Tíminn - 14.06.1974, Side 2
2
TÍMINN
Föstudagur 14. júni 1974
Föstudagur 14. júní 1974
+1
V7atnsberinn: (20. jaa-18. febr)
Þú skalt alveg eins búast við þvi að verða fyrir
einhverjum leiðindum i dag, en það stafar af þvi,
að þú færð einhvers konar viðurkenningu á
vinnustað. Láttu hnútur og aðkast eins og vin-um
eyrun þjóta.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það er heppilegt að jafna ágreiningsmál i dag.
Reyndu að koma sem mestu i verk i dag —
óvæntir atburðir kunna nefnilega að valda þvi,
að þú hafir ekki ýkja mikinn tima til að sinna
málum þínum á næstunni.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Morguninn og fram yfir hádegið eru bezti hluti
dagsins og þú skalt notfæra þér hann eins og bezt
þú getur. Þú skalt beita kænlegum aðferðum, eí
þér finnst þú ekki vera metinn að verðleikum.
Nautiö: (20. april-20. mai)
í dagskaltunota hvert tækifær, sem þér býðst til
þess að tjá hug þinn, sérstaklega i tilfinninga-
málunum, þvi að þú ert undir sérstaklega
góðum áhrifum núna. Njóttu lifsins með þeim,
sem þér likar bezt við.
Tviburamerkið: (21. maí-20. júni)
Þú átt samtal við einhvern i dag, og þetta sam-
tal á eftir að draga einhvern dilk á eftir sér. Það
er hætt við þvi, að einhverjir úr fjölskyldunni
séu á móti þvi, sem þú ert að gera eða ætlar að
fara að gera.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þetta er rólegheita dagur hjá þér i dag, sem þú
ættir ekki að eyða i óþarfa áreynslu. Þú gerir
bezt i þvi að létta þér upp, fara i kvikmyndahús
eða leikhús i kvöld, eða slaka á við einhverja
tómstundaiðkun.
Ljónið: (22. júli-23. ágúst)
Þetta er áhyggjusamur dagur hjá þér, þvi að þú
hefur áhyggjur af einhverjum, sem er þér ná-
kominn, að likindum vegna heilsufars við-
komandi Þú gerir bezt i þvi að heimsækja við-
komandi, ef þú getur komið þvivið.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þetta er mesti ágætisdagur, og i kvöld ættirðu
bara að láta það eftir þér að lyfta þér upp. Gott
vin gleður mannsins hjarta, en allt er samt bezt
i hófi. Einhver kynni verða þéi einstakrar, jafn-
vel varanlegrar ánægju.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þetta er vist hálfgerður leiðindadagur, en þú
mátt ekki missa móðinn. Það kemur dagur eftir
þenna dag. Þú skalt bara hafa hægt um þig og
forðast að láta mikið á þér bera. Það verður þér
alls ekki til neinnar ánægju.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það er eitthvert vináttusamband að myndast
hjá þér þessa dagana, en farðu samt varlega i
það. Það er hætt við þviað þú rekir þig fljótlega
á það, að þetta varekki neitt fyrir þig. Háttatimi
snemma er hollastur.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Freistingarnar eru ekki til að falla fyrir þeim —
hvað sem þú kannt að hafa haldið. Heilsufarið
er ekki upp á það allra bezta um þessar mundir,
og það er hætt við að þú þurfir að fara að gera
eitthvað i málinu.
Steingeitin: (22. des-19. jan).
Það litur út fyrir, að óskir þinar og vonir um
heppilegri aðstæður séu að rætast. Ekki þar
fyrir, að þú skalt búa þig undir timabundin
leiðindi i ástamálunum. í dag er hvers konar
samstarf til hagsbóta.
t 14444 V
\mm
V 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Skírnarfontur á Reynistað
SUNNUDAGINN 26. mai, sem
var fermingardagur i Ileyni-
staðarsókn, var vigður nýr og
fagur skirnarfontur i Reyni-
staðarkirkju.
Undirritaður, sem þjónar
sókninni um sinn i veikinda-
forföllum sira Gunnars Gisla-
sonar, flutti nokkur ávarpsorð
af þessu tilefni og þakkaði
gjöfina f.h. safnaðarins, sókn-
arnefndar og sóknarprestsins.
Svofellt gjafabréf fylgdi font-
inum: „Skirnarfont þennan
gef ég Reynistaðarkirkju til
minningar um foreldra mina,
hjónin Björgu Runólfsdóttur
og Sigurjón Jónsson — og föð-
ursystur mina Guðrúnu Jóns-
dóttur, sem öll hvila i Reyni-
staðargrafreit. Þau systkin
voru fædd og upp alin i Reyni-
staðarsókn og dvöldu þar mik-
inn hluta langrar ævi og vildu
hag kirkju sinnar sem beztan.
Ég bið svo blessunar öllum
þeim börnum, sem vatni
verða ausin upp úr þessum
skirnarfonti — og minni gömlu
sóknarkirkju óska ég alls góðs
á ókomnum árum.
Asi 1 i Hegranesi,
26/5,1974
Jón Sigurjónsson”.
Fyrsta barnið, sem skirt var
við l'ontinn, heitir Sigurður
Ingi. Er hann sonur hjónanna
Ingibjartar Sigurðardóttur frá
Holtsmúla i Reynistaðarsókn
og Ragnars Árnasonar frá
Hallfriðarstaðakoti i Hörgár-
dal, en þau eru búsett á Akur-
eyri.
Loks skulu itrekaðar heilar
þakkir til Jóns Sigurjónssonar
fyrir þessa dýrmætu og fall-
egu gjöf. Góðhugur hans og
tryggð eru tákn, sem minna á
foreldra hans og fööursystur
um langa framtið. Blessuð sé
minning þeirra með gömlum
sveitungum og vinum — og
hinum ungu, sem erfa landið,
en heill og heiður gefandanum
i góðu verki.
Ágúst Sigurðsson
i Mælifelli
Klemenz Jónsson formadu
Norræna leikararóðsins
Á FUNDI, sem var haldinn I
Norræna leikararáðinu þann 24.
mal s.l., var Klemenz Jónsson
kjörinn formaður ráðsins til
næstu tveggja ára. Þctta er I
fyrsta sinn sem islenzkur ieikari
er formaður I leikararáðinu.
Fundurinn var að þessu sinni
haldinn I Alaborg, en þar fór fram
norrænt leikhúsþing 23-26. mai
s.l. Fundir ráðsins, sem að jafn-
aði eru tveir á ári, eru yfirleitt
haldnir til skiptis I höfuðborgum
Norðurlandanna.
011 leikarasamböndin á
Norðurlöndum eru aðilar að Nor-
ræna leikararáðinu. Ráðið hefur
unnið markvisst að þvi á undan-
förnum árum að efla samvinnu og
samstarf norrænna leikara. Enn-
fremur er á fundum ráðsins fjall-
að um kjara- og hagsmunamál
stéttarinnar.
GÁFU KALEIK
Á hvitasunuudag barst Mæli-
fellskirkju kaleikur að gjöf frá
börnum sira Bjartmans Krist-
jánssonar og frú Hrefnu
Magnúsdóttur, en þau sátu á
Mælifelli 1946-1968.
Enginn kaleikur var til i
kirkjunni, en fenginn að láni á
nágrannakirkjunum i Goðdöl-
um eða á Reykjum, þegar
fermt var og tekið til altaris.
Var kaleikurinn þvi enn kær-
komnari gjöf en ella, sem
vænta má, og kirkjan nú að
verða sæmilega búin, nema
hvað orgel er mjög lélegt.
Börn og nið'jar sira Jóns Ó.
Magnússonar, sira Sigfúsar
Jónssonar, sira Tryggva
Kvarans og nú sira Bjartmars
hafa gefið kirkju gamla
heimastaðarins dýrmæta
muni, sem prýða hana og búa
hana betur til þjónustunnar.
Afstaða prestsbarna til
prestssetursins, þar sem þau
alast upp, er að þvi leyti ólik
hinu, sem almennast er, að
eignarhald er ekkert, þegar
faðir þeirra flytzt burt eða
deyr, og ávallt óvist að ætla
hver kemur á staðinn, en skylt
að rýma. Það er svo undir
ýmsu komið, hvort sambandið
rofnar, þegar timinn græðir
sár eftirsjár og tilfinningar
æsku og elsku fjarlægjast. Hér
hefur farið á þann veg, sem
greindi, að prestsbörnin frá
Mælifelli gleyma ekki gömlum
stöðvum, en hugurinn þar,
sem áður var heima.
A kaleikinn er letrað nafn
kirkjunnar og dagsetningin: 2.
júni 1974. Gripir sem þessi
verða gjarnan gamlir. Um
langan ókominn tima mun þvi
hvitasunnudagurinn i ár verða
minningadagur i sögu Mæli-
fellskirkju, eins og vorið i gró-
andi þess og ilmi, fagur vottur
um þroska og ávöxt hins góða,
er aldrei þrýtur, meðan ekki
linnir vor og sumar i landi og
anda.
Fyrir hönd safnaðarins færi
ég alúðarþakkir systkinunum
frá Mælifelli, en þau eru: Snæ-
björg, húsfreyja i Dölum vest-
ur, Kristján og Benjamin,
báðir að námi, Jónina, hús-
freyja á Silfrastöðum, Fann-
ey, gift á Akureyri og Hrefna,
unglingur i foreldrahúsum á
Laugalandi i Eyjafirði.
Agúst Sigurðsson.
Klemenz Jónsson — hinn nýkjörni
formaður Norræna leikararáðs-
ins.
MX20
+ -r - X
Konstant
Keðjureikn.
Fljótandi
komma
Algebratic
Logic
8 stafir
Innbyggð
Hlif yfir
leturborð
3 rafhlöður
ÞOR HF
REYKJAVIK SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25
Bowmar
Mest selda
raf-reiknivélin
i Ameriku
BRID6EST0NE
Japönsku NYLON hjólbarðarnir.
Allar vörubílastærðir.
825x20, — 900x20, — 1000x20 og 1100x20
seldar ó Tollvörulagersverði gegn staðgreiðslu.
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
H
GUMMIVINNUSTOFAN
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055
A 1 ICTI ID Gm Grimsnes — Laugarvatn — Geysi — MUu 1 U K- Guiifoss Um Selfoss — Skeiðaveg — Hreppa — rrpnm Guiifoss. 1 C l\ k/1 l\ Gm Sclfoss — Skálholt — Gullfoss — Geysi. Ilaglega frá BSt — Simi 2-23-00 — ólafur Ketiisson. Timinner peningar | Auglýsid I : iTimanuml