Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 19. mai 1974. TÍMINN lí ÍÞRÓTTASKÓLI í BORGARFIRÐI ÍÞRÓTTASKÓLI Sigurðar R. Guðmundssonar, Borgarfirði, mun i sumar halda fjögur nám- skeið, sem einkum eru ætluð Iþróttakennurum, almennum kennurum, leiðbeinendum, félagsleiðtogum og áhugafólki. Fyrsta námskeiðið stendur yfir dagana 25.-30. mai og kennd verur jassleikfimi. Kennari verður Monica Beckman frá Sviþjóð, en hún er frumkvöðull að þessari grein fimleika. Nám- skeiðið er sfstaklega ætlað iþróttakennurum, jafnt körlum sem konum, og áhugafólki um jassleikfimi. — 4.-6. júni verður námskeið fyrir stjórnendur ung- mennabúða og stjórnandi á þvi námskeiði verður Sigurður R. Guðmundsson. A námskeiðinu verður fjallað um undirbúning, skipulagningu og framkvæmd ungmennabúða. Rætt verður um kennslufyrirkomulag, undir- búning kvöldvöku, söng og dans. Námskeiðið er haldið i samvinnu við Ungmennafélag Islands, og er öllum opiÓ, sem áhuga hafa á að vinna að slikri starfsemi. Hópvinnubrögð nefnist nám- skeið, sem stendur yfir dagana 6.-11. ágúst. Kennari verður Gunnar Arnason, sálfræðingur. Hann er fyrsti Islendingurinn sem sérstaklega tekur að sér að leiðbeina i þessari grein. Náms- efnið er þýtt úr dönsku, höfundur Arne Sjölund. Námskeiðið fjallar á fjölþættan hátt um notkun hóp- vinnubragða i skólum og i al- mennu félagsstarfi. Nám- skeiðið er ætlað félagsleiðtogum, kennurum og leiðbeinendum. Mime, leikræn tjáning, nefnist námskeið sem byrjar 13. ágúst og endar 18. ágúst. Námskeiðið er ætlað fyrir byrjendur og kennari veröur Grete Nissen frá Noregi. Grete hélt hér tvö námskeið sl. haust og var sérstaklega góður rómur gerður að hennar kennslu. Þátttakendum eru kennd ýmis tjáningarform með hreyfingum og tali. Það er mikill fengur fyrir LOS Angeles-(NTB) Tvær ungar konur voru drepnar I miklum skotbardaga milli lögreglu og hóp manna úr samtökum þeim er numu Patriciu Hearst á brott i febrúar s.l. Patricia er dóttir blaðaeigandans Hearst I Kaliforniu. Gekk hún i lið meö meðlimum samtakanna eins og kunnugt er og mun hafa tekið þátt i a.m.k. einu bankaráni með Dublin (NTB) — Rúmlega tuttugu manns létu lifið i sprengingum i lrlandi á föstudag. 1 Dublin voru 21 drepnir og 81 særðust er þrir bilar sprungu i loft upp, allir á sama hálftimanum á mesta umferðartimanum í borginni. Nokkru seinna sprakk fjórði bill fyrir utan bar i bænum Monaghan oe létust fjórar kennara, leiðbeinendur og aðra, sem stjórna félagsstarfi að sækja slik námskeið. Dagana 20.-25. ágúst verður framhaldsnámskeið i Mime og kennari verður Grete Nissen. Námsefnið er miðað við að þátt- takendur hafi verið með i sliku námskeiði fyrr. Þátttakendur i byrjendanámskeiðinu geta ekki fengið að taka þátt i þessu nám- skeiði. Þjóðdansanámskeið verður haldið 25.-29. ágúst fyrir leiðbeinendur. Námskeiðið er ætlað þeim, sem áhuga hafa á að leiðbeina i þjóðdönsum. Kenndir verða innlendir og erlendir dans- ar. Námskeiðið er haldið i sam- vinnu við Ungmennafélag íslands og er öllum opið.sem áhuga hafa. Á öllum framangreindum nám- skeiðum verða kvöldin notuð til félagsstarfa, þá verða kvöld- vökur, söngur, dans o. fl. Þátt- taka I þessum námskeiðum til- kynnist fyrir 1. mai. I ungmennadeild skólans verða námskeið fyrir börn og unglinga i sumar. Nám i ungmennadeild er ætlað börnum og unglingum 9-15 ára. Þar eru kenndar frjálsar iþróttir, knattspyrn a, handknatt- leikur, blak, körfuknattleikur og sund. Áherzla er lögð á félags- starf, kenndur er dans, mikið sungið og kvöldvökur haldnar hvert kvöld. Námskeið ung- mennadeildar er jafnt ætlað drengjum og stúlkum og verða tímabilin sem hér segir: 1. 6.-15. júni 9-11 ára. 2. 19.-28. júni 12-15 ára 3. 28.-7. júli 12 til 15 ára 4. 7.-16. júli 9-11 ára 5. 16.-25. júli 9-11 ára 6. 25.-3. ágúst 9-15 ára 7. 25.-30. ágúst 9-15 ára. A- og B-námskeið Nám leiðbeinenda (þjálfara) i iþróttum verður I sumar i tveim þeim. Það kom til mikilla átaka milli 50 vopnaðra lögreglumanna, sem umkringdu hús rétt utan við Los Angeles, þar sem meðlimir sam- takanna héldu sig. Var byrjaö að skjóta á lögregluna, er þeir skutu táragassprengjum að húsinu. Tvær mennskjur voru teknar fastar áður en skotbardaginn byrjaði. menneskjur og tuttugu manns særðust. Er þetta mesti fjöldi látinna á einum degi i Irlandi siðan átökin hófust milli katólikka og mótmælenda 1969. Ekki er kunnugt um hverjir voru valdir að sprengingum þessum. Brezkt herlið er tilbúið til aö fara til N-lrlands, ef það verður nauö- synlegt að styrkja vaktstöður þar. stigum, A-námskeið, sem gefur undirstöðumenntun fyrir hinar ýmsu greinar iþrótta, viðurkennt af tþróttasambandi tslands, og B-námskeið, sem gefur sér- * menntun i einstökum greinum og verður námsefni og kennsla á vegum sérsambanda ISt og þvi viðurkennt af þeim. Þeir, sem ljúka stigi i menntun leiðbeinenda, hafa rétt til að leiðbeina i sinni grein hjá félögum. Til þess að komast á A- námskeið þurfa nemendur að verða 18 ára á árinu. Þeir, sem hafa lokið A-námskeiði eða sam- svarandi námi fá rétt til að þreyta B-námskeið. Áætlað er að framhald af þessu verði C- og D- námskeið, sem auka enn við menntun og færni leiðbeinandans. Nemendur á A-námskeiði iþróttaskólans frá viðurkennd réttindi frá Æskulýðsráði rikisins, sem leiðbeinendur i félagsmálum. Námstimabil i leiðbeinanda- deild verða sem hér segir: 4.-28. júni: A-námskeið, al- mennt undirstöðunám. Kennari veröur Jóhannes Sæmundsson. o. fl. 28.-7. júli: B-námskeið, skiða- nám I Kerlingafjöllum. Kennari verður Valdimar örnólfsson o. fl. B-námskeið i knattspyrnu. Kennari óákveðinn. B-námskeið i blaki. Kennari óákveðinn. 7.16. júli: B-námskeið i frjáls- um iþróttum. Kennari óákveðinn. B-námskeið i handknattleik. Kennari óákveðinn. B-námskeið i badminton. Kennari óákveðinn. o Kjósum átt hlut að þvi. Þess vegna greip forsætisráðherra til þess ráðs, svo sem kunnugt er, að rjúfa þingið og efna til nýrra kosninga, til þess að gefa þjóð- inni kost á að segja álit sitt á þvi, hverjum hún vill fela for- ystu sinna mála i næstu framtið. Jafnframt verða gerðar ráðstafanir til að skapa þaö svigrúm, sem nauðsynlegt er til að koma málumfyrir til frambúðar. Ég tel þess vegna að staða Framsóknarflokksins sé nú sterk og að við eigum að ganga gunnreifir fram til þeirra tveggja kosninga, sem fram undan eru, undir öruggri forystu ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra. Einar Agústsson. Bændur Öska eftir að koma 12 ára dreng á gott sveitaheimili í sumar. Er vanur að vinna. Upplýsingar í síma 97- 7537. MÓÐUVARI Fyrir bílrúður, baS- herbergisspegla, gleraugu o.fl. Glerhreinsiefni sem hindrar móðumyndun. Sölustaðir Hagkaup Kaupfélögin Týli Austurstræti MIKIL ÖLVUN SJ-Ovenju mikil ölvun var i Reykjavik i fyrrinótt og á föstudaginn. Þegar við rædd- um við varðstjórann i fanga- geymslunni á laugardags- morgun hafði hann ekki enn skráð niður þann siðasta sém tekinn var fyrir ölvun, en hon- um taldist til að frá þvi kl. hálf eitt á hádegi áföstudag til kl. hálf tiu á laugardagsmorgun hefðu 73 karlar og konur verið færðir i geymslu. Fyrst og fremst var hér um ölvun að ræða en einnig hafði fólk verið staðið að rúðubrotum og óspektum ýmsum. Lögreglan i Kópavogi þurfti að flytja nokkra menn i fanga- geymsluna i Reykjavik vegna ölvunar. Þar voru óvenju margir staðnir að þvi að aka undir áhrifum áfengis á að- fararnótt laugardags, og sömu sögu var að segja úr Reykja- vik. Árekstrar voru margir á föstudag og umferðaröng- þveiti i borginni að sögn lög- reglunnar. A fimmtudag urðu sex árekstrar á sama klukku- timanum. A Akureyri var ölvun einnig með meira móti. Óvenju margir voru teknir þar fyrir of hraðan akstur i siðustu viku eða 30 manns. Skotbardagi við lög reglu í Los Angeles BLÓÐBAÐ Auglýsing um gjaldeyrisafgreiðslur Á grundvelli 1. gr. reglugerðar, dags. 27. október 1967, um breytingu á reglugerð nr. 79/1960 um skipan gjaldeyris- og innflutn- ingsmála, með heimild i 1. gr. laga nr. 30/1960 um skipan innflutnings- og gjald- eyrismála o.fl., hefur viðskiptaráðuneyt- ið, i samráði við Seðlabankann, ákveðið eftirfarandi innborganir til banka til greiðslu inn á bundna reikninga við Seðla- bankann. Við gjaldeyriskaup eða innlausn skjala i banka gegn vixli eða öðru skuldaskjali, ber að greiða innborgunarfé til banka, samkvæmt eftirfarandi reglum: 1. Innflutningur vara gegn staðgreiðslu, án bankaábyrgðar. Innborgunarhlutfall sé 25% af innlausnar- verði vöruskjala (gjaldeyriskaupum) og skal féð bundið á reikningi i bankanum i 90 daga. Eftirfarandi vörur eru undanþegnar inn- borgun undir þessum lið: Miidlvæg hráefni til iðnaðar. Kornvörur og fóðurvörur. Kaffi,sykur, te, kakó, matarsalt. Kol. Salt. Oliur, bensin, gas. Veiðarfæri. Nauðsynlegar umbúðir um útflutnings- vörur og efni til þeirra. Áburður og grasfræ. Einkasöluvörur. Vörur til lækninga. Dagblaðapappir. 2. Innflutningur, án bankaábyrgðar, en með erlendum greiðslufresti. Innborgun sé 25% af öllum vörum öðrum en þeim.sem taldar eru upp undir lið 1 hér að framan. Skal 25% innborgun bundin á meðan greiðslufrestur stendur, þó ekki skemur en 90 daga. 3. Innflutningur með bankaábyrgð, með eða án greiðslufrests. Innborgun sé bundin á reikningi gildis- tima ábyrgðar (að meðtöldum greiðslu- fresti, þegar um hann er að ræða). Sé ábyrgð greidd áður en 90 dagar eru liðnir, skal haldið eftir 25% innlausnarverðs til loka þess tima. Núgildandi reglur um innborganir til banka við gjaldeyrisafgreiðslur verða óbreyttar. Viðskiptaráðuneytið skipar nefnd, sem starfar i samráði við Seðlabankann, en með starfsaðstöðu við Gjaldeyrisdeild bankanna, Laugavegi 77, og hefur hún yfirstjórn um framkvæmd reglna þessara og fjallar um og úrskurðar vafaatriði, er upp kunna að koma. Innborgunarhlutfall miðast við hver ein- stök gjaldeyriskaup eða afgreiðslur. Innborgun 1.000 krónur eða lægri fellur niður. Vaxtakjör af innborguðu fé verða þau sömu og gilda um aðra innborgunarreikn- inga vegna innflutnings við gjaldeyris- bankana. Vakiner athygli á þvi, að ákvæði 11. og 12. gr. laga nr. 30/1960 um skipan innflutn- ings- og gjaldeyrismála o.fl., gilda um aUa framkvæmd skv. auglýsingu þessari. Ofanskráðar reglur gilda frá og með 20. mai 1974 til septemberloka. Reykjavik, 17. mai 1974. Viðskiptaráðuneytið Seðlabanki íslands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.