Fréttablaðið - 24.12.2004, Side 14
Fimm ára börnin sem spurð voru
á síðum þessa blaðs um daginn
hvers vegna jólin væru haldin,
gátu ekki svarað því. Þau vissu
allt um jólasveina og jólagjafir,
en virtust ekki vita af Jesúbarn-
inu. Mér fannst það dapurlegt. Ég
vona svo sannarlega að einhver
verði til að benda þeim, og öðrum
börnum á raunverulegt tilefni jól-
anna. Vegna þess að þar er að
finna það sem er mikilvægast
alls.
„Þér munuð finna ungbarn
reifað og lagt í jötu.“ Það sagði
engillinn við hirðana. Og jólin
enduróma orð þeirra og söng.
Allir foreldrar og afar og
ömmur þekkja hve undursamlegt
það er þegar barn fæðist, hvernig
allt ummyndast og tekur á sig
annan blæ. Ungbarn vekur til-
finningar auðmýktar, umhyggju
og gleði. Við hljóðnum í návist
þess, og finnum til lotningar og
virðingar. Það er einmitt slíkt
sem Guð vill laða fram í lífi okk-
ar. Með því að fæðast sem barn
inn í þennan heim laðar Guð fram
hið besta í okkur og leysir úr læð-
ingi kærleikann sem trúir, vonar
og umber allt og fellur aldrei úr
gildi. Þess vegna birtist Guð ekki
sem ofurhetja eða yfirþyrmandi
kraftbirting, heldur sem varna-
laust, allsvana barn í jötu. Í Jesú-
barninu þráir Guð þig eins og
barn þráir foreldra sína og kallar
eftir athygli þeirra og umhyggju.
Í Jesúbarninu er Guð að sýna þér
hvað mest er og mikilvægast alls.
Jatan er tákn Guðs gegn hroka og
oflæti, barnið litla er vottur visku
hans andspænis heimsins afli og
auði, orð og sögur Jesú segja
okkur hvað mestu máli skiptir.
Þess vegna er okkur svo mikil-
vægt að rifja þetta upp og læra,
og kenna börnunum okkar. Þess
vegna eru jólin.
Af sögu og orðum Jesú lærum
við til dæmis að öll dýrmætustu
gildi lífsins vaxa af rótum auð-
mýktar og kærleika. Það er auð-
velt að gleyma því, ekki síst á
allsnægtatímum þar sem nægta-
hornin virðast ótæmandi og til-
boðin sífellt glæstari. En víst er
að gleði og friður ná ekki að fylla
hjarta manns ef friðleysi og
streita, reiði og vantrú hefur sest
að í sálinni. Hversu mjög sem
tjaldað er til og á sig lagt til að ná
sér í réttu stemningu hinna full-
komnu jóla, þá nægir það ekki.
Því miður. En til að gera hreint
hið innra nægir ekki að sópa út,
heldur þarf að ljúka upp fyrir
Guði, sem er kærleikur. Gleði og
friður streymir fram í hjörtum
þeirra sem ljúka upp fyrir kær-
leikanum.
Hvers vegna eru jólin? Vegna
þess að Guð gefur okkur þau. Guð
sem elskar þennan heim og gaf
son sinn, Jesú Krist, til lífs og
heilla heiminum öllum. Jólaguð-
spjallið er frásagan af því, sagan
af barninu sem lagt var í jötu, af
trúfesti hirðanna og söng
englanna. Þessi látlausa, yndis-
lega saga mun óma um heims-
byggðina alla í nótt, í orðum og
tónum, ljóði og söng. Hlustaðu
eftir því sem hún er að segja! Og
þiggðu þá gjöf sem þar er rétt til
þín. Leitastu við að lifa í með-
vitund um að þú ert umvafin ást
og náð, umhyggju og kærleika
Guðs allar stundir. Horfðu með
þeim augum á jólaljósin, og taktu
utan um þau sem þér eru næst, og
hlustaðu eftir orðinu um frelsar-
ann sem fæddur er, barnið í
jötunni, sem er Drottinn þinn og
Guð þinn. Hann gefi þér og þínum
gleðileg jól. ■
H eims um ból helg eru jól“ segir í texta Sveinbjarnar Egils-sonar í hinum þekkta jólasálmi, sem nú um hátíðarnar munhljóma í kirkjum landsins og víðar um land þar sem fólk
kemur saman. Rætur þessa fallega sálms liggja í bænum Obendorf
í Austurríki í námunda við Salzburg, og má rekja þær allt aftur til
24. desember árið 1818 þegar sálmurinn var fyrst fluttur við messu
þar í bænum. Sagan segir að Joseph Mohr aðstoðarprestur hafi
samið textann tveimur árum fyrr, en hann hafi að morgni aðfanga-
dags komið að máli við Franz Gruber, sem þá var tónlistarkennari
á staðnum, og beðið hann að semja lag við textann fyrir tvo ein-
söngvara, kór og gítar. Þeir fluttu það svo ásamt öðrum við messu
í Nikulásarkirkjunni um kvöldið, og síðan hefur það hljómað víða
um heim. Á þýsku hefjast öll versin 6 á orðunum „kyrra nótt -
heilaga nótt“ og hinn enskumælandi heimur hefur þýtt það beint,
en hér fór Sveinbjörn Egilsson aðrar leiðir sem kunnugt er.
Í þau nærri 200 ár sem sálmurinn hefur verið sunginn hefur
hann átt sinn þátt í að sameina fólk um jólahátíðina – sameina fjöl-
skyldur, vini og félaga. Það er hreint ótrúlegt hve mikil áhrif sálm-
urinn hefur haft á hinn kristna heim.
Á þessari hátíð frelsarans er hollt að huga að hinum andlegu
verðmætum. Hin veraldlegu verðmæti skipta menn oft miklu máli
um stundarsakir, en þegar upp er staðið eru það hin andlegu verð-
mæti, góð heilsa og vináttan, sem skipta mestu máli. Fólk leggur
mikið á sig og ferðast yfir lönd og yfir höf til að vera með sínum
um jólin. Það eru engir aðrir dagar á árinu sem skipta eins miklu
máli í þessum efnum og þeir sem eru nú framundan. Þrátt fyrir að
ytri búnaður hátíðarinnar hafi breyst í áranna rás er það þó alltaf
fæðing frelsarans og kærleikurinn sem eru miðpunkturinn.
Í nútímaþjóðfélagi er það hraðinn og ysinn sem er orðinn meira
áberandi en áður. Margskiptar fjölskyldur koma líka æ meira við
sögu, fjölskyldumynstrið er orðið svo flókið hjá sumum, að það
getur verið heilmikið mál að skipuleggja jólahátíðina þannig að
allir geti hist og verið saman og notið hátíðarinnar.
En það eru því miður ekki allir sem geta verið í faðmi fjölskyldu
og vina um jólin. Sumir þurfa að dvelja á sjúkrahúsum eða öðrum
stofnunum. Margir þurfa að sinna skyldustörfum til sjós og lands
og í fjarlægum heimshlutum, þar sem almennt eru ekki haldin jól,
en hvar sem kristnir menn eru staddir reyna menn að gera eitthvað
sem minnir á jólahátíðina, og þá gjarnan heimalandið. Það eru lítil
jól hjá Íslendingum í útlöndum ef þeir hafa ekki hangikjöt við
höndina og geta ekki hlustað á jólamessuna í Útvarpinu.
„Friður á jörðu, því faðirinn er/fús þeim að líkna, sem tilreiðir
sér“ segir Sveinbjörn Egilsson svo í sálminum góða. Það er því
miður ekki því að heilsa að það sé alls staðar friður á jörðu. Það er
margskonar ófriður í gangi, ekki bara stríð með öllum þeim hörm-
ungum sem þeim fylgja, heldur ófriður manna í milli sem birtist í
ýmsum myndum.
Reynum að láta boðskap jólasálmsins ríkja í hjörtum vorum um
hátíðarnar.
Gleðileg jól.
24. desember 2004 FÖSTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Á þessari hátíð frelsarans er hollt að huga að hinum
andlegu verðmætum.
„Heims um ból“
FRÁ DEGI TIL DAGS
Þrátt fyrir að ytri búnaður hátíðarinnar hafi
breyst í áranna rás er það þó alltaf fæðing frelsarans og
kærleikurinn sem er miðpunkturinn.
,,
Af sögu og orðum
Jesú lærum við til
dæmis að öll dýrmætustu
gildi lífsins vaxa af rótum
auðmýktar og kærleika.
Það er auðvelt að gleyma
því, ekki síst á allsnægta-
tímum þar sem nægtahorn-
in virðast ótæmandi og til-
boðin sífellt glæstari.
,,
Hvers vegna eru jól?
Gates selur Slate
Netnotkun eykst hröðum skrefum um
heim allan með degi hverjum. Það sýna
mælingar. Fjölmiðlar laga sig að hinum
nýja veruleika með því að auka starf-
semi sína á netinu enda fer áhugi aug-
lýsenda á miðlinum vaxandi við þessar
fréttir um leið og áhugi á hefðbundn-
um miðlum, ekki síst prentmiðl-
um sem víða eru að tapa les-
endum, fer heldur dvínandi. Ein
birtingarmynd þessarar þróunar
eru kaup bandaríska dagblaðsins
Washington Post á vinsælasta
vefritinu vestanhafs, Slate.com, sem
líklegt er að fjöldi manna hér á landi
les daglega. Slate hefur verið haldið úti
af Microsoft, fyrirtæki Bill Gates, í tæp-
an áratug og vakið athygli fyrir vand-
aða umfjöllun um málefni líðandi
stundar. Engar breytingar munu fyrir-
hugaðar á starfsmannahaldi og rekstri
Slate en líklegt er að hinir nýju eigend-
ur muni smám saman reyna að ná
fram samlegðaráhrifum. Washington
Post hefur átt erfitt uppdráttar að und-
anförnu og hafa eigendur þess meðal
annars brugðið á það ráð að gefa sam-
hliða út svokallað „metró-blað“, frétta-
blað sem byggir á augýsingatekjum og
dreift er ókeypis á fjölförnum
stöðum í höfuðborg Banda-
ríkjanna.
Amazon.com brást
Ekki eru fjölmiðlar einir
fyrirtækja um að nýta sér
vefinn. Æ algengara er að
menn stundi þar verslun og viðskipti.
Mikil umferð hefur verið um netið
vegna jólainnkaupa og hafa stærstu
fyrirtækin eins og bókaverslunin
Amazon.com, sem höfuðstöðvar hefur í
Bandaríkjunum, ekki haft undan að
sinna pöntunum. Lundúnablaðið Times
flutti um það fréttir í gær að þúsundir
bókapantana hefðu safnast upp vest-
anhafs og væri fyrirsjáanlegt að ekki
væri hægt að koma pökkunum til les-
enda fyrir jólin. Sams konar fréttir eru
fluttar af fleiri netsölufyrirtækjum. Skilj-
anlega hefur þetta valdið kaupendum
sem reiddu sig á netið miklum von-
brigðum og er málið bæði áfall fyrir
viðkomandi fyrirtæki og ákveðinn álits-
hnekkir fyrir netið sem slíkt; lofað hafi
verið meiru en hægt var að standa við.
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI
RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is
SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS
JÓLAHUGVEKJA
HERRA KARL
SIGURBJÖRNSSON
BISKUP ÍSLANDS