Tíminn - 19.05.1974, Qupperneq 32

Tíminn - 19.05.1974, Qupperneq 32
32 ItMINN Sunnudagur 19. ihai 1974. ARFURINN (Skozk þjóðsaga) Sigriður Ingimarsdóttir þýddi Einu sinni var rikur bóndi, sem átti þrjá syni. Hann lá fyrir dauðanum og kallaði þvi syni sina að rúmi sinu. Hann sagði við þá: „Synir minir! Ég mun nú brátt yfirgefa ykkur. Ég vil ekki, að þið hef jið neinar deilur ykkar á milli, þegar ég er horf- inn. Þið munuð finna peningaupphæð i skúffu i dragkistunni, sem stendur i innra herberg- inu. Skiptið peningunum heiðarlega á milli ykk- ar, yrkið jörðina og búið saman eins og þið hafið gert hingað til.” Skömmu siðar andað- ist gamli maðurinn. Synirnir greftruðu hann, og að þvi loknu gengu þeir að dragkistunni, en fundu enga peninga i skúffunni. Þeir voru hljóðir um stund. Svo sagði yngsti bróðirinn: „Peningarnir voru þarna áreiðanlega, hvar sem þeir eru nú”. Elzti sonurinn sagði: ,,Hann faðir okkar talaði aldrei ósatt orð. Ég er viss um, að peningarnir voru þarna, þótt ég hafi ekki hugmynd um, hvar þeir eru nú. Komið nú,” bætti hann við, ,,við skulum fara til karlsins, sem var vinur föður okkar. Þeir voru skóla- bræður og þekktust vel. Enginn vissi betur en hann um hagi föður okk- ar. Við skulum fara og spyrja hann ráða.” Bræðurnir fóru þvi heim til gamla manns- ins og sögðu honum upp alla söguna. „Dveljið hjá mér,” sagði gamli maðurinn. „Ég ætla að hugsa mál- ið. Ég skil ekki, hvernig i þessu liggur. Við vor- um góðir vinir, og ég varð aldrei var við nein- a skreytni i tali föður ykkar.” Bræðurnir dvöldu hjá honum i tiu daga. Þá kallaði hann þá til sin og lét þá setjast hjá sér. Siðan sagði hann þeim þessa sögu: „Einu sinni var ungur maður, Hann var mjög fátækur, og hann varð ástfanginn af dóttur rikismannsins, ná- granna sins. Hún elskaði hann einnig, en þau gátu ekki gifzt, vegna þess hvað hann var fátækur. Þau gátu aðeins bundizt heitum og bjuggu þvi eftir sem áður hvort i sinu lagi. Að nokkrum tima liðn- um bar annan biðil að garði hjá föður stúlk- unnar. Hann var vel efn- um búinn, og varð stúlk- an þvi, föður sins vegna, að heita honum eiginorði. Skömmu siðar giftust þau. En þegar brúðguminn kom til þess að sækja brúðina, grét hún og barmaði sér. „Hvað gengur að þér,” spurði hann. Brúðurin þagði langi, en að siðustu sagði hún honum allt eins og var, að hún væri heitbundin öðrum manni. „Klæddu þig,” sagði maðurinn, „og fylgdu mér eftir.” Hún klæddist brúðar- skartinu. Hann sótti hest sinn, lét hana á bak fyrir aftan sig og reið heim að húsi hins mannsins. Hann barði að dyrum og hrópaði: „Er nokkur inni?” Og þegar hinn svaraði, skildi hann brúðina eftir við dyrnar og reið heimleiðis. Þá klæddi hinn maðurinn sig og kveikti ljós og sá þá enga aðra en brúðina i fullum skrúða. „Hver fylgdi þér hing- að?” spurði hann. „Bóndi minn,” sagði brúðurin. „Við vorum gefin saman i dag, en þegar ég sagði honum, að ég væri þér heitin, fór hann sjálfur með mig hingað.” „Fáðu þér sæti,” sagði maðurinn. Siðan steig hann á bak hesti sinum, reið til prestsins og bað hann að koma til húss síns. Áður en presturinn gæti leyst konuna frá hjúskapar- heitinu, lyfti maðurinn henni á bak hestinum og sagði: „Farðu nú aftur til eiginmanns þins.” Brúðurin reið nú af stað i skartklæðunum. Dimmt var úti, og ekki hafði hún langt farið, þegar hún kom i þéttan skóg. Þar lágu þrir ræningjar i leyni. Þeir stöðvuðu hana og tóku hana höndum. „Hæ, hæ,” sagði einn þeirra. „Lengi höfum við beðið og litinn feng hlotið, en þar kræktum DAN BARRV

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.