Tíminn - 02.10.1974, Page 6
6
TtMINN
Miðvikudagur 2. október 1974.
HERRA FORSETI,
Leyfið mér að óska yður til
hamingju með kjör yðar sem for-
seti 29. allsherjarþings Samein-
uðu þjóöanna. Ég óska yður alls
velfarnaðar i þessu háa og mikil-
væga embætti og fullvissa yður
um fullkomið traust og stuðning
sendinefndar minnar.
Leyfið mér einnig að bera lof á
aðalritara samtakanna og starfs-
lið hans fyrir þrotlaust starf að
eflingu Sameinuðu þjóðanna, og
þar með friðar i heiminum.
Ég vil einnig nota þetta tæki-
færi, herra forseti, og taka undir
orð starfsbræðra minna, sem
hafa boðið hin nyju aðildarriki
Sameinuðu þjóðanna velkomin:
Bangladesh, Grenada og Guineu-
Bissau. Við hyggjum vel til sam-
vinnu við þau I starfi samtak-
anna.
Herra forseti,
fyrir skömmu tók ný rikisstjórn
við völdum á Islandi. Hornsteinn
utanrikisstefnu hinnar nýju rikis-
stjórnar er þátttaka i starfi Sam-
einuðu þjóðanna, eins og allra is-
lenzkra rikisstjórna siðan við
gerðumst aðilar að Sameinuðu
þjóðunum á árinu 1946. íslenzka
þjóðin hefur fullan skilning á
nauösyn alþjóöasamvinnu á öll-
um sviðum mannlegra sam-
skipta. Við teljum, að sameinuðu
þjóðirnar séu hinn rétti vett-
vangur til að gera slika samvinnu
árangursrika.
Við vitum einnig, að slik sam-
vinna er þvi aðeins kleif, að
Sameinuðu þjóöirnar hljóti fullan
og markvissan stjórnmálastuðn-
ing allra þjóða heims.
Nýlegir atburðir hafa enn
sannað okkur nauðsyn þess að
gera Sameinuðu þjóðirnar áhrifa-
rikari, þegar hernaðarátök verða
milli þjóöa.
Þaö er sannarlega sorglegt, að
deilan um Kýpur skuli enn hafa
brotizt út. Það var eftir miklar
blóðsúthellingar, að lausn var
fundin á deilunni fyrir 15 árum,
og siöustu hernaðarátök hafa
bætt nýjum kapitula við sögu,
sem þegar var orðin of dapurleg.
Viö vonum, að allir viðkomandi
aöilar muni af samvizkusemi
virða vopnahléð, sem nú hefur
verið komið á, og muni stuðla að
þvi, að friðargæzlusveitir Sþ geti
gegnt þvi mikilvæga og erfiða
hlutverki, sem þeim er ætlað.
Leyfið mér, herra forseti, i þessu
sambandi, að votta mina innileg-
ustu samúð með þeim rikisstjórn-
um, sem hafa átt hermann, er
fallið hafa eða særzt, er þeir voru
aö friðargæzlustörfum fyrir sam-
tökin.
Það er sannfæring okkar, að
varanleg lausn Kýpurdeilunnar
verði aðeins fundin með friðsam-
legum aðgerðum i samræmi við
sáttmála hinna sameinuðu þjóða.
Og það er mjög mikilvægt að
samþykktum öryggisráðsins
veröi vendilega fylgt i öllum frek-
ari samningaviðræðum. Lausn
deilunnar verður að sjálfsögðu að
grundvallast á virðingu fyrir
sjálfstæði og fullveldi Kýpur.
1 Mið-Austurlöndum rikir nú
mjög flókið óvissuástand. Þeir
vopnahléssamningar, sem gerðir
hafa verið, bera mannviti og þol-
inmæði vott og vekja ánægjulegar
vonir um að fundin verði varan-
legri lausn deilumálanna. Slik
lausn verður að fela i sér tillit til
réttinda Palestinuaraba. Og
einnig hér i þessum heimshluta
verður hið mikilvæga hlutverk
friöargæzlusveita Sameinuðu
þjóðanna aldrei ofmetið.
Frelsi nýlenduþjóðanna hefur
veriö á dagskrá Sameinuðu þjóð-
anna I mörg ár. Hér á 29. allsherj-
arþinginu höfum við þá ánægju að
fagna Guineu-Bissau sem aðild-
arriki Sameinuðu þjóðanna og
gleöjast yfir stofnun bráðabirgð-
arstjórnar i Mózambique. A und-
anförnum árum höfum við á þess-
um vettvangi hlýtt á harða gagn-
rýni á stefnu Portúgalsstjórnar i
nýlendumálum. Það er sérlega
ánægjulegt að geta nú hrósað
hinni nýju rikisstjórn Portúgals
fyrir þær mikilvægu ákvarðanir,
sem hún hefur tekið I samræmi
við grundvallarlögmál sáttmála
hinna sameinuðu þjóða um að
veita nýlenduþjóðum frelsi og
sjálfstæði.
Annars staðar i suðurhluta
Afriku búa þjóðir þvi miður enn
við harðstjórn og kúgun. Það
verður að neyta allra skynsam-
legra ráða til að binda enda á þá
sviviröilegu átroðslu mannrétt-
inda, sem þar á sér stað.
Von okkar,
að samkomulag
náist um 200 mílna
efnahagslögsögu
á næsta ári
— ræða Einars Ágústssonar utanríkisráðherra
á 29. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
í New York 30. september 1974
Þær umræöur, sem fóru fram
um Kóreuvandamálið á siöasta
allsherjarþingi, urðu gagnlegri
en við var búizt. Báðir deiluaðilar
gátu fellt sig við niðurstöðu þeirra
umræðna, sem fól I sér vonir um
frekari samningaviðræður aðila
með friðsamlega sameiningu
Kóreu að markmiði. Þvi miður
hafa þessar vonir ekki rætzt.
Hvort umræður á þessu allsherj-
arþingi munu þoka samkomulagi
áleiðis, verður reynslan að skera
úr um, en vissulega ber að vona,
að frekari árangur náist i tilraun-
um til að leysa þetta langvarandi
vandamál, og að lausn verði
fundin áður en langt um liður, er
leiði til friðsamlegrar sameining-
ar Kóreu.
Herra forseti,
ástand heimsmála krefst þess,
að öllum ráðum verði beitt til að
gera sambúð þjóða friðvænlegri,
auka samvinnu þjóða og koma af
stað raunhæfri afvopnun.
Þrátt fyrir langvarandi um-
ræður hefur ekki náðst viðunandi
árangur á öryggismálaráðstefnu
Evrópu. Mikil óvissa rikir um
framvindu mála á ráðstefnunni,
en við teljum afar mikilvægt að
lausn verði fundin á þeim vanda-
málum, sem ráðstefnan fjallar
um.
Svipuð staða er i hinum flóknu
umræðum i Vinarborg um gagn-
kvæma minnkun herafla i Mið-
Evrópu. Hægt hefur miðað áleið-
is. Við vonum, að viðræðurnar
muni innan skamms bera já-
kvæðan árangur, þar sem við
teljum, að árangur þessara
beggja samningatilrauna sé próf-
raun á framtiðarþróun þessara
mála. Siðan siðasta allsherjar-
þingi lauk hefur hægt miðað
áleiðis Salt-viðræðum Bandarikj-
anna og Sovétrikjanna. Þessar
viðræður hafa nú verið teknar
upp að nýju. Vekur það með okk-
ur nýjar vonir um að samkomu-
lag geti náðst.
Aframhaldandi kjarnorkutil-
raunir i andrúmsloftinu eru okkur
ný viti til varnaðar og sýna þá
lifsnauðsyn, að náð verði alþjóð-
legu samkomulagi um bann við
framleiðslu og tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Það er auðvitað einnig mjög
mikilvægt, að afvopnunar-
samningar hafi einnig inni að
halda ákvæði um bann við fram-
leiðslu og notkun kemiskra
vopnaog eiturefna.
Meöan glimt er við að leysa öll
þessi vigbúnaðarvandamál, svo
torleyst sem þau stundum virð-
ast.er einnig nauðsynlegt að lita
fram á veginn og reyna að sjá
fyrir þann vanda, sem við kynn-
um að standa frammi fyrir i
framtiðinni, og reyna siðan, ef
mögulegt er, að koma i veg fyrir
að slikur vandi geti skapazt. Af
þessari ástæðu fögnum við frum-
kvæði þeirra þjóða, sem hafa
beitt sér fyrir þvi að þessi hugs-
anlegu framtiðarvandamál verði
tekin til umræðu á þessu allsherj-
arþingi.
Herra forseti,
aldrei fyrr i sögu Sameinuðu
þjóðanna hafa efnahagsmál veriö
tekin til jafn rækilegrar meðferð-
ar og gert var á 6. aukaþingi alls-
herjarþingsins á sl. sumri. Þetta
aukaþing leiddi i ljós, I hve vax-
andi mæli þjóðir heimsins eru
háöarhver annarri efnahagslega.
Það er von okkar, að takast megi
að hraða verulega ráðstöfunum
til að minnka hið efnahagslega
bil, sem nú rikir milli þróðuðu
þjóðanna og hinna vanþróuðu.
Það er eitt mesta nauðsynjamál,
sem þjóðir heimsins fjalla nú um.
Undirbúningi hinnar sérstöku
neyðarhjálpar við þau riki, sem
hafa orðið mest fyrir barðinu á
efnahagskreppunni i heiminum,
hefur þokað hægt. Alvarlegar
sveiflur hafa nú áhrif á efnahag
flestra þjóða heims. Sumar þjóðir
hafa orðið mjög hart úti, efna-
hagsframvinda þeirra hefur verið
stöðvuð, og aukið hefur verið á
hungur og volæði milljóna
manna. Islenzku þjóðinni rennur
þessi mannlega þjáning mjög til
rifja, og i júni sl. innti íslenzka
rikisstjórnin af höndum framlag
sitt til neyðarhjálpar sameinuðu
þjóðanna.
Islenzka þjóöin hefur orðið fyrir
alvarlegum áföllum vegna efna-
hagsþróunarinnar i heiminum að
undanförnu. Við erum flestum
öðrum þjóðum háðari alþjóðleg-
um viðskiptum. Við þurfum að
flytja inn allar þær oliuvörur,
sem viö notum, stóran hluta
þeirra matvæla, er við neytum og
næstum öll þau hráefni, er við
þörfnumst. Aðalútflutningsvara
okkar, fiskurog fiskafurðir, hefur
lækkað verulega i verði á út-
flutningsmörkuðum okkar. Þessi
þróun hefur leitt til alvarlegra
efnahagsvandamála á Islandi og
hættulegrar verðbólguþróunar.
Augljóst er, að þýðingarmikill
þáttur þessara mála er raunhæf
og réttlát hagnýting auðlinda
heimsins, sem aldrei hefur haft
meiri þýðingu en nú, ef miðað er
við annars vegar þá tækni, sem
fyrir hendi er, og hins vegar hina
sivaxandi fólksfjölgun i heimin-
um.
Augu manna hafa mjög beinzt
að orkumálunum að undanförnu
vegna hinna miklu verðhækkana
á olluvörum. Takmarkanir á
mögulegu framboði þessara vara
gera það sjálfsagt að leitað sé
nýtingar annarra orkulinda. Ég
vil leyfa mér að benda á að Sam-
einuðu þjóðirnar hafa mikilvægu
hlutverki að gegna á þessu sviði
með þvi að samræma aögerðir og
visindarannsóknir, er leiöa til
skynsamlegrar og hagkvæmrar
nýtingar annarra orkulinda. I
þessu sambandi langar -mig að
benda á hinn geysilega ónýtta
jarðvarma. Nýting hans er nú
aðeins rétt á byrjunarstigi.
íslendingar byggja afkomu
sina nær einvörðungu á auðæfum
hafsins og hafa þvi sérstakan
áhuga á starfi hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna.
Rikisstjórn Islands er þeirrar
skoðunar, að fundurinn I Caracas,
sem nú er nýafstaðinn, hafi náð
þeim tilgangi að skýra höfuð-
valkosti og fækka þeim. Rikis-
stjórn Venezuela á þakkir skilið
fyrir hin góðu starfsskilyrði, sem
fundinum voru veitt, og fyrir að
hafa látið i té starfskrafta
Andreas Aguilar, sendiherra,
sem stjórnaði störfum 2. nefndar
með mikilli prýði.
Fulltrúar 60 rikja, sem ekki
höfðu átt sæti I undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar, höfðu þarna
tækifæri til að lýsa sjónarmiðum
sinum og ganga inn i samnings-
viðræöur og þeim tilgangi var
náð. Ljóst var, að endanleg
heildarlausn mundi ekki fást á
fundinum i Caracas, þar sem
reynt var að ná samkomulagi án
atkvæðagreiðslu og að frekari
samningaviðræður yrðu að fara
fram. Hins vegar liggja höfuð-
sjónarmiðin nú fyrir og vonir
standa til, aö á fundinum I Genf
næsta vor muni nást sanngjörn
heildarlausn I þessum málum.
Með hliðsjón af þeim umræðum,
sem fram fóru i Caracas, er nú
hægt að sjá fram á helztu atriði
slikrar heildarlausnar. Við telj-
um, að þar munu verða um að
ræða 12 milna landhelgi, efna-
hagslögsögu („exclusice econo-
mic zone”-) allt að 200 milum,
sanngjarna lausn varðandi yfir-
ráð strandrikisins yfir landgrunni
utan 200 milna, siglingafrelsi inn-
an efnahagslögsögunnar, óhindr-
aða umferð um sund, sem notuð
eru i alþjóðlegum siglingum,
raunhæfa lögsögu strandrikisins
varðandi mengun og visindalegar
rannsóknir, viðurkenningu á
sanngjörnum réttindum fyrir
landlukt riki og sterka stjórnun á
hinu alþjóðlega hafsbotnssvæði,
er tryggi hagsmuni þróunarrikj-
anna á þvi svæði.
Að þvi er ríkisstjórn Islands
varðar, er þýðingarmesta atriðið
formleg ákvörðun efnahagslög-
sögunnar allt að 200 milum, sem
nú hefur stuðning yfirgnæfandi
meirihluta hins alþjóðlega sam-
félags. Ég vil nota þetta tækifæri
til að láta i ljós ánægju rikis-
stjórnar minnar yfir þeirri stefnu
ýmissa rikja, sem áður voru and-
vlg þessu hugtaki, en hafa nú
ákveðið að styðja það. Við höfum
mikinn áhuga á framhaldi haf-
réttarráðstefnunnar, og við telj-
um, að lausn þessara mála sé nú
örugglega á næsta leiti. Það er
von okkar, að samkomulag náist
næsta ár um efnahagslögsögu allt
að 200 milur, og önnur skyld at-
riöi, svo rikisstjórnir, sem þá
hyggja á útfærslu lögsögu að
þessum mörkum, geti gert það á
grundvelli alþjóðasamnings. Þar
með er ekki sagt, að án sliks
árangurs þar muni verða um al-
geran glundroða að ræða, vegna
þess að nú þegar er fyrir hendi
nauðsynlegur grundvöllur fyrir
einhliða ákvörðunum á þessu
sviði — ef samvinnan fer út um
þúfur, en það ættu allir að reyna
að forðast.
Heildarlausn i náinni framtið, á
þeim grundvelli, sem ráðstefnan
stefnir að, myndi einmitt vera
rökréttur og sanngjarn árangur
af þvi óhemju mikla starfi, sem
búið er að leggja fram. Ég vil þvi
nota þetta tækifæri til að lýsa að-
dáun ríkisstjórnar minnar á for-
ystu Amerasinghe sendiherra,
forseta hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna. Hið alþjóðlega
samfélag stendur I mikilli þakk-
arskuld við hann fyrir störf hans,
sem ég er viss um að munu leiða
til árangursrikrar niðurstöðu.
Við viljum einnig þakka for-
mönnum nefnda ráðstefnunnar,
sem sýnt hafa mikinn dugnað i
starfi. Ég vona, að hin ábyrgðar-
miklu störf þeirra megi verða
gæfurik.
Þetta er 29. þing Sameinuðu
þjóðanna. Þegar menn ihuga, hve
29 ár eru stuttur timi i sögu mann-
kynsins , verður það enn ljósara
en ella, hve miklu Sameinuðu
þjóðirnar hafa raunverulega
áorkað og hve mikilvægan grund-
Frh. á bls. 15