Fréttablaðið - 24.12.2004, Qupperneq 1
● og opnar pakkana í beinni
Birgir Örn Thoroddsen:
▲
Er í hátíðarskapi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
MIÐNÆTURGUÐSÞJÓNUSTA
HEFST Í HALLGRÍMSKIRKJU
KLUKKAN 23.30 Séra Jón Dalbú
Hróbjartsson heldur hugvekju og þjónar
fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur
djákna. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Harðar Áskelssonar. Ein-
söngvari verður Laufey G. Geirlaugsdóttir.
DAGURINN Í DAG
24. desember 2004 – 352. tölublað – 4. árgangur
ENN ÁGREININGUR UM UPP-
GJÖR OPINBERUNAR Kvikmynda-
gerðarmenn eru ósáttir við að Kvikmynda-
miðstöð kalli ekki eftir uppgjöri vegna
myndar Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun
Hannesar. Sjá síðu 2
HERMENN Í ÍRAK HEYJA SÁLAR-
STRÍÐ Sálarþrek bandarískra hermanna í
Írak fer dvínandi. Hermönnum finnst þeir
hvergi vera öruggir. Sjá síðu 4
NORSKU LEIÐ SÍMANS LOKAÐ
Síminn fann leiðir til að tryggja sér lægra
heildsöluverð að neti Og Vodafone. Þeirri
leið lokaði Og Vodafone. Sjá síðu 6
KONUR ELDRI EN KARLARNIR Kon-
ur í grunnnámi, meistaranámi og doktors-
námi við Háskóla Íslands eru 63 prósent
nemenda miðað við 20. október. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 36
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 32
Sjónvarp 38
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Opið í dag
10-13
Gleðileg
jól
Vínbúðin opin 9-12
VERSLUN Allt að tveggja sólar-
hringa seinkun var á flutningi
pakka með flugi frá Bandaríkjun-
um fyrir jólin.
Pétur J. Eiríks-
son, fram-
kvæmdastjóri
Flugleiða frakt-
ar, segir að titr-
ingur hafi kom-
ið upp meðal
viðskiptavina
um að jóla-
gjafir, sem
keyptar hefðu
verið á netinu,
kæmust ekki til
kaupenda fyrir
jól en það hafi
bjargast. „Það
eiga allir að fá
sitt fyrir jólin,“
segir hann.
Pétur segir að tappi hafi mynd-
ast þar sem óvenjumikill farþega-
farangur hafi verið frá Bandaríkj-
unum upp á síðkastið auk þess
sem netviðskiptin hafi aukist gríð-
arlega. Þetta hafi leitt til þess að
ekki hafi verið jafn mikið pláss
fyrir vörur og venjulega um borð
í vélunum. Allt má þetta rekja til
þess að gengi dollarans hefur ver-
ið óvenjulágt.
„Vélarnar hafa borið minna
vegna þess að það hefur verið
óvenjumikill farangur á ferð-
inni,“ segir Pétur og rifjar upp
dæmi um að ein fjölskylda hafi
farið með 19 tómar töskur. Sú
fjölskylda hafi reyndar verið um
borð í einni af vélunum tveimur
þar sem varð að skilja eftir far-
angur í Kanada til að hún gæti
farið á loft. Þá hefur Fréttablaðið
heimildir fyrir því að tvær konur
hafi komið með hálft tonn í far-
angri í gær.
„Innkaupafraktin hefur verið
svo miklu meiri en við höfum
nokkurn tímann séð áður þannig
að það hefur tekið lengri tíma en
við höfum viljað að koma þessu til
landsins. En sem betur fer þá
komum við þessu öllu heim,“
segir hann.
Jón Ólafur Bergþórsson, fram-
kvæmdastjóri
FedEx, segir að
n e t v e r s l u n i n
hafi aukist gríð-
arlega síðustu
mánuði en ekki
verði teknar
saman tölur
yfir verslunina
fyrr en í byrjun
næsta árs og þá
verði hægt að
ræða betur
hver aukningin
er. „Netversl-
unin hefur
m a r g f a l d a s t
með tilkomu
ebay. Það er
eins og Íslend-
ingar hafi upp-
götvað ebay á þessu ári, við finn-
um allavega fyrir því,“ segir
hann. - ghs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Tveggja sólarhringa seinkun
Allt að tveggja sólarhringa seinkun var á flutningi pakka með flugi
frá Bandaríkjunum fyrir jólin. Netverslunin hefur aukist gríðarlega.
„Íslendingar hafa uppgötvað ebay“, segir framkvæmdastjóri FedEx.
SÍÐA 42
● notalegra í góðu veðri
Guðmundur Haraldsson:
▲
Verður á sjónum
um jólin
SÍÐA 10
VEÐRIÐ Í DAG
STÓRHRÍÐ norðaustan til með morgn-
inum. Vaxandi vindur um allt land þegar
líður á daginn. Talverð ofankoma fyrir
norðan og norðaustan en bjart syðra. Frost
5-12 stig. Sjá síðu 4
Gle›ileg jól
Opi› frá 10
til 13
Gleðileg jól
Lágafellskirkja:
Margt í kirkju
GUÐSÞJÓNUSTUR „Hér verða þrjár
guðsþjónustur í dag,“ segir séra
Jón Þorsteinsson, sóknarprestur í
Mosfellsbæ. Á morgun, jóladag,
verða tvær guðsþjónustur. „Við
þurfum að messa svona þétt svo
fólk þurfi ekki frá að hverfa,“
segir séra Jón.
- bþs
LÁGAFELLSKIRKJA Í MOSFELLSBÆ Kirkjan var vígð á fyrsta sunnudegi í góu 1889. Lengi teygði Lágafellssókn sig niður undir Elliðaár
og út í Viðey en við vígslu voru 403 sálir í sókninni. Í dag eru sóknarbörnin næstum sjö þúsund. Tólf ára gömlum var Halldóri Laxness falið
að annast orgelleik við messur í Lágafellskirkju. „Embættið var ekki erfitt hjá mér. Kirkjusókn var dræm,“ sagði skáldið síðar. Nú er öldin
önnur og Lágafellskirkja allt of lítil fyrir safnaðarstarfið í þessari fjölmennu sókn.
PÉTUR J.
EIRÍKSSON
Titringur kom upp
meðal viðskiptavina
Flugleiða fraktar um
að jólagjafir sem
keyptar hefðu verið á
netinu kæmust ekki
til kaupenda fyrir jól
en það bjargaðist.
JÓN ÓLAFUR
BERGÞÓRSSON
Framkvæmdastjóri
FedEx segir að net-
verslunin hafi marg-
faldast með tilkomu
ebay. „Það er eins og
Íslendingar hafi upp-
götvað ebay á þessu
ári, við finnum alla-
vega fyrir því.“