Tíminn - 19.05.1974, Page 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 19. maí 1974.
á miðri sléttunni. Þar hvíldi hann sig í þrjár klukku-
stundir, fékk mat og óþreyttan hest, og hélt síðan áf ram
ferð sinni.
Olafur þarínaðist ekki svefns, þegar hann hafði ein-
hverju að sinna, og enda þótt komið væri fram yf ir mið-
nætti, var þarna næstum eins bjart og í Skarðsstöð, sem
þó er miklu norðar. í hálf a klukkustund enn f ylgdi hann
veginum, en þegar hann kom að lækjarsprænu, sem rann
yfir veginn, beygði hann og fylgdi læknum.
Hann reið upp á móti straumnum, og lækurinn rann
framhjá honum, syngjandi og þvaðrandi sakleysislega á
leið sinni. Enda þótt þarna væru klettar allt í kring, var
gilskorningurinn, sem hann fór eftir, grasi vaxinn. En
sakleysj lækjarins var blekkjandi útlit illa innrætts
barns, og brosandi skorningurinn bjó yf ir dauðanum, því
að þarna voru viðbjóðsleg mýrafen og kviksyndi, sem
gleyptu manneskju á andartaki.
Hesturinn skynjaði hættuna og .gekk varfærnislega
með þandar nasir og teygðan háls, en Ólafur var ekki
hræddur — þetta var ekki i fyrsta skipti, sem hann kom á
þennan stað og hann vissti, hvar hann átti að f ara.
Hann hélt sig fast við lækinn, sem varð stöðugt mjórri
og mjórri, þangaðtil hann hvarf inn í mosaþembu, og nú
stefndi hann á leið, er var mörkuð með steinum. Eftir
smástund sá hann kofa, sem var líkastur mauraþúfu,
stórri, brúnni mauraþúfu, og eins og vísifingur benti
steinaröðin á dyr kofans.
Þegar hann nálgaðist kofann, heyrði hann rokkhljóð og
rödd konu, sem var að raula. Rokkhljóðið og látlaus
söngurinn runnu saman í eitt, og gegnum kofadyrnar sá
Olafur Ijósgeisla, sem háði baráttu við Ijósið fyrir utan.
Nokkur skref frá kofanum stökk hann af baki og lét
hestinn taka niður, þar sem hann stóð. Konan við rokkinn
gerðí lát á vinnu sinni, þegar hún sá manpinn standa í
dyrunum.
Þetta var stór og fyrirferðarmikil kona með vingjarn-
lega brosandi andlit, en eftir að hafa virt það betur fyrir
sér, skipti maður um skoðun á því. Maður gat ímyndað
sér, að hún hefði f itnað af leiðindum, og brosandi ánæg ja
hennar virtist ekki eiga sér mannlegar orsakir.
Það var litið um húsgögn i kofanum, en hreinlegt út í
hvern krók og kima, og hér og þar héngu jurtir til þerris.
Konan var klædd íslenzkum þjóðbúningi, og þegar hún
sneri sér við, glitraði silfurskraut húfunnar í bjarman-
um f rá iýsislampanum, sem stóð á bekk við rokkinn.
— Þetta mun vera Ólafur Guðmundsson! sagði hún,
þegar birtan féll á andlit gestsins.
— Já, það er ég, sem er á ferð, sagði Ölafur. Það er
áliðið, og þú ert enn að störfum.
— Og þú kemur seint, sagði konan og hló, um leið og
hún ýtti rokknum til hliðar. Jæja, hvað get ég gert fyrir
þig?
Ólafur, sem var ófáanlegur til að setjast, sneri sér
strax að erindinu. Þetta var í þriðja skiptið, sem hann
kom hingað til að leita ráða og spyrjast fyrir um fram-
tíðina. Þessi kona naut mikils álits sem spákona, og það
orð iá á henni, að hún væri norn, sem með hjálp illra af la
gæti haft áhrif á örlög annarra.
Þetta var að sjálfsögðu tómt bull, en engu að síður
græddist henni þó nokkurt fé á þvi að selja hinum fáf róð-
ari allskonar töframeðöl.
ÖlafurJiafði ekki trú á sambandi hennar við ill öfl og
myndi ekki hafa gef ið eyri f yrir rottuhala, sem gæti gert
öðrum miska, eða heillastein, sem verndaði mann gegn
illum öflum en hann trúði statt og stöðugt á hæfileika
hennar til að sjá fyrir óorðna hluti.
Hann trúði henni fyrir vandamálum sínum alveg eins
og sjúklingur talar við lækni, enda þótt hann nef ndi engin
nöfn og talaði aðeins um Eirík sem ,,manninn, sem kom
til Skarðsstöðvar gagngert til að eyðileggja mig", og
Svölu sem ,,stúlkuna, sem ég var að seg ja þér f rá."
Hún tók við öllum upplýsingum hans eins og bókhald-
ari, sem er að vinna að uppgjöri, og leið og hún tók um
báðar hendur hans, tók hún að lesa í lófa hans, eins og
þeir væru tvær bækur.
Góða stund sagði hún ekkert. Það var rétt eins og hún
væri á villigötum, eða þá, að hún vildi alls ekki tala um
það. %
En svo fór hún að segja frá:
— Þú hef ur haft heppnina með þér siðan þú komst síð-
ast hingað, en það hefur einhver maður boðið þér byrg-
inn.
— Það var hann, sem ég var að segja þér frá, svaraði
Ólafur.
— Þú þarf t ekkert að óttast f rá hans hendi.
— Fer hann frá Skarðsstöð?
— Það veit ég ekki, en hann treður þér ekki lengur um
tær.
— Og stúlkan?
— Þú kvænist henni aldrei.
— En hún — giftist hún honum?
— Já, en þau eignast engin börn.
— Maðurinn, svo að hann treður mér ekki urji tær —
kannski verð það ég, sem hrek hann á brott — getur þú
sagt mér, hvað ég á að gera?
— Þú getur ekkert gert, Ólaf ur Guðmundsson. Þú ert
að fara í langa ferð.
— Já, það er alveg satt, sagði hann. Ég er að fara til
Leith.
— Þú ferð lengra.
f Bonni, hvaða ár
varð Kristján Eldjárn
V forseti?
Þú sýnist
áhyggju!
v fullur,
xHaddi.
Hvers vegna7\\
spyrðu ekki litlu,^, .x'
sætu Bonni? (h^ynd>
Já, mig
vantar ártal.
liiil
ílil
I
i
SUNNUDAGUR
8.00 Morgunaiulakt. Séra
Pétur Sigurgeirsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.Þjóðlög
— frá Slóvakiu og Kaustinen-
héraðrF^innlandi.
9.00 Fréttir. Öcdráttur úr
forustugreinum ' 4agblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10.
Veðurfregnir) a. Sembal-
konsert i d-moll eftir Carl
Philipp Emanuel Bach.
Fritz Neumeyer og Ein-
leikarahljómsveitin i Vin
leika, Wilfried Böttcher stj.
b. Klarinettukonsert i A-dúr
(K622) eftir Mozart. Rudolf
Jettei og Pro Musica hljóm-
sveitin i Vinarborg leika,
Leopold Emmer stj. c. Sin-
fónia nr. 4 i B-dúr eftir Beet-
hoven. Columbiu-sinfóniu-
hljómsveitin leikur, Bruno
Walter stj.
11.00 Almennur bænadagur:
Messa i Kcflavikurkirkju
Prestur: Séra Björn Jóns-
son. Organleikari: Geir
Þórarinsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Um manngildishug-
mvndir islendinga aö fornu,
Dr. Bjarni Einarsson flytur
hádegiserindi.
14. Aö skrifa til aö lifa — eða
• lifa tii að skrifa? Um rithöf-
unda og útgáfustarfsemi á
tslandi, — siðari þáttur.
Umsjónarmenn: Gylfi
Gislason og Páil Hreiðar
Jónsson
15.15 Miðdegistónleikar: Frá
útvarpinu i Beriin. Ernö
Sebastyen leikur á fiðlu og
Luigi Alberto Bianchi á lág-
fiðlu með Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i Berlin.
Stjórnandi: Jacques Dela-
cotte a. ..Galimathias musi-
cum”, quodlibet (K32) eftir
Mozart. b. Konsertþáttur i
D-dúr fyrir fiðlu og hljóm-
sveit eftir Schubert. c. Són-
ata fyrir lágfiðlu og hijóm-
sveit eftir Paganini. d. Sin-
fónia nr. 2 i D-dúr eftir Mé-
hul.
16.30 Kaffitiminn.Allan og
Lars Eriksson leika á
harmónikur.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
17.00 Barnatfmi: Eirikur
Stefánsson stjórnar: a.
„Blessuð veri hún Búkolla
min” 1: Sögur og sagnir um
kýr, þar á meðal saga af
Skógakúnum 2: ólöf
Þórarinsdóttir les Lofkvæð-
ið um kýrnar eftir Davið
Stefánsson frá Fagraskógi
og fleira. b. Sögur af
Munda, — þriðji þáttur
Bryndis Viglundsdóttir seg-
ir frá fálkanum, örnunum
og nautunum.
18.00 Stundarkorn með pianó-
leikaranum Michaei Ponti
sem leikur verk eftir Karl
Tausig. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Sjaldan lætur sá betur,
sem eftir hermir. Umsjón:
Jón B. Gunnlaugsson.
19.40 Sjötta aukaþing Samein-
uðu þjóðanna . Baldur
Guðlaugsson ræðir við
Ingva Ingvarsson ambassa-
dor og Gunnar G. Schram
varafastafulltrúa um orku-
mál hráefni og auðlindir.
20.20 Ljóð og djass.Sænsk-is-
lensk ljóða- og djassdag-
skrá, hljóðrituð i Norræna
húsmu 19. janúar i vetur.
Jóhann Hjálmarsson, Jón
Óskar, Lasse Söderberg og
Jacques Werup lesa úr ljóð-
um sinum. Lesarar auk
þeirra: Guðrún Ásmundar-
dóttir, Helga Hjörvar og
Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, sem m.a. flytja ljóð
eftir Matthias Jóhannessen
og Þorstein frá Hamri.
Hljóðfæraléikarar: Árni
Elvar, Guðmundur Stein-
grimsson, Gunnar Ormslev,
Jón Sigurðsson og Rolf