Fréttablaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 2
2 7. febrúar 2005 MÁNUDAGUR
TEHERAN, AP Íranar skora á Evrópu-
sambandið að taka viðræður um
kjarnorkuáætlun Írana alvarleg-
ar. Fulltrúi stjórnarinnar sagði á
blaðamannafundi að Íranar hefðu
slegið á frest áætlunum sínum um
að auðga úran, en það er forsenda
framleiðslu kjarnorkuvopna.
Evrópusambandið hefur þrýst
mjög á Íran að hætta við kjarn-
orkuáætlun sína og hefur boðist
til að láta styðja Írana fjárhags-
lega og tæknilega ef þeir verða
við þeirri kröfu.
Stjórnvöld í Íran harðneita að
markmið kjarnorkurannsókna
þeirra sé framleiðsla vopna.
Þessu trúa Bandaríkjamenn ekki
og hafa á síðastliðnum vikum haft
í frammi stöðugt þyngri gagnrýni
á írönsk stjórnvöld.
Hamid Reza Asefi, talsmaður
utanríkisráðuneytis Írans, sagði
á blaðamannafundi í gær að
stjórnvöld í Bandaríkjunum
stefndu að því að auka spennu í
samskiptum Írans og Vestur-
landa. Íranar óttast að Banda-
ríkjamenn hyggi á hernaðarað-
gerðir gegn landinu.
Íran er aðili að samningi gegn
útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Stjórnvöld þar telja sig hafa allan
rétt til að þróa kjarnorkutækni til
rafmagnsframleiðslu og neita að
falla frá þeim áformum. ■
Sextán fíkniefnamál í miðbænum á þremur klukkutímum:
Fjöldi mála staðfestir mikla neyslu
FÍKNIEFNI Sextán fíkniefnamál
komu upp á tæplega þremur
klukkutímum í miðbæ Reykjavík-
ur aðfaranótt laugardags. Ásgeir
Karlsson, yfirmaður fíkniefna-
deildar lögreglunnar í Reykjavík,
segir málafjöldann staðfesta að
mikil fíkniefnaneysla sé samfara
skemmtanalífinu í miðborginni.
Mest fannst af kókaíni og am-
fetamíni en þó eitthvað af kanna-
bisefnum.
Í fimmtán málanna fundust
fíkniefni í fórum fólks en málin
komu upp inni á sjö skemmtistöð-
um. Í einu tilviki var komið að
þremur einstaklingum sem áttu
viðskipti með fíkniefni við bíl í
Tryggvagötu. Þremenningarnir
voru handteknir og gistu fanga-
geymslur en voru yfirheyrðir
daginn eftir. Í fórum þeirra fund-
ust sex til sjö grömm af ætluðu
amfetamíni.
Fíkniefnaeftirlitið hófst klukk-
an tólf á miðnætti og stóð til að
verða klukkan þrjú um nóttina.
Ásgeir segir þó yfirleitt mest vera
að gera í miðbænum frá klukkan
tvö til fjögur. Hann segir lögregl-
una alltaf fylgjast með fíkniefna-
neyslu þó að þarna hafi verið lögð
sérstaklega mikil áhersla á fíkni-
efni. Hann segir fólk alltaf geta
átt von á eftirliti sem þessu.
- hrs
Stofna sameiginlega
nefnd um lausn fanga
Samstarf Palestínu- og Ísraelsstjórna um lausn palestínskra fanga vekur vonir
um að samningar um önnur deiluefni komist á rekspöl. Búist er við að Jerikó
fari undir stjórn Palestínumanna í kjölfar ráðstefnu í vikunni.
ÍSRAEL, AP Forystumenn í Palestínu
og Ísrael samþykktu á laugardag
að stofna sameiginlega nefnd sem
fjalla á um lausn pólitískra fanga
sem Ísraelar hafa í haldi. Þetta
kemur í kjölfar þess að Ísraelar
létu níu hundruð fanga lausa í síð-
ustu viku.
Nánustu samstarfsmen Ariels
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
og Mahmouds Abbas, leiðtoga
Palestínumanna, áttu fund á laug-
ardag þar sem samkomulag náðist
um stofnun nefndarinnar. Palest-
ínumenn höfðu áður lýst gremju
sinni yfir að ekki skyldu fleiri
fangar hafa verið látnir lausir í síð-
ustu viku en alls sitja um sjö þús-
und Palestínumenn í ísraelskum
fangelsum.
Sá árangur sem nú virðist
vera að nást í málum palest-
ínskra fanga tengist því að á
þriðjudag hefst fundur um frið-
arhorfur í Mið-Austurlöndum
í hafnarbænum Sharm el-
Sheik í Egyptalandi. Með því að
samþykkja farveg fyrir umræður
um lausn pólitískra fanga hefur því
málefni verið ýtt út af fundarborð-
inu í næstu viku. Þetta vekur vonir
um að meiri árangur náist í við-
ræðum um önnur mál, svo sem eins
og hvernig staðið verður að af-
hendingu hernumdra svæða til
Palestínumanna.
Líklegt er talið að Ísraelsemenn
láti af hendi stjórn í borginni
Jeríkó um leið og fundinum í næstu
viku lýkur. Í kjölfarið er búist við
því að þeir láti af stjórn af bæjun-
um Tulkarem, Qalqiliya, Betlehem
og Ramallah.
Málefni pólitískra fanga hefur
hingað til verið einn helsti ásteyt-
ingarsteinn í viðræðum Ísreals-
manna og Palestínumanna og hafa
Palestínumenn ekki viljað hefja
viðræður um önnur deiluefni áður
en niðurstaða fengist í málefni
fanganna. Þeir níu hundruð fangar
sem látnir voru lausir fyrir helgi
sátu allir inni fyrir annað en of-
beldisbrot en nefndin sem nú hefur
verið stofnuð mun ekki útiloka að
menn sem grunaðir eru um þátt-
töku í árásum verði látnir lausir.
Meðal þeirra sem látnir hafa
verið lausir er Qassam Barghouti,
sonur Marwans Barghouti. Qassam
var handtekinn árið
2003. Ísrealar eru hins
vegar ófáanlegir til að
ræða lausn Marwans
þar sem hann af-
plánar fimmfaldan
lífstíðardóm fyrir
þátttöku í mann-
skæðum árás-
um. ■
Vindhviður upp í 31
metra á sekúndu:
Vonskuveður
um allt land
ÓVEÐUR Vonskuveður gekk yfir
landið allt í gær og í nótt og voru
björgunarsveitir með venjubund-
inn viðbúnað, enda hætt við því að
hlutir færu að fjúka og fólk á ferli
gæti lent í erfiðleikum.
Búist var við að vindhraðinn
gæti farið upp í allt að 25 metra á
sekúndu, og í verstu hviðunum 30
metra á sekúndu. Mældist vind-
hraðinn meðal annars 31 metrar á
sekúndu á Fróðarárheiði á Snæ-
fellsnesi klukkan sjö í gærkvöldi.
Fylgdu þessu veðri töluverðar
rigningar, sérstaklega sunnan-
lands. - fgg
Blaðamannaverðlaun ársins:
Tilnefning-
arnar
tilkynntar
VERÐLAUN Tilkynnt hefur verið
hverjir eru tilnefndir til blaða-
mannaverðlauna ársins 2004, en
það er Blaðamannafélag Íslands
sem stendur fyrir veitingu verð-
launanna. Veitt eru verðlaun fyrir
þrjá flokka; rannsóknarblaða-
mennsku ársins, bestu umfjöllun
ársins og blaðamannaverðlaun
ársins og eru þrír blaða- og frétta-
menn tilnefndir í hverjum flokki.
Verðlaunin verða veitt laugardag-
inn 12. febrúar á Hótel Borg. ■
Aðalfundur
Landsbankans:
Sexfaldur
hagnaður
VIÐSKIPTI Í ræðu sinni á aðalfundi
Landsbankans á laugardaginn fór
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður bankaráðs, yfir þær breyt-
ingar sem orðið
hafa á rekstri
bankans frá því
hann var einka-
væddur fyrir
tveimur árum.
Eigið fé
L a n d s b a n k a n s
hefur ríflega þre-
faldast, eignir
hafa næstum fjórfaldast og vaxta-
og þóknunartekjur hafa tvöfald-
ast. Enn fremur benti Björgólfur
á að í fyrra var hagnaður fyrir-
tækisins sexfalt meiri en árið
2002.
Stjórn Landsbankans ákvað að
greiða öllum starfsmönnum bank-
ans 250 þúsund króna kaupauka
vegna góðs rekstrarárangurs.
- þk
Mannrán í Írak:
Biðlað til
ræningja
RÓM, AP Ítalskir blaðamenn komu
fram á al-Jazeera sjónvarpsstöð-
inni í gær og fluttu skilaboð til
mannræningja sem hafa ítalska
blaðakonu í haldi.
Í ávarpi sínu til mannræningj-
anna lögðu þeir áherslu á að rán-
ið skaðaði málstað þeirra gagn-
vart umheiminum.
Guiliana Sgrena var rænt á
föstudaginn nærri háskólanum í
Bagdad. Hún er 56 ára gömul og
starfaði á Il Manifesto, sem er
blað kommúnista á Ítalíu. Sgrena
er andstæðingur stríðsins í Írak
og hersetunnar. Ítalir binda von-
ir við að mannræningjarnir láti
Sgrena lausa sökum andstöðu
hennar við hersetuna. ■
Tvöfaldir
Vildarpunktar
Tvöfaldir
*
* T
vö
fal
dir
Vil
da
rp
un
kt
ar
til
11
. f
eb
rú
ar
hv
or
t s
em
þ
ú
g
re
ið
ir
m
eð
p
en
in
g
u
m
eð
a
V
ild
ar
ko
rt
i.
Veltupunktar til viðbótar
Auk tvöfaldra punkta fá Vildarkortshafar Visa
og Icelandair alltaf veltupunkta aukalega.
14 stöðvar
SPURNING DAGSINS
Una María, er ekki skrítið að
kæra sjálfan sig?
„Það gerðum við ekki. Það er brýnt að
hnykla vöðvana svo að Freyjustaurar hafi
ekki bein afskipti af Freyju í Kópavogi.“
Formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í
Kópavogi, krafðist þess að laganefnd Framsókn-
arflokksins ógilti aðalfund Freyju þar sem ólög-
lega hefði verið að honum staðið af sitjandi
stjórn. Stjórnin hefði ekki heldur vitað að 43 kon-
ur hefðu gengið í félagið. Una María Óskarsdóttir
er varaformaður Freyju.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FÍKNIEFNI
Þeir sem teknir voru með fíkniefni í fórum sínum inni á skemmtistöðum voru með þau í
neyslupakkningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
KREFJAST LAUSNAR FANGA
Málefni sjö þúsund palestínskra fanga í ísraelskum fang-
elsum vekja mikinn tilfinningahita meðal Palestínumanna.
Farsæl lausn á því deiluefni er talin forsenda áframhald-
andi samningaviðræðna við Ísraelsmenn og ræður miklu
um stöðu Mahmouds Abbas meðal þjóðar sinnar.
GAGNRÝNIR VESTURLÖND
Hamid Reza Asefi, talsmaður Íransstjórnar,
gagnrýndi bæði Evrópusambandið og
Bandaríkin á blaðamannafundi í gær. Íran-
ar hyggjast ekki hætta við uppbyggingu
kjarnorkuvera til rafmagnsframleiðslu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Deilur um kjarnorkuáætlun Írans:
Telja Bandaríkin
vilja skapa spennu
BÍLVELTA Á BISKUPSHÁLSI Bíll
valt á Biskupshálsi laust eftir
klukkan fjögur í gær. Ökumaður-
inn var einn í bílnum og sakaði
hann ekki, og eiga bílbeltin þar
stóran hlut að máli. Bíllinn var
ekki talinn illa farinn en hann
hafði einungis verið þrjá daga á
götunni.