Fréttablaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 65
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
2. sýning 13. febrúar kl. 19 – FÁAR SÝNINGAR
Miðasala á netinu; www.opera.is
Netfang miðasölu; midasala@opera.is • Sími miðasölu: 511 4200
Banki allra landsmanna
Aldrei fleiri
Verðdæmi á mann
áfangastaðir!
Verð frá 47.066 kr.*
Costa del Sol
57.438 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
*á mann m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting, 10.000 bókunarafsláttur og flugvallarskattar.
á Skala í 7 nætur.
á Elimar í 7 nætur.
á Halley í 7 nætur.
Verð frá 49.400 kr.*
Krít
60.100 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 39.500 kr.*
Portúgal
54.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 38.730 kr.*
Mallorca
47.730 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 34.230 kr.*
Benidorm
46.300 kr. ef 2 ferðast saman.
Nokkrir góðir dag-
ar án gluggapósts
Til að elska föðurlandið ennþáheitar er gott að bregða sér til
útlanda af og til. Fjarlægðin gerir
fjöllin blá og mennina skrýtna.
Föðurlandsástin byrjar strax að
krauma þegar flugliðar hafa lokið
við að færa stórbændum á sagaclass
endurnærandi drykki og tímarit að
fela sig á bak við meðan lowclass
búsmalinn silast eftir þröngri kinda-
götu áleiðis í gripahólfið. Hjörtun á
lowclass hoppa af stolti yfir því að
svona fáir skuli geta kostað svona
marga til að ferðast ókeypis svona
oft.
ÖRFÁIR ÚRTÖLUMENN hafa
haldið því fram að það sé fráleitt að
svona margir höfðingjar þurfi að
ferðast á kostnað þeirra sem ekki
hafa efni á að ferðast, og neita að
skilja sögulegt mikilvægi þess að
ráðherrar Íslands séu ekki færri en
postularnir (meira að segja að við-
bættum Júdasi). Þetta sama farisea-
tittahyski telur það vera ofrausn að
halda sig með 30 sendiherra til að
gæta hagsmuna Íslands á alþjóða-
vettvangi, þar af 15 með aðsetur í
Reykjavík, þótt það sé augljóst að
því minna sem landið er, þeim mun
stærri þarf utanríkisþjónustan að
vera og svo sparast gífurlegt fé við
að hafa sendiherra fremur heima en
erlendis.
SANNUR ÍSLENDINGUR fyllist
heimþrá eftir nokkra góða daga án
gluggapósts og leitar heim í átthag-
ana á Netinu. Þar segir af margvís-
legum sparnaði til hagsbóta fyrir
okkur smáfólkið: Forseti Íslands er
kominn í launalaust leyfi til vina-
fólks síns á Indlandi; forsætisráð-
herrann í launalaust leyfi til útlanda
en því víðlenda prestakalli þjónaði
hann um árabil; og okkar ástsæli ut-
anríkisráðherra hefur líka drifið sig
til útlanda þótt hann hafi í sínu fyrra
starfi forðast þau eins og pestina,
enda liggja góðir bændur sjaldnast í
bæjaflakki heldur hafa vakandi
auga á hjúum sínum.
TIL AÐ GEGNA þessum 3 topp-
stöðum í þjóðfélaginu hefur verið
ráðinn 1 maður (sem er á kaupi
hvort sem er). Hann mun fara með
víðtækara umboð til að stjórna Ís-
landi en nokkur annar síðan Jörund-
ur hundadagakonungur ríkti (í sjálf-
boðavinnu) eitt stutt sumar á land-
inu bláa. Svona sparnað kann maður
að meta! Heimþráin hverfur við
stutt innlit á Netinu! ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR