kl. 9-17.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Armúla 3,
Reykjavik, fyrir hádegi á þriðjudag 21. mai 1974.
Útboð
Tilboð óskast i að gera fokheldan annan
áfanga Gagnfræðaskólans á Selfossi.
Útboðsgagna má vitja, gegn 10 þúsund,
kr. skilatryggingu, i skrifstofu Selfoss-
hrepps eða i Arkitektastofuna, s.f.,
Siðumúla 23, Reykjavik.
Sýning á verkum
nemenda IleyrnleysingjaskóJans verður
sunnudaginn 19. mai i. Hey) nieysingja-
skólanum, Leynimýri, Fpssvogi.
Sýningin verður opin frá kl. 2-f; e.h
Skoíastiori.
Hafnfirðingar
Þar sem áhrif mænuveikibólusetningar
kunna að verða óvirk að liðnum 5 árum frá
bólusetningu, er fólk eindregið hvatt til að
láta bólusetja sig á ný, þannig að aldrei
liði meira en 5 ár milli bólusetninga.
Mænusóttarbólusetning fer fram á Heilsu-
verndarstöðinni, Strandgötu 8-10, 4. hæð,
þriðjudaginn 21. mai n.k. kl. 18-20.
Heilsuverndarstöð Hafnarfjarðar.