Tíminn - 10.12.1974, Síða 1
HREYFILHITARAR
Í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
Lofttjakkar
Olíutjakkar
Stjórnventlar
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460
247. tölublað—Þriðjudagur 10. desember — 58. árgangur.
Landvélar hf
Sisco ræðir
alþjóðamálin
HJ-Reykjavik. — Hér á landi er
nú staddur dr. Joseph Sisco,
aðstoðarutanrikisráðherra
Bandarikjanna. Með honum I
förinni er James I. Hoiloway,
yfirflotaforingi Bandarfkjanna.
Þeir komu til landsins á sunnu-
dagskvöld og munu dveljast hér
fram á miðvikudag.
Timinn náði tali af Einari
Agústssyni utanrikisráöherra,
þegar hann kom af fundi, sem
Sisco hafði setið með utanrikis-
málanefnd Alþingis, siðdegis 1
gær. Sagði Einar, að þar hefðu
alþjóðamálin verið rædd vitt og
breitt, en ekki hefði verið rætt um
sérmál íslands og
Bandarikjanna.
Sisco og Holloway hafa hitt
helztu ráðamenn þjóðarinnar að
máli. 1 gærdag fóru þeir á fund
forseta Islands og forsætisráð-
herra, og áttu einnig viðræður við
utanrikisráöherra um alþjóða-
mál. Þeir sátu hádegisverðarboö
i bandariska sendiráðinu, en að
loknum fundi með utanrlkismála-
nefnd Alþingis snæddu þeir
kvöldverð i boöi utanrikis-
ráðherra.
A morgun munu Sisco og
Holloway dvelja á Keflavikur-
flugvelli og ræða viö
ráðamenn þar.
Bandarisku gestirnir áttu viöræður við Einar Agústsson utanrikisráðherra
Ráðherrabústaðnum I gær.
Timamynd: Róbert.
Kom
með
vaðandi
búrhníf
lofti
Gsal—Reykjavik — Aðfaranótt
sunnudags var tæplega sextugur
maður stunginn til bana i
Reykjavik, og annar særður lífs-
hættulega með hnifi. Sá, sem
verknaðinn framdi hefur játað og
hefur hann verið úrskurðaður i
sextiu daga gæzluvarðhald.
Um klukkan tiu á sunnudags-
morgun, kom fyrrum sambýlis-
kona hins særða i húsið, þar sem
umræddur atburður átti sér stað.
Hafði hún I hyggju að færa mann-
inum mat og taka til I ibúð hans.
Þegar hún kom inn i ibúðina, lá
maöurinn á svefnbekk i stofunni,
og sá hún strax, að maðurinn var
særður, þar sem hann var mjög
blóðugur. Þegar maðurinn var
konunnar var, bað hann þegar
um læknishjálp.
Sá konan, að i herbergi inn af
stofunni lágu tveir menn á
gólfinu. Annar mannanna reis á
fætur, þegar hann varð konunnar
var en hinn lá kyrr.
Konan fór i simann og hringdi á
sjúkrabil. Siðan var lögreglunni
gert viðvart, og komu sjúkrabill
og lögregla um svipaö leyti á
staöinn.
Særöi maðurinn var borinn út I
sjúkrabil og fluttur þegar á
slysavarðstofuna, og fór konan
með honum.
Þegar farið var að athuga
manninn, sem lá á gólfinu, kom I
ljós, að hann var örendur. Tók
lögreglan manninn, sem legið
hafðiá gólfinu viðhliðina á likinu,
i sina vörzlu.
Hvorki særði maðurinn, sem
var húsráðandi, né konan vissu,
að maðurinn var látinn. Stóðu þau
i þeirri meiningu, að hann væri
sofandi.
Njörður Snæhólm, rannsóknar-
lögreglumaður, talaði við hús-
ráðandann á sjúkrahúsi á sunnu-
daginn, og sagðist hann, vera
með fjórar hnifsstungur i
brjóstinu. Sagði hann, að þeir
hefðu verið þrir i húsinu aðfara-
nótt sunnudags. Hefði hann setið
á svefnbekknum, þegar árásar-
maöurinn kom allt i einu með
búrhnif framan úr eldhúsinu, og
stakk hann I brjóstið. Hefði
maðurinn virzt alveg óður.
Ekki kvaðst hinn særði muna
— einum banað og
annar í lífshættu
eftir, að neinar ryskingar eða
átök hefðu orðið i ibúðinni, og
hélt, að hinn lægi bara sofandi á
gólfinu. Eftir að árasarmaðurinn
haföi stundið húsráðandann i
brjóstið, ætlaði sá særði að
komast I simann, en hafði ekki
þrek til þess.
Ekki kvaðst hann muna eftir
hvernig hann heföi sloppið, en
taldi liklegt, að hann heföi slegið
árásarmanninn.
Kallaði hinn særði á manninn,
sem lá á gólfinu, en sá hreyfði sig
ekki. Sofnaðihann siðan og vakn-
aði ekki aftur fyrr en konan kom.
Morðvopnið fannst skammt frá
þeim látna.
Arásarmaðurinn hefur viður-
kennt verknaðinn og hefur hann
verið úrskurðaður i sextiu daga
gæzluvarðhald. Ekki er hægt að
birta nafn hins látna, þar sem
ekki náðist I alla aðstandendur i
gær.
Erfiðleikar í raforku-
málum Austurlands
Bilun á einni díselvél gæti valdið skömmtun á samtengisvæðinu
SJ-Reykjavik. — Ekki hafði
komiðtil rafmagnsbilana eða raf-
magnsskorts á Austurlandi i gær,
er við ræddum við Erling Garðar
Jónasson, rafveitustjóra á Egils-
stöðum. — Jafnvel var þó búizt
við, að skammta þyrfti rafmagn
stuttan tima siðari hluta dagsins
á samveitusvæði Grimsárvirkj-
unar. útlitið er hinsvegar ekki
gott I raforkumálum á svæðinu,
vatnsrýrnun i Grimsá og horfur á
að áfram minnki i henni. t fyrra
þurfti að skammta rafmagn á
samveitusvæði Grimsár allt upp i
6-10%, og útlit er fyrir, aö á
þessum vetri komist skömmtunin
upp fyrir 20%. A Austuriandi
höfðu menn búizt við að Lagar-
fossvirkjun yrði komin I gagnið
um áramót, en nú berast öll bönd
aö þvi, aö svo verði ekki fyrr en I
lok aðalvinnslutima fiskiðnaðar-
stöðvanna á Austfjöröum. Uggur
er þvi i mönnum fyrir veturinn.
En sennilega vantar um 2 mega-
wött af raforku til aö fullnægjandi
megi heita fyrir loðnuveiði-
timann. Og aflþörf svæðisins nú
þegar er 1 megawatti meiri en á
sama tima i fyrra. A Egilsstöðum
eru nú 40-30 Ibúðir i smiðum og
ailflestir hugsa til rafmagns-
hitunar I þær.
I gær var aðeins fjögurra stiga
frost á Egilsstöðum, og um
hádegi var aflnotkunin á sam-
veitusvæði Grimsárvirkjunar 8
megawött, sem er eins mikið og
hægt er að anna. Allar vélar voru
i gangi I gær, nema 500 kw
diselvél á Fáskrúðsfiröi var biluð
en vonir stóðu til að hún kæmist i
lag i nótt.
Atta loðnubræðslur eru á
Austurlandi, og til að halda þeim I
gangi og loðnufrystingu, þegar
vertiðin hefst, þarf viðbót á
núverandi raforku.
Mest óttast menn að bilun verði
i einhverri diselvélanna á Aust-
fjörðum, en það yröi mjög alvar-
legt mál. Nú tekst nákvæmlega
að anna rafmagnsþörfinni á aðal-
álagstima dagsins Stærstu disel
vélarnar eru á Seyðisfirði og I
Neskaupstað, 1700 kw stöðvar.
Mjög erfitt er að fá varahluti I
diselvélarnar, og gæti þvi
rafmagnsbilunin staöiö I verulega
langan tima.
Rafmagnsskömmtun fór i fyrra
fram á lágspennukerfi og var
henni hagaö þannig að simi,
skólar, sjúkrahús og fiskiðjuver
hefðu rafmagn. Skömmtunin
beindist aö almennum notendum
og smáiðnaði. Tuttugu starfs-
menn sinna skömmtun á svæðinu
með þessum hætti. En ef þetta
dugir ekki, þarf að gripa til
skömmtunar á háspennukerfinu,
og er þá ekki hægt að haga henni
svo að áðurnefndir aðilar hafi
rafmagn, þar sem kerfið er ekki
byggt meö slika skömmtun fyrir
augum, heldur til að dreifa orku.
— 1 fyrra komst skömmtun á
rafmagni á Hornafirði upp i
70-75%, svo að ástandið hér er
ekki eins alvarlegt, og það var
þar þá, sagði Erling Garöar
Jónasson rafveitustjóri.
1 næstu viku verður Djúpivogur
tengdur við samveitusvæði
Grimsárvirkjunar, sem hefur til
þessa náð frá Fljótsdalshéraði til
Breiðdalsvikur. A Djúpavogi
hefur verið nokkur umframorka,
og batnar þvi ástandiö vonandi
litilega.
Rauði krossinn 50 ára:
STARF RAUÐA
BYGGIST ALLT
STUÐNINGI ALAAENNINGS
— segir Björn Tryggvason, formaður RKÍ
KROSSINS
r
A
HJ—Reykjavik — Segja má, að
aðalstöðvar Rauða krossins hér i
Reykjavik séu nokkurs konar
móðurstofnun fyrir deildir Rauða
krossins, sem starfa úti um allt
land. Við komum fram sem fjár-
öflunar-, þjónustu, og kynningar
og leiðbeiningaraöili til þess að
kalla fram sjálfboðaliða til starfs
I deildunum. Sagði Björn
Tryggvason, formaður Rauða
kross Islands, er Timinn átti við-
tal við hann vegna 50 ára afmælis
Rauða krossins á islandi.
— Rauði krossinn var eiginlega
fyrsta hjálparstofunin sem stofn-
uð var hér á landi til að starfa á
breiðum grundvelli. Hann tók
þegar aö sér nokkra fræðslu I
heilbrigðismálum og leitaðist við
að aðstoða það fólk, sem bjó við
hvaða lakasta vinnuaðstöðu, svo
sem vertiðarfólk, sem á þeim
tima bjó við mjög lélegar aö-
stæður i verbúðunum. Þá hefur
Rauöi krossinn frá upphafi séð
um sjúkrafluginga, ýmiss konar
neyöarvarnir og -þjónustu.
— Rauði krossinn saman-
stendur af mörgum deildum um
land allt, og nú munu félagar vera
tæplega 7000.
Starfsemin er öflugust hér i
Reykjavik, enda félagarnir flestir
þar, og ber sérstaklega mikið á
starfi kvennadeildar Reykja-
vikurdeildar Rauða krossins.
— Rauði krossinn hefur góða
starfsaðstöðu, og erhann tilbúinn
til starfa ef neyðartilvik berað.
Starf hans felst m.a. i þvi, að vera
reiðubúinn á neyðarstundum og
fást við verkefni, sem þá koma
upp á, þar til stjórnvöld geta tekið
við hjálparstarfinu. Kom þetta
vel I ljós, er Vestmannaeyingar
komu til lands að morgni 24.
janúar i fyrra.
— Mjög margt er framundan i
starfinu nú. 1 dag verður sjúkra-
hótel Rauða krossins vigt form-
lega, en það tók til starfa fyrir
nokkru og hefur það meginhlut-
Framhald á bls. 3
Hjón með
fjögur
börn í
hrakningum
HD—Dalvik — A sunnudaginn
lenti fólk i ógöngum, er það var á
leið frá Dalvik til Ólafsfjarðar.
Fólkið lagöi af stað i tveim bif-
reiðum um miðjan dag á sunnu-
dag, en kom að snjóflóði, sneri
fólkið öðrum bilnum við, en fólkið
i hinum ákvað að ganga yfir til
ólafsfjarðar.
Um klukkan fjögur á sunnudag
komu bifreiðarnar tvær að
snjóflóði við Voghólsbrekku, sem
er Dalvikurmeginn i ólafsfjarð-
armúla. Komst fólkð ekki lengra
af þvi aö snjóflóöið var mikiö.
Akváöu þá hjón, með fjögur börn,
að snúa aftur til Dalvikur, en
fólkið i hinum bilnum ákvað aö
skilja hann eftir og ganga til
ólafsfjarðar. Varö að samkomu-
lagi með fólkinu, að þeir sem til
Dalvikur ætluðu myndu láta vita
af hinu gangandi fólki, svo hægt
væri að fara á móti þvi.
Um klukkan sex kom svo fólkið
til Ólafsfjarðar, en þá haföi ekk-
ert heyrzt frá hjónunum með
börnin, og voru þau enn ókominn
til Dalvikur. Var þegar látið vita
á Dalvik og fór lögreglubifreið af
staö til að leita að fólkinu.
Við Ytri-Vik hafði fallið
snjóflóð, og varð lögreglubifreið-
in að snúa við við svo búiö, en
sendir voru tveir jeppar til móts
Framhald á bls. 3