Tíminn - 19.05.1974, Side 3

Tíminn - 19.05.1974, Side 3
;«/ l.-’.íi .ÍJ •iB3f5Í>Ulinlit. '■SVW Iv':,,v Sunnudagur 19. mai 1974. _________________ TÍMINN 3 Ellefu hundruð ám afmæli íslandsbyggðar 1.000 króna silfurpeningur 39 mm að þvermáli 10.000 króna gullpeningur 500 króna silfurpemngur 27,75 mm að þvermáli 35 mm að þvermáli Bakhlið peninganna Þjóðhátíðarmynt 1974 Seðlabanki íslands gefur út gull- og silfurmynt í tilefni af 1100 ára afmæli byggðar á íslandi. Peningarnir eru þrír og þannig gerðir: 10.000 króna gullpeningur, 27,75 mm að þver- máli og 15,5 gr að þyngd. Á framhlið er mynd af Ingólfi Arnarsyni er hann varpar öndvegissúlum sínum fyrir borð. 1.000 króna silfurpeningur, 39 mm að þvermáli og 30 gr að þyngd. Á framhlið er sýnt, hversu karl- menn helguðu sér land. Skyldu þeir kveikja eld, er sól var í austri að morgni, og síðan aðra eída, svo að hvern sæi frá öðrum, uns sól væri í vestri. Svaíðið milli eldanna markaði stærð landnámsins. 500 króna silfurpeningur, 35 mm að þvermáli og 20 gr að þyngd. Á framhlió er mynd af konu, sem leiðir kú sér við hlið. Landnám kvenna skyldi ekki vera víðara en svo, að kona gæti leitt um það tvævetra kvígu vorlangan dag sólsetra millum. Á bakhlið peninganna allra eru landvættimar fjórar, naut, fugl, dreki og bergrisi. Gullpeningarnir eru 900/1000 að skírleika, sem samsvarar nálægt 22 karötum, en silfurpeningarnir eru 925/1000 að skírleika (sterling silfur). Þröstur Magnússon teiknaði peningana, sem slegnir em hjá Royal Mint í London. SÉRUNNIN SLÁTTA. Hluti upplags myntarinnar er sérlega vönduð, sémnnin slátta (proof coins). Þessir peningar verða meö mattri áferð mynda og leturs, en sléttir fletir gljáfægðir. Verða þeir seldir yfir nafnverði, enda dýrari að gerð og ætlaðir fyrst og fremst til söfn- unar. Þeir eru í vönduðum öskjum og fást ýmist allir þrír eða silfurpeningarnir saman. VENJULEG SLÁTTA Meiri hluti myntarinnar verður hins vegar sleginn eins og gerist um gjaldmiðil. Þessi slátta er einnig fáanleg í öskjum, gulipeningurinn sér og silfurpeningarnir samán. PÖNTUN TIL SEÐLABANKA ÍSLANDS Vinsamlega sendið mér neðangreinda þjóðhátíðarmynt 1974 að andvirði kr._________________, og fylgir greiðsla með þessari pöntun. ______öskjur (hámark 3), sérunnin slátta, 1 gull- og 2 silfurpeningar á kr. 23.000.- = kr. ................ ......öskjur (hámark 5), sérunnin slátta, 2 silfurpeningar.. á kr. 3.200.- = kr. ......öskjur (hámark 3), venjuleg slátta, 1 gullpeningur..... á kr. 10.200.- = kr. ......öskjur (hámark 5), venjuleg slátta, 2 silfurpeningar....á kr. 1.700.- = kr. Samtals kr. NAFN:........................................................... HEIMILI:...................................1.................... Seðlabankinn afgreiðir pantanir t þeirri röð, sem þær berast, þar til upplag þrýtur. AÐ EIGNAST MYNTINA. Þjóöhátíðarmyntina skal panta á þar til gerð- um eyðublöðum hjá bönkum, sparisjóóum og helstu myntsölum eða beint frá Seðlabanka íslands. Staðgreiðsla fylgi pöntun. Dreifing fer fram frá pöntunarstað og verður auglýst sérstaklega. TAKMARKAÐ UPPLAG. Þeim, sem vilja tryggja sér myntina til eignar eða gjafa, skal bent á, að bæði er upplag takmarkað og jafnframt er búist við verulegri erlendri eftir- spurn. Því er ráðlegt að gera pöntun strax. Til þess að sem flestir geti eignast myntina, er nauðsynlegt aó setja hámark þess, sem hver getur pantað, viö þrjá gullpeninga af hvorri sláttu, en fimm af hvorri samstæðu silfurpeninga, eins og nánar er skýrt á pöntunarseðli. Hámarksupplag myntarinnar er eftirfarandi: SÉRUNNIN SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 8.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 58.000 stk. 500 króna silfurpeningur 58.000 stk. VENJULEG SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 12.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 70.000 stk. 500 króna silfurpeningur 70.000 stk. VERÐMÆT EIGN. Vonast ertil, að þjóðhátíðarmyntin verði safngripir, sem verða eigendum sínum til ánægju og minja um merkan atburð í sögu þjóðarinnar. Jafnframt eru peningarnir gjaldgeng íslensk mynt, slegin úr gulli og silfri. iákh SEÐLABANKI vBSlj ÍSLANDS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.