Tíminn - 19.05.1974, Side 18

Tíminn - 19.05.1974, Side 18
V IUt I TíMlNN .■'l'!' i'ifff r, Sunnudagur 19. maí 1974. Menn og málofni Forusta Olafs Jóhannessonar Frá rikisráðsfundi, áður en ágreiningur reis um efnahagsmálafrumvarp rikisstjórnarinnar. AAesta umbótastjórnin Um það verður ekki deilt, að siðustu þrjú árin hafa verið mesti framfaratiminn i sögu hins endurreista islenzka lýðveldis. A timabilinu 1944-’74 hafa aldrei orðið meiri umbætur en á þessum árum. Rikisstjórn Ólafs Jó- hannessonar hefur verið afkasta- meiri og framsýnni en nokkur önnur rikisstjórn á lýðveldistim- anum. Þar ber hæst útfærslu fisk- veiðilögsögunnar i 50 milur, sem þegar hefur dregið stórlega úr veiðum erlendra skipa á tslands- miðum, og á þó eftir að gera það enn frekar. Næst er að nefna hina þróttmiklu byggðastefnu, sem. hefur valdið gerbreytingu i mál- um landsbyggðarinnar. Þótt ekki væri nema þetta tvennt, myndi það nægja til að halda nafni rikis- stjórnarinnar lengi á lofti. En við þetta bætast miklar framfarir og umbætur á mörgum öðrum sviðum, bæði félagslegar og verk- legar. 1 þvi sambandi er ekki sizt ástæða til að minna á hinar stór- auknu bætur ellilifeyrisþega. Þær hafa á stjórnartimabilinu hækkað úr kr. 4,900 á mánuði i 18,885 krónur fyrir þá, sem engar aðrar tekjur hafa. Þótt kappsamlegast hafi verið unnið að byggðamálum, hefur sameiginlegum framfaramálum þéttbýlisins ekki verið gleymt. Þannig hefur t.d. sú breyting, sem Halidór E. Sigurðsson fjár- málaráðherra beitti sér fyrir, að létta ýmsum útgjöldum af sveit- ar- og bæjarfélögum, gert þeim mögulegt að auka stórlega fram- lög til verklegra framkvæmda, sem gerðar eru i sameiginlega þágu ibúanna. Þannig hefur t.d. Reykjavikurborg getað veitt miklu meira fé til slikra framkvæmda i tið núverandi rik- isstjórnar en i tið viðreisnar- stjórnarinnar. Forusta Ólafs Jóhannessonar Það skal viðurkennt, að vegna óhagstæðrar verðlagsþróunar út á við og mikilla grunn- kaupshækkr <a, hefur ekki tekizt að hafa eins mikinn hemil á verð- bólgunni og rikisstjórnin ætlaði sér. Þess vegna beitti rikisstjórn- in sér fyrir þvi á nýloknu alþingi, að hafizt yrði handa um róttækar efnahagsaðgerðir. Stjórnarand- staðan kom i veg fyrir þetta, og var þá ekki annað að gera en leggja þau mál i hendur þjóðar- innar. Eftir úrskuröi hennar er nú beðið. En rikisstjórnin hefur hér sýnt, að hún vill ekki leyna kjós- endur þvi fyrir kosningar, hvað fyrir henni vakir, og fer þvi harla ólikt að og viðreisnarstjórnin fyrir kosningarnar 1967, þegar hún beitti falskri verðstöðvun og sagði allt i bezta lagi, en felldi svo krónuna strax eftir kosningar. Þótt ráðherrarnir allir, og margir stuðningsmenn stjórnar- innar, egi meiri og minni þátt i þeirri framfarastefnu, sem stjórn Ólafs Jóhannessonar hefur fylgt, er það efalaust, að hlutur for- sætisráðherrans er langstærstur. Hann hefur orðið að sameina meira og minna ólik öfl, og oft oröið að sýna langlundargeð, en jafnframt tekiö fast i taumana, þegarmeðhefur þurft, t.d. i sam- bandi við landhelgismálið. Hann hefur lika haft aðalforustuna um það viðnám gegn verðbólgunni, sem leiddi til þingrofsins. Það mætti öllum vera ljóst, að á viðsjárverðum timum i efnahagsmálum og stjórnmálum skiptir höfuðmáli, að forustan sé ábyrg og traust. Um það verður ekki deilt, að Ólafur Jóhannesson hefur sýnt, að hann er traustasti stjórnmálaleiðtoginn, sem þjóðin hefur nú á að skipa. Þess vegna geta fylgismenn hans haldið þvi hiklaust fram, að málum þjóðar- innar verði bezt borgið með þvi að tryggja honum stjórnarforustuna áfram, með stóreflingu Framsóknarflokksins. Hver vill „viðreisn" aftur? Til samanburðar við framfara- stjórn undanfarinna þriggja ára, er ekki ófróðlegt að athuga stjórnarfarið á siðasta kjör- timabili viðreisnarstjórnarinnar. Þá urðu mestu og lengstu verkföll á Islandi. Arið 1968 töpuðust 222 þús. vinnudagar vegna verkfalla, árið 1969 150 þús. og árið 1970 304 þús. vinnudagar. Tölur þessar eru byggðar á útreikningum kjararannsóknanefndar. Samkvæmt opinberum alþjóða- skýrslum var tsland mesta verk- fallsland heimsins á þessum ár- um, þegar miðað er við ibúatölu. tsland átti lika evrópskt dýrtiðarmet á þessum árum. Frá þvi i nóvember 1967 og þangað til i nóvember 1970 jókst framfærslu- kostnaðurinn um 62.1%, þótt nær engar verðhækkanir ættu sér stað á innfluttum vörum. Oll verðbólg- an var þannig heimatilbúin. Gengi krónunnar var tvifellt á kjörtimabilinu, og hækkaði doll- arinn úr 43 krónum i 88 krónur á einu ári. Atvinnuleysi var mikið allt kjörtimabilið, og nam vinnutapið vegna þess á árinu 1968 270 þús. vinnudögum, árið 1969 590 þús. vinnudögum og árið 1970 334 þús. vinnudögum. Hér er einnig byggt á útreikningum kjararannsóknanefndar. Valdhafarnir predikuðu, að sjávarútvegurinn væri ótryggur og stopull atvinnuvegur, land- búnaðurinn væri dæmdur til að lifa á styrkjum og iðnaöurinn illa samkeppnishæfur. Eina vonin væri aö selja erlendum stóriðju- fyrirtækjum ódýra orku. Þessi áróður, ásamt slæmu atvinnu- ástandi, ýtti undir trúleysi á land og þjóð. Siðan á dögum vesturflutninganna hafa aldrei eins margir íslendingar flúið 1 at- vinnuleit til útlanda og á siðasta kjörtimabili viðreisnarstjórnar- innar. Þessa mynd af stjórnarháttum viðreisnarstjórnarinnar mega menn gjarna hafa i huga og bera saman við ástandið nú. Hver vill fá sama ástandið aftur og var hér á siðasta kjörtimabili? Alveg einstætt ábyrgðarleysi Astæða er til að rifja enn einu sinni upp hið algera ábyrgðar- leysi, sem stjórnarandstæðingar sýndu i þinglokin. 1 viðræðum þeim, sem forsætisráðherra átti við leiðtoga stjórnmálaflokkanna um sex vikna skeið, viðurkenndu þeir allir, að efnahagsvandinn væri mikill, og óhjákvæmilegt væri að gera sérstakar ráðstafan- ir nokkrum dögum fyrir 1. júni, ef ekki ætti ný verðbólguholskefla að steypast yfir þjóðina. Þegar hins vegar kom til þess, að Sjálf- stæðismenn, Alþýðuflokksmenn og Hannibalistar þurftu að taka afstöðu til ákveðinna atriða, hrökkluðust þessir aðilar undan og vildu enga bindandi ákvörðun taka. Þeir bentu ekki heldur á neinar aðrar leiðir en þær, sem forsætiráðherra hafði gert tillög- ur um. Rikisstjórnin gat þvi ekki haldið þessum viðræðum lengur áfram utan þingsins. Meirihluti hennar lagði þvi fram stjórnar- frumvarp um aðgerðir i efnahagsmálum, en lýsti jafn- framt yfir þvi, að stjórnin væri fús til viðræðna um breytingar á frumvarpinu, ef þvi aðalmark- miði yrði náð, að afstýra verð- bólguskriðunni, sem var að hefj- ast um næstu mánaðamót. Samkvæmt öllum venjum, þegar um timabundnar aðgerðir vegna efnahagsvanda er að ræða, hefði frumvarpið átt að ganga til þing- nefndár og þar hefðu svo farið fram áframhaldandi viðræður og samningar milli flokkanna um lausn málsins. Þingmenn áður greindra flokka fengust þó ekki til að fallast á þessa málsmeðferð. 1 stað þess hótuðu þeir að fella frumvarpið strax við fyrstu um- ræðu, án þess að koma sjálfir með nokkrar raunhæfar tillögur. Hér var að ræða um vinnubrögð, sem eru einstæð aö ábyrgðarleysi og ráðleysi. Þrátt fyrir þessi vinnu- brögð taldi forsætisráðherra rétt að gera enn eina tilraun til sam- komulags og bar fram tillögu um myndun þjóðstjórnar, sem sæti fram yfir þjóðhátið og leysti um- ræddan vanda a.m.k. með bráða- birgðaaðgeröum fram yfir kosningar 1 september. Þessu var einnig hafnaö. Þegar stjórnar- andstöðuflokkarnir voru þannig meö algeru ábyrgðarleysi og ráðleysi búnir aö gera þingið óstarfhæft, var ekki um annan réttan kost að ræða en að leggja málin sem fyrst i hendur þjóðar- innar með þingrofi og nýjum kosningum. Hver getur treyst flokksleiðtog- um, sem höguðu sér eins og for- ustumenn Sjálfstæðisflokksins, Alþýðuflokksins og Hannibalista gerðu i þinglokin? Samvinna um bæjarmál hefur reynzt vel A kjörtimabilinu 1970-1974 hefur Framsóknarflokkurinn tekið þátt i meirihlutasamstarfi i niu bæjarstjórnum. Óhætt er að segja, að þetta samstarf hefur hvarvetna borið mikinr 'rangur. Það hefur verið unnið af samhug og kappi að framfaramálum viðkomandi kaupstaða. Viða hefur það verið snar þáttur i hinni miklu uppbyggingu, sem hefur gerzt utan Reykjavikursvæöisins á umræddum árum. Jafnframt hefur þetta samstarf komið i veg fyrir að myndazt hafi einráð sér- réttindaklika, likt og orðið hefur hér i Reykjavik vegna langvar- andi meirihlutastjórnar Sjálf- stæðisflokksins. Reynsla þessara niu bæjar- félaga, en meðal þeirra eru öll stærstu bæjarfélögin utan Reykjavikur, eins og Akureyri, Kópavogur, Hafnarf jörður, Keflavik og Akranes, afsannar ótvirætt þá villikenningu Sjálf- stæðismanna i Reykjavik, að það leiði til glundroða i málum bæjar- félaga, ef einn flokkur fer ekki meö völdin. Viðtækt samstarf um bæjarmálin tryggir þvert á móti meira framtak og betri stjórn en ella. 1 framfaramálum bæjar- félaganna skiptir það miklu máli aö samstilla kraftana sem mest, en kljúfa þá ekki i andstæðar fylkingar vegna yfirdrottnunar og sérhagsmunastrits einnar kliku. Reykjavik hefur goldið þess um langt skeið, að búa við yfirdrottn- un sömu hagsmunaklikunnar. Það er þvi meira en timi til, að völdum hennar sé hrundið og komið á samstarfi fleiri flokka um borgarmálin. Bretar halda samkomulagið Bersýnilegt er, að Bretar kapp- kosta að halda vel það sam- komulag, sem náðist á fundi þeirra Ólafs Jóhannessonar og Heaths á siðastliðnu hausti. 1 viötali, sem Mbl. birti 14. þessa mánaðar við Gunnar Ólafsson hjá Landhelgisgæzlunni, sagði m.a.: „Sagði Gunnar, að brezkir skipstjórar væru mjög pössunar- samir um að fara ekki inn á bann- svæöi, þvi það væri dauðadómur yfir þeim og togurunum um leið. Skipstjórum á þeim togurum, sem hefðu lent inn á bannsvæöi og misst hefðu veiðiheimild við ísland, hefði verið sagt upp störfum sem skipstjórum við komuna til Bretlands. Mikil vandkvæði væru á að gera út þá togara, sem misst hefðu veiðiheimildina, þvi þeir væru of litlir til að stunda veiðar við Nor- eg, i Hvita hafinu eða við Nýfundnaland og of stórir til að stunda veiðar i Norðursjó. Þeir geta aðeins stundað veiðar við Færeyjar, en það þykir mjög hæpið að gera út togara frá Bret- landi, sem aðeins getur stundað veiðar á einum miðum.” Samkvæmt samkomulaginu, sem gert var við Breta á siðast- liðnu hausti, hafa fjórir brezkir togarar verið sviptir veiðileyfum fyrir brot á þvi. Bretar hafa full- komlega viðurkennt sviptingu veiðileyfanna og taka samkvæmt áðurgreindri frásögn Gunnars, mjög hart á þessum brotum. Vestur-Þjóðverjar hafa enn ekki samið við Islendinga um undanþágur, en veiða sáralitið innan 50 mílna markanna. Um þetta segir Gunnar Ólafsson i við- talinu við Mbl.: ,,Að sögn Gunnars Olafssonar hjá Landhelgisgæzlunni hafa nokkrir v-þýzkir togarar verið að veiðum við landið og hafa þeir reynt einstöku sinnum að fara innfyrir 50 milna mörkin. Togar- arnir hafa þó verið reknir jafn- óðum út fyrir og varðskip hafa orðið vör við þá, eða Land- helgisgæzlunni tilkynnt um þá.” Togarar annarra þjóða halda sig undantekningarlaust utan 50 milna markanna. Gerbreytt ástand Frásögn Gunnars Ólafssonar i áðurgreindu viðtali i Mbl. sýnir vel þá gerbreytingu, sem orðið hefur á landhelgismálinu siðan núverandi rikisstjórn kom til valda. Siðustu misserin fyrir þingkosningarnar 1971 höfðu brezkir togarar aukiðmjög ágang sinn á Islandsmiöum. öðrum erlendum togurum stórfjölgaði einnig á miðunum. Þáverandi rikisstjórn hélt samt að sér höndum og gerði ekkert raunhæft i landhelgismálinu. Á þingi feng- ust þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins ekki til að samþykkja neinar ákveðnar til- lögur um útfærslu fiskveiðilög- sögunnar, heldur gáfu til kynna, að slikt yrði að biða fram yfir væntanlega hafréttarráðstefnu. Þá vildu þeir ekki láta hrófla neitt við landhelgissamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja frá 1961, en þeir stóöu i vegi fyrir þvl, að hægt væri að færa út fisk- veiðilögsöguna. öll sólarmerki benda til þess, aö þetta ástand hefði haldizt áfram, ef viðreisnarstjórnin hefði haldið velli i þingkosningunum 1971. Þannig hefur orðið gjör- breyting i landhelgismálinu, siðan viðreisnarstjórnin lét af völdum. Sá árangur sem núver- andi rikisstjórn hefur náð i þess- um efnum, mun vissulega halda nafni hennar lengi á lofti. Hver vill fá aftur forustu viðreisnarflokkanna i landhelgis- málinu? Þvi verður svarað i kosningunum. — Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.